Morgunblaðið - 04.11.1990, Page 40

Morgunblaðið - 04.11.1990, Page 40
Bögglapóstur um ollt land PÓSTUROGSÍMI rogntiMjiMfe V^terkur og Ll hagkvæmur auglýsingamiðill! MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK TELEX 2127, POSTFAX 6SIS1I, POSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: ÍIAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Sandgerði: Rak vélar- .vana á sker Björgunarsveitin Signrvon í Sandgerði bjargaði á tíunda tímanum í gærkvöldi manni úr trillunni Frama ÍS, sem strandaði um 300 metra frá hafnargarðin- um í rjómalogni. Talið er bilun hafi orðið i vél bátsins þegar hann var að leggja í innsiglinguna og við það hafi bátinn rekið upp á sker. Að sögn Sigtryggs Pálssonar, formanns björgunarsveitar innar Sigurvonar, voru björgunar- sveitarmenn komnir á staðinn fáum mínútum eftir strandið og náðu .-manninum um borð í bát sinn. Klukkan þrjú aðfaranótt laugar- dagsins tókst fyrirhafnarlítið að losa bátinn. Við skoðun fundust engar skemmdir á bátnum. Elsti Islend- ingurinn er 106 ára í dag ELSTI núlif- andi Islend- ingurinn, Aldís Einars- dóttir, verður 106 ára í dag, 4. nóvember. Fimm ís- lenskar kon- ur hafa orðið eldri en Aldís en aðeins ein Aldís Einarsdóttir þeirra fullra 108 ára. Sú var Halldóra Bjarnadóttir sem dó er hún hafði lifað í 108 ár og 43 daga. Halldóra Iést 27. nóvember 1981. Aldís bjó lengi á Stokkahlöð- um í Hrafnagilshreppi. Hún sá'um sig sjálf með hjálp ættingja sinna þar til hún lagð- ist inn á Kristnesspítala í sept- ember 1985 vegna Iungnasjúk- dóms og dvelst hún þar enn. Að sögn Halldórs Halldórs- sonar, yfirlæknis á Kristnesspít- ala, hefur Aldís daglega fóta- vist, er fyllilega skýr og fylgist vel með. Sjón hennar er nokkuð góð þó að hún þurfi að nota gleraugu. Heyrn hennar hefur hrakað nokkuð undanfarið ár. Aldís treystir sér ekki til að ganga nema með stuðningi. Boðin velkomin heim ÞRIÐJI íslenski hjartaþeginn, Elín Birna Harðardóttir, kom til landsins í byijun vikunnar frá Brompton-sjúkrahúsinu í London. Áður höfðu Halidór Halldórsson og Helgi Harðarson undirgengist hjartaígræðslu, en auk þess voru grædd lungu í Halidór. Það var Magdi Yacoub, próf- essor í hjartaskurðlækningum við Brompton-sjúkrahúsið, sem stjórn- aði aðgerðinni á Elínu eins og á Halldóri og Helga. Hann hefur nú framkvæmt hátt í tólf hundruð slíkar aðgerðir frá því þær hófust við Brompton-sjúkrahúsið 1980. Nú bíða tvær íslenskar konur eftir hjartaígræðslu við Brompton- sjúkrahúsið og ein bíður eftir lungnaígræðslu. Jón A. Baldvinsson, sendiráðsprestur í London, segir að óverjandi sé að senda íslenska sjúklinga utan til líffæraígræðslu meðan íslensk lög um skilgreiningu á dauða aftra því að íslendingar leggi til líffæri í sameiginlegan vestur-evrópskan líffærabanka. Myndin var tekin er Halldór og Helgi færðu Elínu Birnu blómvönd á heimili hennar í tilefni af heimkomunni. Sjá: Nýtt hjarta - samur maður bls. 10-12. Þýsk-íslensk ráðstefna um vetnisorku: Gufuorka er talin álitlegur kostur við vetnisframleiðslu ÞÝSK-íslensk ráðstefna um notk- un vetnis sem orkugjafa fram- tíðarinnar var haldin í Hamborg nýlega. Þar kynntu íslenskir full- trúar orkuframboð á Islandi til vetnisframleiðslu og kom fram að fyrstu niðurstöður rannsókna benda til að gufuorka sé álitlegur kostur við vetnisframleiðslu, auk vatnsorku. Astæða þess, að Þjóðveijar sýna vetni áhuga, er að sögn Sverr is Schopka, sem sótti ráðstefnuna, að vetni brennur sem næst mengun- arlaust. Það er unnið úr vatni með rafgreiningu og þegar það brennur myndast aftur vatn. Hann segir Þjóð- veija standa fremst þjóða á sviði rannsókna á að nota vetni sem orkugjafa. Þýska ríkið styrkir þessar rannsóknir með 15 milijóna marka framlagi, eða sem nemur um^.550 milljónum íslenskra króna. Á ráðstefnunni skýrðu Þjóðverjar frá sameiginlegu verkefni Evrópu- bandalagsins og Kanada, sem byij- aði 1988 og á að standa yfir í 10 ár. Það miðar að því að flytja vetni á tönkum frá Kanada til Þýska- lands. í Hamborg verður strætis- vögnum borgarinnar breytt, til þess að þeir geti brennt vetni. Þar eru nú um 850 vagnar. Stefnt er að því að þeir verði knúðir vetni 1994. Þá kom fram að Deutsche Airbus Nígeríumenn leita aðstoðar hér við að koma gjaldeyri úr landi AÐILAR í Nígeríu hafa undanfarið leitað eftir aðstoð íslenskra fyrirtækja við að koma úr landi umtalsverðu magni af gjaldeyri. Til dæmis barst einu fyrirtækjanna boð um að fá um 100 milljón- ir króna fyrir að lána bankareikning sinn í þessu skyni. erlendra lánardrottna, og voru Um er að ræða greiðslur fyrir ýmsa verktakastarfsemi sem unnin var í Nígeríu fyrir vald- arán hersins þar árið 1983. Nýju valdhafarnir munu hafa fyrirskip- að að allar greiðslur skyldu inntar af hendi til erlendra verktaka í því skyni að endurheimta traust __________________________________ miklar fjárhæðir lagðar til ’nliðar í þeim tilgangi. Nígerískir kaupsýslumenn, sem telja sig hafa möguleika á að ná til sín einhverju af umræddu fjár- magni, hafa meðal annars leitað eftir aðstoð íslenskra fyrirtækja í því skyni. Til þess að ná til sín greiðslunum segja þeir að nauð- synlegt sé fyrir þá að hafa aðgang að bankareikningum traustra fyr- irtækja í öðrum löndum og hafa þeir óskað eftir að fá senda til sín þijá óútfyllta en undirritaða reikn- inga frá fyrirtækjunum, auk þriggja eintaka af óútfylltu en undirituðu bréfsefni þeirra og jafnframt númer á bankareikningi í viðskiptabanka fyrirtækjanna. í staðinn bjóða þeir síðan vænan skerf af umræddu fé. Eitt íslensku fyrirtækjanna sem Nígeríumenn hafa leitað til er Ice- con, og sagði Páll Gíslason fram- kvæmdastjóri þess að honum væri kunnugt um að nokkuð mörg íslensk fyrirtæki hefðu fengið sambærileg bréf. „Þetta er einhver leið hjá þeim þarna í Nígeríu til að stela af ríkinu, en þeir munu hafa sent út óhemju magn af svona bréfum til fyrirtækja í mörgum löndum. Þetta lítur í byrjun út fyrir að vera tiltölulega álitlegt, en menn hafa verið eindregið varaðir við að koma nálægt þessu, þar sem nánast er óhugsandi annað en þeir skaðist af þessu vegna hætt- unar á því að þetta verði kært,“ sagði Páll. verksmiðjurnar vinna að því að nota vetni sem eldsneyti á flugvélar. Air- bus hefur gert könnun á því að nota íslenskt vetni á vélarnar og er gert ráð fyrir að reynsluflug hefjist 1995 og að árið 2010 muni um 200 flug- vélar í áætlunarflugi ganga fyrir vetni. Auk vetnisframleiðslu var rætt um stóriðjumöguleika á íslandi vegna vatns- eða gufuafls sem hér er hægt að virkja, einnig um útflutn- ing á rafmagni. Af íslands hálfu sátu ráðstefnuna Geir A. Gunnlaugsson og Garðar Ingvarsson frá Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkj- unar, Bragi Árnason, Þorsteinn Sig- fússon og Páll Jensson frá Háskóla íslands, Páll Kr. Páisson frá Iðn- tæknistofnun, Jón Hálfdánarson frá íslenska Járnblendifélaginu. Þá sátu ráðstefnuna Dr. Sverrir Schopka og Oswald Dreyer-Eimboke ræðismað- ur íslands í Hamborg. Ákveðið var að halda næsta fund um vetnisframleiðslu hér á landi í Reykjavík á fyrri hluta næsta árs. Geir dreQur sig i hle Geir Gunnarsson alþingismaður tilkynnti við upphaf aðalfund ar kjördæmisráðs Alþýðubanda- lagsins á Reykjanesi í Keflavík í gær að hann gæfi ekki kost á sér til áframhaldandi þingmennsku í komandi alþingiskosningum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.