Morgunblaðið - 06.11.1990, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.11.1990, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990 .1- Dómkórinn að syngja undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar fyrir fram- an Tómasarkirkjuna í Leipzig.Á innfeldu myndinni er Marteinn H. Friðriksson, stjórnandi Dómkórsins. Tónlistardagar Dómkirkj- unnar tileinkaðir Leipzig ÁRLEGIR Tónlistardagar Dómkirkjunnar verða haldnir í níunda sinn dagana 7.—11. nóvember næstkomandi, og er efnisskrá þeirra að þessu sinni helguð borginni Leipzig í Þýskalandi. Meðal annars verður frum- flutt kórverkið „Multum facit, qui multum diligit“ eftir S. Thiele, rekt- or tónlistarháskólans í Leipzig, en það samdi hann sérstaklega fyrir Dómkórinn. Höfundurinn er staddur hér á landi í boði kórsins, og stjórnar hann sjálfur frumflutningi verksins. Tónlistardagar Dómkirkjunnar eru haldnir til að efla og kynna kirkjutónlist, og sjá kór Dómkirkj- unnar og stjómandi hans um fram- kvæmd á þeim. Markmiðið er að kynna eitt tónskáld sérstaklega á hveiju ári, en árlega er tónskáld beðið að semja sérstaklega fyrir flytj- endur á Tónlistardögum. Sumarið 1989 fór Dómkórinn í tónleikaferð um Austur-Evrópu og söng þá meðal annars í Leipzig. Sú ferð heppnaðist mjög vel að sögn Marteins H. Friðrikssonar, stjóm- anda kórsins, en hann stundaði ein- mitt nám við tónlistarháskólann í Leipzig. „I menningarborginni Leipz- ig var á sínum tíma einn af bestu tónlistarskólunum, og í borginni lærðu eða störfuðu Bach, Mend- elssohn, Reger, Hessenberg og Thi- ele, en hann var byrjaður að kenna við tónlistarháskólann þegar ég var þar á síðasta námsári, og var hann þá orðinn mjög þekkt nafn þó ungur væri. íslensk tónskáld hafa einnig stundað nám í Leipzig, og má þar til dæmis nefna Hallgrím Helgason, Jón Leifs og Pál ísólfsson. Við höfum að miklu leyti tengt efnisskrá Tón- listardaganna að þessu sinni þessum nöfnum," sagði hann. S. Thiele fæddist árið 1934 í Chemnitz í Þýskalandi. Hann nam tónlist í Leipzig og Beriín hjá Weis- manri, Weyrauch og Spies. Árið 1962 varð hann kennari og síðar prófessor við tónlistarháskólann í Leipzig, en á þessu ári hann var gerður að rekt- or skólans. S. Thiele hefur samið mörg kórverk, einkum trúarlegs eðl- is, en einnig verk fyrir orgel, píanó og hljómsveit auk kammertónlistar. Tónlistardagar Dómkirkjunnar hefjast miðvikudaginn 7. nóvember kl. 20.30 með kórtónleikum. Þá syng- ur Dómkórinn undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, en organleikari verður Orthulf Prunner. Á efnis- skránni eru kórlög eftir Hessenberg, Brahms, Bach, Pál ísólfsson, Hallgrím Helgason og orgeltónlist eftir Bach. Laugardaginn 10. nóvember verða orgeltónleikar, en við orgelið verður Marteinn H. Friðriksson. Á efnis- skránni er orgeltónlist eftir Mend- elssohn, Reger, Jón Leifs, Hallgrím Helgason og Bach. Sunnudaginn 11. nóvember hefst messa kl. 11 í Dómkirkjunni. Prestur verður sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, og sr. Hjalti Guðmundsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, en flutt verða messuvör eftir Jón Þórar- insson. Organleikari verður Marteinn H. Friðriksson. Sama dag hefjast síðan tónleikar kl. 17. Einsöngvari verður Signý Sæmundsdóttir, ein- leikari á selló Bryndís Halla Gylfa- dóttir og einleikari á orgel Hörður Áskelsson. Dómkórinn syngur, en á efnisskránni er „Multum facit, qui multum diligit“, eftir S. Thiele, ein- söngslög eftir Jón Leifs, svíta fyrir selló eftir Bach og orgeltónlist eftir Pál ísólfsson. Á Alþingi þarf fólk meö mikla reynslu af sveitarstjórnamálum og brennandi áhuga á atvinnumálum. SIGRÍÐUR sat í sveitarstjórn i 12 ár, þar af 6 ár sem oddviti; situr í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins og i 5 manna framkvæmdastjórn hans; - er formaður Landssambands sjálf- stæðiskvenna; - er íslenskufræðingur og hefur starfað við kennslu síðastliðin 14 ár. Framboð Sigríðar Önnu styrkir Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í komandi kosningum. r l í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi laugardaginn 10. nóvember nk. Kosningaskrifstofa í símum: 52140, 52755 og 53143. öruggtsæti Kjósum Sigríði Önnu Þórðardóttur Þjóðskjalasafn íslands: Skjöl í 800 ár VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti íslands, opnaði á laugardag sýningu á íslenskum skjölum frá 1185 til 1989 í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Þjóð- skjalasafn íslands efnir til sýningarinnar sem ber heitið Skjöl í 800 ár. Sýningin stendur yfir til 30. nóvember næstkomandi. Skjölum á sýningunni má skipta í tvo flokka. I fyrri flokknum eru skjöl frá miðöldum, úr fórum skjala- safna kirkjunnar og fornar heimildir um eignir manna. Meðal skjala, sem tilheyra þessum flokki, er elsta frum- bréf á norrænu, Reykholtsmáldagi, en fyrri hluti þess er frá 1185. Önn- ur skjöl í þessum flokki tengjast einn- ig Reykholti á einn eða annan hátt. Má þar nefna embættisfærslur, skráningu kirkjubóka, eignarheim- ildir, vísitasíur og prestþjónustubæk- ur. í seinni flokknum eru skjöl og heimildir um réttarríki og stjómar- far. Má þar sjá konungsbréf frá 16.öld með eiginhandarundirritum konunga jafnt og forsetabréf íslenska lýðveldisins, allt til ársins 1989 þegar Vigdís Finnbogadóttir skrifaði undir lög um aðskilnað dóms- og umboðsvalds í héraði. Á sýningunni er auk þess vakin athygli á því að frumheimildir, sem Þjóðskjalasafnið varðveitir, liggja til grundvallar sagnfræði- og söguleg- um ritum íslenskum. I því samhengi má benda á eiginhandaráritun Jóns Hreggviðssoanr í embættisbók próf- asts í Reykholti 3. október 1692 þar sem hann biður sér aflausnar. Einnig má nefna heimildir um fólkið á Sjö- undá, Natan Ketilssson og Sunnevu- málið. Á sýningunni er einnig vakin athygli á ferli skjala frá því þau koma á safnið uns þeim er komið fyrir með ýmis konar hjálpargögnum svo að not megi hafa af þeim upplýs- ingum sem þau veita. Þá má sjá hvernig eyðingaröflin hafa leikið merkar heimildir og sömuleiðis hvemig brugðist hefur verið við með viðgerðum á skjölum. Á sýningunni getur að líta ýmis- legt forvitnilegt myndefni, ennfrem- ur eru sýndar örfilmur af kirkjubók- um og skjölum sem varða Grindavík- urslaginn 1532. Þá er sýnt hvernig skjalaskrár eru unnar á tölvutæku formi. Sýningarnefnd skjalasýningarinn- ar skipa þau Áslaug Jónsdóttir, Björk Ingimundardóttir og Gunnar Sveins- son. Magnús H. Ólafsson, arkitekt, aðstoðaði við uppsetningu sýningar- innar. Truls Mörk, sellóleikari. Leif Ove Andsnes, píanóleikari. Mörk og Andsnes hjá Tónlistarfélaginu FYRSTU tónleikar Tónlistarfélagsins í íslensku óperunni verða í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30. Þar koma fram þeir Truls Mörk selló- leikari og Leif Ove Andsnes pínaóleikari. Listamennirnir eru ekki einungis meðal þekktustu tónlistarmanna í heimalandi sínu, Nor- egi, heldur hafa þeir báðir unnið sér frægð á alþjóðlegum vett- vangi, þótt ungir séu. Truls Mörk fæddist í Bergen 1961 og hóf sellónám hjá föður sínum og síðan hjá Frans Helmer- son. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna í alþjóðlegri samkeppni og hefur komið fram sem einleik- ari með mörgum fremstu hljóm- sveitum heims og frægum hljóm- sveitarstjórum. Flutningur hans á Sellókonsert eftir Elgar á Prom- enade-tónleikum í London árið 1989 vakti gífurlega hrifningu svo og flutningur hans á Sellókonsert eftir Lutoslavski með Fílharmóníu- hljómsveitinni í Osló undir stjórn höfundar fyrr á árinu hefur verið nefndur sögulegur tónlistarvið- burður. Árið 1991 mun hann m.a. leika nokkrum sinnum • með Fílharmóníuhljómsveitinni í Israel og ferðast um Austur-Þýskalans þar sem hann mun bæði koma fram með hljómsveitum og halda sjálf- stæða tónleika. I janúar á næsta ári mun hann frumfiytja nýjan sellókonsert eftir Ketil Hvoslef, sem er pantaður af Sinfóníuhljóm- sveitinni í Þrándheimi. Hann hefur nú þegar leikið mörg verk inn á hljómplötur og flutningur hans á Brahms-sónötum hefur verið til- nefndur „The Critic’s Choice 1989“ í tímaritinu „Grammophone". Leif Ove Andsnes þarf vart að kynna fyrir tónlistarunnendum hér á landi síðan hann tók þátt í Tón- listarhátíð ungra norræna einleik- ara hér 1988. Þessi tvítugi píanó- leikari er nú mjög eftirsóttur um allan heim. Hann er yngsti einleik- arinn sem komið hefur fram á loka- tónleikum Bergenhátíðarinnar. Það var árið 1988 þar sem flutn- ingur hans á Píanókonsert eftir Grieg vakti gífurlega hrifningu. Á síðasta ári hélt hann sína fyrstu tónleika í Bandaríkjunum, í Kanada (Lanaudiere-hátíðinni) og í Bretlandi (Edinborgarhátíðinni). Á þessu ári gerði hann hljóðritun- arsamning við Virgin Classics. Á efnisskrá tónleikanna á þriðjudag er Adagio og Allegro op. 70, Funf Stucke im Volkston op. 102 og Drei Fantasiestúcke op. 73 eftir Schumann og Sónata op. 65 í g-moll eftir Chopin. Nýlega kom út hljóðritun þeirra félaga á þess- um verkum hjá Simax. Aðgöngu- miðasala verður við innganginn. (Fróttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.