Morgunblaðið - 06.11.1990, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990
ATVMMMU 4 /JEGL ÝSLH !C?.AR
Kvenfataverslun
óskar eftir starfskrafti strax á reyklausan
vinnustað í miðbænum. Æskilegur aldur
35-55 ár. Vinnutími frá kl. 10-14.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 9. nóvember,
merkt: „HS - 9324“.
Bókhaldsstarf
Bifreiðaumboð í Reykjavík óskar eftir að ráða
starfsmann til alhliða bókhaldsstarfa.
Viðkomandi þarf að hafa haldgóða reynslu í
bókhaldsstörfum. Helstu verkefni: Merking
fylgiskjala, afstemmingar, tölvuskráning og
innheimtustörf.
Umsókn ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl.
fyrir 9. nóvember nk. merkt: „Bókhald -
14181".
Tiltekt pantana
Starfsfólk óskast. Vinnutími frá kl. 05.00 til
ca 08.00.
Upplýsingar á staðnum hjá verkstjóra til kl.
14.00.
Brauð hf.,
Skeifunni 19.
Hárgreiðslusveinn
eða meistari óskast í hálft starf sem fyrst.
Upplýsingar í símum 12725 og 71669
Ingibjörg eða Sigurpáll.
Hárný,
Nýbýlavegi 22, Kópavogi.
T annlækningastofa
Röskur og áreiðanlegur starfskraftur óskast
á tannlækningastofu í miðborginni sem fyrst.
Fullt starf jafnt sem hlutastöður koma til
greina. Sjúkraliða- eða hliðstæð menntun
æskileg.
Umsókn með upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf sendist auglýsingadeild
Mbl. merkt: „T - 8576“ fyrir laugardaginn
10. nóv.
LANDSPÍTALINN
Öldrunarlækningadeild
Hjúkrunarritari
óskast í afleysingar á öldrunarlækningadeild
í Hátúni frá og með 1. desember 1990 í
rúmt ár. Vinnutími er frá kl. 8.00-12.00.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Karlsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri öldrunarlækn-
ingadeildar, í síma 602266 eða 601000.
Reykjavík, 6. nóvember 1990.
LANDSPÍTALINN
Öldrunarlækningadeild
Starfsfólk
óskast sem fyrst í aðstoðarstörf við aðhlynn-
ingu aldraðra á öldrunarlækningadeild í
Hátúni. Vinnutími er frá kl. 8.00-13.00.
Unnið er aðra hvora helgi. Til greina kemur
að vinna 3, 4 eða 5 daga í viku. Tilvalið fyrir
fólk, sem er í kvöldskóla, og aðra þá, sem
þurfa að hafa síðari hluta dags til umráða
fyrir annað. Tilsögn og kennsla veitt hverjum
og einum eftir þörfum, auk þess sem sérstök
fræðsla verðurfyrir þá, sem ekki hafa reynslu
af slíkum störfum. Þetta er gott tækifæri
fyrir þá, sem hafa áhuga á aðhlynningarstörf-
um. Við getum boðið upp á góðan starf-
sanda. Starfið er talsvert krefjandi, en jafn-
framt mjög gefandi fyrir þá, sem hafa ánægju
af mannlegum samskiptum og af því að geta
hjálpað sjúkum.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Karlsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri öldrunarlækn-
ingadeildar, í síma 602266 eða 601000.
Reykjavík, 6. nóvember 1990.
HÚSNÆÐIÓSKAST
Bókhaldsþjónusta
Alhliða bókhaldsþjónusta, VSK uppgjör, fyrir
fyrirtæki og einstaklinga.
Upplýsingar í síma 641969 alla daga og á
kvöldin.
Húsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu einbýlishús/rað-
hús/stóra íbúð á höfuðborgarsvæðinu.
Ábyrgir leigjendur - traustar greiðslur.
Upplýsingar í síma 618064.
KVÓTI
Fiskimenn - kvóti
Vantar báta í viðskipti, útvegum kvóta.
Upplýsingar hjá Fiskiðju Sauðárkróks hf. í
síma 95-35207.
TILBOÐ - ÚTBOÐ
Verktakar - húseigendur
Einn af okkar viðskiptavinum óskar eftir að
festa kaup á einbýlis-, rað- eða parhúsi í
Reykjavík eða nágrenni.
Húsinu skal skila fullbúnu að utan sem innan
fyrir mars 1991. Lóð skal vera tyrft. Stærð
húss skal vera á bilinu 150-200 fm. Til greina
kemur að kaupa nýtt hús sem að hluta til
er komið í notkun.
Tilboð ásamt teikningum, greiðsluskilmálum
og öðrum upplýsingum óskast skilað fyrir
kl. 16.00 þann 12. nóvember 1990 á Teikni-
stofuna hf., Ármúla 6, 108 Reykjavík.
KENNSLA
Myndlistarnámskeið
fyrir börn
15. nóv.-15. des. Tveir tímar tvisvar í viku.
Teiknun, málun, leirmótun og jólaföndur.
Upplýsingar í síma 26538.
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Ný námskeið að byrja
Vefnaður, framhaldsnámskeið í fjórar vikur.
Einföld pappírsgerð, 15.-18. nóvember.
Útsaumur, 26.-29. nóvember.
Körfugerð 26.-29. nóvember.
Tógvinna, 25.-30. nóvember.
Útskurður 25.-30. nóvember.
Fatasaumur 25.-30. nóvember.
Dúkaprjón 25.-30. nóvember.
Fyrsta jólaföndrið 18. nóvember.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Sími 17800.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Landsbanki íslands,
Grindavík, auglýsirtil sölu
Lagmetisiðjuna, Hafnargötu 28, Grindavík
og hraðfrystihús, Ægisgötu 4, Grindavík.
Eignirnar seijast með vélum og tækjum.
Upplýsingar í síma 92-68799.
Til leigu
frábært skrifstofuhúsnæði við Skútuvog 13.
Næg bílastæði. Stærð ca 170-180 m2. Laust
strax.
Nánari upplýsingar í síma 689030 eða heima-
síma 41511.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
HÚSNÆÐISSAMVINNUFÉLAGIÐ
(í) áí) CA) d) Ct] (jS
Fundarboð
Búseti, húsnæðissamvinnufélag, heldur al-
mennan félagsfund þriðjudaginn 20. nóvember
nk. kl. 20.30 á Hótel Borg, „Gyllta salnum".
Fundarefni:
1. Samstarf Búseta og Búnaðarbankans,
fyrirhugaður sparnaður kynntur.
2. Byggingaáfangar árið 1990-1991.
3. Af vettvangi félagsstarfseminnar.
4. Önnur mál.
Stjórn Búseta hsf.
Garðbæingar og
Kópavogsbúar
María E. Ingvadóttir, fram-
bjóðandi til prófkjörs Sjálf-
stæðisflokksins 10. nóvem-
ber nk. vegna komandi al-
þingiskosninga mun halda
eftirfarandi fundi á næstunni:
Þriðjudaginn 6. nóvember:
í Kaffigarði, Garðatorgi,
Garðabæ, frá kl. 18.00-19.00.
Miðvikudaginn 7. nóvember:
Hafnarborg, Hafnarfirði, kl. 18.00-19.00.
Stuðningsmenn.