Morgunblaðið - 09.09.1990, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990
13
Benediktsson, sem rekur ferðaskrif-
stofuna Island Tours, til að ganga
inn í fyrirtækið. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins hljóðaði tilboðið
upp á 100 milljónir króna, fyrir
70-90% af hlutafé. Á svipuðum tíma
fengu Arnarflugsmenn tilboð frá
Svavari Egilssyni kaupsýslumanni
og hópi manna, sem þeir töldu mjög
aðgengilegt. Svavar hugðist koma
með 200 milljónir króna inn í fyrir-
tækið að ákveðnum skilyrðum upp-
fylltum. Svavar kom hins vega aldrei
með 200 milljónir, heldur einungis
50 milljónir sem hann lagði fram
strax m.a. í formi pappíra sem stjóm-
armenn í Arnarflugi voru að miklu
leyti ábyrgðarmenn fyrir. „Við teljum
að þessar 50 milljónir séu ekki komn-
ar inn í félagið," segir Geir. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hafa þegar fallið ábyrgðir á nokkra
af stjórnarmönnum Amarflugs. Geir
Gunnarsson staðfesti þetta, en vildi
ekki ræða upphæðir í því sambandi.
Eftir að Svavar gekk til samstarfs
við félagið settist hann um skeið sem
framkvæmdastjóri við hlið Kristins
Sigtryggssonar, var ráðinn til þriggja
mánaða samkvæmt yfirlýsingu frá
félaginu. Reyndar hefur staða Krist-
ins verið óljós allt þetta ár, hefur
hann verið settur til hliðar í sérverk-
efni öðm hvom, nú síðast til viðræðu
um hugsanlegt samstarf við flugfél-
ag undir nafninu Emerald Air á Ir-
landi, sem ætlað er að hefja rekstur
í nóvember. Varðandi stöðu Kristins
segja Arnarflugsmenn einungis, að
nýir menn hljóti að koma til ef tak-
ist að reisa fyrirtækið við.
Það sem af er þessu ári hefur orð-
ið mikill atgervisflótti frá Amar-
flugi. í febrúar/mars var öllum sagt
upp vegna endurskipulagningar. Upp
úr því yfirgáfu margir af traustustu
■ EIGNARHLUTUR
SVAVARS EGILS-
SONAR í FÉLAGINU
ER MJÖGÁREIKI.
STJORNARMENN
ERU AÐ VERULEGU
LEYTI í ÁBYRGÐUM
FYRIR ÞEIM 50 MILLJ-
ÓNUM KRÓNA SEM
HANN LAGÐITIL
FYRIRTÆKISINS.
Punktar úr sögu Arnarflugs
1976 Fyrirtækið stofnaó.
1978 Flugleiðir eignast meirihluta, 57%.
1979 Aætlunarflug hefst innanlands
1981 Samhliða fyrirgreiðslu rikisins gagnvart Arnarflugi krefst Alþingi
þess aó Flugleiðir selji meirihluta sinn í fyrirtæidnu. Starsfmenn
keyptu 17%, en Flugleiðir óttu ófram 40%.
1982 Áætlunarflug heíst til Amsterdam, Zurich og Dusseldorf.
1986 Aætlunarflug hefst til Hamborgor. í maí kaupir Helgi Þór Jónsson
40% hlut Flugleiðo. Þann 12. júlí koma nýjir aðilar koma inn,
Hörður Einarsson, DV, verður stjórnarformaður.
1988 Áætlunarflug hefst til Mílanó.
1990 Aætlunarleyfum til allra staða skilað inn, þann 1. september.
Tveggja mónaða frestur til að tryggja framtíð félagsins.
starfsmönnum fyrirtækið. Magnús
Oddsson, markaðsstjóri hætti störf-
um, Arngeir Lúðvíksson deildar-
stjóri, Þórður Jónsson, deildarstjóri
fjármála, yfirmaður fragtskrifstofu,
yfirmaður söluskrifstofu, yfirflug-
stjórinn og fleiri. Nú var fyrirtækið
komið í mikinn vanda stjórnunarlega,
til viðbótar þeim rekstrar- og fjár-
hagsvanda sem það átti við að glíma.
Svo slæmt var ástandið eftir þetta,
að illa gekk að innheimta útistand-
andi skuldir, svo sem hjá öðrum flug-
félögum vegna farmiðasölu, auk þess
sem markaðsstarf lá að mestu leyti
niðri.
Hræddastir við
samgöngxiráðherra
Framkvæmdastjórarnir
Magnús Gunnarsson fró 1976-1981.
Gunnar Þorvaldsson fró 1981-1982.
Agnar Friðriksson fró 1983-1986.
Kristinn Sigtryggsson fró 1987.
Hlutafé í fyrirtækinu er nú um
350 milljónir. Því er ljóst að þeir sem
hafa barist fyrir tilveru Arnarflugs
síðustu árin eru búnir að leggja mik-
ið undir og geta ekki meir. Viðbót-
arfjármagn verður að koma frá aðil-
um sem standa utan við núverandi
hóp eigenda. í sumar fóru stjórnar-
menn að vinna að því að fá nýja
menn inn í félagið. Fyrir ári höfðu
þeir stofnað nýtt félag, ísflug og nú
voru nýir aðilar til í koma í samstarf
með hreint borð. í ágúst var eina
leiðin fyrir Amarflugsmenn til að
halda áframhaldandi flugrekstri, að
fá stjómvöld til að samþykkja að
ísflug yfirtæki áætlunarleiðir Arnar-
flugs. „Við töldum að með því að
ísflug myndi fljúga, yrði lendingin
mýkri, höggið minna fyrir þá aðila
sem að því standa,“ segir Geir.
Víglundur Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri BM Vallá og formaður
Félags íslenskra iðnrekenda var í
þeim hópi sem var reiðubúinn að
koma inn í rekstur ísflugs. Að auki
hefur Morgunblaðið heimildir fyrir
því að Fóðurblandan, Reykvísk end-
urtrygging og ýmis innflutningsfyr-
irtæki hafi lýst áhuga á því að taka
þátt.
Um síðustu mánaðamót tóku
Flugleiðir yfir rekstur á áætlunar-
leiðum Arnarflugs, til tveggja mán-
aða. Amarflug hefur ekkert vilyrði
fyrir því að fá leyfin aftur í sínar
hendur. Á sama tíma þarf félagið
að vera búið að endurskipuleggja sig
fjárhagslega og ganga frá málum
gagnvart fjármálaráðuneytinu. En
hvemig ætla Amarflugsmenn að
bregðast við? Geir Gunnarsson segir
fyrsta verkefnið að innheimta úti-
standandi skuldir, endurskipuleggja
bókhaldið og innri stjórn. „Samhliða
þarf að vinna að endurfjármögnun.
Það er næsti þröskuldurinn. Við emm
raunar hræddastir við að samgöngu-
ráðherra hafni því að félagið fái flug-
leyfið aftur, jafnvel þótt það komist
á núllpunktinn. Hins vegar hafa
bæði Ólafur Ragnar og Steingrímur
Hermannsson lýst því yfir að hér
eigi að vera tvö flugfélög og eigi
stjórnvöid að stuðla að því.“
Sumarauki á Benidorm
4.október
Þriðja vikan ókeypis
Þú getur tryggt þér síðustu sætin í sólina í haust og komist til Benidorm á einstökum kjörum þann 4. október þar
sem ennþá er hásumar og allt í fullum gangi.
Kynntu þér verðið.