Morgunblaðið - 04.11.1990, Síða 8

Morgunblaðið - 04.11.1990, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 19909 \ f^er sunnudagur 4. nóvember, sem er 308. dagur A LJtWj ársins 1990. Tuttugasti og fyrsti sd. eftir Trínit- atis. Allra heilagra messa. Ardegisflóð í Reykjavík kl. 6.46 stórstreymi, flóðhæðin 4,34 m. Síðdegisflóð kl. 19.19. Fjara kl. 0.38 og kl. 13.06. Sólarupprás í Rvík kl. 9.19 og sólarlag kl. 17.02. Myrkurkl. 17.56. Sólin er í hádegisstað kl. 13.11 og tunglið er í suðri kl. 2.15. (Almanak Háskóla íslands.) Þú skalt ekki framar hafa sólina að lýsa þér um daga, og tunglið skal ekki skína til að gefa þér birtu, heldur skal Drottinn vera þér eilíft ljós og Guð þinn vera þér geislandi röðull. (Jes. 60,19.) ÁRNAÐ HEILLA ára afmæli. Nk. þriðjudag, 6. nóvem- ber, verður áttræð frú Lilja Eiríksdóttir, Stigahlíð 10, Rvík. Hún tekur á móti gest- um í Félagsheimili Rafveit- unnar við Elliðaár á afmælis- daginn milli kl. 17 og 20. ára afmæli. Gunnar Ólsen, Túngötu 61, Eyrarbakka, er sextugur í dag, 4. nóvember. Gunnar og eiginkona hans, Inga Guð- jónsdóttir, taka á móti gest- um á Efstalandi í Ölfusi milli kl. 17 og 20 í dag. ára afmæli. í dag, 4. nóvember, er frú Þór- anna G. Jónsdóttir, Fellsm- úla 7, sextug. Hún og maður hennar, Amfinnur Sigurðs- son, verða að heiman. FRÉTTIR/ MANNAMÓT í DAG er „allrasálnamessa“: „Messa til að minnast allra sálna í hreinsunareldinum," segir í Stjörnufræði/rímfræði. Þennan dag árið 1899 fædd- ist Jóhannes skáld úr Kötl- um. Á morgun, 5. þ.m. eru liðin 142 ár frá því fyrsta íslenska fréttablaðið, Þjóð- ólfur, kom út. í STJÓRNARRÁÐINU. í tilk. í Lögbirtingablaðinu frá heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu segir að þar hafi verið skipuð skrifstofu- stjóri 1. stigs Dögg Pálsdótt- ir lögfræðingur og Svanhvít Jakobsdóttir við- skiptafræðingur skipuð deildarstjóri í ráðuneytinu. Tók þessi skipan mála gildi hinn 1. október síðastliðinn. KROSSGATAN LÓÐRÉTT: — 2 stormur, 3 grænmeti, 4 gamall, 5 rann- sakar, 6 dvelja, 7 kraftur, 9 kaupstaður, 10 umboðsmaður konungs, 12 vatnsrennslis, 13 skrifar upp, 18 fugl, 20 flan, 21 tvíhljóði, 23 aðgæta, 24 frumefni. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: — 1 sálga, 5 sunna, 8 æfing, 9 raust, 11 agg- an^ 14 aur, 15 fálan, 15 akrar, 17 son, 19 agns, 21 átta, 22 nærðist, 25 iði, 25 áar, 27 aki. LÓÐRÉTT: — 2 ála, 3 gæs, 4 aftans, 5 snaran, 6 ugg, 7 nóa, 9 rofnaði, 10 ullinni, 12 görótta, 13 norpaði, 18 orða, 20 sæ, 21 Ás, 23 rá, 24 ir. LÁRÉTT: - 1 fugl, 5 hnífar, 8 hakan, 9 listamað- ur, 11 kroppa, 14 greinir, 15 barin, 16 pening-ar, 17 þegar, 19 heiðursmerki,' 21 vesælt, 22 afkvæmunum, 25 haf, 25 púka, 27 und. Skerðing á tekjum m ldrkjunnar l;:1 Biskiipinn yfir íshmii, hcrra Ólafur Skúlason, liofur tiiúlmælt því fyrir hönd Þjóö- kirkjunnar, af) ríkisstjúrn Rtoingríms Hormannssonar Itof- ur skort tckjur sókna ng kirkju- garúa uin 8G,.r> milljúnir kr. á jiossu ári, tokjur, som kirkjunni ~-^7G-rfusJD Þið stjórnarherrarnir eru farnir að ryðga dálítið í boðorðunum, nafni minn ... HÚSMÆÐRAFÉLAG Rvíkur. Basar á Hallveigar- stöðum, Túngötumegin, í dag kl. 14. Á boðstólum verður margt góðra muna á hóflegu verði. « FÉLAG breiðfirzkra kvenna. Fundur á morgun kl. 20.30 í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14. Anna Valdi- marsdóttir flytur erindi um sjálfsöryggi og ákveðni. KVENFÉLAG Fríkirkjunn- ar í Reykjavík. Fundur annað kvöld kl. 20.30 í Lækjargötu 14a. Gestur kvöldsins verður Kristín Hannesdóttir snyrti- fræðingur. Basar félagsins verður 10. nóvember í Veltubæ, Skipholti 33. Konur sem vilja gefa muni og kökur hafi samband við Svövu (16007), Steinunni (10887) eða Bertu (82933). KVENF. Grensássóknar. Basar, markaður og kökusala í safnaðarheimilinu laugar- daginn 10. nóvember kl. 14-17. Félagskonur og vel- unnarar. Tekið á moti munum og kökum nk. föstudag kl. 17-21 og laugardag frá kl. 10. BÚSTAÐAKIRKJA: Æsku- lýðsfundur í dag kl. 5. KVENF. Háteigssóknar. Fundur verður nk. þriðjudag kl. 20.30 í Sjómannaskólan- um. Vilborg Hjaltested kynnir plastvörur. Kaffi. Basar fé- Iagsins verður sunnudag 11. nóvember í Tónabæ. Tekið á móti munum og kökum frá kl. 10-12 sama dag í Tónabæ. SYSTRAFÉLAG Víðistaða- kirlqu. Félagsfundur í safn- aðarheimili Víðistaðakirkju á morgun kl. 20.30. Félagsvist. FÉLAG. eldri borgara. Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag kl. 14. Fijálst spil og tafl. Kl. 20 dans. Síldarkynn- ing á þriðjudag kl. 15. Lesið úr verkum Magnúsar Ás- geirssonar í umsjón Hjartar Pálssonar cand. mag. Lesar- ar eru Gils Guðmundsson rithöfundur og Alda Arnar- dóttir leikari. KVENF. Garðabæjar. Fundur þriðjudagskvöld kl. 20.30 í Garðaholti. KVENFÉLAG. Laugarnes- sóknar. Fundur mánudags- kvöld kl. 20. Skemmtiatriði. Veitingar. Mætum allar. ITC-deildin Ýr heldur fund annað kvöld kl. 20.30 í Síðumúla 17 og er fundurinn öllum opinn. JC-REYKJAVÍK heldur fé- lagsfund nk. þriðjudagskvöld kl. 20 í Holiday Inn. Gestur fundarins verður Björn Bjarnason aðstoðarrit- s^jóri. AFLAGRANDI 40, félags- starf aldraðra. Á morgun kl. 8.15-9.50. Hárgreiðsla kl. 9. Handavinna kl. 9.30, föndur kl. 13 og andlits- og fótsnyrt- ing og spilamennska. KVENF. Kópavogs. Basar félagsins verður haldinn 11. nóVember í Félagsheimilinu. Félagskonur eru vinsamlega beðnar að skila munum nk. þriðjudagskvöld í kvenfélags- herbergi kl. 20-22 eða á laug- ardag frá kl. 13-17. JÓLABASAR Hringsins er í dag, sunnudag, í Fóst- bræðraheimilinu, Langholts- vegi 109-111, oghefst kl. 14. Mikið af fallegri handavinnu og gómsætum kökum. KVENFÉLAG Keflavíkur. Fundur á morgun kl. 20.30 í Kirkjulundi. Bingó. KIRKJA SELTJARNARNES- KIRKJA: Opið hús fyrir 10-12 ára mánudag kl. 17. Opið hús fyrir foreldra ungra barna þriðjudag kl. 15-17. Bænir, fræðsla, söngur, fönd- ur. Foreldrar geta tekið börn- in með. NESKIRKJA: Á morgun, æskulýðsstarf 13 ára og eldri kl. 19.30. Þriðjudag: Opið hús fyrir mæður og böm þeirra kl. 10-12. Guðrún Dóra Guð- mannsdóttir hjúkrunarfræð- ingur talar um hjónabandið. Æskulýðsstarf fyrir 10-12 ára kl. 17 þriðjudag. FELLA- og Hólakirkja: Fundur í Æskulýðsfélaginu mánudagskvöld kl. 20.30. LANGHOLTSKIRKJA: Kvenfélag Langholtssóknar heldur fund þriðjudaginn 6. nóvember kl. 20.30 í safnað- arheimilinu. Venjúlegfundar- störf. Kynning á blóma- skreytingum. Kaffiveitingar. Helgistund í kirkjunni. SELJAKIRKJA: Mánudag: Fundur KFUK, yngri deild kl. 17.30, eldri deild kl. 18. Æskulýðsfundur kl. 20. ÁRBÆJARKIRKJA: Æsku- lýðsfundur í kvöld kl. 20 og mömmumorgunn þriðjudag kl. 10-12 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. GREN SÁSKIRKJA: Fundur í Æskulýðsfélagi Grensás- sóknar í kvöld kl. 20. GRINDAVÍKURKIRKJA: Æskulýðsstarf fyrir 10-12 ára börn hefst mánudag 5. nóvember kl. 18. Þorvaldur Halldórsson og sönghópurinn „Án skilyrða" kemur í heim- sókn og kennir söngva. SKIPIIM RE YKJ AVÍKURHÖFN: I gær kom Esja úr strand- ferð. Þá fór togarinn Snorri Sturluson til veiða og togar- inn Ogri var væntanlegur inn. í dag er togarinn Engey væntanlegur inn af veiðum. Á morgun er Laxfoss væntan- legur að utan og um helgina var rússneskt olíuskip vænt- anlegt með farm. HAFNARFJARÐAR- HOFN: Á morgun er frysti- togarinn Snæfugl væntan- legur. í dag er súrálsflutn- ingaskip væntanlegt til Straumsvíkur, það er ítalskt og heitir Aqvarius. Á morg- un er grænlenskur togari væntanlegur til löndunar. ORÐABOKIN Eindæmi — einsdæmi í seinni tíð hef ég tekið eft- ir því, að ruglings er farið að gæta í notkun ofan- nefndra orða. Á baksíðu Mbl. 24. ág. sl. er rætt um skjaldarmerki á Alþingis- húsið. Þar er þetta m.a. haft eftir alþingismanni: „Að mínum dómi geta for- setar þingsins ekki sam- þykkt breytingar á útlit Al- þingishússins upp á sitt einsdæmi. “ Sama kvöld heyrði ég ekki betur en þetta sama orð kæmi fyrir í frásögn af téðu skjaldar- merki í útvarpsfréttum. — Hér átti að nota no. ein- dæmi. í OM eru tvær merk- ingar gefnar upp. 1 fyrsta lagi sjálfdæmi, ábyrgð: gera e-ð uppá sitt eindæmi, og svo í öðru lagi ráðríki, gjör- ræði. No. einsdæmi er hins vegar notað um einstakan atburð, eins og segir í OM: einsdæmi í veraldarsögunni. Af þessu sést, að merkingin er ekki hin sama í þessum tveimur orðum. í áður- greindri frásögn er ótvírætt, að alþm. á við það, að þing- forsetar hafi ákveðið upp á eigin ábyrgð að láta setja skjaldarmerkið á Alþingis- húsið. No. einsdæmi á því alls ekki við í þessu sam- bandi, heldur no. eindæmi. Hér er vakin athygli á þess- um merkingarmun orðanna, þar sem það veldur einungis ruglingi og eru í raun hrein málspjöll að nota no. eins- dæmi í sömu merkingu og no. eindæmi. JAJ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.