Morgunblaðið - 06.11.1990, Síða 26

Morgunblaðið - 06.11.1990, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990 Þing- og ríkisstjórakosningar í Bandaríkjunum: Búist við auknum meirihluta demókrata í fulltrúadeildinni Washington. Reuter. BANDARÍSKIR kjósendur ganga að kjörborði í dag í þing- og ríkisstjórakosningum og er talið að demókratar auki meirihluta sinn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, en það er nánast hefð að flokk- ur forseta landsins tapi þegar kosið er á miðju kjörtímabili hans. John Sununu, skrifstofustjóri Hvíta hússins, sagði að takmark repúblikana væri að tapa sem minnstu í kosningunum. George Bush forseti hefði verið jðinn við að styðja frambjóðendur flokksins og slakt gengi yrði ekki skrifað á hans reikning. Undanfarið hefur Bush ferðast um landið þvert og endilangt og komið fram á framboðsfundum repúblikana. Hefur hann hlotið misjafnar undirtektir vegna vax- andi óánægju með gjörðir hans og stefnu í efnahagsmálum. Kosið er um öll sætin 435 í fulltrúadeildinni, 34 af 100 sætum öldungadeildar þingsins, 36 af 50 rikisstjórum, rúmlega 6.200 sæti á þingum einstakra ríkja og þús- undir embætta svo sem frá borgar- stjórum niður í hundaeftirlits- menn. Demókratar ráða 258 sætum í fulltrúadeildinni en repúblikanar 175 en tvö hafa verið auð. Demó- kratar hafa farið með meirihluta í deildinni frá 1955 og er búist við að hann aukist eftir kosning- amar í dag. Þeir hafa einnig meiri- hluta í öldungadeildinni, eiga 55 sæti af 100, og kveðast stjórn- málaskýrendur ekki búast við breytingum á sætahlutfalli þar. Sununu játaði á sunnudag að líklega færu demókratar með sigur af hólmi í dag og bættu við sig allt að 12 sætum í fulltrúadeild- inni. Reuter Siglt undir mannhafi Gámaskip skríður undir Verrazano Narrows-brúna við Stateneyju í New York sem er krökk af keppendum í New York-maraþonhlaupinu, sem er nýhafið þegar myndin var tekin. Rúmlega 25.000 manns kepptu í hlaupinu, sem háð var í fyrradag. Ætla má að hraði margs hlaupar- ans sé mun meiri en hraði skipsins. Bretland: Forysta Thatcher sætir gagnrýni St. Andrcws. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. MICHAEL Heseltine, fyrrum varnarmálaráðherra í sljórn Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, réðst harkalega að forystu hennar fyrir íhaldsflokknum um helgina. Mikill órói er í flokknum vegna afsagnar Sir Geoffreys Howe aðstoðarforsætisráðherra síðast- liðinn fimmtudag. Búist er við framboði gegn Thatcher í leiðtogaem- bætti íhaldsflokksins. Heseltine neitar því að gagnrýn- in, sem birtist í bréfi er hann skrif- aði formanni deildar íhaldsflokksins í kjördæmi sínu, sé til marks um að hann ætli sér sæti flokksleið- toga. Hann hefur jafnframt lýst yfir því að hann ætli ekki að bjóða sig fram gegn Thatcher. Ýmsir aðrir frammámenn flokks- ins líta á gagnrýnina sem tilraun Heseltines til að veikja stöðu That- cher, svo að hún sjái sig knúna til að segja af sér. Margir þeirra hafa brugðist harkalega við. Norman Tebbitt, fyrrum formaður íhalds- flokksins, sagði að gagnrýnin væri bamaleg og vekti aðeins spurningar um dómgreind Heseltines. Douglas Hurd utanríkisráðherra tók í svip- aðan streng og sömuleiðis Nigel Lawson, fyrmm íjármálaráðherra, en hann sagði af sér vegna ágrein- ings um afstöðuna til Evrópubanda- lagsins (EB). Mikill órói er í Ihaldsflokknum vegna afsagnar Sir Geoffreys Howe. Flestir þingmenn flokksins em hlynntir EB, en vilja fara sér hægt í frekari sameiningu. A morgun, miðvikudag, flytur Elísabet II drottning stefnuræðu stjórnarinnar á nýju þingi. Á fimmtudag verða umræður í neðri málstofunni um stefnuræðuna. Það ríður á miklu fyrir Thatcher hvern- ig ræða hennar þá tekst. Nú tala þingmenn flokksins opinskátt um að boðið verði fram gegn henni í leiðtogakjöri flokksins, en sam- kvæmt skipulagsreglum breska íhaldsflokksins má bjóða sig fram gegn leiðtoga flokksins á hveiju ári í þijár vikur eftir stefnuræðu þjóð- höfðingjans. Síðasti dagur til fram- boðs á þessu ári verður 29. nóvemb- er. Verði boðið fram gegn Thatcher nú í haust, má telja líklegt, að fleiri greiði atkvæði gegn henni en í fyrra. Þá er talið næsta víst að hún eigi litlá möguleika á að sigra í næstu kosningum sem verða í síðasta lagi árið 1992, Brundtland vonast til að sitja út kjörtímabilið Ósló. Reuter. RÍKISSTJÓRN Verkamannaflokksins sór embættiseið í Noregi á laugardag og við það tækifæri sagðist Gro Harlem Brundtland for- sætisráðherra vonast til að henni tækist að sitja út kjörtímabilið eða til ársins 1993. f sljórninni sitja 19 ráðherrar og eru níu þeirra konur. Sagði Brundtland að helsta markmið stjórnarinnar væru að vinna bug á atvinnuleysi en auk þess setti hún umhverfismál og velferð barna á oddinn. Brundtland, sem tók við starfi forsætisráðherra í þriðja sinn, sagð- ist búast við að á brattann yrði að sækja fýrir stjórnina en gerði samt ráð fyrir að sitja fram að næstu kosningum. Stjóm Verkamanna- flokksins tók við af samsteypustjórn sem Jan P. Syse, leiðtogi Hægri- flokksins, veitti forystu. Stjórnmálaskýrendur sögðust telja góðar líkur á að stjórn Verka- mannaflokksins héldi velli þó þing- menn flokksins væru í miklum minnihluta í þinginu, eða 63 af 165. Hún yrði þó að semja við aðra flokka um hvert einasta mál og töldu þeir að hún myndi eiga erfitt með að fá fjárlagafrumvarp sitt samþykkt nema með talsverðum breytingum. Sögðust þeir efins um að áhugi væri hjá flokkunum á myndun nýrrar samsteypustjórnar í bráð með tilliti til þess ágreinings sem varð stjóm Syse að falli. Á því myndi stjórn Brundtland væntan- lega lengi fljóta. Norðmenn hafa heitið fullum stuðningi við samningaviðræður Fríverslunarbandalagsins Evrópu (EFTA), sem þeir eru aðilar að, og Evrópubandalagsins (EB) um evr- ópska efnahagssvæðið (EES). Deil- ur um afstöðuna til EB urðu stjórn Syse að falli en um helgina sagðist Brundtland myndu reyna að hleypa nýju lífi í viðræður þessar. Ákvörð- un um hugsanlega umsókn um að- ild að EB yrði þó ekki tekin fyrst um sinn. Miðflokkurinn, sem er málsvari bænda og var einn þriggja flokka sem aðild áttu að samsteypustjóm Syse, hefur heitið stjóm Bmndtland stuðningi. Hörð andstaða flokksins gegn samningum við EB eða aðild að bandalaginu leiddi til falls stjórn- ar borgaralegu flokkanna. Með stuðningi við stjóm Verkamanna- flokksins segja stjórnmálaskýrend- ur að ekki sé lengur hægt að telja flokkinn til hinna borgaralegu flokka, hann hafi skipað sér á bekk með sósíalískum flokkum. Jan P. Syse sagði um helgina að hægrimenn myndu ekki freista þess að knésetja stjórnina við fyrsta tækifæri. „Við munum sýna ábyrgð í andstöðu,“ sagði Syse og bætti við að Evrópumálin gætu átt eftir að reynast stjórn Verkamanna- flokksins sem púðurtunna. Níu konur ráðherrar í Noregi Ráðherralisti norsku stjórnarinnar var birtur þegar stjórnin sór emb- ættiseið í konungshöllinni í Ósló á laugardag. Nítján ráðherrar sitja í stjórninni og eru níu þeirra konur: Forsætisráðherra ............... Gro Harlem Brundtland Utanríkisráðherra ................ Thorvald Stoltenberg Fjármálaráðherra ..................... Sigbjem Johnsen Olíu- og orkumálaráðherra ............ Finn Kristensen Varnarmálaráðherra ............... Johan Jorgen Holst Iðnaðarráðherra .............................. OleKnapp Ráðherra sveitarstjórnarmála: ........... Kjell Borgen Félagsmálaráðherra ..................... Tove Veierod Menningarmálaráðherra ................. Áse Kleveland Þróunarmálaráðherra .................... Grete Faremo Samgönguráðherra .......................... KjellOpseth Neytenda- og fjölskyldumálaráðherra ... Matz Sandman Mennta-og kirkjumálaráðherra ........ Gudmund Hernes Dómsmálaráðherra ......................... KariGjesteby Umhverfisráðherra ................... Torbjorn Berntsen Sjávarútvegsráðherra ................. Oddrun Pettersen Viðskiptaráðherra ........................ EldridNordbo Atvinnumálaráðherra ............ Tove Strand Gerhardsen Landbúnaðarráðherra ................ Gunhild Oyangen Lenín og Nikulás keisari á Rauða torginu Þúsundir manna í rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni söfnuðust saman á Rauða torginu í Moskvu á sunnudag til að fagna áformum um að endurbyggja Kazan-dómkirkjuna á torginu. Margir þeirra héldu á myndum af Nikulási keisara, eins og sjá má hér að ofan. Yfír þeim gnæfði hins vegar risastór mynd af byltingarleiðtoganum Vladímír Lenín, sem sett var upp í tilefni af árlegri sýningu Rauða hersins á torginu á byltingarafmælinu er minnst verður á morgun. Lenín var mjög í nöp við rétttrúnaðarkirkjuna, taldi hana hlynnta keisaranum. Kazan-dómkirkjan var reist árið 1636 til minningar um sigur Rússa yfir Pólveijum en eftirmaður Leníns, Jósef Stalín, lét rífa hana nákvæm- lega þremur öldum síðar er ofsóknir kommúnista gegn kirkjunni stóðu sem hæst. Rússar gera sinn fyrsta við- skiptasamning Moskvu. Reuter. STJÓRN Rússlands, stærsta lýð- veldis Sovétríkjanna, gerði um helgina fyrsta viðskiptasamning sinn við erlent ríki án afskipta sovéskra stjórnvalda. Sovéska fréttastofan TASS skýrði frá því á sunnudag að Viktor Jaroshenko, utanríkisviðskiptaráð- herra Rússlands, hefði undirritað fimm ára viðskiptasamning við Möltu. Einnig var gengið frá sam- ingi um að Rússar seldu þangað 60.000 tonn af kolum og fengju í staðinn ýmsan varning sem þá van- hagar um. Stjórn Rússlands stefnir að því að gera fleiri slíka samninga án afskipta sovésku stjórnarinnar. Hún hefur einnig hleypt af stokkunum umbótaáætlun, sem miðar að því að koma á einkavæðingu og mark- aðshagkerfi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.