Morgunblaðið - 06.11.1990, Blaðsíða 56
ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Kjaradeila
FFSÍ og LÍÚ:
Sáttafundur
ekkiboðaður
fyrr en í lok
vikunnar
GUÐMUNDUR Vignir Jósefsson,
víiraríkissáttaseinjari, segist
ekki boða fund með Farmanna-
og fiskimannasambandi Islands
og Landssambandi íslenskra út-
vegsmanna fyrr en í seinni hluta
þessarar viku, nema óskir um
það komi frá félögunum sjálfum.
/ j. Guðmundur Vignir segir að gert
sé ráð fyrir því að_ viðræður um
kjarasamninga FFSÍ og Bylgjunn-
ar, sem boðað hafa verkfall frá 20.
nóvember næstkomandi, verði sam-
hliða hjá ríkissáttasemjara. Hann
segir að skylt sé að halda fund með
deiluaðilum áður en verkfall skelli
á, en þeir hafi ekki beðið um fund.
Sjá frétt á bls. 24.
Orkuverð til nýs álvers:
Samning'a-
fundur á
fimmtudag
50 þúsundjólastjörnur
Syðra-Langholti.
UM ÞESSAR mundir eru blómaframleiðendur að setja á markað hinar vinsælu jólastjörnur. Arlega munu
vera seldar 50—60 þúsund jólastjörnur hér á Iandi. Myndin er af Emil Gunniaugssyni, blómaræktanda á
Flúðum, en á dögunum, sendi hann mikinn fjölda af jólastjörnum á markað. Algengasta verðið á jólastjörnum
í blómabúðum er 700—1.000 krónur. _ sigt sigm.
Skattur af
hóffjöðrum
til reiðvega
FJORIR þingmenn Framsóknar-
flokksins hafa lagt fram frumvarp
á Alþingi um breytingu á lögum
um fjáröflun til vegagerðar þar
sem lagt til að greitt skuli sérs-
takt innflutningsgjald, hóffjaðra-
gjald, af hóffjöðrum. Einnig skuli
gjald þetta lagt á innlenda fram-
leiðendur.
Er tekjum þessum ætlað að renna
til vegagerðar til að gera reiðvegi
samkvæmt reiðvegaáætlun, sem
gerð verði til fjögurra ára í senn. í
greinargerð með frumvarpinu segir
að ef gert er ráð fyrir að 30 hóffjaðr-
ir fari í járningu og járnað sé að
jafnaði fimm sinnum á ári gæti
tveggja krónu gjald á hveija hóffjöð-
ur samtals gefið tekjur til reiðvega-
gerðar sem nemi um 10 millj. kr. á
ári.
Margeir meðal
efstu manna
MARGEIR Pétursson lenti í 1.-6.
sæti á Opna meistaramóti Vínar-
borgar, sem lauk síðastliðinn laug-.
ardag.
Ásamt Margeiri urðu í 1.-6. sæti
stórmeistararnir Gavrikov og Kras-
enkov frá Sovétríkjunum, Ftacnik frá
Tékkóslóvakíu og Woijtkewicz frá
Póllandi, og alþjóðlegi meistarinn
Kengis frá Sovétríkjunum. Þeir hlutu
7 vinninga af 9 mögulegum.
FUNDUR samninganefndar
stjórnar Landsvirkjunar og Atl-
antsálshópsins um orkuverð til
nýs álvers verður í London á
fimmtudag og föstudag.
Samninganefnd Landsvirkjunar
hefur síðustu daga setið á fundum,
-^n.a. með iðnaðarráðherra. Birgir
ísleifur Gunnarsson, sem situr í
nefndinni, sagði að þar hefði verið
farið yfir stöðu orkusamningsins
og ýmsar upplýsingar um málið,
til að undirbúa samningafundinn.
I samninganefndinni sitja, auk
Birgis, Davíð Oddsson og Páll
Pétursson, en nefndin starfar með
stjórnarformanni Landsvirkjunar,
Jóhannesi Nordál.
Að sögn Páls Péturssonar mun
hann fyrir hönd nefndarinnar, sitja
fund álviðræðunefndarinnar með
samningamönnum Atlantsáls, í
Kaupmannahöfn í næstu viku, þar
sem fjallað verður um fjárhagsleg-
—- ar ábyrgðir í álverssamningunum.
Húsbréfakerfið opnað fynr nýbyggingar í mánuðinum:
Allt að 95% fæst lánað af
verði fokheldrar íbúðar
Fjármögnun og framkvæmdir verða markvissari, segir framkvæmdastjóri Verktakasambandsins
HUSBREFAKERFI verður opn-
að fyrir nýbyggingar ibúða þann
15. nóvember næstkomandi. Þá
geta viðurkenndir byggingar-
aðilar fjármagnað íbúðabygging-
ar með húsbréfalánum sem nem-
ur allt að 95% af verði fokheldr-
ar íbúðar, að því tilskildu að þeir
hafi ábyrgð banka á upphæð-
inni. Að sögn Pálma Kristinsson-
ar, framkvæmdastjóra Verk-
takasambands íslands, mun þetta
breyta verulega fjármögnun og
skipulagi ibúðabygginga, sem
geti orðið markvissari. Hann seg-
ir ekki hægt að fullyrða hvort
þessi breyting muni valda lækk-
un byggingarkostnailar, það ráð-
ist af því hvernig markaðurinn
bregst við.
Sameiginlegur fundur Verktaka-
sambandsins og Meistara- og verk-
takasambands byggingamanna var
haldinn í gær, þar sem þessi breyt-
ing var kynnt. Nú er íjármögnun
þríþætt. Verktaki notar eigið fé til
að fjármagna framkvæmdir. Banki
hans veitir ákveðna fyrirgreiðslu,
lán að ákveðinni upphæð fyrir heild-
arframkvæmdakostnaði, í þriðja
lagi fjármagnar íbúðarkaupandi
framkvæmdir og hefur það að jafn-
aði verið veigamesta fjármögnunin.
Því ræður sala íbúðarinnar að veru-
legu leyti byggingahraðanum.
Pálmi Kristinsson segir, að á
síðustu árum hafi það gerst í vax-
andi mæli, að íbúðasala hefur átt
sér stað á seinni stigum fram-
Framsókn vill að Ríkisendur-
skoðun rannsaki húsbréfakerfið
ÞINGFLOKKUR Framsóknarflokksins sendi forseta Alþingis bréf
í gær, þar sem þess er farið á leit við forseta þingsins, að þeir
óski eftir því að Ríkisendurskoðun athugi ýmsa þætti í sambandi
við húsbréfakerfið, skv. gildandi lögum og ákvörðun stjórnvalda,
um að það yfirtaki almenna húsnæðiskerfið. Þetta kom fram við
utandagskrárumræður um vanda byggingarsjóðanna í sameinuðu
þingi í gærkvöldi.
Það var Alexander Stefánsson.
sem greindi frá þessu þegar hann
gagnrýndi harðlega að húsbréfa-
kerfið skuli hafa verið tekið athug-
unarlaust upp.
í bréfi framsóknarmanna til for-
seta þingsins er farið fram á, að
Ríkisendurskoðun geri athugun á
því, hvort húsbréfakerfið geti tekið
við allri lánastarfsemi Byggingar,-
sjóðs ríkisins og hversu miklir fjár-
munir yrðu veittir í vaxtaafslátt í
gegnum skattakerfið. Óskað er eft-
ir því að lagt verði mat á áhættu
ríkissjóðs, sem felst í ríkisábyrgð
,á .húsbréfum, útgefnum af Hús-
næðisstofnun ríkisins í framtíðinni.
í þriðja lagi er farið fram á að
gerð verði sérstök grein fyrir mati
Ríkisendurskoðunar á þeirri
áhættu sem ríkissjóður tekur á sig
umfram almennar reglur um ríkis-
ábyrgðir vegna greiðsluerfiðleika.
Þá er einnig spurt í bréfinu hvort
rétt sé að veikleiki húsbréfakerfis-
ins geti orðið mikill skaðvaldur i
íslensku efnahagslífi, ef það lána-
kerfi fær að starfa eitt og sér í
fullu umfangi. Loks er farið fram
á að samanburður verði gerður á
húsbréfakerfi í nágrannalöndunum
við húsbréfakerfið á íslandi. „Áríð-
andi er að svar við þriðja lið fáist
sem fyrst,“ segir í lok bréfsins.
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, sagði við umræðurn-
ar að hún teldi hér einkennilega
að verki staðið. Sagði hún að Alex-
ander væri fullkunnugt um að
stjórnskipuð nefnd hefði starfað að
þessum málum undanfarið, og að
hún myndi skila af sér í lok vikunn-
ar. Þar væri öllum þessum spurn-
ingum svarað.
Sjá frásögn af umræðum á
Alþingi á blaðsíðu 34.
kvæmdanna, fólk gangi í mun
minna mæli en áður frá kaupum
út á teikningar. Fólk vilji fremur
sjá fyrir endann á framkvæmdum,
áður en kaup eru gerð. Þetta hefur
leitt af sér að byggingatími hefur
í mörgum tilvikum verið langur,
sem hefur síðan leitt til hærra
íbúðaverðs.
„Breytingin með opnun hús-
bréfakerfisins fyrir nýbyggingar
mun væntanlega leiða til þess að
allt skipulag varðandi framkvæmd-
ina verður markvissara, það er að
segja bæði ijármögnun og fram-
kvæmdir, sem síðan væntanlega
getur leitt til hagræðingar og lækk-
unar byggingarkostnaðar, segir
Pálmi Kristinsson.
„Húsbréfakerfið er lánakerfi sem
lýtur markaðslögmálum varðandi
vexti, framboð og eftirspurn, sem
skiptir meginmáli fyrir hinn al-
menna íbúðarkaupanda, þar af leið-
andi fylgir þessari kerfisbreytingu
veruleg óvissa varðandi þann kostn-
að sem af því leiðir og hinn endan-
legi íbúðarkaupandi mun að sjálf-
sögðu bera að lokum, eins og annan
fjármagnskostnað í framleiðslu-
greinum.
Kaupandi yfirtekur húsbréfalán-
ið sem byggingaraðilinn hefur feng-
ið til framkvæmdanna og getur
síðan fengið viðbótarlán þegar íbúð
er fulllokið. Það nemur samtals allt
að 65% af endanlegu verði íbúðar-
innar og ber íbúðarkaupandi af-
.föll,“ .sagði Pálmi KristinssOn.