Morgunblaðið - 04.11.1990, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÚTVARP/SJOrVIVARP
SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1990
Tómas R. Einarsson og félagar taka jasssveiflu í Litrófi.
Sjónvarpið;
Litróf
mWW Litróf legst í sannkallað næturrölt milli skemmtistaða að
ni 10 þessu sinni. Hér verður þó ekki um neitt sukk að ræða,
A heldur er þetta eins konar pílagrímsför um næturmenningu
höfuðstaðarins en einkum þó um ríki jassins. Litið er inn á jassbar
þar sem Tomas R. Einarsson og félagar jassa af kappi, auk þess
sem gítarleikarinn góðkunni Ólafur Gaukur flytur frumsamda jass-
smíð ásamt völdum hjálparkokkum.
Frá þessu tónlistarinnar ríki verður svo vikið í heimsókn í Nemenda-
leikhúsið þar sem fylgst verður með uppfærslu á verki þýska leik-
skáldsins Georgs Buehners á Dauða Dantons.
Af öðrum má nefna sýnishom af myndum ungs listamanns er sýnir
sín fyrstu pensilför á heimaslóðum um þessar mundir. Þar er á ferð
Sigurbjöm Jónsson sem undanfarið hefur stundað myndlistarnám i
New York. Umsjónarmaður Litrófs er Arthúr Björgvin Bollason en
stjóm upptöku annast Jón Egill Bergþórsson.
Stöð 2=
Góða nótt,
herrar mínir og frúr
■B Fjalakötturinn sýnir í kvöld ítölsku kvikmyndina Góða nótt,
05 herrar mínir og frúr (Signore e Signori). Þessi mynd gerist
á einum ímynduðum degi hjá ímyndaðri sjónvarpsstöð með
dagskrá ekki svo ólíka þeirri sem við þekkjum í sjónvarpi í dag.
Allt fær sinn skammt, allt frá sápuóperum til enskukennslu auk
þess sem auglýsingarnar taka að sjálfsögðu sinn tíma. Þar að auki
fær áhorfandinn að fylgjast með grátbroslegu ástarsambandi tveggja
starfsmanna sjónvarpsstöðvarinnar serri á sér stað bak við tjöldin
að mestu. Myndin er meinfyndin en launalvarleg háðsádeila á sjón-
varp.
Með aðalhlutverk fara Senta Berger, Adolfo Celi, Vittorio Gassman
og Nina Fredi. Atriði í myndinni eru ekki við hæfí bama.
12.45 Niu fjögur Dagsútvarp Rásar 2 heldur áfram.
16.03 Dagskrá Starfsmenn dægurmálaútvarpsins
og fréttaritarar heima og erlendis rekja stór og
smá mál dagsins.
18.03 Þjóöarsálin — Þjóöfundur i beinni útsend-
ingu, simi 91 — 68 60 90.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Gullskifan frá þessu ári: „The Bobby Ðarin
story" meö Bobby Darin.
20.00 Lausa rásin Utvarp framhaldsskólanna. Um-
sjón: Hlynur Hallsson og Oddný Ævarsdóttir.
21.00 Rokkþáttur Andreu Jónsdóttur. (Einnig út-
varpað aðfaranótt fimmtudags kl. 01.00.)
22.07 Landið og miöin Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Úr-
vali útvarpað kl. 5.01 næstu nótt.)
0.10 i háttinn.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Sunnudagssveiflan Endurtekinn þáttur Gunn-
ars Salvarssonar.
2.00 Fréttir. - Sunnudagssveiflan Þáttur Gunnars
Salvarssonar heldur áfram.
3.00 I dagsins önn - Hlítarnám og samkennsla
Um tilraunakennslu í 9. og 10. bekk Grunnskól-
ans á Egilsstððum. Umsjón: Inga Rósa Þórðar-
dóttir. (Frá Egilssöðum.) (Endurtekinn þáttur frá
deginum áður á Rás 1.)
3.30 Glefsur Úr dægurmálaútvarpi mánudagsins.
4.00 Vélmenniö leikur næturlög.
4.30 Veðurfregnir. - Vélmennið heldur áfram leik
sínum.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.05 Landið og miðin Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Endur-
tekið úrval frá kvöldinu áður.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Morguntónar.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
7.00 Á besta aldri. Umsjón Ólafur Tr. Þórðarson.
Kl. 7.00 Morgunandakt. Kl. 7.10 Orð dagsins.
Kl. 7.15 Veðrið. Kl. 7.3.0 Litið yfirYtorgunblöðin.
Kl. 7.45 Fyrra morgunviðtal. Kl. 8.10 Heiðar,
heilsan og hamingjan. Kl. 8.30 Hvað geröist
þennan dag. Kl. 8.45 Málefnið.
9.00 Morgunverk Margrétar. Umsjón Margrét
Hrafnsdóttir. Tónlist og ýmsar uppákomur. Kl.
9.30 Húsmæðrahamið. Kl. 10.00 Hvað gerðir
þú við peningana sem frúin í Hamborg gaf þér.
Kl. 10.30 Hvað er i pottunum. Kl. 11.00 Spak-
mæli dagsins. kr. 11.30 Slétt og brugðið.
12.00 Hádegisspjall. Umsjón Helgi Pétursson.
13.00 Strætin úti að aka. Umsjón Ásgeir Tómas-
son.
Kl. 13.30 Gluggaö í siðdegisblaðið. Kl. 14.00 Brugð-
ið á leik í dagsins önn. Kl. 14.30 Saga dagsins.
15.00 Leggðu höfuðið i bleyti. Kl. 15.30 Efst á
baugi vestanhafs.
16.15 Akademían.
Kl. 16.15 Heiðar, heilsan og hamingjan. Kl. 16.30
Mitt hjartans mál. Kl. 18.30 Smásögur. Inger
Anna Aikman lés valdar smásögur.
19.00 Kvöldtónar. Umsjón Halldór Backman. Ljúfir
kvöldtónar.
Stöð 2=
Sjónaukinn
BMMHi í sjónaukanum á
qa 05 mánudagskvöldið
ætlar Helga Guðrún
Johnson í heimsókn í „Álbæ“
eins og gárungarnir nefna Voga
á Vatnsleysuströnd sín á milli í
daglegu tali. Ýmsar breytingar
em fyrirsjáanlegar þar með
hugsanlegri tilkomu nýs álvers
og ætlar Helga Guðrún að
kanna þær auk þess sem hún
skoðar mannlífið. Þá ætlar hún
líka að koma við á eina sauðfjárbúi Suðurnesja.
22.00 í draumalandi. Umsjón Ragna Steinun Ey-
jólfsdöttir.
24.00 Næturtðnar Aðalstöðvarinnar. Umsjón Rand-
ver Jensson.
BYLGJAN
FM98.9
7.00 Eirikur Jónsson og morgunvakt Bylgjunnar.
9.00 Páll Þorsteinsson. Vinir og vandamenn kl.
9.30.
11.00 Valdis Gunnarsdóttir. Afmæliskveðjur og
óskalögin. Hádegisfréttir sagðar kl. 12.
14.00 Snorri Sturiuson. Vinsældarlistapopp.
17.00 ísland i dag. Jón Ársæll Þóröarson. Viðtöl
og símatimar hlustenda.
18.30 Kristófer Helgason og kvöldmatartónlistin.
22.00 Hafþór Freyr Sigmundsson mættur. Óskalög
og kveðjurnar.
23.00 Kvöldsögur. Siminn er opinn og frjálst að
tala um allt milli himins og jarðar.
24.00 Hafþór Freyr á vaktinni.
2.00 Þráinn Brjánsson á næturvakt.
EFFEMM
FM 95,7
7.30 Til í tuskiö. Jón Axel Ólafsson og Gunnlaug-
ur Helgason.
7.45 Út um gluggan..Farið yfir veðurskeyti veður-
stofunnar.
8.00 Fréttayfirlit. Gluggað í morgunblöðin.
8.15 Stjömuspá dagsins.
8.45 Lögbrotið. Lagabútar leiknir. Verðlaun í boði.
9.00 Sitthvað forvitnilegt og fréttnæmt.
9.30 Kvikmyndagetraun. Boðið út að borða.
9.50 Stjömuspá dagsins endurtekin.
10.00 Fréttayfirlit.
10.03 Ágúst Heðinsson og seinni hálfleikur.
10.30 Óskastund.
11.00 Leikur fyrir alla hlusténdur.
11.30 Úrslit.
12.00 Fréttir á hádegi.
12.15 Ert þú getspakur hlustandi?
13.00 Sigurður Ragnarsson. Kvikmyndagagnrýni,
hlustendaráðgjöf og fleira.
14.00 Fréttayfirlit.
14.30 Skyldi Sigurður hafa samband?
15.30 Óvænt uppákoma.
16.00 Fréttayfirlit.
16.03 Anna Björk Birgisdóttir og siðdegistónlist.
16.30 Gamall smellur. Topplag frá sjöunda áratugn-
um leikið og kynnt.
17.00 Nú er það áttundi áratugurinn.
17.30 Og svo sá niundi.
18.00 Fréttaskýrsla dagsins.
18.30 Ákveðinn flytjandi tekinn fyrir og kynntur
sérstaklega.
19.00 Vinsældalistapottur. Valgeir Vilhjálmsson
með Evrópuflutning á Bandaríska smáskifu- og
breiðskifulistanum auk þess sem hann fer yfir
stöðu á Breska listanum og flytur fróðleik um
flytjendur.
22.00 Jóhann Jóhannsson á rólegu nótunum.
ÚTVARPRÓT
FM 106,8
10.00 Fjör við fóninn með Stjána stuð.
12.00 Tónlist.
13.00MÍIIÍ eitt og tvö. Kántrýtónlist í umsjá Lárusar
Óskars.
14.00 Daglegt brauð. Birgir Örn Steinarsson.
18.00 Garnagaul. Þungarokk með Huldu og Ingi-
björgu.
19.00 Nýliðar. Þáttur sem er laus til umsóknar
hverju sinni.
20.00 Heitt kakó: Tónlistarþáttur.
22.00 Kiddi i Japis með þungarokkið á fullu.
24.00 Náttróbót.
STJARNAN
FM 102/104
7.00 Dýragarðurinn. Klemens Arnarson.
11.00 Bjami Haukur með splunkunýja iónlist.
11.00 Geðdeildin II. Umsjón: Bjami Haukur og Sig-
urður Helgi.
12.00 Sigurður Helgi Hlöðversson.
14.00 Sigurður Ragnarsson.
17.00 Björn Sigurðsson. Klukkan 18.00-19.00 á
bakinu með Bjarnal
20.00 Darri Ólason. Vinsældarpopp.
22.00 Arnar Albertsson.
ÚTRÁS
FM 104,8
16.00 MS 20.00 MH
18.00 Framhaldsskólafréttir. 22.00 IR
18.00 FB
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
eftir Elínu Pálmadóttur
Leyfi til að drepa
Hún ónáðar myndin sem koll-
ega Jóhanna Kristjónsdótt-
ur dró upp fyrir fáum dögum af
)ví sem fyrir hennar augu bar á
landamærunum við Jemen. Jó-
hanna var dregin þar að sem ung
stúlka lá með helblátt andavana
barn sitt milli fótanna og var að
blæða út. Augun æpandi af sárs-
auka og ótta. Andartaki síðar
horfir hún í dáin augu stúlkunn-
ar. Sá sem einu sinni hefur upplif-
að slíkt verður aldrei samur.
Kannski hafði lýsingin sterkari
áhrif á þennan skrifara, af því
að það vakti enn einu sinni upp
mynd úr flóttamannabúðum víet-
namska bátafólksins á Bido-eyju
í Malasíu fyrir nokkrum árum.
Um nótt fæddu tvær konur í
hrófatildurs spítalanum. Önnur
fyrir tímann. Og þótt þama væm
færustu iæknar máttum
við bara horfa á barnið
deyja því enginn var hita-
kassinn eða neitt annað.
Sú móðir lá líka þarna —
með örvæntinguna í aug-
unum. Úr slíkum aðstæð-
um vorum við þá að bjarga
nokkrum flóttamönnum til
íslands.
Kannski var flóttafólkið
í búðunum á landamærum
Thailands, eftir að Rauðu
kmeramir höfðu „af hug-
sjónaástæðum“ drepið
hálfa aðra milljón manna
í Kambodfu, enn verr sett.
í Kambodíubúðunum sat
maður og hlustaði á byern
á fætur öðrum segja sína
eigin skelfingarsögu um
skipulagt miskunnarleysi
Rauðu kmeranna. Fóikið
hafði vaðið í gegn um jarð-
sprengjubeltið á landa-
mæranum og oft skilið ein-
hvem úr fjölskyldunni eftir
í tætlum. Skammt frá búð-
unum okkar réðust þessir
sömu Rauðu kmerar á þorp
að næturlagi, brenndu hús-
in og drápu fólkið. Með
myndir af börnum sem
þeir höfðu rist á kyið kom
maður heim til þessa frið-
sæla íslands. Á kennara-
stofu var rætt um að svona lagað
ætti bara ekki sýna á íslandi.
Þannig er það nú samt. Kannski
von að við neitum að trúa, en það
skiptir máli að við vitum.
Þessi mynd úr flóttamannabúð-
um Kambódíufólksins kom fram
í hugann nú fyrr í mánuðinum
að gefnu tilefni — sjónvarpsþætti
í Bretlandi. Kom raunar við
fleiri, því þátturinn kallaði á fyrir-
spurn í breska þinginu. En hann
átti engu síður erindi hingað til
íslands en til Breta. Við höfum
nefnilega til skamms tíma stuttaf
„diplómatískum ástæðum“ Rauðu
kmerana til setu og áhrifa á þingi
Sameinuðu þjóðanna.
Þátturinn í ITV-sjónvarpinu nú
er aðvörunaróp, því allt útlit er
fyrir að Rauðu kmerarnir, sem
barist hafa sem skæraliðar í fjöll-
unum í rúman áratug, séu að ná
landinu aftur — muni fyrirhafnar-
lítið fylla tómarúmið eftir að Víet-
namar eru farnir. Þegar eru þeir
með hræðsluherferð um landið
allt. Þeir skelfa fóikið með því að
koma jarðsprengjum fyrir, svo
hver sem á stígur missir fótinn.
Sprengjur leynast í vatninu á hrís-
grjónaökrunum. Um daginn
stöðvuðu þeir lest skammt frá
höfuðborginni, drógu út 56 manns
og drápu. Þeir eru að undirbúa
jarðveginn svo að enginn þori að
standa á móti þeim. Á skjánum
mátti sjá þetta einfætta fólk með
stubbana blæðandi. 80 nianns
koma daglega fótarvana í illa
búin sjúkraskýlin. Þar sagði kot-
roskni einfætti strákurinn á hækj-
unum að fótaleysið bætti hag sinn
við að betla. Einstæða móðirin
hafði misst fótinn á akrinum og
börnin hennar bjargarlaus heima.
John Pilger fullyrti að þegar væru
til hjá Rauðu kmerunum listar
með nöfnum 2 milljóna manna,
sem þyrftu að fara í hreinsuninni
eftir að þeir kæmu aftur. Þessir
svonefndu friðarsamningar, sem
alþjóðasamkundan væri að binda
vonir við, væru bara blekking,
nýtt af Rauðu kmerunum.
Þátturinn höfðaði ekki bara til
tilfínninga. Pilger lagði fram
sannfærandi gögn um það hvern-
ig vopn frá vestrænum þjóðum
eiga, auk vopnanna frá Kínverj-
um, greiða leið til Rauðu kmer-
anna um Singapore. Líka jarð-
sprengjurnar sem tæta fæturna
af bændafólki Kambodíu. Og allar
þessar þjóðir — íslendingar líka
— hafa öll þessi ár og fram undir
þetta stutt þá í áhrifasæti hjá
Sameinuðu þjóðunum. Fulltrúinn
þar, gamli refurinn Kiiieu Samp-
an, einn af arkitektunum að
dauðaprógramminu eftir „árið 0“,
þegar byija á með hreint borð.
Blaðamaðurinn reyndi með hljóð-
nema að fá svör um stefnu Breta
og Bandaríkjamanna í Kambódíu-
málinu, en allir þögðu þunnu
hljóði. Alltaf hafa menn vísvitandi
skotið sér bak við tvo vanmegn-
uga aðila, Sianouk .og KGNFL.
Bandaríkjamaðurinn Roger Nor-
mand, ritstjóri Harvard Human
Rights Joumal, hefur með við-
tölum við fjölda frammámanna
Rauðu kmeranna og önnur gögn
fengið fram leynda áætlun þeirra
um að draga alþjóðasamkunduna
á asnaeyrunum. Með orðum Pol
Pots sjálfs: „að gera enga friðar-
samninga“ og „draga kosningar“,
þar til Rauðu kmerarnir hafa náð
valdi f öllum sveitum. Samþykkja
enga pólitíska lausn fyir en her
þeirra hefur „undirbúið“ almenn-
ing svo þeir geti „haft vald á
kosningunni". Ben Kiernan frá
Yale-háskóla og sérfræðingur um
Kambódíumál telur gögnin og
matið rétt.
í flóttamannabúðunum 1977
hlaut þessi íslenski blaðamaður
trúnað ungu Kambodíumann-
anna, sem vora að bjarga fólki, í
krafti þeirra raka að íslendingar
skiptu máli, hefðu heilt atkvæði
hjá Sameinuðu þjóðunum. Og
svona fórum við með það. Við
kusum að bera ábyrgð á Rauðu
kmerunum og styrkleika þeirra
nú.