Morgunblaðið - 06.11.1990, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 06.11.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NOVEMBER 1990 19 því í alla staði vægt sagt furðuleg- ur eða getur það verið að hann sé unninn af embættismönnum án vit- undar og vilja stjórnar Landsvirkj- unar. I þessu sambandi er rétt að taka fram að skv. upplýsingum er áætluð orkuþörf bræðslu á einu tonni af brotamálmi 800 k/Wh á móti 12-1300 k/Wh við framleiðslu eins tonns af áli. Eins og áður^er getið er heildarframleiðslugeta ís- lenska Stálfélagsins áætluð 100.000 tonn árlega. Umhverfismál - Mengunarvarnir Eins og að framan greinir hefur það verið markmið forsvarsmanna Sindra/Hringrásar að safna, for- vinna og flokka brotamálm og síðan flytja hann úr landi. Er því hér um landhreinsun að ræða. íslenska Stálfélagið ætlar sér hins vegar að flytja inn brotamálma í stórum stíl ráði það nokkurn tíma við kaup hans og gera verksmiðju sína og athafnasvæði að söfnunar- og málmbræðslustað fyrir úrgangs- málma frá erlendum ríkjum. í því sambandi er rétt að benda á að við bræðslu brotamáls er mengun um- talsverð, vart minni en frá álverk- smiðju þótt að hluta sé um önnur mengandi efni að ræða. Með þá vitneskju í huga er fram kemur í grein Sigurðar Smára að fyrirhugað sé að málmbræðsla hefj- ist í þessum mánuði e_r löngu tíma- bært að forráðamenn Islenska Stál- félagsins og ekki síður umhverfis- málaráðuneytið geri grein fyrir væntanlegri mengun og þá um leið þeim reglum sem fyrirtækinu hafa verið settar varðandi mengunar- varnir. í því sambandi er rétt að benda á að verksmiðja þessi er við bæjardyr Hafnarfjarðar, aðeins spölkorn frá væntanlegu útivistar- pg íþróttasvæði í Hafnarfjarðarbæ. í yfirskrift greinar Sigurðar Smára er spurt: Getur iðnaður og umhverf- isvernd átt samleið? Því er hægt að svara játandi með tilvísun til endurvinnslu Sindra og Hringrásar á brotamálmi en neitandi séu áætl- anir íslenska Stálfélagsins hafðar í huga. Höfundur eryfirlæknir Krabbameinslækningadeildar Landspítalans. aður er ekki meðtalinn, ráðhús, sem þá var tæplega fokhelt. Fyrir tvö- falda þá upphæð fengu íslendingar allir greitt fyrir 400.000 læknis- verk sérfræðinga, sem oft fólu í sér flóknar læknisaðgerðir og rann- sóknir. Með þetta í huga er erfitt að staðhæfa, að kostnaður við sér- fræðiþjónustu sé hár. Lokaorð, vonandi! Hörður byrjar grein sína á þeirri fullyrðingu að upplýsingar gefnar í grein hans 9. október séu réttar. í niðurlagsorðum kallar hann tillög- ur sínar í greininni þ. 9. október rökstuddar. Ég ætla að ljúka þess- um skrifum áður en eitthvað kersknislegt, jafnvel ærumeiðandi hrekkur út úr tölvu minni um þess- ar broslegu fullyrðingar. Og læt þar með lokið af minni hálfu frekari umfjöllun um skrif Harðar Berg- mann í þessum dúr, en er að sjálf- sögðu reiðubúinn til rökræðu fari hann að ijalla um þennan málaflokk út frá staðreyndum. Höfundur ergeðlæknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur. PHILtPS Stórfyrirtækin Philips í Evrópu og Whirlpool í Banda- ríkjunum hafa sameinast um framleiðslu á heimilistækjum sem eiga fáa sína líka. Við þessa sameiningu er Philips Whirlpool stærsti framleiðandi í heiminum á heimilistækjum. Philips hefur um einnar aldar skeið haft forystu í fram- leiðslu rafmagnstækja til heimilisnota auk umfangsmikillar framleiðslu á sviði hátæknibúnaðar. Heimilistækin frá Philips og dótturfyrirtækjum þess hafa hvarvetna verið í fararbroddi hvað varðar öryggi, gæði og endingu. Bandaríska fyrirtækið Whirlpool hefur einnig notið sama trausts á bandaríkjamarkaði. Whirlpool ásamt dótturfyrirtækjunum Kitchen Aid og Kaper eru merki sem hafa um langan aldur táknað traust og endingu í hugum banda- rískra neytenda. Sameiningin hefur í för með sér að Philips og Whirlpool bjóða nú heimilis- og eldhústæki sem fullnægja þörfum og kröfum vandlátustu neytenda. Sameining þjónustukerfis um heim allan hefur í för með sér traust viðskipti og áhyggj ulaust heimilishald fy rir viðskipta- vini Philips Whirlpool. Fyrir hönd Philips Whirlpool eru Heimilistæki hf. á íslandi til þjónustu reiðubúin. PHILIPS Whirlpool ö Heimilistæki hf SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNI SlMI 6915 20 'SOMKÍfUJUiK, 0fi04TOl»Illtí»Ííll Metsölublað á hverjum degi! ÍjSKjí- * ' -.4 Prófkjör sjálfstæðismanna Reykjanesi X Kjósum Árna Ragnar Árnason í öruggt sæti - Hann á erindi á Albinei Islands Helstu baráttumál Árna: ★ Aukin atvinnutækifæri ★ Nýtum íslenskar auðlindir og íslenskt vinnuafl ★ Aðstöðugjald í burtu ★ Minni ríkisumsvif ★ Aukin umhverfisvernd ★ Öflug neytendavitund og frjáls samkeppni ★ Jafn atkvæðisréttur allra landsmanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.