Morgunblaðið - 21.10.1990, Síða 25

Morgunblaðið - 21.10.1990, Síða 25
C 25 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1990 Anna Vilhjalms- dóttir - Minning Fædd 10. september 1918 Dáin 11. október 1990 Þegar manneskja deyr, hefst tími eins konar uppgjörs hjá vinum og ættingjum. Þá eru rifjuð upp sam- skipti og tengsl við hinn látna sam- ferðamann og margvíslegar skyndi- myndir úr vegferðinni koma upp í hugann. Uppgjör af þessu tagi er með því erfiðasta sem við upplifum, því fylgir sár söknuður og sorg, oft langvarandi. Það liggur raunar í hlutarins eðli því við andlát mann- eskju er líkt og færð hin síðasta færsla í minningabók okkar um samferðamanninn. Þær verða ekki flelri. Dauðinn er miskunnarlaus og endanlegur og við eigum erfitt með að sætta okkur við að náinn vinur með alla sína reynslu, visku og til- finningaauðgi skuli endanlega horf- inn af sjónarsviðinu; og raunar finn- um við að hluti af okkur sjálfum deyr í leiðinni. Anna frænka var sterkur og eft- irminnilegur persónuleiki og við- brögð hennar gagnvart þeim erfið- leikum sem mættu henni á lífsleið- inni var okkur hinum til fyrirmynd- ar og veitti okkur siðferðilegan styrk. Þegar undirstaðan er góð, eflist fólk við erfiðleika og mótlæti í stað þess að kikna. Þetta átti við um Ónnu. Hún mætti miklum erfiðleik- Áriii Ragnar Lúðvíks- son - Minningarorð Þau sorglegu tíðindi bárust mér sl. föstudagsmorgun, að Arni Ragn- ar, systursonur minn, væri allur og hefði dáið kvöldið áður. Það er óum- ræðilega erfitt að sætta sig við það, þegar ungir og efnilegir menn eru fyrirvaralaust hrifsaðir út úr því sem við teljum að öllu jöfnu vera eðlilega framrás lífsins. Árni var sonur hjónanna Þórdísar Garðarsdóttur og Lúðvíks Björns- sonar. Ólst hann upp í Keflavík frám á unglingsár en fyrir nokkrum árum flutti ijölskyldan sig um set suður í Garð. Okkar fyrstu kynni voru þegar Árni kom á mitt bernskuheimili aðeins nokkurra daga gamall. Er mér minnisstætt að ég, þá strákl- ingur, fékk þann heiður að taka af honum fyrstu ljósmyndirnar. Okkar seinni samfunda minnist ég sém ánægjustunda, enda var Árni að upplagi glaðlyndur og félagslyndur og ljúfur í allri viðkynningu. Var oft gaman að fylgjast með þegar hann tókst af krafti á við margv- íslegustu viðfangsefni. Stóð hugur hans til fjölmiðlunar og mannlegra samskipta, enda naut hann þar eðli- legrar og óþvingaðrar framkomu. Stórt skarð er nú höggvið í okkar Ijölskyldu og mikil eftirsjá í góðum dreng. Ég vil með þessum fátæklegu orðum kveðja frænda minn hinstu kveðju og senda ástvinum hans innilegar samúðarkveðjur á erfiðri stundu. Sérstakar kveðjur færi ég frænku minni, Ellu Dóru, en Árni var henni ávallt einstaklega góður bróðir og vinur. Megi minningin um BLOM SEGJA ALIT Mikið úrval blómaskreytinga fyrir öll tækifæri. ástríkan bróður verða henni hjart- fólgið veganesti. Guðmundur um í lífi sínu, bæði í bernsku og siðar á ævinni. Fyrr á þessu ári leyfði Anna okkur að heyra það sem hún hafði fest á blað um eigin bernsku að áeggjan frænda síns. Þar lýsir hún nánasta umhverfi sínu í bernsku með hlutlægri aðferð sagnfræðinnar fremur en tilfinn- ingasemi. Við fengum hógværa en ljóslifandi Iýsingu á því umhverfi og fólki sem mótuðu líf hennar, en jafnframt minnti hún okkur á hversu erfitt og harðneskjulegt lífið gat verið í þá daga miðað við það sem við nú þekkjum almennt. Bernskuheimur Önnu er okkur í raun framandi og ósjálfrátt veltum við því fyrir nokkur hvernig mót- læti það sem hún varð að þola í bernsku hefði leikið okkur sjálf. Nokkrar línur úr endurminningum hennar sjálfrar lýsa þessu best: „Ég var fjögurra ára þegar ég var alkomin til afa og ömmu. Síðasta veturinn sem mamma mín lifði var hún alveg rúmföst heima. Ég man að ég fekk að fara upp til hennar á morgnana og bjóða henni góðan dag, en ég mátti ekki fara nema í dyrnar af því að hún var með smitandi berkla. Og svo man ég að hún sat uppi í rúminu og horfði á mig út um gluggann, ef ég var að lejka mér úti. . . Það hafa verið miklar raunastundir í Skáholti þennan vetur, því að syst- ir mín litla Sigrún dó í október, Aðalsteinn bróðir minn dó í janúar og mamma mín dó í maí ’23, aðeins 27 ára gömul.“ Anna var óvenju heilsteypt manneskja og hafði til að bera þess konar innri styrk og hlýju sem lað- ' ar aðra að. Það var notalegt að vera návistum við Önnu og veikind- um þeim sem hrjáðu hana á síðári hluta ævinnar tók hún með slíku jafnaðargeði að henni tókst að fá aðra til að gleyma þeim. Lífsgleði og nægjusémi voru þau einkunnar- orð sem hún var alla tíð trú og minnisstæð er leiftrandi kímnigáfa hennar og fróðleiksfýsn, en hún fylgdist vel með, meðal annars á sviði bókmennta og tónlistar. Samverustundirnar á heimili Önnu varpa hlýju og yl. Þar var gestum tekið opnum örmum og nutu þeir hinna góðu áhrifa sem hún hafði á þá sem hana umgeng- ust. Hún vissi að það er manngildið sem er dýrmætast. Þessu fylgdi hún í uppeldi á eigin börnum. Við leiðar- lok viljum við þakka samfylgdina og biðjum góðan guð að vaka yfir börnum hennar, tengdabörnum og barnabörnum. Auður og Oli. t Systir mín og mágkona, ODDBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR, Hátúni 10, andaðist í Landspítalanum 18. október. Kristin L. Guðjónsdóttir, Ragnar Þ. Guðlaugsson. blómouol LEGSTEINAR GRANÍT- MARMARI Helluhrauni 14, 220 Hafnafjörður, pósthólf 93, símar 54034 og 652707. ERFISDRYKKJUR Tökum að okkur að sjá um erfisdrykkjur, stórar og smáar, í glænýjum og notalegum sal, Asbyrgi. Upplýsingarísíma91'687111- Opið alla daga frá kl. 9-21. Sími 689070. IIDTEL JjUiAND Birting afmælis- og minningargreina Morg-unblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudags- blaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð og með góðu línubili. t Þökkum samúð og hlýhug vegna fráfalls KATRÍNAR ÞORBJARNARDÓTTUR, Kirkjuvegi 42, Keflavík. Þorbjörn Datsko. Sigurlaug Kjartansdóttir og dætur. Ingibjörg Steinsdóttir, Skúli Steinsson, María Steinsdóttir, Guðný Steinsdóttir, Halldóra V. Steinsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, EINARS VÍDALÍN EINARSSONAR, loftskeytamanns. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarfólki og læknum, deild 11-A á Landspítalanum, og séra Braga Skúlasyni. Sigurborg Einarsdóttir, Agnar Einarsson, Guðrún Hall, María Einarsdóttir, Valgarð Sigmarsson, Þórey Eiríksdóttir og aðrir vandamenn. Erfidrykkjur í hlýlegu og notalegu umhverfi Við höfum um árabil tekið að okkur að sjá um erfídrykkjur fyrir > allt að 300 manns. I boði eru snittur með margvíslegu áleggi, brauðtertur, fíatbrauð með hangikjöti, heitur eplaréttur með g rjóma, rjómapönnukökur, sykurpönnukökur, marsípantertur, rjómatertur, formkökur, 2 tegundir o.fí. Með virðingu, FLUGLEIDIR HÓTEL LOFTLEIÐIR REYKJAVÍKURFLUGVELLI. 101 REYKJAVlK SIM 1: 9 1 - 2 2 3 2 2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.