Morgunblaðið - 21.10.1990, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.10.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MAIMNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1990 C 9 SKÓLAMÁL/Er ekki líkagott ad vera bara heima í ró ognœbi? Félögsstarf MEÐ orðinu félagsstörf er í skólum átt við viðfangsefni utan kennsl- utíma. Fyrrum voru skólar ásamt ungmennafélögum eini starfsvett- vangurinn til slíkra verka. Nú er öldin önnur, skólanemendum stend- ur svo margt til boða að það er sumum steituvaldur og þrúgandi álag. Þeim finnst þeir aldrei hafa tíma til að gera neitt. Asíðustu árum hefur skapast samkeppni um „að gera eitt- hvað fyrir bömin og unglingana". Stundum er um að ræða baráttu um pólitíska hylli. í öðrum tilvikum metnað forystu- manna og þjálfara í félögum sem hafa keppni og sigra að markmiði. í ofvinnuþjóðfé- lagi em sumir for- eldrar fegnir að koma börnum sín- um af sér yfir á ábyrga aðila og í borgarsamfélag- inu er tómstundaþjónusta orðin at- vinnugrein. Að sönnu þurfa nemendur eitt- hvað við að vera utan kennslutíma og gott að vita þá á tryggum stað við ákveðna iðju en það gleymist oft að sumum þykir líka gott að vera einn með sjálfum sér og marg- ir eiga bók að vini. En í grunnskólalögum segir: „í öllum skólum á grunnskólastigi skal nemendum gefinn kostur á að taka þátt í tómstunda- og félagsstarfí á vegum skólans, eftir því sem að- stæður leyfa ..." Fram til síðustu áramóta Iagði ríkið sveitarfélögum til fjármagn til þessara starfa en nú eiga þau sjálf að standa straum af þessum kostnaði. Flest bæjarfélög reka einnig fé- lagsmiðstöðvar sem bjóða upp á flest hið sama og tíðkast í skólum. Nú þegar þessi þáttur uppeldis- starfsins er kostaður af sama sjóði liggur beint við að starfi félagsmið- stöðva og tómstundastarfi í skólum sé steypt saman svo ekki sé um tvöfalt kerfi um að ræða. Víða hafa sveitarstjórnir ráðið sérlegan tóm- stundafulltrúa. Að minnsta kosti þarf að sam- ræma störf þessara aðila, ákvarða verkaskiptingu og semja sameigin- Iega starfsáætlun. Hægt væri að samnýta húsnæði skólanna, sér- þekkingu kennara á uppeldissviði og fagkunnáttu leiðbeinenda í hin- um ýmsu greinum. Þá er ótalið tækifæri foreldra að koma til liðs við þessa aðila og nota tómstundir sínar til uppbyggi- legs sjálfboðastarfs. Ég þori að full- yrða að þeir gætu fengið það ríku- lega launað. Síðast en ekki síst verður að vinna tómstundaskrána í samvinnu við unga fólkið sjálft svo ekki sé verið að troða upp á það einhveiju sem það hefur ekki áhuga á og kærir sig ekki um. Þá er verr af stað farið en heima setið. Við skulum líta á hvað skólar og félagsmiðstöðvar hafa upp á að bjóða. Dansleiki til að kynin geti nálgast hvort annað í réttum takti. Oftast við plötutónlist en stundum leika unglingahljómsveitir. Kvöld- vökur með tónlist og leiktækjum. Spilakvöld, gjarnan með foreldrum, skákiðkun; skákkennslu. Leiklist er óspart iðkuð. Námskeið af ýmsum toga, í ljósmyndatækni, mynd- bandagerð, leðurvinnu, útskurði og fluguhnýtingum. Hestamennsku, ferðalög, útilegur og skíðamennsku og ótal margt fleira. Þá er ótalin önnur starfsemi sem togar æskulýðinn til sín. Þarna er íþróttahreyfingin stórtækust. Ótrú- lega margir leggja á sig tímafrekar og strangar æfingar. Tónlistarskól- ar eru yfirfullir, myndlistamámske- ið vel sótt og dansskólar virðast blómstra. Þá eru ótalin leikhús og kvikmyndahús. Vonandi gefst ungviðinu einnig tími til að vera heima hjá sér en ekki fer hjá því að manni verði hugsað til orða kotbóndans á heið- inni þegar hann aldraður dásamaði veruna þar í fásinni og oft bjargar- leysi: „... fóðrið kjarngott og kosta- samt OG SVO ÞETTA MAKA- LAUSA NÆÐI.“ Afþreying — Nóg er í boði hjá félagsmiðstöðvum og skólum. eftir Gylfa Pólsson Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi Kosningaskrifstofa stuðningsmanna EGGERTS HAUKDAL erá Suðurlandsvegi 2, Hellu. Dagana (ram að kjördegi verður skrifstofan opin frá kl. 13.00-22.00. Sími 98-75433. Stuðningsmenn. Er meístarinn þinn meistari? Fagleg og ábyrg vinnubrögð. Spyrjið um meistaraskírteinið. • MEISTARASKIRTEINI Jón Jónsson Múrarameistari Agata 100 100 Reykjavík MURARAMEISTARAFÉLAG REYKJAVÍKUR <M^B> MEISTARA- OG VERKTAKASAMBAND BYGGINGAMANNA SKIPHOLTI 70- 105 REYKJAVÍK - SÍMl 91-36282 Kynnist töfraheimi Svavars Guðnasonar í máli og myndum Bókin, sem beðið var eftir, SVAVAR GUÐNASON 1909-1988, er fyrsta heildstæða bókin, sem komið hefur út um listamanninn, og gefur hún langþráða innsýn í líf og starf eins ágætasta listamanns þjóðarinnar. Auk Qölmargra litmynda er í bókinni fjöldi greina um listamanninn, viðtöl, frásagnir og ljóð eftir Svavar. Þá er þar einnig ítarlegt yflrlit um ævi- og sýningaferil, auk ritaskrár. Þessi glæsilega bók er ómissandi hverjum þeim, sem yndi hefur af myndlist og lætur sig hana einhverju varða, listamenn, fræðimenn, námsmenn, og aðra, sem vilja kunna skil á íslenskum menningararfí. Kjörin gjöf til vina og viðskipta- manna innanlands sem utan. USTASAFN ÍSLANDS PÓSTHÓLF 668,121 REYKJAVÍK, ÍSLAND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.