Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 12

Morgunblaðið - 06.11.1990, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990 Uppbygging athafnalífs í Reykjaneskjördæmi eftir Maríu E. Ingvadóttur Þar sem ég gef kost á mér í próf- kjör sjálfstæðismanna í Reykjanes- kjördæmi 10. nóvember nk., vil ég hér greina frá nokkrum málefnum sem ég hef kynnst í gegnum starf mitt og vil gjarnan fá brautargengi til að framkvæma á Alþingi, ásamt fleiri góðum málum. Nýjan kraft í atvinnulíf kjördæmisins Það þarf ekki að líta mörg ár aftur í tímann til þess, er atvinnu- leysi var lítið á þessu svæði og meðallaun yfir landsmeðallagi. Geð- þóttaákvarðanir stjómvalda í villt- um dansi byggðastefnunnar hafa ekki náð til Reykjaness og Suður- nesja. Þar sem áður var blómleg útgerð, er ekki lengur þorskvóta til að dreifa, skipin em seld hvert af öðru og kvótinn með. Héðan frá suðvesturhominu er stutt á gjöful fiskimið. Hér er líka aðalflughöfn landsins, þaðan sem flogið er daglega á helstu markaðs- svæði okkar í Evrópu. Liggur þá ekki beint við, að hér á svæðinu sé byggð upp matvælaframleiðsla? Hér em öll skilyrði þess að byggja upp blómlega matvælaframleiðslu, héðan á að flytja út matvæli í neyt- endaumbúðum, gæðaframleiðslu á góðu verði. Við eigum að gæta þess fjársjóðs vel sem við eigum í þeirri ímynd, að á íslandi sé ómenguð náttúra og ómengað haf umhverfis. Við gætum laðað að okkur iðn- fyrirtæki, sem sýnt geta fram á arðbæran rekstur að loknum hæfí- legum uppbyggingartíma. Það er eðlilegt að veita nýjum fyrirtækjum ákveðna ívilnun, t.d. í formi lægri gjalda, á meðan þau eru að koma rekstrinum á traustan grunn. ísland viðkomustaður í Iangflugi Lega landsins býður upp á það, að hér verði viðkomustaður fyrir flugvélar á leið yfir hafið. Ef vilji er fyrir hendi, mætti byggja hér upp fríhöfn, þar sem boðið væri upp á fyrsta flokks verslanir og þjón- „Það er furðulegt, að á sama tíma og þessar stórkostlegu breyting- ar eru að eiga sér stað í Evropu, skulum við Islendingar sigla hrað- byri á móti straumnum, til aukinnar miðstýr- ingar, vaxandi ríkisfor- sjár og útþenslu ríkis- báknsins. Eru þessi ósköp í samræmi við vilja meirihluta þjóðar- innar?“ ustu. Lækka þyrfti lendingargjöld og gera aðrar aðstæður eftirsóknar- verðar fyrir erlend flugfélög. Hér gæti orðið um arðbæran rekstur að ræða, sem auk þess mundi skapa mörg atvinnutækifæri. Heilsustöðvar í Reykjaneskjördæmi er að finna mjög hentuga staði fýrir heilsu- stöðvar. Má þar nefna Reykjalund, Krýsuvíkursvæðið og svæðið um- hverfis Bláa lónið. Glæsilegar heilsustöðvar sem bjóða upp á fyrsta flokks aðhlynningu, endur- hæfingu og þjónustu, taka til sín mikið vinnuafl og htiðarþjónustu ýmiss konar. Við skulum ekki vanmeta þátt ferðamanna í atvinnusköpun fram- tíðarinnar. Við skulum vinna mark- visst að því, að okkar hluti af vax- andi tekjum vegna ferðamanna- þjónustu verði verulegur. Uppbyggingu í stað miðstýringar Ef íslendingar ætla að halda sínu efnahagslega sjálfstæði, þarf að vinna markvisst að uppbyggingu arðbærs atvinnulífs. Stjómvöld eiga að skapa þannig ytri skilyrði, að hægt sé að ná fram arðsemi í rekstri fyrirtækja. Nú em austantjalds- þjóðir, allslausar eftir vonlaust sós- íalískt hagkerfi, hrópandi á hjálp María E. Ingvadóttir frá þeim, sem forystumenn þeirra úthrópuðu fyrir skemmstu sem óg- urlega kapítalista. Nú er hið hræði- lega kapítalíska hagkerfí þeirra eina von. Það er furðulegt, að á sama tíma og þessar stórkostlegu breytingar eru að eiga sér stað í Evrópu, skul- um við íslendingar sigla hraðbyri á móti straumnum, til aukinnar mið- stýringar, vaxandi ríkisforsjár og útþenslu ríkisbáknsins. Eru þessi ósköp í samræmi við vilja meiri- hluta þjóðarinnar? Höfundur er viðskiptafræðingur og tekur þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna. í Reykjaneskjördæmi. Allt barnastarf skilar tekjum eftír Hans Henttinen JC-Reykjavík hefur staðið fýrir átaki gegn vímuefnaneyslu ungs fólks. I tilefni af því var þess farið á leit við mig, sem starfsmann Rauða krosshússins, að leggja um- ræðunni lið í formi blaðagreinar. Eftir tæplega fimm ára starf við Rauða krosshúsið er engin spurning í mínum huga að mikil vímuefna- neysla er oftar en ekki afleiðing, þ.e. orsökina er oftast að finna í uppeldis- og félagslegum aðstæðum einstaklingsins. Margir og oft sam- verkandi þættir spila þarna inn í og ætla ég ekki að fara nánar út í þá enda er ég nánast hættur að sjá tilganginn með umræðum um þau 'mál. Framkvæmdar hafa verið ótal rannsóknir og fyrir liggja skjalfest- ar upplýsingar um orsakavalda. Við höfum nokkuð góða hugmynd um hveijir eru í áhættuhópum og af hveiju þeir eru þar en samt sjást sjaldan merki um róttækar og markvissar aðgerðir. Þegar við síðan sjáum aðgerðir eru þær sjaldnast á sviði forvarna. þá verð ég að viðurkenna að ég er orðinn svolítið pirraður á því að við skulum stöðugt þurfa að vera með „átak“ í hinu og þessu. Til að úti- loka allan misskilning þá vil ég taka fram að þessi pirringur beinist að méstu að þeim ráðamönnum sem móta stefnuna hveiju sinni. En á meðan grunnskólinn hefur ekki það svigrúm sem hann þarf til að sinna þessum málum þá verð ég að sam- þykkja nauðsyn þess að „fólkið sjálft" taki til hendinni svo umræð- an detti ekki niður. Á ári hveiju ver íslenska þjóðin ómældu fjármagni í meðferðarúr- ræði tengdum vímuefnavandanum og hleypur sú tala Iíklega á hundr- uðum milljóna króna en á sama tíma er það fjármagn sem fer í fræðslu- og forvamarstarf skorið við nögl. Hans Henttinen Ég vil þó ekki trúa að ástæðan liggi í takmarkaðri trú ráðamanna á slíku starfi. Hér á landi fyrirfinnst ekki vel „Við getum aldrei talið krónurnar sem sparast með forvarnarstarfi en það væri fróðlegt að fá upplýsingar um krónu- fjöldann sem fer í vímu- efnafræðslu til nem- enda grunnskólans.“ skipulagt og markvisst forvarnar- starf í vímuefnamálum, þ.e. fræðsla sem nær til allra einstaklinga í ákveðnum aldurshópum. Ýmsir hópar og félagasamtök hafa þó á undanfömum árum gert tilraun til að sinna þessu starfi, í gegnum fjöl- miðla, bréfalúgur og skólakerfíð en samræming og samvinna er mjög takmörkuð. Þegar talað er um miðstýringu þá telst ég almennt ekki til stuðn- ingsmanna þannig stjórnunar en hún er nauðsynleg þegar um er að ræða velferð bama og unglinga í Vímuefni - áróðursviku JC Reykjavíkur lýkur í dag Ég ætla þess í stað að nota tæki- færið og koma aðeins inn á forvam- arstarf en það er sá þáttur sem ég hef trú á að gæti skilað árangri ef honum væri sinnt nægilega vel. Það er alltaf fagnaðarefni þegar einstaklingar, hópar eða félagasam- tök opna umræðuna um vímuefna- vandann eða aðra þá þætti sem miður fara í þjóðfélaginu. Án þess að draga kjark og mátt úr öllu því ágæta fólki sem gerir hvað það getur til að halda lífi í umræðunni eftír Kristínu Alfreðsdóttur Eins og komið hefur fram stóð byggðarlagsnefnd 1 frá JC Reykja- vík fyrir áróðursviku núna 27. októ- ber til 3. nóvember. Greinar hafa birst í dagblöðum eftir áhugafólk og sérfræðinga um þetta efni og nefndarmenn hafa fjallað um efnið á Bylgjunni og Aðalstöðinni. Vegg- spjöldum hefur verið dreift um alla „Það er skylda allra uppalenda að upplýsa börnin sín um þann skaða sem vímuefni valda, hver svo sem þau eru.“ borgina og stundaskrám hefur verið dreift til allra nemenda í 8. bekkjum í grunnskólum Reykjavíkur. Rit- gerðarsamkeppni í þessum aldurs- hópi lýkur í dag með verðlaunaaf- hendingu í Austurbæjarskóla kl. 14.00. Þar fá höfundar þriggja bestu ritgerðanna vegleg peninga- verðlaun. Visa-ísland hefur styrkt þetta verkefni og færum við þeim bestu þakkir fyrir skjót og góð við- brögð. Alltof margir unglingar. ánetjast vímuefni. Það er skylda allra upp- alenda að upplýsa börnin sín um þann skaða sem vímuefni valda, hver svo sem þau eru. Fræðsla um reykingar kom inn í skólana fyrir mörgum árum og hefur árangur orðið undraverður jafnt hjá ungling- um sem fullorðna fólkinu. Fyrir nokkrum árum þótti sjálfsagt að púa reykjarsvælu í allar áttir án nokkurs tillits til samferðafólksins. í dag er viðhorfið allt annað og á krabbameinsfélagið heiðurinn af þeim stórkostlega árangri. Það er því Ijóst að skipulögð fræðsla og skipulagt átak um notk- un vímuefna hefur jákvæð áhrif á samfélagsheildina. Unglingar láta ekki þrýsting frá jafnöldrum leiða sig út í reykingar. Núna þykir það ekki „flott“ að reykja og unglingar þora að segja: „Nei takk.“ Fíkni- efnaneysla unglinga er útbreiddari en almenningur heldur og er áríð- andi að foreldrar og aðrir uppalend- ur kynni sér einkenni sem eru neysl- unni samfara, svo að þeir geti grip- ið í taumana og leiðbeint börnum sínum framhjá þessum vágesti. Áróðursviku byggðarlagsnefndar 1 hjá JC Reykjavík er lokið og er Hársnyrtistofan Onix, Grandavegi 47, sími 626162. Nú er rétti tíminn til að fá sér permanent í hárið. Við höfum permanentoliur fyrir allar hárgerðir. HÁRSNYRTING fyrir dömur og herra. Sérstakt verð fyrir ellilífeyrisþega. Visa - Euro - Samkorts þjónusta Opið á laugardögum Hrafnhildur Konráðsdóttir, hárgrm. Helena Hólm, hárgrm. víðri merkingu þess orðs. Sam- kvæmt aðalnámskrá ber skólanum að sinna fræðslu um áhrif og skað- semi vímuefna en eins og almenn- ingur veit þá hefur skólinn ekki haft svigrúm til þess. Miðstýringar- valdið er til staðar en það gegnir bara ekki því hlutverki sem því ber skylda til. Allt starf með börnuin og ungl- ingum kostar peninga en gallinn er bara sá að tekjurnar skila sér ekki í dag eða á morgun. Við sjáum sjaldnast afrakstur starfsins fyrr en eftir 10-20 ár. Starf Krabba- meinsfélagsins í grunnskólanum er kannski skýrasta dæmið um öflugt og árangursríkt forvarnarstarf sem skilar sér þegar til Iengri tíma er litið. Við getum aldrei talið krónurnar sem sparast með forvarnarstarfi en það væri fróðlegt að fá upplýsingar um krónuijöldann sem fer í vímu- efnafræðslu til nemenda grunnskól- ans. Höfundur er kennari aðmenntog vcitir Rauða krosshúsinu forstöðu. Kristín Alfreðsdóttir ánægjulegt að hafa fylgst með því hversu jákvæða umræðu hún hefur skapað og jákvæðar undirtektir þeirra sem til var leitað. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka nefndinni fyrir vel unnin störf og vona að umræða um fíkniefni hafi vaknað á sem flestum heimilum í landinu. Höfundur er forseti JC Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.