Morgunblaðið - 06.11.1990, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990
53
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
ítf KtfrKia 1
Þessir hringdu .. .
Veski
Svart kvenveski tapaðist í Bjór-
höllinni 20. október. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að skila því
þangað.
Hjól
Hjól fannst í Elliðaárdalnum.
Upplýsingar í símum 678842 eða
83685.
Gleraugu
Gleraugu töpuðust við Nóatún
27. október. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
32915.
Gullarmband
Breitt gullarmband, merkt á
röngunni, tapaðist við Félags-
heimili Seltjarnarness. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 666929.
Taska
Sú sem tók brúna leðurtösku í
misgripum á Kaffigarði í Garðabæ
laugardaginn 27. október er vin-
samlegast beðin að skila henni
aftur þangað og fá sína í staðinn.
Niðrandi tónn
H.Ó. hringdi:
„Mér þykir alltaf leiðinlegt þeg-
ar menn tala niðrandi um Island.
Þess vegna leiðist mér að heyra
fjöimiðlamenn, sem annars eru
vandir að virðingu sinni, segja
„hér á skerinu“. Þetta er leiðinda
orðalag sem hver étur eftir öðrum
um þessar mundir. Við eigum að
virða landið okkar og ekki tala
um það í niðrandi tón.“
Gullhringur
Gullhringur með demöntum
tapaðist á leiðinni frá Pósthús-
stræti 2 yfir að Alþingishúsinu.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 697100.
DBS-hjól
Svart og silfurlitað DBS
Classic- hjól fannst fyrir skömmu.
Upplýsingar í síma 20304 fyrir
hádegi.
Sniglabandið
Guðjón hringdi:
„Ég er mikill aðdáandi Snigla-
bandsins og tel að Sniglarnir séu
þeir færustu á sínu sviði hér á
landi. Vil ég vekja athygli á þess-
ari ágætu hljómsveit. Það hefur
hins vegar vakið furðu mína að
plötur með Sniglabandinu eru
hvergi fáanlegar. Ég hef farið í
nokkrar plötuverslanir en hvergi
fengið plötu með þeim.“
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
Múlalundur
SfMI: 62 84 50
STfÖRNUKORT
Persónulýsing, framtíðarkort, samskiptakort.
Gunnlaugur Guðmundsson,
Stjörnuspekistöðin,
Miðbæjarmarkaðinum,
Aðalstræti 9, sími 10377.
mmmm
Sjálfstæðisfólk I Reykjaneskjördæmi
KÖTTUR
Þessi köttur hefur vanið komur sín-
ar heim til okkar í Bakkavör 11,
Seltjarnamesi, í þó nokkuð langan
tíma. Nú er okkur farið að gruna
að hann hafi týnst. Hann er nú
orðinn haltur og með sár á fram-
fæti og á mjög bágt. Ef enginn
gerir tilkall til hans verður að lóga
honum og eru þeir sem kannast við
hann vinsamlegast beðnir að hafa
samband í síma 620137.
Ósæmandi myndir
Til Velvakanda.
Eins og titill þessarar greinar ber
með sér segi ég farir mínar ekki
sléttar. Fyrir skömmu þurfti ég að
fara í annars konar innkaupaleið-
angur heldur en ég er vön. Að sjálf-
sögðu fannst mér það ekki mikið
mál að kaupa slöngu, svo ég fór í
verslun eina á höfuðborgarsvæðinu
sem selur slíkan varning. Þegar inn
var komið vatt ég mér að búðar-
borðinu og viti menn. Við mér
blasti sjón sem ég hélt að væri
bara á kaffistofum karlavinnustaða.
A afgreiðsluborðinu sjálfu var mynd
af allsnaktri kynsystur minni í,
vægast sagt, ansi „bjóðandi" stell-
ingu. Ég hugsaði með mér að best
væri að horfa í aðra átt svo þessi
viðbjóður væri ekki fyrir augum
mér. Það tók ekki betra við, því á
næsta vegg voru tvö plaköt af sömu
gerð. Þá fauk nú heldur betur í
mig. Verslun, þar sem við mátti
búast að kvenfólk ræki inn nefið
öðru hvoru bar ekki meiri virðingu
fyrir því en þetta. Að sjálfsögðu fór
ég burtu án þess að kaupa nokkum
skapaðan hlut. Nú, sagan er ekki
búin, því ég fór í næstu búð sem
ég vissi að verslaði með slöngur.
Þar leist mér betur á. Hugguleg
búð og kurteisir afgreiðslumenn.
„Eitthvað meiri siðmenningarbrag-
ur á þessari búð,“ hugsaði ég. Þeg-
ar ég var búin að fá slönguna, sem
mig vantaði, gekk ég að afgreiðslu-
borðinu ... og viti menn. í formi
saklauss dagatals var mynd af fá-
klæddri konu í ögrandi stellingu.
Það vantaði ekki, pappírinn í daga-
talinu var fínn og afgreiðslufólkið
merkti, að mér sýndist, samvisku-
samlega við hvern dag sem leið.
Mér var allri lokið og fór heim
slöngulaus — og reið. Látum vera
ef þessir þurfandi menn hefðu slíkt
„skraut" hangandi í prívatherbergj-
um fyrirtækja sinna. En að láta það
hanga fyrir allra augum bak við
búðarborð er gjörsamlega óþolandi.
Ég er alveg handviss um, að ég er
ekki fyrsti viðskiptavinurinn með
siðferðiskennd í þessum búðum. En
kannski sá fyrsti sem lætur ekki
bjóða sér þetta. Ég er orðin hund-
leið á að sjá „opnar og bjóðandi"
kynsystur hanga uppi á öllum
veggjum og tek því ekki lengur
þegjandi. Svona myndaval er í alla
staði óeðlilegt og ósæmandi. Ég
held að það sé kominn tími til að
konur og karlar með einhveijá sið-
gæðisvitund fari að láta í sér
heyra. Við þurfum ekki að láta
svona ófagnað vaða yfir okkur.
Eyrún Ingadóttir
ÞAÐ ER ÓÞARFI AÐ SKJÁLFA ÞÓTT HANN BLÁSI K0LDU
Alllr hita- og kæliblásararnir eru geeðaprófaðir af
sérfræðingi Blikksmiðjunnar I hita- og kælitækni.
Hita-og kæliblásararnirfrá Blikksmiðjunni eru
löngu landsþekktir fyrir gæði og afköst. Þeir
eru sérstaklega hannaðir fyrir íslenskt vatn
sem tryggir þeim hámarks endingu.
Ef þú þarft að hita eða kæfa bílskúrinn,-
tölvuherbergið, verkstæðið, vinnusalinn,
húsbygginguna eða kæliklefann þá höfum
við lausnina.
Hafðu samband og við veitum fúslega allar
nánari upplýsingar um verð og tæknileg atriði
BLIKKSMIÐJAN
Skrifstofa stuðningsmanna
Árna M. Mathiesen
er aö Bæjarhrauni 12, Hafnarfiröi.
Símar: 51727, 52088 og 650211
Opiö virka daga kl. 16 - 22
og kl. 10 -18 um helgar.
Stuðningsmenn eru hvattir til að mæta.
Alltaf heitt á könnunni.
Tryggjum Árna 3. sætið.
Stuðningsmenn
- Hárlos
- Kláði
- Flasa
- Litun
- Permanent
MAIMEX
Jóna Björk
Grétarsdóttir:
Ég missti megnið af hár-
inu 1987 vegna veikinda.
Árið 1989 byrjaði hárið
fyrst að vaxa aftur, en
það var mjög lélegt; það
var svo þurrt og dautt
og vildi detta af.
Síðan kynntist ég Manex
hársnyrtilínunni og það
urðu mjög snögg um-
skipti á hári mínu til hins
betra. Eftir 3ja mánaða
notkun á Manex prótein-
inu, vítamíninu og
sjampóinu er hár mitt
orðið gott og enn í dag
finn ég nýtt hár vera að
vaxa.
vítamín
sérstaklega fyrir
hár, húð og neglur.
MANEXsjampó
MANEXnæring
Dreifing:
S. 680630.