Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 ■ STJORNENDUR ARNARFLUGS HUGÐUST BYRJA UPP A NÝTT OG HEFJA SIG TIL LOFTS UNDIR NAFNIÍSFLUGS STERKIR AÐILAR í VIÐSKIPTALÍFINU VILDU TAKA ÞÁTT, EN STJÓRNVÖLD HÖFNUÐU ÞEIRRI MÁLALEITAN ■ ARNARFLUGSMENN AFÞÖKKUÐUI BYRJUN ÁRS KAUPTILBOÐ FRÁ SKÚLA ÞORVALDSSYNI, ÓMARI BENEDIKTSSYNI OG FLEIRUM eftir Kristjón Þorvaldsson MARGT bendir til að síðasta björgnnaráætlun stjórnenda Arnarflugs hafi runnið út í sandinn. í raun voru þeir búnir að gefa upp von um framtíð félagsins, en sáu þann leik á borði að hefja sig til flugs undir nafninu ísflug. Sterkir aðilar í viðskiptalífinu voru reiðubúnir til samstarfs á nýjum grunni, en stjórnvöld höfnuðu draumalendingunni. Nú blasir sú staðreynd við Arnar- flugsmönnum, að keppinauturinn Flugleiðir sér um að halda uppi flugi á áætlunarleiðum félags- ins samkvæmt tímabundnu ley fi samgönguráðuneytisins og Arnarflugsmenn hafa tveggja mánaða frest til að finna sér tilverugrunn. Fyrirtækið hefur hvorki fullvissu fyrir því að sam- gönguráðherra veiti þvi áframhaldandi leyfi á áætlunarleiðum, né að Ijármálaráðherra standi við fyrirheit ríkisstjórnarinnar frá mars í fyrra um fjárhagsaðstoð. Boltinn er hjá Arnarflugs- mönnum, sem eina ferðina enn leita að hinu ómögulega; eðlilegum skilyrðum til reksturs í samkeppni við Flugleiðir og í vaxandi samkeppni við erlend flugfélög. Kristinn Sigtryggsson. Óvíst um stöðu hans. Hörður Einarsson. Vinnur ötullega á bak við tjöldin. Víghindur Þorsteinsson. Stuðningsmaður fsflugs. Steingrímur Hermannsson. Stcingrímur J. Sigfússon. Sá Velvildarmaður Arnarflugs scm Arnarflugsmenn óttast frá upphafi. mest. aga Amarflugs er ekki löng, en spennuþrungin og mögnuð. Fyrirtækið hóf rekstur á rústum Air Viking 10. apríl 1976. Guðni Þórðarson, ferðaskrifstofunni Sunnu, hafði beitt sér fyrir stofnun Air Viking og var félag- ið fyrst um sinn í sólarlandaflugi, en hóf síðan leiguflug óbeint inn á áætlunarleið Flugleiða til Kaup- mannahafnar. Stjómvöld vora þá nýbúin að beita sér fyrir sameiningu Flugfélags íslands og Loftleiða og komu í veg fyrir að þetta framtak Air Viking gengi eftir, sviptu m.a. félagið flugleyfi fyrirvaralaust. Þeg- ar hér var komið sögu var farið að halla verulega undan fæti hjá fyrir- tækinu. Það endaði með gjaldþroti í janúar 1976 og sátu þrír stærstu kröfuhafar félagsins, Olíufélag is- lands, Samvinnubankinn og Alþýðu- bankinn, eftir með vélar þess og starfsmenn áttu ekki möguleika á vinnu hjá nýja risanum Flugleiðum. Því sameinuðust þessir aðilar og stofnuðu Arnarflug. Velvild en mikill mótbyr Forstjóri var ráðinn Magnús Gunnarsson, núverandi fram- kvæmdastjóri SÍF. Undir stjórn Magnúsar náði Arnarflug góðum árangri og í dag sjá gamlir starfs- menn félagsins þann tíma fyrir sér í miklum ljóma. Amarflug naut póli- tískrar velvildar á þessum áram, einkum Framsóknarflokksins, m.a. vegria þátttöku Sambandsfyrirtækj- anna, Olíufélagsins og Samvinnu- bankans, í rekstrinum. Þá var ljóst að félagið naut einnig velvildar sam- taka launafólks, sem nú vora að fara í samstarf við SÍS um ferðaskrifstof- una Samvinnuferðir-Landsýn, sem var lengst framan af stór viðskipta- vinur Amarflugs. En fljótlega kom niðursveifla. Fyr- irtækið varð fyrir ýmsum óhöppum og ófyrirséðum kostnaði vegna véla og á árinu 1978 komu Flugleiðir inn sem meirihlutaaðili, eignuðust 57%, en Arnarflug var áfram rekið sem sjálfstætt fyrirtæki. Bein afskipti Flugleiða af Amarflugi fengu skjót- an endi. Á árinu 1981 krafðist Al- þingi þess að félagið seldi starfs- mönnum Arnarflugs 17% í félaginu. Þar með vora Flugleiðir búnar að missa meirihluta í Amarflugi og árið 1986 seldi fyrirtækið 40% hlut sinn til Helga Þórs Jónssonar, þess er reisti Hótel Örk í Hveragerði. Þrátt fyrir pólitíska velvild ýmissa aðiia hefur Árnarflug aldrei getað gengið að neinu vísu hjá ríkisvald- inu. Við sameiningu Loftleiða og Flugfélags Islands árið 1973 var sú stefna stjómvalda ljós að hér yrði einungis eitt innlent flugfélag sem stundaði áætlunarflug. Viðbrögð stjórnvalda gagnvart Air Viking höfðu sannað þá kenningu svo og synjun á umsóknum Amarflugs um áætlunarleiðir. Því kom mörgum í opna skjöldu þegar Steingrímur Her- mannsson samgönguráðherra veitti í fyrsta sinn frá 1973 öðram aðila en Flugleiðum heimild til áætlunar- flugs. Um var að ræða flugfélagið fscargó, í eigu Kristins Finnbogason- ar, flokksbróðurs Steingríms, sem um áramót '80/81 fékk úthlutað áætlunarleiðinni til Amsterdam. Ekki gekk sem skyldi hjá íscargó og á endanum keypti Ámarflug eignir félagsins, að margra mati á of háu verði, vegna pólitísks þrýstings. Ör- fáum dögum síðar fékk Amarflug úthlutað áætlunarleiðinni til Amster- dam, en auk þess hafði Steingrímur úthlutað því leyfi til Dússeldorf og Zúrich: Nokkuð er deilt um pólitísk afskipti í þessu máli, hvort fingraför Steingríms Hermanssonar megi greina í viðskiptum Arnarflugs og Iscargó. Allt frá þessum tíma hefur Steingrímur Hermannsson þótt vel- viljaður fyrirtækinu og sjálfur segir hann eðlilegt að hér sé samkeppni milli innlendra aðila í millilandaflugi. Afdrifaríkt pílagrímaflug Sú ákvörðun sem að margra mati hefur haft afdrifaríkastar afleiðingar í för með sér fyrir Arnarflug, er pílagrímaflugið árið 1985, Alsírverk- efnið svokallaða. í harðri samkeppni við Flugleiðir og fjölda erlendra flug- félaga náði Arnarflug samningum og á örskömmum tíma, nokkram vik- um, var flugfloti félagsins orðinn á stærð við SAS-flotann. Þegar mest var vora vélarnar 12. Þetta gat ekki endað öðravísi en með hvelli lík og jafnan með ofblásnar blöðrar. Ýmsir viðmælendur Morgunblaðsins telja að strax um haustið 1985 hafi fyrir- tækið í raun verið gjaldþrota. Þetta vissu ekki hinir nýju aðilar sem komu inn í fyrirtækið á aðalfundi 12. júlí 1986. Þeir voru í rauninni að kaupa annað fyrirtækið en það sem þeir skoðuðu í byijun árs 1986. Allan tímann sem þeir vora að velta málinu fyrir sér var félagið rekið með bull- andi tapi og þegar þeir tóku loks við var eiginfjárstaðan neikvæð um 300 milljónir króna á þávirði. Þeir lögðu til við stjórnvöld að þeir fengju að kaupa áætlunarflugið eingöngu og stofna um það nýtt félag. Þessu höfn- uðu stjómvöld af ótta við að Amar- flug yrði gjaldþrota. Það var talið mjög óheppilegt strax eftir gjaldþrot Hafskips. Allar götur síðan hefur félagið verið að ýta á undan sér rekstrarhalla og hefur hlutafjáraukn-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.