Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 LIFRIKI Tjörnin að taka við sér Olafur K. Nielsen líffræðingur var með fingur á púlsi lífríkis Tjarnarinnar í sumar eins og síðustu sumur. Að þessu sinni var Jóhann Óli Hilmarsson með í starf- inu, en Ólafur þurfti að vera fyrir norðan á fálkaslóðum við athugan- ir, en hann hefur auk þessa og sam- hliða Tjarnargæslunni staðið fyrir víðtækustu athugunum á íslenska fálkanum sem gerðar hafa verið. Ólafur sagði í samtali við Morgun- blaðið að í sumar hefði fuglavarp verið yfirleitt í góðu lagi og miklu betra en en tvö undangengin sumur. „Eitt mesta kríuvarp á Tjörninni fyrr og síðar fór fram í sumar, en alls voru hreiðrin 130. Yfirleitt hrynja ungagreyin niður og gerðu svo einnig nú. Það komust ekki nema 20 til 30 ungar úr öllum þess- um hreiðrum, en það telst nokkuð gott. 1988 komust til dæmis ekki nema 5 ungar á legg úr öllu varp- inu. í fyrra heppnaðist varpið hins vegar með eindæmum vel, þá kom- ust 40 til 50 ungar á legg,“ sagði Ólafur. Þá sagði Ólafur að grágæs fjölg- aði ár frá ári og í haust hefði hann við fleiri menn smalað saman tæp- lega 100 gæsum í sárum til merk- ingar. Þar 'af voru um 50 ungar. „Þetta byijaði fyrir um tíu árum og í vor voru 17 til 18 hreiður í Vatns- mýrinni. Þau eru yfirleitt fyrir innan Ólafur K. Nielsen hefur einnig stundað rannsóknir á fálkum og myndin sem hér er, er af honum á fálkaslóðum. 4 > Fílar dansa ekki tangó... ...á árshátíð hjá okkur - en glæsilegar aðstæður, tónlistin, vel heppnuð skemmtiatriði, spennan í loftinu og kátir félagar gera kvöldið ógleymanlegt. Við leggjum allt til - þú ræður valinu: .....Veislubúna sali af ýmsum stærðum .............—...........Frábært starfsfólk ............ .......Hæfustu matreiðslumeistara .....................Nýja og spennandi rétti ................ Ráðgjöf um val á hljómsveitum og skemmtikröftum Allt innifalið í hagstæðu verði. Hafðu samband við okkur í síma 29900. -lofargóðu! flugvallargirðinguna og fá því að vera í friði," sagði Ólafur. Tjarnar- gæsimar eru yfirleitt staðfuglar og eru á Tjöminni á veturnar, en ann- ars er grágæsin farfugl og því vek- ur þetta háttarlag athygli. i Auk þessa eru fimm andategund- ir sem verpa við Tjömina. Stokk- öndin er algengust og sagði Ólafur að varpið hefði komið vel út hjá henni og miklu betur en tvö síðustu sumur sem hefðu verið afleit. Garg- öndin var liðfá að þessu sinni, að- eins tvær kollur komu með unga, en flestir drápust og aðeins tveir komust á legg. Duggöndin er á undanhaldi að sögn Ölafs og þar voru um 10 pör í sumar sem gekk illa hjá. Skúföndin var miklu al- gengari, það voru um 25 kollur og helmingi fleiri steggir og varpið hefði gengið ágætlega. Loks má nefna æðarfuglinn, en hjá honum hefðu um 100 ungar komist á fót úr 40 hreiðrum. „Æðarfuglinum hefur fækkað á Tjörninni, hér áður voru þetta 50 til 60 hreiður," sagði Ólafur. Loks var Ólafur spurður út í sílamávagerið á Tjöminni og hvem- ig rómantíkin hefði breyst úr því að reyta gömlu brauði í svangar endur og í það að varpa brauðinu í gargandi mávaskolta. Og hvernig á því hefði staðið, að engin herör var skorin upp gegn gerinu í sum- ar. Ólafur svaraði: „Það var mikið af sílamávi, en ekkert meira en í fyrra. Sílamávurinn tekur mikið af andarungunum og einstaka sílamá- var ganga lengra en aðrir og sækja grimmt í ungana, sérstaklega þegar þeir em litlir. Ég efa að ungataka sílamáfsins hafi úrslitaþýðingu i því hvernig varp einstakra fugla geng- ur ár frá ári. í fyrra skutum við mikið, fómm daglega niður eftir og skutum og skutum. Við drápum alls um 120 sílamáva, en það mátti ekki slá slöku við, þá vom þeir óðara komnir aftur ef það var ekki skotið reglulega. Með þessu móti gátum við haldið fuglinum í skefjum á Tjörninni. Þetta hafði hins vegar verri afleiðingar, skothríðin fældi aðra fugla svo og fólk sem var komið til að gefa öndunum brauð. Það var því lítið skotið í sumar, rétt að meindýraeyðir fargaði nokkmm fuglum. Þá var gerð til- raun með búr úti í hólma sem fugl- inn komst ofan í, en ekki upp úr á nýjan leik. Slík búr hafa verið notuð til að fanga silfurmáfa þar sem þeir hafa verið að ganga af varpl- öndum dauðum, og gefist vel. Er fyrsti sílamávurinn var kominn ofan í og barðist þar um, var hópnum hins vegar ljóst að hér var hættu- spil á ferð og lét sflamávurinn ekki sjá sig í hólmanum aftur!“ IIÝTT SÍbAAvNUNAE^ prentmyndagerðar-. (IsAYNDAMOT^

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.