Morgunblaðið - 04.11.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.11.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 19909 11 sér til skemmtunar og heimilishund- urinn, Tryggur, fylgir honum eins og skugginn. Biðin er verst Svala Auðbjörnsdóttir, 51 árs gömul og móðir fimm barna á aldr- inum 24-33 ára, er með sjaldgæfan sjúkdóm, háþrýsting í lungnablóð- rás. Hún hefur beðið eftir heppilegu hjarta og lunga frá því í maí á þessu ári og hefur dvalið á Bromp- ton -sjúkrahúsinu allan þann tíma. Eiginmaður hennar, Snorri Ólafs- son, hefur verið hjá henni síðustu tvo mánuði. Dóttir þeirra, Anna Mary, er haldin sama sjúkdóm og hefur verið til rannsóknar á sjúkra- húsinu. Anna Mary, sem er þrítug og býr í Hrunamannahreppi, gengst undir lungnaígræðslu þegar heppi- legt líffæri finnst, en hún þarfnast helming nýrra lungna. „Ég reyni að hafa nóg að gera, reyni að dreifa huganum og forðast að hugsa of mikið um þetta. Við reynum að fara út á hveijum degi og Snorri ekur mér í hjólastól á hveijum degi. Ég hef verið með súrefnisbeisli frá því í janúar og einnig hef ég verið með blóðþynn- ingarlyf í æð frá því í lok maí,“ sagði Svala. Hún sagði að sjúkdómurinn hefði ekki verið greindur fýrr en fyrir tveimur árum en líklegast hefði hún haft hann í 20 ár. Hún stóð alltaf í þeirri trú að hún hefði þjáðst af astma og fékk hún lyf í samræmi við það. Sjúkdómurinn gerir það að verkum að hjartavöðvinn þykkn- ar og sjúklingurinn fær ör hjarta- köst. Nú fer hún í lungnamyndatök- ur og hjartalínurit einu sinni í viku og nýtur bestu aðhlynningar sem völ er á. Svala lét vel af starfsfólki á Brompton -sjúkrahúsinu og öllum aðbúnaði. „En ég er alltof langt í burtu frá fólkinu mínu og mér þyk- ir þetta iangur tími að bíða. Það er erfiðast að bíða og vita aldrei hvenær biðin er á enda. Þetta getur gerst í dag eða á morgun eða hinn eða. . Biðin er verst, það hafa allir sagt sem hafa komið fram á vikulegum lungnafundum sem hér eru haldnir, en á fundunum talar fólk sem hefur gengið í gegnum þessa reynslu," sagði Svala. Anna Mary, dóttir Svölu, er í viðbragðsstöðu heima hjá sér að Syðra-Langholti því kallið getur komið hvenær sem er. „Ég trúi því varla enn að þetta eigi að liggja fyrir mér en ég reyni bara að vera bjartsýn og trúa því að ég öðlist betri heilsu þegar þetta er afstaðið. Biðin er mér því ekkert erfið. Það er kannski dálítið kaldhæðnislegt að maður skuli bíða þess að einhver deyi svo maður geti fengið heilsuna sjálfur. En þetta er bara gangur lífsins og engin ástæða til að velta sér of mikið upp úr því,“ sagði Anna Mary, en hún og eiginmaður hennar, Sigmundur Jóhannesson, bóndi í Syðra-Langholti, eiga tvær dætur, tíu og tveggja ára. Hugsa á jákvæðum nótum Ásdís Stefánsdóttir bíður einnig eftir kallinu frá London. Hún er 36 ára, er með hjartagalla frá fæð- ingu, svonefnt op á milli hjartahólfa og þrengsli í slagæð til iungans. Prófessor Yacoub skoðaði hana fyr- ir einu ári og úrskurðaði að græða yrði í hana annað hjarta og lungu ætti hún að eiga einhveija lífsvon. „Það eru lungun sem eru að fara méð mig. Háræðarnar í lungunum eru smátt og smátt að deyja og það endar með því að lungunverða eins og harður bolti,“ sagði Ásdís. Hún er sátt við biðina hér heima. „Ég er búin að bíða eftir að lækn- ingu allt frá því að þessi læknisað- ferð kom til sögunnar fyrir um það bil tíu árum. Eitt ár til eða frá skipt- ir ekki miklu máli í samanburði við öll hin 35 árin,“ sagði Ásdís. Hún hefur haft heilsu til að vinna úti síðastliðin 18 ár og hefur starf- að sem bókavörður á skóla- og hreppsbókasafninu í Garði. Fyrir tveimur árum fór hún að minnka við sig vinnu vegna heilsubrests og fyrir einu ári hætti hún að vinna úti. Hún stundaði líka nám á við- skipta- og verslunarbraut Fjöl- brautaskóla Suðurnesja en varð að hætta því. Hún kvaðst ætla að leggja stund á bókasafnsfræði í bréfaskóla meðan hún væri að jafna sig eftir aðgerðina fyrirhuguðu í London. Ásdís sagði að hún og eig- inmaður hennar, Sveinbjörn Reyn- isson, fínndu tilfinnanlega fyrir skertum tekjum vegna veikinda hennar, en Sveinbjörn er með sjálf- stæðan rekstur auk þess sem hann stundar iðnnám. „Eflaust er kvíði í mér innst inni en maður hugsar á jákvæðum nót- um og vonar að allt gangi að ósk- Æfleiri fslendingar gangasl undir liffæraigræOsl- ur og öólast nýttlíf um. Ég hef dálítið velt þessu fyrir mér með hjartaígræðslu og finnst í raun hörmulegt að einhver þurfi að deyja til þess að maður sjálfur fái lifað, en það ræður enginn sínum næturstað og maður verður að hugsa rétt í sambandi við þetta. Ég held að það sé ekki mjög heilla- vænlegt fyrir sjúklinginn að hugsa og djúpt um þessi mál,“ sagði Ásdís. Maður breytist ekki neitt Elín Birna Harðardóttir er nýj- asti íslenski hjartaþeginn og kom hún heim frá London síðastliðinn mánudag. Hún þjáðist af sömu veik- indum og Helgi Harðarson, talið er að vírus hafi lagst á hjarta hennar og í því hófst vöxtur sem leiddi til þess að græða varð annað hjarta í Elínu Birnu. Eiginmaður hennar, Ársæll Gunnsteinsson, var hjá Borgir sem borga r sig að beimsœkia Baltimore - Washington Einstakt tækifæri til að kynnast þessum athyglisverðu stórborgum. Brottför 9. og 16. nóv. í 3 nætur. -14. og 21. nóv. í 7 nætur. 35.020 kr. Hótel Sheraton, 3 nætur* 41.120 kr. Hótel Sheraton, 7 nætur* 39.120 kr. Hótel Du Pont, 3 nætur* 50.820 kr. Hótel Du Pont, 7 nætur* íslenskur fararstjóri ef næg þátttaka fæst. Stuttgart 2.-6. des. Trier _____ ^ 15.-18. nóv. /29. nóv.-2. des. Verslun, vínsmökkun, Mosel-sigling í elstu borg Þýskalands. Gist á Europa Parkhotel. Kr. 31.450 á mann í tvíbýli. Innifalið eru ferðir til og frá flugvelli. Fararstjóri Friðrik G. Friðriksson. 7Uju) o |o) o XL--Uu JO- jU. ►/>»r*rnChWlíliJji .*.u- Glasgow 10.-13. nóv. /1.-4. des. ' Verslanir í jólaskrúða, kynnisferð um nágrennið, skosk kráarstemmning. Gist á Hospitality Inn. Verð kr. 26.900 á mann í tvíbýli. Innifalið eru ferðir til og frá flugvelli. Fararstjóri Lilja Hilmarsdóttir. Luxemborg 16. nóv. í 2 eða 4 nætur. Gist á Hotel Pullman. Frá kr. 28.300 á mann í tvíbýli í tvær nætur. London 22.-25. nóvember. Gist á Harewood Hotel. Verð kr. 32.100 á mann í tvíbýli. Jólaferðir Thailand, Kanaríeyjar, Costa Del Sol. * Pr. mann miöaö viö tvo í herbergi. URVAL-UTSYN Álfabakka 16, sfmi 60 30 60 Pósthússtræti 13, sími 26900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.