Morgunblaðið - 21.10.1990, Side 1

Morgunblaðið - 21.10.1990, Side 1
MANNSMYND 104 SIÐUR B/C 239. tbl. 78. árg. SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS :%iv.: m Morgunblaðið/RAX ALFTIR VIÐ DYRHOLAEY Persaflóadeilan: Bush og Hurd segja mála- míðlun ekki koma til greina Nicosíu. Reuter. Kona frýs í hel við hugleiðslu 37 ára kona frá París hefur frosið í hel á Mont Blanc, hæsta tindi Alpa- fjalla, er hún stundaði þar hugleiðslu án þess að vera í nokkurri spjör, að sögn breska blaðsins The Independent., Talið er að hún hafi beitt japanskri/ tíbetskri hugleiðsluaðferð, sem felst einkum í því að vera úti i nákulda, helst undir helköldum fossum. Heí-jan á nátt- úrugripasafn FORVERA Míkhaíls S. Gorbatsjovs í embætti forseta Sovétríkjanna, Konst- antíns Tsjemenkos heitins, hafa flestir gleymt. Þó ekki íbúar síberísku borgar- innar Krasnojarsks því þar hefur hann minnt á sig í líki brjóstmyndar úr bronsi sem staðið hefur á aðaltorgi borgarinn- ar síðustu fimm ár. Hún var fjarlægð í síðustu viku vegna þrýstings frá borg- arbúum en borgaryfirvöld vissu ekki hvert átti að selja hana. Tsjernenko var tvívegis sæmdur heiðursnafnbótinni „hetja sósíalísks verkalýðs" og þegar um slíka menn er að ræða er venjan að koma styttum af þeim fyrir í fæðingar- bæjum þeirra. Það reyndist þó ógjörlegt því Tes, fæðingarbær Tsjernenkos, sem er í nágrenni Krasnojarsks, fór á kaf undir marga metra af vatni þegar orku- ver borgarinnar var byggt fyrir nokkr- um ámm. Af þessum ástæðum varð að grípa tímabundið til þess ráðs að koma styttunni fyrir í náttúrugripasafni Krasnoj arsks-borgar. Eiturlyfjavand- inn í Kína vex Peking. Daily Telegraph. KÍNVERSKA lögreglan lagði hald á 773 kíló af heróíni og 370 kíló af ópí- umi á fyrri helmingi ársins, sem er meira en allt árið í fyrra, að þvi er fréttastofan Nýja Kína skýrði frá á föstudag. 2.200 smyglmál komu til kasta tollgæslunnar, miðað við 563 í fyrra, og í tengslum við eitt þeirra var 51 smyglari handtekinn fyrir að smygla 221 kílói af heróíni, auk þess sem nokkrar bifreiðar og fjarskiptatæki vora gerð upptæk. Ekki var skýrt frá örlögum smyglaranna en í júní voru fjórtán manns teknir af Jífi fyrir eitur- lyfjasölu. Samkvæmt skýrslum yfir- valda voru 70.000 eiturlyfjasjúklingar í landinu í fyrra og er líklegt að sú tala hækki mjög í ár. STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum og Bretlandi sögðu á föstudagskvöld að Saddam Hussein íraksforseti gæti ekki farið með sigur af hólmi í baráttunni um Kúvæt. „Ég er jafn staðráðinn nú og ég var þegar fyrstu bandarísku hermenn- irnir voru sendir til Persaflóa í að um- buna ekki Saddam Hussein fyrir innrás- ina í Kúvæt með einhverjum málamiðlun- um,“ sagði George Bush, sem sent hefur meira en 200.000 bandaríska hermenn til Saudi-Arabíu. Douglas Hurd, utanrík- isráðherra Bretlands, lagði einnig áherslu á að Bretar léðu ekki máls á málamiðlunum og vísaði á bug sögusögn- um, sem komust á kreik er sovéskur sendimaður ræddi við Saddam Hussein fyrir tveimur vikum, um að Bandaríkja- menn og bandamenn þeirraj Persaflóa- deilunni gætu fallist á tilslakanir í deil- unni. Hann getur ekki farið með sigur af hólmi . . . við höldum stefnu okkar til streitu," sagði Bush í ræðu í Washington. „Það er engin framtíð í málamiðlun sem felst í því að Saddam Hussein fái hluta af Kúvæt,“ sagði Douglas Hurd við fréttamenn í Grikkland eftir ferð um Mið-Austurlönd. „Ef Saddam Hussein kallar ekki hersveitir sínar heim með góðu verður honum komið frá með valdi ... hernaðaraðgerðir koma enn til greina,“ bætti hann við. Bandaríska sjónvarpskeðjan CBS skýrði frá því að Bandaríkjamenn þyrftu áð bæta við tveimur skriðdrekasveitum í Saudi- Arabíu, eða alls 100.000 hermönnum, áður en þeir gætu gert árás til að frelsa Kúvæt. CBS hafði þetta eftir embættismanni í bandaríska varnarmálaráðuneytinu, sem sagði einnig að það tæki allt að tvo mánuði að senda þennan liðsauka og nauðsynlegan búnað til Saudi-Arabíu. Embættismaðurinn lagði áher,slu á að engin ákvörðun hefði enn verið tekin í máHnu. Edward Ileath,_ fyrrum forsætisráðherra Bretlands, fór til íraks í gær frá Ammán í Jórdaníu til að freista þess að fá Saddam Hussein til að sleppa veikum og öldruðum Vesturlandabúum, sem haldið er í gíslingu í írak og Kúvæt. Hann hefur sætt harðri gagnrýni nokkurra ráðherra í bresku stjórn- inni vegna ferðarinnar. Háttsettur sænskur embættismaður, Peter Osvald, er í Bagdad í svipuðum erindagerðum en með samþykki stjórnar sinnar. Fimm ítalskir gíslar hafa hafið eigin bar- áttu fyrir frelsi og efnt til mótmælasveltis. Þeir sögðust í gær hafa hætt að drekka vatn. Gíslarnir vilja að ítölsk sendinefnd verði send til að semja um frelsun þeirra. ISIGURÐUR HRÓARSSON ENDURFUNDIR ÍJEMEN Jóhanna Krist- jónsdóttir í vöggu arab- ískrar sidtnenn- ingar EINS OG HVER ÖNNUR FÍKN W UPPBODIN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.