Morgunblaðið - 04.11.1990, Side 1
96 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
251. tbl. 78. árg.
SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 19909 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/RAX
ÍKERLINGARFJÖLLUM
Atökin í Moldovu auka
enn á vanda Gorbatsjovs
Moskvu. Reuter.
ÞJÓÐERNISÁTÖK þau sem blossað
Þingmenn Þjóð-
arflokks Bhuttos
ganga út af þingi
BENAZIR Bhutto, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Pakistans, og aðrir þingmenn
Þjóðarflokks hennar (PPP) gengu í gær
út af fyrsta þingfundi eftir kosningar,
þar sem PPP tapaði um helmingi þing-
sæta sinna. Þeir voru að mótmæla því
að ríkisstjórnin hefði ekki séð til þess
að eiginmaður Bhuttos, Asif Ali Zard-
ari, sem situr nú í fangelsi, gæti svarið
embættiseið þrátt fyrir dómsúrskurð um
það. Þingmenn PPP og samstarfsflokka
hans tilkynntu á föstudag að þeir myndu
ekki sniðganga þingið þrátt fyrir að
þeir teldu að niðurstöður kosninganna
hefðu verið.falsaðar. Bhutto sagði frétta-
mönnum að þingmenn PPP myndu taka
sæti á þinginu þegar Zardari fengi að
sveija embættiseið. Að öðrum kosti
myndu þeir hundsa þingið.
Mánaðarkaup Li
Pengs 6.Ö00 ísl. kr.
Li Peng forsætisráðherra Kína vinnur
frá því á morgnana til miðnættis og
hefur aðeins 500 yuan í tekjur á mán-
uði eða jafnvirði 6.000 ÍSK, að sögn
kínverska mánaðarritsins Bauhinia.
Þar segir að Li lifi fábrotnu meinlæta-
lífi en njóti þess að dveljast í faðmi
fjölskyldunnar, sé í beinu sambandi
við alþýðuna og taki sjálfur á móti
fólki sem koma vill umkvörtunum á
framfæri við stjórnvöld. Li hefur ver-
ið harðlega gagnrýndur á Vesturlönd-
um fyrir að skipa alþýðuhernum að
stöðva mótmæli lýðræðissinnaðra
stúdenta á Torgi hins himneska friðar
í júní í fyrra.
Sovétmenn kaupa
kanadískt korn
KANADAMENN hafa samið um sölu
á fjórum milljónum tonna af hveitiupp-
skeru ársins og einni milljón tonna af
byggi til Sovétríkjanna og er samning-
urinn sagður koma sér einkar vel fyr-
ir kanadíska bændur. Vegna veður-
sældar varð metuppskera á hveiti, 31
milljón tonna, í ár en bændurnir eru
háðir alþjóðamarkaði þar sem fram-
boð er nú meira en eftirspurn og tekj-
ur þeirra aukast því ekki í beinu hlut-
falli við uppskeru. Markaðsverð hveit-
isins og kornsins, sem Rússar hafa
ákveðið að kaupa af Kanadamönnum,
er 600 milljónir Kanadadollara, jafn-
virði 28 milljarða ísl. kr. en talið er
að Sovétmönnum hafi staðið kornið
til boða á lægra verði.
hafa upp í Sovétlýðveldinu Moldovu er»
mikið áfall fyrir Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétforseta sem reynir nú hvað hann
getur til að hindra að Sovétríkin liðist
í sundur. Allt að 10 manns biðu bana
og 50 særðust í átökum milli lögreglu
og vopnaðra borgara fyrir utan bæinn
Dubossarí í Dnestr, héraði rússneska
minnihlutans.
orbatsjov kennir aðskilnaðarsinnum,
sem hann kallar svo, um hvernig kom
ið er. Hann segist hafa áhyggjur af ofbeld-
isverkunum sem gætu aukist. „Við verðum
að berjast af hörku við aðskilnaðarsinna
af hvaða uppruna sem er og af þeirri
ástæðu verðum við að koma íbúum lýðveld-
isins til hjálpar og koma þar á eðlilegu
ástandi,“ sagði Gorbatsjov í sjónvarpi á
föstudag.
Gorbatsjov ætlaði að hitta Mircea Sneg-
ur, forseta Moldovu, í gær til að ræða leið-
ir til að koma á lögum og reglu í lýðveld-
inu á ný. Minnihlutahópar af tyrkneskum
og rússneskum uppruna vilja aðskilnað frá
meirihlutanum sem er af rúmenskum upp-
runa.
Átökin á föstudag brutust út eftir að
hópur Moldova, sem höfðu haft spurnir
af því að verið væri að skipuleggja þing-
kosningar til nýs þings í Dnestr-héraði,
bar út opinbera starfsmenn úr skrifstofum
þeirra í Dubossarí seint á fimmtudag.
Átökin mögnuðust þegar lögreglumenn
reyndu að komast til borgarinnar og mættu
mótstöðu þúsunda vopnaðra borgara.
Símasamband rofnaði við borgina seint á
föstudag og óljóst var hvað hafði gerst.
Blaðamaður í Tiraspol, höfuðborg Dnestr-
héraðs, sagði að a.m.k. 10 manns hefðu
beðið bana og 50 særst. Frá því var sagt
í sovésku sjónvarpi seint á föstudagskvöld
að lögreglumenn hefðu brotist í gegnum
allar fyrirstöður og væru komnir til Du-
bossarí-borgar.
Mörg Sovétlýðveldanna 15 hafa ásakað
Sovétstjórnina um að gjörnýta auðlindir
þeirra og hafa undanfarið lýst yfir fullum
yfirráðum yfir þeim. Á föstudag gaf Gorb-
atsjov út tilskipun um að Sovétstjórnin en
ekki lýðveldin réðu yfir gjaldeyrissjóðum
Sovétríkjanna. Tilskipunin er gefin út í
skjóli neyðarlaga um efnahagsmál. Hann
sagðist ætla að nota 40% af gjaldeyristekj-
um til að greiða niður erlendar skuldir,
lítill hluti fer til fyrirtækja, 90% af því sem
þá er afgangs fer í gjaldeyrisvarasjóð og
er þá sama og ekkert eftir handa Sovétlýð-
veldunum til ráðstöfunar.
8A1IR
10 MADll
VAR ALLTI
SÓMANUM
í KÚRDÍSTAN
Afframförum,
náttúrulögmálum
ogsamskiptum
manna viÖ
Mööurjörö 20
QRLAÐ