Morgunblaðið - 04.11.1990, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.11.1990, Qupperneq 14
1__________________________ooeer H3aM3vðvi .(■ fluoAauvinug gigajhmuohom 14 -----------MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 19909 orðinn Akkillesarhæll repúblikana Karl Blöndal skrifar frá Bandaríkjunum BANDARÍKJAMENN ganga að kjörborðinu á þriðjudag. Repúblikan- ar höfðu gert sér vonir um að geta saxað á meirihluta demókrata á þingi. Nú er hins vegar talið að demókratar muni bæta við sig í fulltrúadeildinni og að minnsta kosti halda sínu i öldungadeildinni. Erfið fæðing fjárlaga hefur snúið almenningsálitinu gegn George Bush forseta og frambjóðendur repúblikana forðast nú forsetann eins og heitan eldinn. Þegar komið var undir miðbik síðustu viku virtist hylli forsetans vera heldur að aukast meðal almennings. Þar kom til að Bush hefur tekist að beina kastljósi fjölmiðla að Persaflóa- deilunni á ný með hörðum yfirlýsingum, sem gefa til kynna að átök séu í vændum. Forsetinn hefur einnig veist að demókrötum og gagn- rýnt „ást“ þeirra á skattlagningu. Það er hins vegar undir hælinn lagt hvort það kemur frambjóðendum repúblikana til góða í kosning- unum að kenna demókrötum um allt, sem þeir hafa imugust á, og beina athyglinni frá fjárlögum og að vígbúnaði Bandarikjamanna í söndum Saudi-Arabíu. raman af kosningabarát- tunni virtist svo sem kjós- endur vildu nýtt blóð í pólitískar stöður. Gjaldþrot spari- og lánastofnana í ríkiseigu átti þar stóran hlut að máli ekki síður en fjárlagahallinn. A tíma stjórnar Ronalds Reagans var svigrúm spar- isjóðanna til útlána aukið. í kjölfar- ið sigldi mikið svall, sem bæði dem- ókratar og repúblikanar voru flækt- ir í. Lán voru veitt hverjum sem þiggja vildi, án þess að mikið væri hirt um getu til endurgreiðslu. Oft- ar en ekki var um pólitíska greiða að ræða. Þegar kom að skuldadög- unum hafði samdráttur í efnahags- málum sett strik í reikninginn og fátt var um endurgreiðslur. Afleið- ingin var sú að sparisjóðirnir fóru unnvörpum á hausinn. Ofan á bætt- ist ákvörðun stjórnvalda um að hlaupa undir bagga með svimandi fjárupphæðum í stað þess að láta sparisjóðina sigla sinn sjó og ekki dró það úr fjárlagahallanum. Þessar tilfæringar voru kjósendum lítt að skapi og ýttu undir hugmyndir um að stjórnkerfið væri gróðrarstía spillingar. Kjósendur í vigahug Það var því enginf urða að þeir frambjóðendur, sem gátu, lögðu áherslu á að þeir væru utanaðkom- andi og í forkosningum beggja flokka fengu frambjóðendur með langan stjórnmálaferil að baki að kenna á tortryggni kjósenda gagn- vart kerfinu. Fjölmiðlar gengu svo langt að tala um byltingu að neðan og leiddu að því getum að frambjóð- endur í leit að endurkjöri mættu fara að óttast um hag sinn. Repú- blikanar hugsuðu sérgott til glóðar- innar og vonuðust til að geta gert meirihluta demókrata á þingi skrá- veifu. Þeir sökuðu demókrata um óráðsíu og lofuðu að auka ekki skattheimtu. Þessi söngur virtist kjósendum að skapi. En þegar um mitt sumar mátti greina blikur á lofti um að ekki myndi allt ganga repúblikönum í hag. Eitt helsta kosningaloforð Bush fyrir tveimur árum var „engir nýir skattar". Allt frá því að hann tók við embætti þar til í júní á þessu ári hélt hann fast við loforð sitt og flíkaði því óspart í ræðum. 26. júní sneri hann hins vegar við blaðinu og kvaðst skyndilega reiðu- búinn til að taka aukna skattheimtu til greina í fjárlögum fyrir næsta ár. Margir sögðu að hann hefði ekki átt annars kost. Hins vegar fór kaldur hrollur um hægri sinnaða repúblikana við þessi orð forsetans. í þeirra hugum mun þessi dagur verða fraigur að endemum. Bush kippti fótunum undan mörgum flokksbræðra sinna og einangraði hægri vænginn í Repúblikana- flokknum. Fjárlagadeilan Það kom í ljós þegar fyrsta fjár- lagafrumvarpið leit dagsins ljós í byijun október. Nefnd hvorra- tveggju demókrata og repúblikana hafði setið á rökstólum í fjóra mán- uði við að setja saman frumvarp. Bush flutti sérstakt sjónvarpsávarp Demókratar sjá loks ljós í myrkrinu til að fá flokksbræður sína til að snúa bökum saman og samþykkja frumvarpið. En allt kom fyrir ekki. Hægri vængur Repúblikanaflokks- ins með fulltrúadeildarþingmanninn Newt Gingrich í broddi fylkingar barðist ötullega gegn frumvarpinu. 5. október var það fellt. Fjárlagafrumvarpið skammlífa mætti ekki aðeins andstöðu repú- blikana. Demókratar voru einnig óánægðir með frumvarpið og héldu því fram að þar væri tekið á hinurri ríku með silkihönskum. Að auki voru demókratar lítt hrifnir af hrok- afullri framgöngu tveggja und- irmanna Bush, Richards Darmans fjárlagastjóra og Johns Sununu, starfsmannastjóra í Hvíta húsinu, sem höfðu að sögn beitt ýmsum bolabrögðum til að fá sitt fram. Helsta ástæðan fyrir því að frum- varpið féll var þó sú að frammá- menn demókrata og repúblikana voru þess ekki umkomnir að koma á aga í sínum röðum og knýja fram samþykki þess. Leiðtogar demókrata ákváðu nú að taka fjárlagasmíðina í sínar hendur og sniðganga Hvíta húsið eftir mætti. Á endanum leit dagsins ljós frumvarp, nokkuð frábrugðið því fyrra. Tillaga um aukið framlag aldraðra til læknishjálpar var skorin niður. Bush hafði sett lækkun skatta á arð á oddinn í lagasetn- ingu. Sá ásetningur varð að engu í nýja fjárlagafrumvarpinu þar sem skattlagning á arð hélst í 28%. Bush vildi að skatturinn yrði iækk- aður niður í 15%. Skattheimta í efsta skattþrepi var einnig aukin úr 28% í 31%. Þá var kveðið á um að hækka skyldi skatta á tóbak, áfengi og ýmsar munaðarvörur. Þetta fjárlagafrumvarp var sam- þykkt um síðustu helgi þrátt fyrir andstöðu ýmissa demókrata, sem vildu leggja þyngri skatta á breið i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.