Morgunblaðið - 06.11.1990, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÍ) ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur mörgu að sinna í dag
og veist varla á hveiju byija skal.
Bæði vinna og heimili krefjast
athygii þinnar á sama tíma. í
kvöld getur þú þó slappað af í
faðmi fjölskyídunnar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú verður líklega að kúvenda
dagskránni hjá þér í dag. Ein-
hvetjir þeirra sem þú umgengst
eru annað tveggja óákveðnir eða
segja ósatt. Hjón skilja þó hvort
annað ágætlega í kvöld.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Þó að þú sért himinlifandi yfir
þróuninni á vinnustað þínum og
vaxandi tekjum skaltu gæta þin
á þeim sem reyna að hagnast á
tilfærslu fjármuna.
Krabbi
{21. júní - 22. júlí) Hjg
Tjáskipti þín við náinn ættingja
eða vín fara í handaskolum í
dag. Kvöldið verður skemmtilegt
og notalegt. Þú færð gððar frétt-
ir af baminu þínu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú kemur ekki eins miklu í verk
í vinnunni í dag og þú ætlaðir
þér. Reyndu að komast hjá trufl-
unum eins og þú getur og forð-
astu tilhneigingu til að ýta hlut-
unum á undan þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) ái
Þér finnst hegðun náins ættingja
eða vinar eitthvað furðuleg í dag.
Einhléypingar ættu að vara sig
á yfirborðslegu fólki. Farðu að
hitta vini þína í kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Óvæntir atburðir heima fyrir geta
sett úr skorðum vinnuáællanir
þínar i dag. Þér býðst tækifæri
til að auka tekjur þínar og bæta
stöðu þína.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Einhver ruglingur verður á dag-
skránni hjá þér í dag þar sem
þér berst ekki svar frá aðila sem
þú átt stefnumót við. Þú verður
að endurskoða áætlanir þínar
núna þó að úr rætist þegar líður
á daginn.
Bogmaóur
(22. nóv. — 21. desember)
Þetta er ekki heppilegur dagur
til innkaupa eða fjánnálavið-
skipta almennt. Einhver gæti
reynt að selja þér svikna vöru.
Sinntu námi og bókþaldi í kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú verður að ætla þér rúman tíma
til að svara spumingum sem beint
er til þín núna. Komdu tímanlega
á alla fundi sem þú sækir. í kvöld
slappar þú af og hittir vini og
kunningja.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þér gengur illa að byija á verk-
efni sem þú hefur fengið í hendur
og þú gerir nokkrar árangurs-
lausar tilraunir áður en þú nærð
tökum á því. Einbeitingin styrkist
eftir því sem líður á daginn.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú verður ekki ýkja hress með
vin sem lætur þig bíða eftir sér
í dag. Þú hefur miklar áhyggjur
af óáreiðanleika annarra.
AFMÆUSBARNIÐ er metnað-
argjamt, en á auðvelt með að
vinna með öðru fólki. Það hefur
áhuga á listum og er búið 'leið-
togahæfileikum. Það metur pen-
inga mikils, en því helst ekki allt-
af vel á þeim. Það getur sparað
langtímum saman og eytt síðan
á báða bóga af fullkomnu kæru-
leysi. Stundum vinnur það myrkr-
anna á milli, i annan tíma vill
það helst ekkert hafa fyrir stafni.
Það vill vera sjálfstætt, en hatar
einveru.
Stjörnuspána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
FERDINAND
Hl! MYNAME 15 LINU5..
MAV I 5IT WITM VOU
ANP EAT LUNCH? ©
Hæ! Ég heiti Lalli ...
má ég sitja hjá þér
og borða hádegismatinn?
Ég veit ekki ...
hvenær ertu fæddur?
Ég er fæddur
í október.
I UJA5 BORN
IN PECEMBER
tfr,
Aren’t vou kinp of
OLP F0R ME?
Ég er fædd
í desember.
Ertu ekki aðeins of
gamall fyrir mig?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þegar skiptingin er villt, eru
kostimir margir. Það er ólíklegt
að sagnir hafi gengið eins á
nokkrum tveimur borðum í spili
dagsins, sem kom upp hjá BR á
miðvikudaginn:
Austur gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ 10864
V 852
♦ K1083
Austur
♦ 7
VÁ9743
♦ ÁD96542
♦ 86
Yestur
♦ 952
V KDG106
♦ -
♦ G10753
Suður
♦ ÁKDG3
V-
♦ G7
♦ ÁKD942
Mörg pör eiga opnun í fórum
sínum fyrir spil vesturs, til dæm-
is 2 hjörtu, sem sýna a.m.k. 5-4
í hjarta og láglit. Eftir þá byrjun
gefst austur ekki upp undir 6
hjörtum. Sem vinnast ef sagn-
hafí fer vel með samganginn.
Einna mesta hættan stafar af
trompi út. Vestur verður að
stinga upp ás blinds og henda
háu hjarta undir. Þá nær hann
að trompa út tígulinn og taka
trompin í lokin með því að spila
sexunni að 97 og svína fyrir
áttuna.
En þar sem vestur passaði,
opnaði austur gjaman á einum
tígli. Suður á milljón möguleika;
sumir skutu strax á 4 spaða af
ótta við að AV fyndu hjartasam-
legu, aðrir sögðu rólega 2 lauf
eða dobluðu. í reynd vinnast
aðeins 4 spaðar í NS, en taki
vömin ekki stungurnar í upp-
hafí er hugsanlegt að fá 11
slagi. En þá má sagnhafi ekki
taka nema eitt tromp áður en
hann snýr sér að laufmu.
SKÁK
Umsjón Margelr
Pétursson
Tveir kunnir stórmeistarar
tefldu þessa stuttu skák á móti í
Debrecen í Ungverjalandi í sumar:
Hvítt Adoijan (2.520), Ungverja-
landi, svart: Chernin (2.600),
Sovétríkjunum, Drottningar-
bragð, 1. c4 — Rf6 2. Rc3 — e6
3. Rf3 - d5 4. d4 - dxc4 5. e4
— Bb4 6. Bg5 — c5 7. Bxc4 —
cxd4 8. Rxd4 — Bxc3+ 9. bxc3
- Da5 10. Bb5+ - Rbd7 11.
Bxf6 - Dxc6+?! 12. Kfl - gxf6
13. h4! (Lobron lék skömmu áður
13. Rxe6?! — De5! og tapaði fyrir
Szuszu Polgar.) 13. — Ke7 14.
Hh3 - Da5 15. Hbl - Hd8 16.
Dcl - Re5? 17. Dc5+ - Hd6 18.
Hdl - Db6.
19. Rc6+! — bxc6 20. Dxd6+ —
Ke8 21. Hg3! - Dxb5+ 22. Kgl
og svartur gafst upp. Adorjan
getur teflt allra manna bezt þegar
hann nær sér á strik, en í þessu
móti endaði hann samt í 9.-11.
sæti af 12. þátttakendum.