Morgunblaðið - 09.09.1990, Side 33

Morgunblaðið - 09.09.1990, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 33 Aivi N N tMAUGL YSINGAR Fóstrur Foreldrarekið dagheimili í Hafnarfirði vantar fóstru eða starfsstúlku til starfa sem fyrst. Upplýsingar um uppeldisstefnu og kjör gefur forstöðukona í símum 53910 og 652677. Kranamaður Viljum ráða mann vanan byggingakrönum og bílkrönum vegna framkvæmda okkar við Blönduvirkjun. Upplýsingar í síma 95-30250. FOSSVIRKI Hannyrðaverslun Starfskraftur óskast í hannyrðaverslun. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist auglýsinga- deild Mbl. fyrir 15. september merktar: „Sept. - 9314“. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Síðumúla 39, 108 Reykjavík, sími 678500 Lausar stöður Félagsráðgjafi Laus er 100% staða félagsráðgjafa á hverfa- skrifstofu fjölskyldudeildar í Alfabakka 12. Verkefnin eru á sviði barnaverndarmála og stuðningur við einstaklinga og fjölskyldur. Til greina kemur ráðning starfsmanna með aðra háskólamenntun. Upplýsingar gefur Auður Matthíasdóttir yfir- félagsráðgjafi í síma 74544. Umsóknarfrestur er til 20. september rik. Starfsmenn f útideild Við í útideild óskum eftir starfsfólki. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og/eða starfsreynslu á sviði félags- og uppeldis- mála. Markmiðið með starfinu er fyrst og fremst að hjálpa unglingum til að koma í veg fyrir að þeir lendi í erfiðleikum og aðstoða þá ef slíkt kemur fyrir. Lögð er rík áhersla á fyrirbyggjandi starf, stuðning við einstaklinga og hópstarf. Ef þú hefur áhuga á spennandi og skemmti- legu starfi með fámennum en nánum sam- starfshóp, leggðu þá inn umsókn. Vinnutími er sveigjanlegur. Nánari upplýsingar í símum 621611 og 20365. Umsóknarfrestur er til 20. september nk. Starfsfólk f heimilishjálp Starfsfólk vantar til starfa í heimilishjálp. Vinnutími er eftir samkomulagi, allt niður í 4 tíma á viku. Þetta eru heppileg störf fyrir húsmæður og skólafólk, sem hafa hugsan- lega tíma aflögu. Nánari upplýsingar gefur Sigríður Guð- mundsdóttir í síma 678500. v Tilsjónarmenn Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar óskar eftir að ráða tilsjónarmenn. Menntun og eða reynsla á uppeldissviði æskileg. Nánari upplýsingar veitir Kjell Hymer í síma 74544. Heimilishjálp Heimilishjálp óskast í 25% starf fyrir þrjá einstaklinga, sem búa saman í íbúð í Breið- holtshverfi. Áhugasamir hafi samband við Halldóru Gunnarsdóttur, félagsráðgjafa, Vonarstræti 4, í síma 625500. Umsóknareyðublöðum skal skila til Félags- málastofnunar Reykjavíkurborgar, Síðumúlá* 39, á umsóknareyðublöðum sem þar fást. Skrifstofu- og sendistarf Vaxandi verktakafyrirtæki óskar eftir að ráða röska stúlku til skrifstofu- og sendistarfa. Ritvinnslukunnátta og eigin bíll áskilin. Góð starfsaðstaða cg starfsandi. Upplýsingar leggist inn á auglýsingadeild Mbl., merktar: „V - 8731“. Trésmiðir - verkamenn Trésmiðir og verkamenn óskast í innivinnu nú þegar. Mikil vinna. Sökkull sf, símar 680030 og 31630. Apótek Lyfjatæknir eða starfskraftur, helst vanur apóteks- og afgreiðslustörfum, óskast sem fyrst. Um er að ræða fullt starf. Skrifleg umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir miðvikud. 12. september merkt: „A- 9461 “. Þjónustufólk óskast til starfa. Reynsla skilyrði. Upplýsingar á staðnum þriðjudag kl. 13.00- 14.00 og kl. 18.00-19.00. Skrifstofustarf Útflutningsfyrirtæki á Stór-Reykjavíkursvæð- inu óskar eftir að ráða starfskraft til al- mennra skrifstofustarfa. Um er að ræða hálft starf. Umsóknir óskast sendar til auglýsingadeildar Mbl. merktar:,, Hg - 13“ fyrir 17.9.1990. Vana kranamenn vantar á byggingakrana strax. Upplýsingar hjá Eyþóri í síma 53999 á virkum dögum, á kvöldin og um helgar í síma 673008. HAGVIBKI Húshjálp íNoregi Fullorðin stúlka óskast til að sjá um stórt hús í miðborg Osló. Skilyrði að viðkomandi tali góða norsku. í heimili eru hjón ásamt 15 ára ungling. Viðkomandi þarf að vera vön að: - laga mat - halda húsinu hreinu - halda öllu í röð og reglu Öll nýtískuþægindi eru til staðar á heimilinu. Ef þú ert rétta stúlkan býðst þér svefnherb. m/stofu og stóru baði, góð laun og fín vinnuað- staða. Þarf að geta byrjað ca október nk. Flug- miði til og frá íslandi verður borgaður. Vinsamlegast sendið umsóknir til: Fru Yvonne Stenersen, Guldbergs vei 29, 0375 Oslo 3, Norge. Umsóknarfrestur er til 15. september. Nánari upplýsingar í síma: 9047-2-55 40 50 milli kl. 9-16. Spyrjið eftir Katrine Angell Fixdal. Starfskraftur Opinber stofnun óskar eftir starfsmanni til að annast tollskýrslugerð, verðútreikninga auk almennra skrifstofustarfa. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir fimmtudaginn 13. september merktar: „XY - 3198“. Félagasamtök óska eftir starfskrafti í fullt starf við bókhald og almenn skrifstofustörf. Þekking á tölvum nauðsynleg. Góð vinnuaðstaða. Umsóknir skilist á auglýsingadeild Mbl. merktar: „C - 8397“ fyrir föstudaginn 14. september nk. NiB Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) var stofnaður árið 1976 af Norðurlöndunum fimm. NIB veitir lán til samnorrænna verk- efna. Aðalstöðvar bankans eru í miðborg Helsinki í Finnlandi. Starfsmenn bankans eru 85, starfsemin fer fram á dönsku, norsku eða sænsku. Velta NIB árið 1989 var 5,6 milljarðar Bandaríkjadollara. Núverandi svæðisstjóri íslands hjá NIB hverfur til ann- ars starfs innan NIB og því leitað að nýjum svæðisstjóra. Svæðjsstjóri fyrir ísland Starfssvið: - Markaðssetning NIB á íslandi. - Leggja mat á verkefni og vinna úr lánsum- sóknum. - Samingagerð við lántakendur og aðra banka. - Tillögugerð varðandi lánveitingar til út- lánanefndar og stjórnar NIB. - Fylgjast með verkefnum og afgreiddum lánum. Kröfur til umsækjenda: - Haldgóð þekking á íslensku atvinnulífi. - Starfsreynsla hjá fjármálastofnun og/eða reynsla af stjórnun fjármála hjá íslensku iðnfyrirtæki. - Góð kunnátta í ensku og Norðurlandamálum. Starfið felur í sér mikil samskipti, bæði við einkafyrirtæki, opinberar stofnanir og alþjóð- legan fjármálamarkað. Bankinn býður samkeppnishæf kjör, áhuga- verð verkefni og góð starfsskilyrði. Innflytj- andi til Finnlands er skattlagður samkvæmt sérstökum lögum. Bankinn aðstoðar við útvegun húsnæðis. Nánari upplýsingar um starfið veita Þorsteinn Þorsteinsson, aðstoðarbankastjóri hjá NIB, í síma 90-358-0-18001, og Þórir Þorvarðarson, hjá Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., í síma 83666. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem algjört trúnaðarmál. Umsóknum á dönsku, norsku eða sænsku, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist til Þóris Þorvarðarsonar, hjá Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., Grensás- vegi 13,108 Reykjavík, fyrir23. september nk. Hasvai neurhf Grensásvegi 13 Reykjavík 1 Sími 83666 Ráðningarþjónusta Reksfrarráðgjöf Skoðanakannanir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.