Morgunblaðið - 15.09.1990, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1990
13
Kiwi
Actinidia chinensis
Blóm vikunnar
Umsjón Agústa Björnsdóttir
182.þáttur
Nýja-Sjáland er heimaland þess
ávaxtar er við í dag köllum kiwi.
Upprunalega er hann lítið brúnt
ber er vex villt í Yangtze-dalnum
í Kína, Actinidia chinensis, eða
kínversk stikilsber. Mjög eru þau
þó frábrugðin þeim stikilsbeijum
sem hér eru ræktuð í görðum enda
er það allt önnur tegund sem heit-
ir Ribes grossularia.
í byrjun þessarar aldar hafði
evrópskur innflytjandi til Nýja-Sjá-
lands með sér nokkur fræ þangað
og plöntur upp af þeim uxu og
döfnuðu með ágætum. Þó þeim
hafi mest verið plantað til skrauts
í upphafi, fóru fljótlega að koma
fram plöntur, sem skáru sig frá
aðaltegundinni vegna stærri og
sætari beija er urðu vinsæl sölu-
vara, en það var þó ekki fyrr en
á þriðja áratugnum að markviss
rætkun til ávaxtaframleiðslu hófst.
Nafn kiwi-fuglsins, sem er tákn
Nýja-Sjálands, fékk ávöxturinn
fyrst árið 1962 er hann var mark-
aðssettur í Bandaríkjunum. Þó
Nýsjálendingar séu enn stærstu
framleiðendumir er vaxandi fram-
leiðsla í Frakklandi, á Ítalíu, í
Bandaríkjunum og Japan. Kiwi er
hraðvaxta lauffellandi vafnings-
runni með hvítum blómum og frek-
ar stórum hjartalaga blöðum.
Hann er sérbýlisjurt svo það þarf
bæði karl- og kvenplöntu til þess
að fá ávexti. I bókinni „Drivhuset“
eftir Helge Petersen, sem gefin var
út í Danmörku fyrir nokkrum árum
af Politikens forlag, eru smáleið-
beiningar um ræktun í heimilis-
gróðurhúsi og þar segir meðal
annars að ef hægt sé að komast
yfir plöntur sé ekkert því til fyrir-
stöðu að ræktun þeirra geti tekist
vel. En í stórum dráttum er um
svipaða aðferð og á vínviði að
ræða. Bruno, Hayward og Monty
em nefndar þar sem góðar tegund-
ir.
Nú veit ég ekki hvort rætur
hafa verið fluttar hingað til lands,
en ef einhvern langar til að sjá
hvernig plantan lítur út, er hægt
að sá litlu svörtu kjörnunum og
fá gerðarlega gluggaplöntu, þó
ekki sé ávaxtuppskeru að vænta,
því hætt er við að svo kynbættri
plöntu bregði tiLforfeðranna ef um
sáningu er að ræða.
Svanlaug Björnsdóttir,
Húsavík.
Kiwi-ávöxturinn er ljúffengur og sagður afar bætiefnaríkur.
Þ.ÞORGRÍMSSON &C0
f RUTLAND
ÞÉTTIEFNI
Á ÞÖK - VEGGI - GÓLF
ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640
Vertu öruggur!
Veldu GoldStar!
GoldStar símkerfin
eru hvarvetna viður-
kennd fyrir gæði og
hugvitsamlega
hönnun.
• Ótal möguleikar fyrir
allar stæröir fyrirtækja.
• Vönduð uppsetning og
forritun. 100% þjónusta.
• Tugir ánægöra notenda.
• Síðast en ekki síst:
Frábært verð.
KRISTALL HF.
SKEIFAN 11B - SÍMI 685750
Ath! GoldStar síminn
m/símsvara á kr.9.952.
J
Aðstoð íslands vegna Persaflóadeilunnar:
Niðurstaða í næstu viku
JÓN Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, segist ekkert
vilja segja um það fyrirfram í
hvaða formi hugsanleg aðstoð
íslendinga vegna Persaflóadeil-
unnar verði. Hann sagði aðspurð-
ur að sér virtist sem að Ijárfrain-
lög ríkja Evrópubandalagsins
næmu að jafnaði um tíu dollurum
á íbúa.
Á ríkisstjómarfundi í síðustu
viku var samþykkt að utanríkisráð-
herra og fjármálaráðherra í sam-
ráði við forsætisráðherra myndu
vinna að tillögu um þetta mál. Sagði
Jón Baldvin að hann byggist ekki
við að neitt myndi gerast í málinu
fyrr en á ríkisstjórnarfundi í næstu
viku.
GE0RGES HEUU
OPIÐ LAUGARD. 10-14
NYTT A ISLANDI
Einnig nýjar sendingar
frá SONIA RYKIEL
og claudia strater
5T ÍLL
MVCKriSQOTU 39. 5: I3069