Morgunblaðið - 04.11.1990, Side 12

Morgunblaðið - 04.11.1990, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 19909 Hlustaói á eigin lijarl- sláll úr öörum líkama Halldór Halldórsson, fyrsti íslenski hjarta- og lungnaþeginn. henni mesta hluta dvalarinnar í London en drengir þeirra tveir, 9 og 16 ára gamlir, voru í vist hjá vinum og ættingjum fjölskyldunnar. Elín Birna sagði að hún hefði verið mun betur sett en Svala, sem getur lítið hreyft sig án súrefnistækja og og lyfja. Ársæll sagði að méð stuðn- ingi vandamanna gat hann keypt lítinn bíl í London og þau hjónin nutu þess að aka um í nágrenni London^ í tilbreytingarleysi biðar- innar. Ársæll sem er vélvirki fékk frí úr vinnunni og kvaðst hann hafa mætt miklum skilningi á sínum vinnustað. Hann var sömuleiðis ánægður með þátt almannatrygg- inga í kostnaði vegna veikinda konu hans, en hann fékk greidda dagpen- inga sem fylgdarmaður hennar, auk þess sem tryggingakerfið stendur straum af ferðakostnaði öllum og lækniskostnaði. „Ég þarf að fara mjög hægt af stað. Ég get þó ekki gert hvað sem er en það er mikill munur frá því sem var,“ sagði Elín Birna. „Hjartað var orðið alltof stórt, og veikindi mín og Helga eru mjög svipuð, við veikjumst bara á sitt hvorn hátt. Læknar telja að sjúk- dómurinn hafi verið að þróast í mér í tvö til þrjú ár. Hann uppgötvaðist fyrir tæplega tveimur árum og þá var ég orðin mjög veik,“ sagði Elín Birna. Fyrir nákvæmlega ári síðan fór Elín Birna í rannsókn í London og tekinn inn í biðröð. Hún var slðan lögð inn á Brompton-sjúkrahúsið í lok janúar á þessu ári og þurfti að bíða í sex mánuði áður en grætt var í hana nýtt hjarta. „Það var vissulega undarleg til- finning að vera með hjarta annarr- ar manneskju, það var mjög óraun- verulegt fyrst eftir aðgerðina. En ég reyni að vera ekki að hugsa neitt mikið um það núna. Það er skrítin tilfinning en maður breytist ekki neitt,“ sagði Elín Birna. H ALLDÓR Halldórsson var fyrsti íslendingurinn sem gekkst undir hjarta- og lungnaígræðslu og var náið fylgst með sögu hans í fjölmiðlum hér á landi. Halldór hefur nú náð góðri heilsu. Hann leikur knattspyrnu með félögum sínum einu sinni í viku og vinnur 70% starf á Reykjalundi sem að- stoðarmaður líffræðings. Hall- dór er, eins og gefur að skilja, vel að sér í málefnum hjarta- sjúklinga og hefur fylgst með starfseminni á Bronton-sjúkra- húsinu frá því hann útskrifaðist þaðan. etta er talin ein besta stofnun í heiminum í dag á sviði líffærafiutninga og sú stofnun sem hefur mesta reynslu í slíkum að- gerðum. Þeir hófu hjartaflutninga árið 1980 en lungnaflutningar hó: fust 1984-’85,“ sagði Halldór. „í fyrstu voru nokkur afföll vegna höfnunar sjúklinga á líffærum en eftir að Iyfið cyclosporin kom á markað fljótlega eftir að lungna- flutningar hófust urðu afföll mun minni,“ sagði Halldór. Halldór sagði að í júní síðastliðn- um hefði 1.100 líffæraflutningurinn verið framkvæmdur undir stjórn Yacoubi og af þeim fjölda sjúklinga sem hefur gengist undir líffæra- flutninga við Brompton-sjúkrahúsið væru um 700 manns lifandi, sem þó væri óraunhæf tala þar sem cyclosporin var ekki komið á mark- að á fyrstu árunum. Nú væru lífslíkur mun meiri. Halldór sagði að bið væri yfir- leitt lengri eftir líffærum ef um væri að ræða bæði hjarta- og lung- naígræðslu. Aðgerðin sjálf væri hins vegar jafnvel styttri vegna þess að ekki þyrfti að tengja æðar á milli hjarta og lungna. Eftirlit er á hinn bóginn mun meira með sjúkl- ingum sem hafa gengist undir lung- naígræðslu og helgast það .fyrst og fremst af því að lungun eru óvarð- ari fyrir alls kyns sýkingum. Halldór hefur sótt fundi sem haldnir eru á Brompton-sjúkrahús- inu fyrir sjúklinga sem bíða aðgerð- ar. Hann sagði að eina helgi síðasta sumar hefðu læknar sjúkrahússins grætt ný líffæri I 16 sjúklinga, en þá helgi hefði verið óvenjumikið af banaslysum. Halldór sagði að læknar gætu ekki notað öll líffæri sem kæmu inn, það færi eftir ástandi þeirra auk þess væri ekki alltaf vilji til þess að gefa líffæri. „Það ganga margir með kort á sér þar sem því er lýst yfir að nota megi líffæri viðkomandi manns láti hann lífið. Einnig er oft haft sam- band við aðstandendur deyjandi fólks og þess farið á leit við þá að. þeir veiti leyfi fyrir sitt leyti. Hér á landi kveða lög á um að maður telst ekki látinn fyrr en hjartað er hætt að slá. Um þessi mál hefur verið rætt á kirkjuþingi sem nú stendur yfir. Einnig á að taka þetta fyrir á þingi í vetur og væntanlega verður þessari skilgreiningu breytt til samræmis við lög annarra þjóða, en þaf telst maður formlega dáinn ef heilinn er dauður.“ Halldór sagði að samkvæmt breskum lögum fengi hjartaþeginn ekki að vita nein deili á hjartagjaf- anum. Reglurnar kveða jafnframt á um að læknir sem úrskurðað hef- ur mann látinn getur ekki grætt hjarta þess manns í hjartaþega. Halldór fékk þó á sínum tíma að vita hve gamall hjartagjafi hans var. „Ég las í blaði á Harefield- sjúkrahúsinu um mann sem grætt var í nýtt hjarta og fékk hann það frá konu sem var á sama sjúkra- húsi og hann. Konan þurfti nýtt hjarta og lungu en maðurinn ein- göngu hjarta. Hjarta konunnar var grætt í manninn en sjálf fékk hún hjarta og lungu annars staðar frá. Maðurinn hafði hitt hana áður, fyr- ir aðgerðina, og hafði fengið að vita að hann hefði fengið hjarta ungrar konu. Þá fór hann að spyrj- ast fyrir um þetta og fékk að vita að þessi tiltekna kona var hjarta- gjafinn. Þannig fór að hún hlustaði á hjartaslátt hans í hjarta sem hún var einu sinni með sjálf.“ TILBOÐ ÓSKAST í Isuzu P/U S. 4 W/D, árgerð ’88 (ekinn 21 þús. mílur), Dodge Ramcharger S.E. 150 Royal árgerð ’84 og aðrar bifreiðar er verða sýndará Grensásvegi 9, þriðiudaginn 6. nóv- ember kl. 12-15. Ennfremur óskast tilboð í Mercedes Benz malarbifreið 2628 K. 32, árgerð ’82, valtara (Vibrating- „Alexander 130“) árgerð ’84 og Caterpillar ógangfæra Ijósavél, 83 kw., árgerð ’83. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. Lögum um slulgreiningu á dauöa veröi breytt SegirJón A. Baldvinsson, sendiráósprestur Jón A. Baldvinsson, sendirúðsprestur í London. JÓN A. Baldvinsson, sendiráðs- prestur í London, sem hefur haft veg og vanda af því að taka á móti og styðja og hjálpa íslenskum hjartaþegum, kveðst ekki sjá neitt því til fyrirstöðu að íslendingar breyti lögum sínum um skilgreiningu á dauða í samræmi við lög ann- arra þjóða, þ.e. að dauði verði miðaður við heiladrep. að er ékki hægt að starf- rækja líffæraflutninga án þess að sú skilgreining sé fyrir hendi og hún er nú orðið fyrir hendi I öllum Vestur-Evrópuríkj- um og núna síðast breyttu Danir lögum sínum til samræmis við það. Sé miðað við hjartadauða eins gert er á íslandi þá er líffæ- rið orðið ónothæft þegar giæða á það í líffæraþega. Það er iðulega slysfarir sem leiða til heiladauða þótt önnur h'ffæri hinna siösuðu starfi eðlilega,“ sagði Jón. Hann sagði að prófessor Yaco- ub hefði sent hjartalæknum á íslenskum sjúkrahúsum bréf í fyrra þar sem hann óskaði eftir því að íslendingar gerðust þátt- takendur í líffærabanka sem þjóð- ir Vestur-Evrópu starfrækja sam- eiginlega. Bréf Yacoubi var undir- rótin að frumvarpi sem heilbrigð- isráðherra hefur Iagt fram á þingi um lög um skilgreiningu á dauða. „Frá mínu sjónarhorni er það óverjandi að við séum að senda fólk utan í líffæraflutninga meðan við viljum ekki sjálf taka þátt í að útvega líffæri," sagði Jón. Jón sagði að óhemjulangur bið- listi væri eftir líffæraflutningum við Brompton-sjúkrahúsið. Hins vegar væri aldrei hægt að segja við sjúkling að hann va;ri númer eitt eða annað á biðlistanum því hver og einn einstaklingur hefur sínar sérþarfir. Öll þau einkenni sem þurfa að vera fyrir hendi á því líffæri sem líffæraþegi þarf eru skráð inn á tölvu. Þar kemur inn undirflokkun, blóðflokkur, stærð líffæris, vefjarsamsetning og margt fleira. Þegar líffæri fell- ur til einhvers staðar í kerfinu sem nær yfir Vestur-Evrópu og Bret- landseyjar sem fellur að þörfum tiltekins sjúklings með vissum frá- vikum þá kemur nafn þess sjúkl- ings upp í tölvunni. Sá sjúklingur getur verið einn um þetta llffæri en það gætu verið fleiri en einn sjúklingur sem gæti nýtt sérþað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.