Morgunblaðið - 21.10.1990, Side 10
10 c
MORGUNBLAÐIÐ MAIMNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1990
UIVIHVERFISIVIÁL/Geta iönabur og umhverfisvemd átt
samleiö? ______
Islemka stálfélagið
ÍSLENSKA stálfélagið hf. var stofnað fyrir tveimur árum.
Reist hefur verið verksmiðja í Hafnarfirði og er ætlunin að
safna þangað ýmiss konar brotamálmi víðs vegar að af landinu
til endurvinnslu. Starfsemi verksmiðjunnar má í grófum drátt-
um skipta í tvennt: forvinnslu á brotamálmi, þ.e. þynnri málm-
ur úr heimilistækjum og bílflökum, sem fer beint í málmtæt-
ara, en þykkara efni þarf að skera sérstaklega niður. I öðru
lagi er það sjálf málmbræðslan.
Söfnun brotamálms hófst
strax í fyrravetur og málm-
tætarinn var tekinn í notkun í
maí sl. Málmbræðslan hefst í
þessum mánuði og þar með er
starfsemi fyrir-
tækisins komin
í fullan gang.
Með stofnun
fyrirtækisins
hefur verið stig-
ið stórt skref í
þágu umhverfis-
verndar. Enda
þótt starfsemin
sé ekki hafin nema að hluta er
hún farin að hafa veruleg áhrif
á nánasta umhverfí og næsta ár
er vænst mikils átaks um land
allt í tengslum við starfsemi þess.
Leitað hefur verið eftir sam-
starfi við öll sveitarfélög eða
samtök þeirra um söfnun á
brotamálmi og byggist samstarf-
ið á gagnkvæmum ávinningi.
Sveitarfélögin safna saman og
tryggja fyrirtækinu allt endur-
vinnanlegt járn eða aðra máima
sem til falla, þ. á m. öll bílflök,
en fyrirtækið skuldbindur sig á
móti til að taka við öllum slíkum
málmi og flytja á brott, en hirð-
ir ekki aðeins hið besta úr hrúg-
unum, eins og brögð hafa verið
að. Með þessu móti fæst góð
lausn á því vandafnáli sem brota-
járn hefur verið. Núna stendur
t.d. yfir hreinsun á Heimaey og
er gert ráð fyrir að þaðan verði
flutt um 700-800 tonn af hráefni
til verksmiðjunnar. Samningar
eru einnig langt komnir við fleiri
sveitarfélög.
Þótt hugtakið sjónmengun sé
nýtt er hugsunin á bak við það
gömul. Okkur Islendingum hefur
lengi verið legið á hálsi fyrir þá
slæmu umgengni að láta bílhræ,
vélar og verkfæri. ryðga niður
úti • í guðsgrænni náttúrunni.
Enda þótt við höfum viðurkennt
trassaskap okkar í þessum efn-
um hefur lítið verið gert til skipu-
legra úrbóta. Nú, þegar íslenskt
fyrirtæki hefur tekið til við að
endurvinna þennan úrgang, má
búast við að þessi mengunarvald-
ur verði að mestu úr sögunni.
Það er ekki aðeins sjónmeng-
unin sem ráðist er til atlögu
gegn. Málmurinn sjálfur veldur
mengun í jarðvegi og í bílhræjum
og vélum er ýmislegt sem gerir
það í enn ríkari mæli. Þar ber
hæst olíu, sýrur og þungamálma.
íslenska stálfélagið hf. starfar
eftir mjög ströngum reglum sem
umhverfisyfirvöld hafa sett. Allir
rafgeymar eru teknir úr bíla- og
vélahræjum og sendir utan til
endurvinnslu. Tappa þarf allri
olíu og kælivatni af bílflökunum
áður en þau fara í vinnslu. Það
má aðeins gera þar sem viður-
kenndur búnaður er til slíkra
hluta svo tryggt sé að þessi efni
mengi ekki jarðveg.
Þess má geta að nú eru að
hefjast á vegum fyrirtækisins
umfangsmiklar PCB-mælingar,
líklega hinar umfangsmestu sem
gerðar hafa verið hérlendis. Ver-
ið er að taka á móti mörgum
spennum frá Rafmagnsveitum
ríkisins og og maður frá fyrir-
tækinu tekur sýni úr öllum þeim
spennum sem farga á. Þeir
spennar, sem reynast innihalda
PCB, eru sendir utan til frekari
vinnslu en einungis þeir sem
reynast án PCB fara til endur-
vinnslu hjá íslenska stálfélaginu.
Framundan eru óþijótandi
verkefni. Um allt land bíða brota-
jámshaugar og sífellt fellur
meira og meira til af brotajárni.
í samningum við sveitarfélögin
er gert ráð fyrir áframhaldandi
samstarfi. Næsta sumar ætlar
íslenska stálfélagið að senda sér-
útbúinn bíl um landið til að
pressa saman bílhræ og vélar svo
ódýrara verði að flytja hráefnið
til verksmiðjunnar. Með því móti
er hægt að minnka rúmmál
brotajámsins og ná þannig fram
hagkvæmari flutningum.
Talið er að árlega falli til um
18-20 þúsund tonn af brotamál-
um hérlendis. Afkastageta verk-
smiðjunnar er þó mun meiri, eða
um 90-100.000 tonn á ári, með
því að unnið sé á vöktum allan
sólarhringinn. Nú er verið að
leita eftir meira hráefni erlendis
á viðráðanlegu verði og hafa við-
brögð verið mjög góð, hvað sem
endanlega verður.
Af framansögu má ætla að
með starfsemi Islenska stálfé-
lagsins hf. fari saman hagnýting
íslenskrar orku til iðnaðarfram-
leiðslu og umhverfisvernd. Okk-
ur hættir gjarnan til þess að tefla
þessum þáttum hvorum gegri
öðram en í þessu tilfelli fara
þeir svo sannarlega saman. Von-
andi taka öll sveitarfélög þátt í
því mikla umhverfísverndarátaki
sem söfnun og endurvinnsla
brotamálms er.
eftir Siguró Smáru
Gylfason
Enska er okkar mál
NÁMSKEIÐIN HEFJAST 31. OKTÓBER
INNRITUN STENDUR YFIR
FYRIR NYTT NYTT
FULLORÐNA 7 vikna enskunómskeið 6 vikna samræðuhópar 6 vikna enskar bókmenntir 6 vikna rituð enska 6 vikna viðskiptaenska 6 vikna Bretland; saga, menning og ferðalög. • • 6 vikna laugardagsnómskeið 1 viku hraðnómskeið 7 vikna „Pub“-nómskeið
EINKATÍMAR HÆGT ER AÐ FÁ EINKATÍMA EFTIR VALI.
FYRIR BORN 6 vikna leikskóli 3-5 óra 6 vikna forskóli 6-8 óra 6 vikna byrjendanómskeið 8-12 óra 6 vikna unglinganómskeið 13-15 óra ENGINN BÝDUR MEIRA ÚRVAL ALMENNRA OG SÉRHÆFDRA ENSKUNÁMSKEIDA.
T.O.E.F.L. Ensku Skólinn
7 vikna undirbúningsnómskeið fyrir prófið. TÚNGATA 5, 101 REYKJAVÍK
HRINGDU í SÍMA
25330/25900
OG KANNAÐU MÁLID.
Sj ómannafélag
Reykjavíkur 75 ára:
Afmælis-
fagnaður á
Hótel Sögu
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavík-
ur heldur afmælisfagnað í tilefni
af 75 ára afmæli félagsins í
Súlnasal Hótel Sögu í dag, sunnu-
dag, og hefst hátíðin klukkan 15.
Fimm félagar Sjómannafélagsins
verða heiðraðir í tilefni þessara
tímamóta, þar af verður einn sæmd-
ur gullmerki félagsins.
Sigfús Halldórsson tónskáld og
óperusöngvararnir Friðbjörn B.
Jónsson og Elín Sigurvinsdóttir
flytja lög eftir Sigfús. Meðal annars
verður framflutt Iag Sigfúsar við
ljóð Araar Arnar, sem hann orti í
tilefni 25 ára afmælis Sjómannafé-
lagsins fyrir 50 áram.
Davíð Oddsson borgarstjóri flyt-
ur ávarp, Karlakór Reykjavíkur
syngur syrpu af sjómannalögum og
Jóhannes Kristjánsson skemmtir.
Allir félagar og velunnarar Sjó-
mannafélags Reykjavíkur eru boðn-
ir velkomnir til fagnaðarins.
Cterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!