Morgunblaðið - 06.11.1990, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NOVEMBER 1990
Veljum skelegga
konu í baráttusætið
eftír Þórð Reykdal
Látum ekki sama óhappið henda
hér og í prófkjörinu í Reykjavík.
Með fyllstu virðingu fyrir því
ágæta fólki, sem skipar efstu sætin
á sterkum framboðslista Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík, er ég þess
fullviss að listinn hefði orðið enn
sigurstranglegri hefðu fieiri konur
verið í þeim hópi.
Það skal fúslega viðurkennt að
ég hefði verið í mjög miklum vanda,
hefði ég átt að velja hver hinna
mætu traustu karlmanna ætti að
víkja úr sæti fyrir konu. Það er
augljóst, að í Reykjavík hafa kon-
urnar goldið „offramboðs" úrvals
karla, sem ef til vill sést bezt á því
að Guðmundur H. Garðarsson
skyldi hafna í tólfta sæti. Baráttu
hans fyrir hagsmunum aldraðra og
leiðréttingar á starfsgrundvelli
lífeyrissjóðanna hefði eldra fólkið
viljað launa betur.
Lovísa Christiansen er vel gefin,
hugmyndarík og hörkudugleg kona,
eins og þeir vita bezt sem hafa
kynnzt henni í starfsemi Útivistar
og margra annarra félaga. Enginn
þarf því að efast um, að hún verður
duglegur baráttumaður skipulagn-
ingar ferðamála með verndun um-
hverfisins að aðalmarkmiði, en þau
mál er orðið mjög aðkallandi að
taka föstum tökum án tafar. Ég
veit líka að Lovísa styður eindregið
hugmyndina um fækkun þing-
manna og breýtta kjördæmaskipan,
sem ég tel vera stærsta málið í
íslenzkum stjórnmálum. Einmenn-
ingskjördæmi verður að taka upp
að nýju. Það er eina leiðin til að
skapa festu og ábyrgð í íslenzkum
stjórnmálum. Hér verða ekki rakin
fleiri baráttumál Lovísu, en ég veit
að hún verður öflugur málsvari
okkar, eldri kynslóðarinnar, og mun
af festu og einlægni styðja hvert
það mál sem til heilla horfir fyrir
land og þjóð.
Hugmyndarík kona, sem veit
hvað hún vill, er örugglega bezti
kosturinn sem Sjálfstæðisflokkur-
inn á í baráttusæti flokksins í
Reykjaneskjördæmi.
Hádegisverður
á Hótel Holti
Næstu vikur verður á Hótel Holti sér-
stakt tilboð í hádeginu, sem samanstend-
ur af forrétti, aðalrétti og eftirrétti, sem
hver velur að vild.
Þríréttaður hádegisverður á viðráðanlegu
verði, án þess að slakað sé á gæðakröfum.
Forréttir
Rjómalöguö sjávarréttasúpa
Villibráöarterrínem/rifsberjasósu
Grænmetismús m/piparrót
Pasta ogreykt flesk á jöklasalati
Aðalréttir
Ristaöur steinbítur m/ostasósu
Gljáö hamborgarlæri m/rauövínssósu
Eldsteikt heilagfiski m/kavíarsósu
Hreindýrasmásteik m/eplasalati
Gufusoöin rauösprettuflök m/skelfisksósu
Steiktur lundi m/rúsínum í maltsósu
Eftirréttir'
Rjómaís m/vínberjasósu
Kaka dagsins
Verð frá kr. 995.*
*
Bergstabastrœti 37, Stmi 91-25700
Þröst í 6. sætið!
Þórður Reykdal
Tökum þátt í prófkjörinu og velj-
um Lovísu í fjjórða sæti.
Ilöfundur er fyrrverandi
starfsmaður Flugleiða.
eftírívar
Benediktsson
Sjálfstæðismenn í Reykjanes-
kjördæmi velja í prófkjöri 10. nóv-
ember framboðslista sinn til næstu
alþingiskosninga. Undirritaður vill
hér með vekja athygli sjálfstæðis-
manna í kjördæminu á einum fram-
bjóðanda, Þresti Lýðssyni. Þröstur
býður flokknum krafta sína og
sækist eftir 6. sæti listans.
Margt mælir með því að velja
Þröst í 6. sætið. Þarna er á ferð
hörkuduglegur og ósérhlífinn fram-
bjóðandi sem lætur ekki sítja við
orðin tóm.
Undirritaður kynntist Þresti þeg-
ar hann var formaður handknatt-
leiksdeildar UMFA í Mosfellsbæ,
fyrir nokkrum árum, og víst er að
það var góður skóli fyrir mig að fá
að vinna með honum. Starf for-
manns deildarinnar fórst Þresti frá-
bærlega úr hendi. Alla sína vinnu
innan deildarinnar skipulagði hann
mjög vel jafnfrfamt því sem hann
átti mjög auðvelt með að laða fólk
til samstarfs. Auk þess hafði hann
góða yfirsýn yfir rekstur deildarinn-
ar, jafnt utan vallar sem innan.
Þröstur var og er ekki einn af þeim
sem sækjast eftir því að sitja í
stjórnum bara til að vera þar að
nafninu til, nei, hann vill vera virk-
ur í starfinu og það er hann svo
sannarlega, hvar sem hann ber nið-
ur.
Því er það engin spurning í
mínum huga að við sjálfstæðismenn
í Reykjaneskjördæmi þurfum ekki
að hugsa okkur tvisvar um, hvað
þá þrisvar, áður en við sameinumst
um og merkjum við nafn Þrastar
„Gjör rétt, þol ei órétt“
eftírLilju
Hallgrímsdóttur
Á aðalfundi Samtaka sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu (SHH),
sem haldinn var í Kjalarneshreppi
20. okt. sl., var samhljóða sam-
þykkt ályktun um kjördæmaskipt-
ingu og jöfnun atkvæðisréttar. í
ályktuninni er skorað á þingmenn
að endurskoða ákvæði stjórnar-
skrár og laga um kosningar til Al-
þingis, með það fyrir augum að
misvægi atkvæða verði leiðrétt
þannig að atkvæðisréttur lands-
manna- verði sem jafnastur, enda
um grundvallarmannréttindi að
ræða.
í Reykjavíkur- og Reykjaneskjör-
dæmum hefur mikil fólksfjölgun átt
sér stað á sl. 30 árum frá því að
núverandi kjördæmaskipan var inn-
leidd. Breytingar þær sem gerðar
vóru á lögum 1987 eru hvergi nærri
fullnægjandi og Ijóst er að veruleg-
ur munur er á vægi atkvæða eftir
kjördæmum samanber töfluna sem
hér fylgir.
Lýðræðisleg stjórnskipun hlýtur
að snúast um það að sérhver kjós-
andi hafi jafnan rétt til að eignast
fulltrúa sinn á Alþingi. Því þarf að
hraða endurskoðun stjórnarskrár
íslendinga og þá sérstaklega hvað
varðar kjördæmamálin. Ná þarf
víðtæku samkomulagi um kjör-
dæmaskipunina þannig að hún verði
til þess fallin að skapa festu og
frið um stjórn landsins. Kjör-
„Það er ekki einungis
brýnt fyrir íbúa Reykj-
aneskjördæmis að kjör-
dæmaskipan verði end-
urskoðuð, heldur er það
nauðsynlegt fyrir þjóð-
ina alla.“
dæmapot og kjördæmarígur eyðir
allt of mikilli orku og tíma þing-
manna. Þingmenn virðast ekki allt-
af hafa þjóðarhag í huga, ef velja
þarf á milli hagsmuna kjördæmis
og þjóðarhags. Með áföngum mætti
fækka þingmönnum, kjósa hluta
Kjördænii Fjöldi % Fjöldi % íbúafjöldi pr. þingm. Skipt núv. fj. þingm. eftir íbúat. Þingm. ef fj. þeirra á Vestfj. er óbr. & íb.tala ræður Þingm. ef fj. þeirra á Reykjan. er óbr. & íb.tala ræður
Reykjavík 18 28,57 95,799 38,06 5.322 24 47 17
Reykjanes 11 17,45 61.086 24,27 5.553 15 30 11
Vesturland 6 9,52 14.798 5,88 -2.466 4 7 3
Vestflrðir 5 7,94 10,096 4,01 2.019 2 5 2
Norðurl. v. 5 7,94 10.553 4,19 2.111 3 5 2
Norðurl. ey. 7 11,11 26.105 10,37 3.729 7 13 5
Austurland 5 7,94 13.163 5,23 2.633 3 7 2
Suðurland 6 9,52 20.097 7,98 3.350 5 10 4
Samt. meðalt. 63 100,00 251,697 100,00 3.398 63 124 46
Hversvegna eru kvenna-
listakonur á móti álveri?
eftír Aðalstein
Jóhannsson
Menn velta nú fyrir sér spurning-
unni um það, hvers vegna kvenna-
listakonur séu á móti álveri. Álverk-
smiðja hefur verið starfandi hér á
landi um árabil. Þeir sem þar hafa
starfað eru nokkuð einróma um
vinnustaðinn, að hann sé mjög til
fyrirmyndar, starfsmenn fari í
læknisskoðun með stuttu millibili
og sé þannig vakað yfir heilsufari
þeirra.
Fréttamaður sjónvarpsstöðvar
var á ferð í Suður-Karólínu, þar sem
Alumax-fyrirtækið (einn af Atl-
antsál-aðilum) rekur álver, og
greindi hann frá því fyrir skemmstu
að þarna væri fullkomnari hreinsi-
búnaður heldur en í Straumsvík,
þar væri t.d. ekki sjáanleg nein blá-
móða umhverfis verksmiðjuna, en
hennar gætir óneitanlega nokkuð
hér. Fréttamaðurinn greindi líka frá
því að konur ynnu þarna í veruleg-
um mæli og líkaði þeim starfið vel.
Fyrirhugað álver á Keilisnesi mun
vera áætlað í líkingu við þetta. Nú
er því vert að spyrja, hvort þessi
fregn hafi haft einhver áhrif á við-
horf Kvennalistans.
„ Fréttamaðurinn
greindi líka frá því að
konur ynnu þarna í
verulegum mæli og
líkaði þeim starfið vel.
Fyrirhugað álver á
Keilisnesi mun vera
áætlað í líkingu við
þetta.“
Talið er að hér bætist við u.þ.b.
1.500 manns á vinnumarkaðinn
árlega. Frystihús landsins eru mörg
nýlegir og góðir vinnustaðir sem
kostað hefur verið miklu til, jafnvel
svo að segja má að allt sé flísalagt
í hólf og gólf og upphitun að góðu
marki. En samt er það svo, að veru-
leg vöntun er á vinnuafli. Útvegun
fólks mun hafa verið reynt til hlítar
nú á haustmánuðum, og frést hefur
að sjávarplássin vestra, Bolung-
arvík, Flateyri, Þingeyri, Bíldudalur
og fleiri staðir ráðgeri að flytja inn
fólk frá Ástralíu. Þaðn hafa komið
allmargar stúlkur á undanförnum
árum og þær gefist vel. En ekki
er þetta eins og vera ætti.
Aðalsteinn Jóhannsson
Hvað er til ráða? Vilja kvenna-
listakonur svara með orðum og at-
höfnum?
Höfundur er tæknifræðingur.