Morgunblaðið - 04.11.1990, Side 19

Morgunblaðið - 04.11.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 19909 19 eftir Svein Guðjónsson Afframförum, náttúrulögmálum ogsamskiptum manna við Móður jörð NÁTTÚRA er líklega eitt yfirgripsmesta orð sem tungan á til. 1 víðustu merkingu tekur það til alls heimsins, jarðarinnar sem við göngum á og andrúmsloftsins sem við öndum að okkur. I þrengstu merkingu táknar það eðli einstaklings- ins, eða fremur þær arfgengu hvatir sem ákveða og stjórna eðlinu. Orðið náttúra nær yfir öll þau skilyrði og lögmál sem verka á og reyndar sljórna tilveru alls sem lifir, og þar er maðurinn ekki undan skilinn. Grein þessi er ekki skrifuð til að færa sönnur á þessa skilgreiningu heldur aðeins til að vekja lesendur til umhugsunar um stöðu mannsins í náttúrunni og samskipti hans við Móður jörð. ramfarir og hagvöxtur eru þau lausnarorð sem stjórnmálamenn á Vesturlöndum hafa haft að leiðar- ljósi á þeirri tækniöld sem við lifum nú á. Það er góðra gjalda vert og vissulega hafa þessi töfraorð bætt lífskjör manna og létt þeim lífsbar- áttuna. En böggull fylgir þó skammrifi. í ákafanum hafa menn ekki gáð að sér og gleymt því að allir þættir hinnar lifandi náttúru eru tengdir hver öðrum og sé ein- hver þeirra numinn burt hættir náttúran að starfa. Gömlum spek- ingum fyrr á öldum var þetta ljóst og sumar menningarþjóðir hafa virt þetta lögmál um stundarsakir, en almennt hefur mannkynið skellt skollaeyrum við þessum stað- reyndum í ákafri þrá sinni eftir bættum lífskjörum. Taumlaus græðgi í tilbúnar þarfir En bætt lífskjör eru eitt og gegndarlaus græðgi annað. Bíll á mann í hverri fjölskyldu auðveldar hveijum og einum að komast á milli staða og samkvæmt heimilis- hagfræðinni flokkast aukinn bíla- floti því líklega undir bætt lífskjör. En það er til lítils að eiga marga bíla ef menn komast ekki út úr húsi vegna súrefnisskorts. Það er líka vissulega til þæginda að gefa út nýja símaskrá á hverju ári og getur skipt sköpum þegar ná þarf símasambandi við mann sem hefur flutt og skipt um símanúmer. En hafa menn leitt hugann að því hversu stór hluti regnskóganna fer í að prenta nýja símaskrá handa Bandaríkjamönnum árlega? í vest- rænum iðnaðarríkjum er líka sífellt verið að búa til nýjar og nýjar „þarfir“. Á markaðinn streyma nýir hlutir sem fólk telur sér trú um að séu ómissandi. En menn þurfa ekki annað en líta í kringum sig á heimilinu til að sjá að þar eru fjölmargir hlutir sem ei-u gjörsamlega óþarfir og í raun- inni ekkert annað en bölvað drasl. Væri ekki nær að þafa trén úti í garði ögn fleiri? Á þessari öld hefur mannkynið háð tvær heimsstyijaldir og stend- ur jafnvel á barmi þeirrar þriðju. Menn geta auðvitað deilt um or- sakir þessara vopnaviðskipta en þegar upp er staðið má eflaust rekja þær að einhveiju leyti til ásóknar í hráefni, auðlindir og landrými. Þessar styijaldir hafa skilið eftir hörmungar og þjáning- ar fólks víða um heim. En á sama tíma hefur mannkynið óafvitandi og í blindni háð annað stríð, sem líklega á eftir að leiða meiri ógæfu yfír okkur en nokkur önnur styij- öld fram til þessa. Sá hildarleikur er stríð mannsins gegn náttúr- unni. Og sú spurning er að verða býsna áleitin hvort afleiðingar þessa stríðs verði ekki, ef haldið verður áfram á sömu braut, ægi- legri höhnungar en mannkynið hefur reynt og muni að lokum ógna sjálfri tilveru mannsins á jörðinni með algerri tortímingu? Fegursta og dýrmætasta eignin Skógar, gresjur, jarðvegur, vatn, dýralíf, — allt er þetta. háð hvað öðru. Ef einhvers þeirra missti við myndi jörðin deyja. Ind- íánum í Norður-Ámeríku Var þetta ljóst og horfðu því að vonum í forundran á hvítu landnemana MÁNUDAGUR, 14. JÚLÍ 1969. ryðja sér braut í gegnum land þeirra. Stór svæði á jörðinni, sem áður voru gróin og fijósöm, hafa verið lögð í eyði af mannavöldum. Önnur hafa horfið undir stein- steypu. Og áfram er haldið á sömu braut undir yfírvarpi hagvaxtar og framfara. Á seinni árum hefur þó aðeins örlað á því að menn hafí verið að átta sig á að virði maðurinn ekki lögmál náttúrunnar hljóti hún um síðir að snúast gegn honum og hefna sín á miskunnar- lausan hátt. Þegar allt kemur til alls er nátt- úran sjálf fegursta og dýrmætasta eign okkar, og ekki aðeins eign okkar manna, heldur allra lífvera. Því megum við aldrei gleyma. Vitaskuld lifum við ekki af því einu að horfa á heiðargæsir bíta gras í fögrum ijallasal eða anda að okkur úðanum af fossunum. Skynsamleg nýting náttúruauð- linda er okkur lífsnauðsyn. En okkur er líka lífsnauðsyn að draga úr taumlausri græðgi okkar í'til- búnar þarfir. Maðurinn verður að skilja nauðsyn þess að vinna í sam- starfi við náttúruna. Hann verður að stilla kröfum sínum í hóf og nýta, en um leið vernda, gæði jarð- ar til að tryggja áframhaldandi tilveru sína og menningu. Tímum rányrkjunnar verður að ljúka. Sveitasælan í Suður-Frakklandi Á fögrum vordegi, miðvikudag- inn 6. maí 1953, setti svissneski listamaðurinn Jörg Miiller upp málaratrönur skammt frá heimili sínu í Suður-Frakklandi og málaði mynd af sveitasælunni: Ávaxta- trén að byija að blómgast, kýr á beit, bóndi með plóginn og börn að leik við friðsæla tjörn. Á næstu tuttugu árum málaði hann mynd af nákvæmlega sama stað, með vissu millibili, og breytingarnar sem urðu á þessu fagra umhverfi vekja vissulega upp þá spurningu, hvort þar hafi verið gengið til góðs, götuna fram eftir veg ...? — Síðasta myndin er máluð þriðju- daginn 3. október 1972 og þá er komin verslunarmiðstöð með til- heyrandi hraðbrautum, þar sem áður voru sveitabýli og akrar. Höfundur þessarar greinar rakst á myndirnar hjá dr. Brodda Jóhannessyni, fyrrum skólastjóra Kennaraskólans, en hann hefur alla tíð verið mikill talsmaður nátt- úraverndar. Dr. Broddi fékk myndirnar hjá vini sínum dr. Ger- hard Helmut Schwabe, sem var ötull baráttumaður fyrir náttúru- vernd og vann mikið og farsælt starf í þágu umhverfisverndar víða um heim. Dr. Schwabe, sem lést á síðasta ári, var mikill Islandsvin- ur og var meðal annars sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar. Myndirnar, sem eru sjö talsins, urðu kveikjan að þessum hugleið- ingum, og eru nokkrar birtar hér mönnum til umhugsunar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.