Morgunblaðið - 06.11.1990, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990
- 36
AKUREYRI
Aukaþing Alþýðusambands Norðurlands:
Samþykkt að beina því til
aðildarfélaga að stofna einn
lífeyrissjóð á Norðurlandi
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Skemmtilegt á skautum
UNGA kynslóðin kunni vel að meta að geta rennt sér á skautum
um helgina en vélfrysta skautasvellið á Akureyri var opnað á laugar-
daginn.
Krossanes;
Prufukeyrsla um lielgina
SAMÞYKKT var á aukaþingi Al-
þýðusambands Norðurlands, AN,
sem haldið var á Akureyri á laug-
ardag, að beina því til aðildarfé-
laga AN að þau samþykki að stofn-
aður verði einn lífeyrissjóður á
Norðurlandi, er taki til a.m.k. allra
þeirra launamanna er starfa á
samningssviði ASÍ. Bréf verða
send út til aðildarfélaganna og
gert ráð fyrir að svar um þátttöku
í slikum sjóði liggi fyrir í lok
mars á næsta ári.
í tillögu miðstjórnar vegna sam-
einingar lífeyrissjóðanna kemur fram
að leitað verði eftir góðu samstarfi
við stjórnir lífeyrissjóðanna á Norð-
urlandi í þvi starfi sem framundan
er. Stefnt verði að því að nýr lífeyris-
sjóður taki til starfa eigi síðar en
1. janúar árið 1993.
Kári Arnór Kárason formaður
nefndar sem kjörin var á þingi AN
á síðasta ári og falið var að fjalla
um lífeyrissjóðamálið, sagði í fram-
sögu sem hann hafði á ráðstefnu
ÞÓRA Hjaltadóttir, formaður Al-
þýðusambands Norðurlands, lýsti
því yfir á aukaþingi AN sem hald-
ið var á laugardag, að hún gæfi
ekki kost á sér til endurkjörs sem
formaður sambandsins á næsta
reglulega þingi, en það verður
haldið að ári.
Þóra hefur gegnt formennsku í
Alþýðusambandi Norðurlands frá
alþýðusambandsins, að vitað hefði
verið um all langt skeið að lífeyris-
sjóðimir ættu við mikinn fortíðar-
vanda að stríða og knýjandi nauðsyn
væri á uppstokkun kerfisins. Slík
uppstokkun stæði fyrir dyrum og því
eðlilegt að Norðlendingar veltu því
fyrir sér hvemig bregðast ætti við,
með það að leiðarljósi að halda fjár-
munum sjóðanna og ráðstöfunarrétt-
inum yfír þeim heima í héraði.
Lífeyrissjóðirnir ættu einnig við
vanda af öðrum toga að etja, þjóðin
væri að eldast og stöðugt hækkaði
hlutfall þeirra sem ná lífeyrisaldri
auk þess sem menn lifðu lengur eft-
ir að þeim aldri væri náð. Fleirum
þyrfti að greiða lífeyri í lengri tíma
en reiknað hafí verið með þegar sjóð-
unum var komið á fót. „Verði ekkert
að gert mun byrði þeirra sem verða
á vinnumarkaði um og fyrir miðbik
næstu aldar vegna lífeyrisgreiðslna
verða mikil og nánast óbærileg, ef
sjóðir þeir sem við erum nú að safna
í og mæta eiga þessum vanda verða
að engu orðnir," sagði Kári.
árinu 1981. „Það er ærið nóg að
vera formaður í samtökum sem þess-
um í tíu ár og mér fínnst fyllilega
tímabært að hleypa að nýjum aðila
í þetta starf," sagði Þóra. „Þetta
hefur verið góður tími og ég vona
að ég hafi getað hjálpað launafólki
á Norðurlandi í kjarabaráttunni.
Þetta starf hefur gefíð mér mikið,
innsýn í marga þætti þjóðlífsins sem
varla er hægt að fá annars staðar."
Hann benti á að skipulag þessara
mála væri óhagkvæmt í fjórðungn-
um, sjóðir væru of margir, en með
sameiginlegum sjóði ætti að vera
hægt að ná rekstrarkostnaði veru-
lega niður, en hann væri of hár hjá
mörgum sjóðanna. Kostnaður við
rekstur sjóðanna á Norðurlandi var
um 40 milljónir á síðasta ári, en eign-
ir þeirra í árslok 1989 voru 5,5 millj-
arðar króna.
Vélsleðamenn;
Vetrarstarf-
ið að hefjast
Trúnaðarmenn Landssam-
bands islenskra vélsleðamanna í
Eyjafirði gangast fyrir fundi í
Vín á fimmtudagskvöld, en vetr-
arstarf félagsins er nú að hefjast,
en það felst m.a. í lengri og
skemmri ferðum á vélsleðum.
Stjóm landssambandsins er kosin
til tveggja ára í senn og er núver-
andi stjóm skipuð félögum úr Þing-
eyjarsýslu, en sú næsta verður skip-
uð Austfirðingum.
Trúnaðarmenn í Eyjafirði efna til
almenns fundar í Blómaskálanum
Vín á fimmtudagskvöldið, 8. nóv-
ember og hefst hann kl. 21. A fund-
inum verður samin áætlun vetrarins,
en fyrirhugað er að halda sýningu
á nýjum vélsleðum, fjölskyldudag og
jafnvel að bjóða upp á námskeið í
hjálp í viðlögum og meðferð áttavita
og lórantækja auk árshátíðar. Á
fundinum verða sýndar nýjar mynd-
ir frá framleiðendum vélsleða, frá
keppnum síðasta vetrar og fleira.
Fréttatilkynning
UNNIÐ er að lokafrágangi
vegna enduruppbyggingar
Krossanesverksmiðjunnar og er
stefnt að því að prufukeyra vél-
ar og tæki um næstu helgi.
Gangi allt að óskum verður
verksmiðjan tilbúin til að taka
á móti loðnu eftir helgina.
Jóhann Pétur Anderssen fram-
kvæmdastjóri Krossaness sagði
uppbygging verksmiðjunnar hefði
gengið ágætlega og yrði í vikunni
unnið að ýmiss konar smærri verk-
efnum. „Það styttist í að við getum
byijað, við erum að vona að hægt
verði að prufukeyra nú um helg-
ina. Ætli við látum verksmiðjuna
ekki ganga í tvo til þrjá sólar-
hringa og vinna bein til að byija
með, en síðan erum við tilbúnir að
taka á móti loðnu,“ sagði Jóhann,
en þessa viku verður beinum safn-
að svo nóg verði til er verksmiðjan
verður ræst að nýju, eftir rúmlega
tíu mánaða stöðvun.
Þijú loðnuskip, Súlan EA, Þórð-
ur Jónasson EA og Örn KE hafa
landað afla hjá verksmiðjunni und-
anfarin ár og sagði Jóhann að góð
orð hefðu fengist um að þau mynd-
ur áfram sjá verksmiðjunni fyrir
hráefni. Skipin eru nú á leið á
Kolbeinseyjarsvæðið í leit að loðnu
og sagðist Jóhann vona að eitthvað
kæmi út úr þeirri leit, þar sem
verksmiðjurnar á Norðurlandi ættu
mikið undir veiðum á haustmánuð-
um komið.
Alþýðusamband Norðurlands;
Þóra gefur ekki kost
á sér til formennsku
Gjalddagi húsnœðislána var 7. nóvember.
Gerðir þú ráð fyrir honum?
16. nóvember leggjast dráttarvextir á lán með lánskjaravísitölu.
7. desember leggjast dráltan/extir á lán með byggingarvísitölu.
Gjalddagar húsnœðislána eru:
7. febrúar- 7. maí - 7. ágúst- 7. nóvember.
Sum lán hafa fjóra gjaiddaga á ári, önnur aðeins einn.
SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÖLD AF DRÁTTARVÖXTUM
OG VANSKILAKOSTNAÐISÍÐAR.
HAFÐU ALLTAF NÆSTU GJALDDAGA INNI í MYNDINNI.
Óh HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900
ER1NÓVEMBER
INNI í MYNDINNI
HJÁÞÉR?