Morgunblaðið - 09.09.1990, Síða 16

Morgunblaðið - 09.09.1990, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 Eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur / Teikning Gísli J. Ástþórsson ÞAÐ VAR ys og þys í morgunverðarsalnum á Hót- el Intercontinental í Amman þegar ég kom niður um sjöleytið lyrsta morguninn. Blaðið Jordan Ti- mes lá frammi, Reuter-skjárinn var við dyrnar svo enginn þyrfti að missa af neinu. í salnum voru blaðamenn heimsins að fá sér máltíð. Þeir borðuðu hratt og örugglega. Þeir voru ábyrgir og fjálglegir utan um sig. Við sum borðin var rætt hástöfum um hvað lægi fyrir að gera. Aðrir stungu laumulega saman nefjum og hvísluðust á; það voru blaðamennimir sem töldu sig hafa komist að ein- hverju bitastæðu og hugðust gæta þeirrar vitn- eskju eins og sjáaldurs auga síns. Það skrjáfaði í blöðum, myndavélar, sjónvarpsvélar, segulbands- tæki.töskur, blokkir og pennar út um allt. að fór ekki framhjá neinum hveijir hér voru á ferð. Blómi blaðamanna- stéttarinnar, sérfræðingar um heimsmálin. Stællegir og töff, frjáls- legir í fasi og sjálfsöruggir. Virtust hafa allt á hreinu. Heimurinn hlaut að fá sannar og smart fréttir frá þessu hörkuliði. Mikið fannst mér ég lítið peð í nánd við þetta fólk sem lýsti langar leiðir af sjálfsöryggi og vísdómi. Eftir morgunmatinn var brunað burt á bflaleigubílum eða sérpöntuð- um leigubílum og_ menn voru ábúð- armiklir á svip. „Ég fæ viðtal í upp- lýsingaráðuneytinu" heyrði ég sænskan blaðamann segja við ljós- myndarann sinn þegar ég rölti fram- hjá. „Það getur komið mikilvæg frétt út úr því ef ég geng fast á þá,“ bætti hann við nokkuð góður með sig. Hann sagði þetta eins og hann byggist við að Stórisannleikur yrði þar á dagskrá. Hann hafði eng- ar áhyggjur þó ég heyrði hvað hann sagði. Líklega datt þeim ekki í hug að ég skildi sænsku og í öðru lagi var ég áreiðanlega ekki nógu blaða- mannsleg, ég var hvorki í léttum khaki-fötum, snjóþvegnum gallabux- um og stutterma bol né með sólgler- augu tyllt upp á hárið. Ég hafði ekkert segulband meðferðis og það beið enginn bílaleigubíll eftir mér. Það var ekki af hagsýni eða spam- aði; þó að ég hefði verið nokkrum sinnum áður í Jórdaníu hefði ég áreiðanlega villst til og frá um Am- man og líklega valdið umférðaröngþveiti. Ég settist niður í forsalnum og velti fyrir mér hvar og hvemig ég ætti eiginlega að byrja. Morgunblað- ið hafði kostað töluvert miklu til, ég þekkti málefni þessa heimshluta, hafði verið á sumum þessara staða margsinnis áður, ég hlaut að vita eitthvað í minn haus eða að minnsta kosti jafnlangt nefi mínu. En þarna um morguninn var ég farin að halda að nefíð á mér hefði dottið af, þessir sjálfumglöðu eldsnöggu kol- legar mínir fóru langt með að slá mig út af laginu með snöfurleika sínum og takmarkalausu öryggi. Stefanía Khalifeh, góð kunningja- kona mín og væntanlegur ræðismað- ur íslands í Jórdaníu, ætlaði að koma til skrafs og ráðagerða um kvöldið. Ég vissi hún var boðin og búin að snúast með mig út um allt. En mér LITIL LÍFSREYNSLUSAGA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.