Morgunblaðið - 06.11.1990, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 06.11.1990, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NOVEMBER 1990 eða verr. Við sem þekktu'm hann áttum traustan vin og öruggan. Hann var tveggja manna maki við vinnu og naut þar eins og ann- ars staðar trausts, hann tók mál- stað lítilmagnans og rétti hjálpar- hönd í kyrrþey sem kannski lýsir manninum best. Birgir var svo óupphafinn af sjálfum sér og ræddi sjaldan eða aldrei um eigin hag. Vinur vina sinna. Það kom okkur í fjölskyldunni ekki á óvart hvernig hann studdi eiginkonu sína í hennar erfíðu veik- indum, sem hún átti í um tíma, heldur undirstrikaði það hvern mann hann hafði að geyma. Gott var að sjá hans einlægu vináttu við börnin sín, sem nú sakna sárt. Efst í mínum huga á kveðjustund er þakklæti til hans og fjölskyldu hans fyrir góð kynni sem aldrei bar skugga á. Hallgerður Svili minn Birgir Bogason er lát- inn og verður kvaddur hinstu kveðju í dag frá Fossvogskapellu. Hann er sárt syrgður af fjöl- skyldu, vinum og samferðamönnum sem geta ekki áttað sig á því að lífsglaður og hraustur maður er ekki lengur meðal okkar í þessu lífi. En skyndilegt fráfall manns á besta aldri sem aldrei hafði kennt sér meins skilur eftir sig spurningu sem aldrei fæst svar við. Líðandi stund hægir á sér og ættingjar halla sér hver að öðrum í spyijandi þögn, ráðvilltir og hið eina sem þeir geta er að sameinast í minning- unni um góðan dreng og fjölskyldu- föður. Birgir var sonur hjónanna Boga Sigurðssonar sýningarstjóra frá Vestmannaeyjum og Sigurlaugar Eggertsdóttur Jónssonar frá Nautabúi. Þau eignuðust 3 börn, Elínu Sigrúnu, maki Páll Samúels- son, Eggert, sölumaður, maki Þór- hildur Kristjánsdóttir og yngstur var Birgir. Þau hjónin hófu búskap sinn í Vestmannaeyjum, en þegar Birgir var 5 ára fluttist fjölskyldan til Njarðvíkur þar sem þau bjuggu í 2 ár. Eftir dvölina í Njarðvík fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur þar sem Bogi hóf störf sem sýningarstjóri hjá Tjarnarbíói og síðan við Há- skólabíó. Föður sinn missti Birgir 1980. Birgir lauk námi í Samvinnu- skólanum 1952 og hóf þá störf hjá Landsmiðjunni í Reykjavík þar sem hann starfaði í mörg ár. Hann reyndist fyrirtækinu trúr og af- kastamikill starfsmaður og vel lát- inn af samstarfsmönnum sínum. 1976 stofnuðu nokkrir bændur í Skagafirði fyrirtæki um slátrun og afurðasölu. I mörg ár áður hafði Birgir heimsótt Skagafjörðinri þeg- ar hann gat komið því við og eign- ast þar marga góða vini og hlotið traust þeirra. Því fólu bændurnir Birgi að reka fyrirtækið sem var grunnur lífsafkomu þeirra, var hann framkvæmdastjóri þess til dauðadags. Birgir giftist eftirlifandi konu sinni, Svanhildi Ernu Jónsdóttur, 6. desember 1957 og eignuðust þau 5 börn. Sigrúnu Elínu, guðfræði- nema, Kristján Einar, kennara, sambýliskona hans er Angela Bert- hold sjúkraþjálfari, Jón Gauta, sýn- ingarstjóra, Sigríði Ósk, sem starfar í utanríkisráðuneytinu og Boga Örn, nema. Áður hafði Birgir eign- ast son, Albert, sem er iðnnemi. Heimili þeirra Birgis og Svanhild- ar í Hraunbæ 55 var rómað fyrir rausnarskap og gestrisni. Systkinabörn þeirra hjóna minn- ast heimsókna á heimili þeirra þar sem allt var gert til þess að gera daginn sem eftirminnilegastan. Þau minnast Birgis með söknuði. Tengdamóðir okkar, Guðrún Kristjánsdóttir, þakkar Birgi hugul- semi og ástúð sem hann sýndi henni ætíð. Ég og fjölskylda mín vottum Svanhildi, börnum, móður og systk- inum okkar dýpstu samúð. Vonum að þeim hlotnist styrkur í_sorg sinni. Páll Ólafsson Fregnin af andláti Birgis kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Enn einu sinni kom hinsta kallið okkur að óvörum, kippti út úr hring- iðunni manni í blóma lífsins, manni sem var fullur af starfsþreki, manni sem skipti okkur miklu máli hvert á sinn hátt. Birgir var heimilisvinur okkar á Varmalæk frá því ég fyrst man eftir mér. Það var alltaf ákveðin eftirvænting í loftinu þegar maður vissi að Birgir var að koma. Birgir var alltaf hress og kátur í góðra vina hópi, það gustaði af honum. Hann hafði skemmtilega ákveðnar skoðanir á hlutunum, hvort heldur það var á landsmálunum eða öðru, og það var alltaf gaman að rökræða hlutina við hann. Honum var sölu- mennskan í blóð borin, hvort heldur verið var' að hafa hestakaup og prútta um milligjöf eða hann var að selja kjöt fyrir Slátursamlag Skagfirðinga hf. var gaman að fylgjast með aðferðum hans. Heimilisfólkið á Varmalæk fyrr og nú sér á bak traustum vini þar sem Birgir var, vini sem alltaf var til staðar þegar að á þurfti að halda. Fyrir það og allar góðu samveru- stundirnar þökkum við. Eftirlifandi konu hans, Svanhildi, og börnunum færum við innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum um styrk þeim til handa á þessari erfiðu stundu. Megi minning Birgis lifa, minningin um góðan dreng. Heimilisfólkið á Varmalæk fyrr og nú. Jóliann Pétur Sveinsson. I dag er Birgir frændi minn bor- inn til hvfldar og mig langar að minnast hans með fáum orðum. Þegar ég frétti af skyndilegu láti Birgis var mér illa brugðið, gat þetta verið satt. Hann fór að heim- an frá sér mánudagsmorguninn 29. október sl. alveg eins og aðra morgna, leið ekki vel en vildi samt ekki leita læknis. Hann átti ekki eftir að koma aftur í Hraunbæinn. Þó slái mann köldu að hugsa til þess að náinn ættingi og vinur fari svona vil ég samt trúa því að hlut- verk Birgis sé og verði það sem það hefur verið og mig langar að minn- ast. Frá því ég var smástrákur og fékk að gista heimili Birgis og Svanhildar í Laufásnum hefur Birg- ir alltaf haft sérstök áhrif á mig. Til margra ára skynjaði ég ekki hvað það var sem hafði þessi áhrif á mig. Er ég stækkaði og fór að skilja betur umhverfi mitt held ég að ég skilji þetta. Birgir bjó yfir þeirri gæfu að geta gefið af sér, hann hafði góða nærveru og skynj- aði umhverfi sitt vel. Þeir sem áttu Birgi að vin áttu sterkan vin sem aldrei brást heilindin og sanngirnin. Oft var það svo að tími Birgis til að sinna sinni nánustu fjölskyldu var af skornum skammti og mikið álag hvíldi á Svanhildi með ekki aðeins stóran barnahóp heldur einn- ig með velkomna gesti, önnur börn eins og mig. En allt gekk þetta upp. Þegar afi minn lést gekk Birg- ir til liðs við móður sína og varð henni sú stoð sem hún þurfti á að halda. Hann tók að sér ofan á allt sitt álag að sjá um flest hennar mál, ömmu minni til. mikils léttis og greinilega sjálfum sér til mikillar ánægju. Birgir kom til foreldra minna fyrir síðustu jól með fullan kassa af ijúpum og sagði: Ég fékk þetta sent norðan úr Skagafirði, eins og reyndar svo margt annað, en hef bara ekkert við þetta að gera og langar að skilja þetta eft.ir hjá ykkur. Það var sama hvort hann gaf hlut eða gaf af sjálfum sér, alltaf kom það á réttum tíma. Um leið og ég votta Svanhildi og börn- unum mína dýpstu samúð vil ég trúa að kraftar Birgis eigi eftir að verða til góðs um ókomna framtíð, bæði hér á jörðinni í formi góðra minninga svo og á æðri stöðum. Mig langar að ljúka þessari minn- ingu með orðum hins vitra spekings Lao-Tse: Hinn vitri hefur sig ekki í frammi og er engum fráhverfur. Menn missa hvorki heyrnar né sjónar á honum, og hann reyn- ist öllum eins og börnum sínum. Bogi Pálsson Birting nfmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldsiaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til- vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmæl- isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. 47 t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR KJERÚLF, elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, lést mánudaginn 5. nóvember. Guðmundur Oddsson, Jórunn Jónsdóttir, Sigurður Oddsson, Herdis Tómasdóttir, og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN GEIRSDÓTTIR, Njálsgötu 102, Reykjavik, lést á Landakotsspítala 3. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 9. nóvember kl. 15. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Anna G. Kristjánsdóttir, Halldóra E. Kristjánsdóttir, Daði Ágústsson, Geir Kristjánsson, Anna Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, JAKOB R. BJARNASON múrarameistari, lést á heimili sínu þann 1. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 8. nóvem- ber nk. kl. 13.30. Halldóra Jakobsdóttir, Bjarni Jakobsson, Gunnar Bergsveinsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og sonur, BIRGIR SIGMUNDUR BOGASON, Hraunbæ 55, Reykjavík, verður jarðsunginn í dag, 6. nóvember, kl. 15.00 frá Fossvogs- kirkju. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans er góðfúslega bent á Hjartavernd eða Krabbameinsfélagið. Svanhildur Jónsdóttir, Bogi Örn Birgisson, Sigrún Elín Birgisdóttir, Albert Birgisson, Kristján Einar Birgisson, Elín Jóhannesdóttir, Angela Berthold, Eggert Bogason, Jón Gautí Birgisson, Sigurlaug Eggertsdóttir, Sigríður Ösk Birgisdóttir. t Hjartans þakkir til allra, er sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, ÓLAFÍU EYLEIFSDÓTTUR, Blikanesi 22, Garðabæ. Börn, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR AÐALHEIÐAR JÓNSDÓTTUR frá Laxárnesi f Kjós. Bjarndís Friðriksdóttir, Karl Kristinsson, Aðalheiður Ólafsdóttir, Sigurður Bjarnason, Jóna Lárusdóttir, Matthías Magnússon, Stefán Jónsson, Oddrún Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ERFISDRYKKJUR Tökum að okkur að sjá um erfisdrykkjur, stórar og smáar, í glænýjum og notalegum sal, Ásbyrgi. Kaffihlaðborð frá kr. 900,- Upplýsingarí síma 91-687111. ÍDTEL tgJAND t Öllum þeim, sem auðsýndu okkur hjálp og samúð í veikindum og við fráfall HARTMANNS KRISTINS GUÐMUNDSSONAR frá Þrasastöðum, sendum við bestu þakkir. Sérstakt þakklæti til lækna og annars starfsfólks handlækninga- deildar Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar fyrir frábæra hjúkrun og hlýju. Gæfan fylgi ykkur. Kristín Halldórsdóttir, börn og tengdabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.