Morgunblaðið - 06.11.1990, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.11.1990, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NOVEMBER' 1990 Endurviimsla — hringrás eftir Þórarin Sveinsson í grein í Morgunblaðinu er birtist 21. október sl. undir fyrirsögninni íslenska Stálfélagið, skrifuð af Sig- urði Smára Gylfasyni, er fjallað um félag er stofnað var fyrir 2 árum og gefið þetta virðulega nafn. I byijun greinarinnar segir að félagið hafi strax í fyrravetur hafíð söfnun á brotamálmi og vinnslu hans þann- ig að efnið henti til málmbræðslu. Jafnframt er tekið fram að málm- bræðslan sjálf hefjist í þessum mánuði. í næstu málsgrein er sagt að með stofnun fyrirtækisins hafí verið stigið stórt skref í þágu um- hverfisvemdar og á þá höfundur væntanlega við umhverfisvernd á íslandi. Er íslenska Stálfélagið að finna upp hjólið? Undirritaður, sem er fæddur og alinn upp í Reykjavík, hefur haft áhuga á umhverfismálum frá því að hann komst til nokkurs þroska. Vakti grein Sigurðar Smára því athygli hans. Eftir lestur greinar- innar eru lesendur skildir eftir með þá tilfinningu að hér sé um algera nýjung að ræða, þ.e. söfnun brota- málms, flokkun hans, pressun og brytjun, þ.e.a.s. endurvinnsla er gerir efnið hæft til málmbræðslu á nýjan leik. Hveijar eru staðreyndir málsins hvað þennan verkþátt varðar? Undanfarin 40 ár hefur Endur- vinnsludeild Sindra og síðan Hring- rás er stofnað var sem sjálfstætt fyrirtæki fyrir tæpum 2 árum flutt út flokkaðan og brytjaðan brota- málm að heildarmagni rúmlega 200.000 tonn. Að hluta til hefur hér verið um að ræða hugsjóna- starf og er rétt að undirstrika að fyrirtækin hafa ekki notið neinna opinberra styrkja hvað þennan verkþátt varðar. Fyrirtækin hafa því staðið að umhverfisvemd í bezta skilriingi þess orðs og hafa forsvars- menn fyrirtækja hérlendis verið heiðraðir fyrir minna framtak. Verðmæti útflutts brotamáls á umræddum 40 ámm hefur verið mjög sveiflukennt og rekstur þess- ara eininga fyrirtækjanna því staðið í járnum en hins vegar lætur nærri að tekjur þjóðarbúsins í erlendum gjaldeyri miðað við núvirði sé um 16 milljónir dollara vegna endur- vinnslunnar. Vekur það furðu hjá undirrituð- um að greinarhöfundur, Sigurður Smári, minnist ekki á þetta starf og er það í reyndinni tilefni þessar- ar greinar. Hvað varðar endur- vinnslu fyrirtækjanna á sl. áratug má m.a. nefna eftirtalin atriði: Á áranum 1980-81 endurnýjaði Endurvinnsludeild Sindra pressu sína sem unnið getur úr 100 bflflök- um daglega og hefur síðan safnað þeim á eigin köstnað á söfnunarstöð sinni til endurvinnslu, landinu til blessunar. Ofangreind afkastageta fullnægir þörfinni hérlendis fyrir pressun og klippingu á öllum þeim bflflökum og tækjum er til falla hérlendis. Auk söfnunar óg vinnslu á brota- málmi frá Stór-Reykjavíkursvæð- inu og Suðumesjum má nefna að fyrirtækin hafa jafnframt staðið að umhverfishreinsun, m.a. hvað brotamálm varðar á eftirtöldum stöðum: Akranesi, Grandarfirði' Skagaströnd, ísafirði, Siglufirði, Akureyri og nágrenni, Raufarhöfn, Seyðisfirði, Neskaupstað, Selfossi og í nágrannabyggðum á Suður- landsundirlendinu. Á undanfömum 18 máriuðum hefur Hringrás þannig safnað, unn- ið o g flokkað allt að 10.000 tonnum sem þegar era flutt til bræðslu er- lendis eða bíða tilbúin til flutnings á athafnasvæði fyrirtækisins. Til frekari upplýsinga má nefna að fyrirtækin hafa staðið að söfnun og útflutningi á rafgeymum í fjölda mörg ár, og er áætlað magn árlega 250 tonn. Til viðbótar má nefna að fyrirtækin hafa tekið til niðurrifs á annan tug skipa. íslenska Stálfélagið Að framansögðu er ljóst að með stofnun íslenska Stálfélagsins hf. er ekki um nein tímamót að ræða hérlendis, hvorki hvað varðar um- hverfisvemd né endurvinnslu á brotamálmum nema síður sé. Stefna Hringrásar, áður Endur- vinnsludeild Sindra, hefur verið að safna, síðan endurvinna og flokka brotamálm og gera þannig brota- jámið að vinnanlegri vöru til málm- bræðslu á nýjan leik. Hefur fyrir- tækið flutt brotajámið flokkað til málmbræðslna erlendis og þannig stuðlað að hreinsun landsins eins og að framan greinir. íslenska Stálfélagið hf., sem í reyndinni ætti að heita Alþjóða Stálfélagið sé litið til hluthafaskrár, virðist hafa önnur markmið. Skv. tækjakaupum svo og stærð verk- smiðjunnar varð ljóst að málm- bræðslan gæti aldrei borið sig á grandvelli þess brotajáms sem ár- lega legðist til á íslandi. Kemur það berlega í ljós í fyrmefndri grein Sigurðar Smára að afkastageta verksmiðjunnar er áætluð allt að 100.000 tonn árlega þó ekki falli til hérlendis af brotajámi nema u.þ.b. 14.000 tonn að mati kunn- ugra. Einasta ráðið til þess að nýta afkastagetuna er því að kaupa brotamálm erlendis og flytja inn í landið til bræðslunnar, enda segir Sigurður Smári að þegar sé hafin leit eftir því hráefni á viðráðanlegu verði. Hlýtur hann þar að eiga við markaðsverð brotajárns en hvort það er viðráðanlegt fyrir íslenska . Stálfélagið hf. er óljóst þar sem Stálfélagið hefur t.d. enn ekki svar- að tilboði forráðamanna Hringrásar hf. um kaup á því brptajámi á markaðsverði sem þegar er unnið og flokkáð á umráðasvæði fyrirtæk- isins og bíður þar útflutnings. Markaðsverð - Orkuverð í samningi þeim er íslenska Stál- félagið gerði við fulltrúa Sorpeyð- ingar höfuðborgarsvæðisins, en í stjóm þess fyrirtækis sitja fulltrúar þeirra sveitarfélaga sem að því standa, kemur berlega fram að Stálfélagið ætlar sér einokun á öllu því brotajámi sem til fellur á svæð- inu. í fyrmefndum samningi segir að allt brotajáms þar með talin bílflök skuli flutt á lóð Stálfélagsins þeim að kostnaðarlausu en jafn- framt skulu sveitarfélögin bera kostnað af aftöppun allrá vökva úr bílunum svo og að fjarla:ga raf- geyma úr þeim. Kostnaður Reykjavíkur vegna flutnings og hreinsunar bfla nemur á 3ja þúsund kr. per bílflak og er áætlaður heildarkostnaður vegna þessa þáttar eins nú þegar nokkrar milljónir króna. Er furðulegt að sjá flutningsvagna aka bílflökum í gegnum Reykjavík nánast fram hjá athafnasvæði Hringrásar til Is- lenska Stálfélagsins í Hafnarfjarð- arhrauni. Væntanlega telja forráða- menn íslenska Stálfélagsins að hér sé um viðráðanlegt verð að ræða fyrir brotamálminn. Væri fróðlegt að vita hvort samn- ingar þeir sem nú standa yfir milli annarra sveitarfélaga og íslenska Stálfélagsins séu á svipuðum nót- um. Þrátt fyrir þennan beina stuðn- ing virðist rekstrargrandvöllur málmbræðslu íslenska Stálfélags- ins vægast sagt sagt tvísýnn ef mrirka má orkuverð til málm- bræðslu félagsins. Á undanfömum vikum og mán- uðum hefur mikil umræða farið fram um raunveralegt kostnaðar- verð við raforkuframleiðslu hér- lendis. Skv. upplýsingum Lands- virkjunar er áætlað kostnaðarverð við raforkuframleiðslu um 16 mill/kWh. Jafnframt er áætlað að Atlantsálbræðslan sem fyrirhugað er að hefji rekstur sinn 1. ágúst 1994 muni greiða meðaltalsverð 18,3 mill/kWh og mun það vera um 2 mill/kWh umfram kostnaðar- verð skv. upplýsingum er koma fram í Morgunblaðinu 10. október sl. Eins og landsmönnum er kunn- ugt telur stjóm Landsvirkjunar orkusamninginn ekki nægjanlegan góðan og hefur nú verið skipuð samninganefnd á vegum Lands- virkjunar til þess að reyna að ná betri samningum. Þórarinn Sveinsson „Undanfarin 40 ár hef- ur Endurvinnsludeild Sindra og síðan Hring- rás er stofnað var sem sjálfstætt fyrirtæki fyr- ir tæpum 2 árum flutt út flokkaðan og brytj- aðan brotamálm að heildarmagni rúmlega 200.000 tonn. Að hluta til hefur hér verið um að ræða hugsjónastarf og er rétt að undir- strika að fyrirtækin hafa ekki notið neinna opinberra styrkja hvað þennan verkþátt varð- ar.“ Með þessar staðreyndir í huga hlýtur það að vekja undran að skv. samningi milli íslenska Stálfélags- ins og Landsvirkjunar er féláginu aðeins ætlað að greiða 7 mill/kWh. Er ljóst að hér er rafmagn selt langt undir kostnaðarverði og í því sam- bandi er rétt að benda á, m.t.t. nýrra virkjana vegna álsamninga að hugtakið umframorka er ekki lengur til. Þessi orkusamningur er Hafa skal það sem sannara reynist eftirHögna Óskarsson Augnlæknirinn minn hefur sagt mér, að sjón mín sé, miðað við ald- ur og aðrar aðstæður, í þokkaleg- asta lagi. En augnlæknirinn er sér- fræðingur og því óvarlegt að treysta áliti hans varðandi sýn mína yfir almannahagsmuni og svo meinta „sérhagsmuni“ mína, ef marka má orð Harðar Bergmann í Morgun- blaðsgrein hans frá 23. síðasta mánaðar. Greinina kallar hann „Sérhagsmunagæsla bli'ndar, for- manni Læknafélags Reykjavíkur svarað". Félagar mínir innan al- mennu heilsugæslunnar hafa hins vegar ekkert kvartað undan meintri „sérhagsmunagæslu", nema síður sé, þeir hafa meira að segja margir verið ánægðir með greinarkom mitt um heilbrigðismál í þessu blaði fyr- ir nokkra. Sú grein fór hins vegar fyrir btjóstið á Herði Bergmann. „Sérhagsmunagæslan“ Það er; undarleg „sérhagsmuna- gæsla“ sérfræðings í stofurekstri að standa fyrir auknum þrýstingi á stjórnvöld tii að hraða uppbyggingu heimilis- og heilsugæslukerflsins eins og fram kom í þessu greinar- komi mínu. Sömuleiðis er það und- arleg „sérhagsmunagæsla“ af hálfu Læknafélags Reykjavíkur (LR) og sérfræðingaveldisins þar, að skipa heilsugæslulækni sem formann í nefnd, sem á að gera tillögur um aukna samhæfingu og hagkvæmni í rekstri allrar heilbrigðisþjónustu á Stór-Reykjavíkursvæðinu í næstu framtíð. Eri þetta eru dæmi um þau mál, sem LR er að vinna að um þessar mundir. Kannski er það þá svo eftir allt saman, að „sérhags- munir“ undirritaðs og LR séu, þeg- ar grannt er skoðað, hagsmunir allra aðila, þ.e. neytenda, veitenda og greiðenda, en ekki bara hags- munir þröngs hóps. Þegar grein Harðar Bergmann er skoðuð nánar, sérstaklega ásök- un hans um „sérhagsmunagæslu" mína, þá fer fyrir honum eins og oft áður, að hann lítur framhjá aðalatriðum og snýr út úr öðru. Dæmi um það fyrra er, að hann leiðir algjörlega hjá sér að ijalla um meginástæður þess, hvers vegna mikill vöxtur hefur verið í þjónustu sérfræðinga utan sjúkrahúsa und- anfarinn áratug. Þó var ýmsum þeirra ástæðna lýst í grein minni. Dæmi um það seinna er þegar hann snýr út úr einföldum stað- reyndum um rekstrarkostnað. Launatengd gjöld upp á 30% era ekki tilkomin vegna tilrauna lækna til að magna upp þennan kostnaðar- lið, hér er um lögbundnar greiðslur að ræða. Lífeyrissjóður og orlof gera rúm 20%, ýmsir smáskattar til ríkisins og greiðslur f ýmsa sjóði gera 10% í viðbót. Allt þetta gerir um 30%. Hörður veltir því svo fyrir sér hvort samninganefnd Trygginga- stofnunar ríkisins kyngi því, að kostnaður við rekstur læknastofu nemi helmingi brúttótekna. Já, það gerir samninganefndin, meira að segja mjög auðveldlega. Það er auðskilið í ljósi þeirrar staðreyndar, að þegar ríkisvaldið gerir samninga við einstaka lækna um greiðslur fyrir afnot af aðstöðu á sjúkrahúsi fyrir læknisverk, sem unnin eru samkvæmt gjaldskrá, læknisverk, sem einnig má vinna á einkastofum sérfræðinga, þá krefjast sjúkrahús- in 40-43% af brúttótekjum viðkom- andi lækna, aðeins fyrír rekstrarað- stoðuna. Þar ofaná koma margum- rædd launatengd gjöld, um 30%. Eru þá eftir 27-30%, sem era laun læknisins. Vona ég að þetta opni endanlega augu Harðar Bergmann fyrir þessum augljósu staðreyndum, þannig að hann haldi ekki áfram að fjalla um. þennan þátt umræð- unnar með klút ofstækis bundinn fyrir bæði augu. Meðferð tilvitnana Þó svo að útúrsnúningar og blinda á borðliggjandi staðreyndir geri málflutning Harðar ótrúverð- ugan, þá eru það aðrir þættir í umfjöllun hans um heilbrigðismál, sem eru sýnu alvarlegri. Hörður styður oft mái sitt með tilvitunum í menn, sem gegna ábyrgðarstöðum \ heilbrigðiskerfmu, en án þess að kanna frekar áreiðanleikann að baki tilvitnanna. Gott dæmi um Högni Óskarsson „Þó svo að útúrsnún- ingar og blinda á borð- liggjandi staðreyndir geri málflutning Harð- ar ótrúverðugan, þá eru það aðrir þættir í umfjöllun hans um heil- brigðismál, sem eru sýnu alvarlegri.“ þetta er að finna í umræddri grein Harðar þar sem hann vitnar í okkar ágæta borgarlækni. Vitnað er í Tímaviðtal við borgarlækni frá 1987, þar sem hann segir að sér- fræðiþjónustan sé margfalt dýrari fyrir samfélagið en almenna þjón- ustan. Því miður styður borgar- læknir ekki mál sitt með tölum þama. Þetta hefur hins vegar verið kannað nýlega. í ljós hefur komið, að meðaltalsverð hvers læknisverks hjá sérfræðingi er litlu dýrara en hjá lækni á heilsugæslustöð. Beinn samanburður er þó erfiður, því eðli málsins samkvæmt era mörg sér- fræðingsverkin dýr, t.d. skurðað- gerðir, ýmsar rannsóknir, löng við- töl og fleira, sem ætti að hækka meðaltalið. Á móti kemur, að ýmis- legt í rekstrarkostnaði heilsugæslu- stöðvar er vinna, sem er unnin af öðram en lækninum, t.d. heima- hjúkrun og ungbarnaeftirlit svo eitthvað sé nefnt, þannig að meðal- talstalan gefur heldur ekki rétta mynd. Það helsta, sem getur valdið óhagkvæmni í heilbrigðisþjón- ustunni utan sjúkrahúsa er ef boð- skipti milli þessara tveggja hópa íækna era ekki greið. Læknar hafa staðið sig misvel í þessu, en hafa nú gert átak til að bæta um. I þeim tveimur blaðagreinum Harðar, sem hafa orðið tilefni skrifa minna í blaðið nú, víkur hann sér hjá því að varpa fram meginspurn- ingunni: Er íslenska heilbrigðis- þjónustan of dýr? Það er miklum fjármunum varið í rekstur heilbrigðisþjónustunnar. Svo á einnig að vera. En það á þá einnig að gera miklar kröfur til þjónustunnar. Það er gert, stundum í of miklum mæli. Sem því miður bitnar oft á neytendum, sbr. ómark- vissan niðurskurð á fjárveitingum til sjúkrahúsa. En ef skoðaðir eru einstakir þættir, t.d. kostnaður við alla sérfræðiþjónustu utan sjúkra- húsa og bornir saman við kostnað á öðrum sviðum þjóðlífsins, þá kem- ur margt skrýtið í ljós. Það er ótrúlegt en satt, að á síðasta ári greiddi íslenska ríkið fyrir alla sérfræðiþjónustu utan sjúkrahúsa, þar með taldar rann- sóknarstofur, upphæð, sem ekki er nema tvöfalt hærri en Reykjavíkur- borg hafði greitt í hönnunarkostnað við ráðhúsíð á síðasta vori. Fyrir þá peninga fengu Reykvíkingar hannað, þ.e. annar byggingarkostn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.