Morgunblaðið - 30.12.1990, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 30.12.1990, Qupperneq 6
MORGUN’BLADIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990 * 1 Forsvarsmenn íslenska úthafs- veiðifélagsins og eigendur tog arans Andra I lentu í miklum hremmingum í byijun ársins þar sem ekki fengust veiðiheimildir fyr- ir skipið. En hvar átti að fá aflann? a) A Halanum. b) Við Færeyjar. c) Við strendur Alaska. d) Suður af Azoreyjum. 2 Ein af skærustu stjornum banda- rískrar sveitatónlistar heim sótti ísland í febrúar og hélt þrjá tónleika hérlendis. Þessi söngkona heitir: a) Dolly Párton. b) Loretta Lynn. c) Tammy Wynette. d) Emmylou Harris. 3 Islenskri leikkonu var boðið hlut- verk í væntanlegri kvikmynd sænska leikstjórans Sven Nykvist en tökur hennar áttu að hefjast í ágústmánuði. Leikkonan heitir: a) Tinna Gunnlaugsdóttir. b) María Ellingsen. c) Guðrún Gísladóttir. d) Lilja Þórisdóttir. 4 Stórt álfyrirtæki gekk til liðs við Atlantal-hópinn eftir að Alusu isse og Austria Metall misstu áhug- ann á samstarfí við hópinn. Fyrir- tækið heitir: a) Alumin. b) Alumax. c) ICEAL. d) Granges. 5 Nýkjörinn forseti Tékkóslóvakíu heimsótti ísland á árinu og hreifst mjög af landi og þjóð. Hann heitir: a) Vaclav Havel. b) Andrei Svoboda. c) Alexander Dubcek. d) Svejk. 6 Ungur íslendingur vakti athygli á árinu er hann var ráðinn aðstoðarforstjóri hjá risafyrirtæk- inu Sony í Bandaríkjunum. Hann er einnig þekktur fyrir ritstörf hér- lendis. Hann heitir: a) Jón Ólafsson b) Ólafur Jóhann Ólafsson. c) Jónas Hallgrímsson. d) Ari Þorgilsson. 7 Borgar-og sveitarstjórnarkosn- ingar voru haldnar í vor og margir kallaðir til í þeim. Listi Sjálf- stæðisflokksins á Fáskrúðsfirði var athyglisverður því hann skipaði að mestu stétt sem ekki lætur mikið til sín taka í pólitík að öðru jöfnu. Á listanum voru: a) Sjö listmálarar. b) Tólf húsmæður. c) Átta trillukarlar. d) Fimm barnaskólakennarar. 8 Flugleiðir fengu í apríl afhenta hina fyrstu af nýju Boeing 757 þotum sínum. Hún hlaut nafnið: a) Vigdís. b) Aldís. c) Hafdís. d) Guðríður Þorbjarnardóttir. 33 Iágústbyrjun dró til tíðinda við Markarfljótsbrú og varð að loka henni fyrir umferð um stund. Hvernig stóð á því? Verið var að reyna nýtt, íslenskt vatnamælingatæki. b) Mannsöfnuður á brúnni og deilur um hreppamörk úti í fljótinu ollu umferðarteppu. c) Eðlisfræðistofnun var með tilraunir, sem sýndu, að gijót léttist í vatni. d) Grafið hafði frá einum brúarstöplinum. P Ahöfn á íslensku flutningaskipi kom við sögu er ferjan Scandinavian Star brann og fórst suðvestur af Noregi með þeim af- leiðingum að hátt á annað hundrað manns létust. Áhöfn íslenska skips- ins tókst að bjarga 39 manns af feijunni. Skip þetta var: a) Laxfoss. b) Bakkafoss. c) Stapafell. d) Gullfoss. 10 egurðardrottning íslands var kjörin með pomp og prakt að venju í vor. Sú sem hlaut titilinn að þessu sinni heitir: a) Ásta Sigríður Einarsdóttir. b) íris Eggertsdóttir. c) Sigríður Stefánsdóttir. d) Þórdís Steindóttir. 11 Landsbankihn bauð Sovétmönn- um 550 milljóna króna lán að áliðnu sumri. Hvers vegna? a) Sovétmenn greiða mikla vexti. b) Lánið átti að nota til greiðslu skulda við íslenska fískútflytj- endur. c) íslendingar vildu ekki taka lán hjá bankanum vegna hárra vaxta. d) Lánið var til að liðka fyrir innflutningi Moskowitsj-bíla. 12 Ibyijun maí fæddist barn í Grímsey og þótti það nokkuð merkur viðburður. Ekki af því að fæðingin væri neitt óvenjuleg held- ur vegna þess að: a) Þetta var fyrsti strákurinn sem fæddist þarna sl. 10 ár. b) Þetta var fyrsta stúlkan sem fæddist í Grímsey frá 1950. c) Þetta var fyrsti strákurinn sem fæddist á sjó við eyna. d) Þetta var fyrsta stúlkan sem fæddist í sjö ár. 13 Sjálfstæðisflokkurinn vann stór- sigur í borgarstjómarkosning unum í vor undir forystu Davíðs Oddssonar. Hlaut flokkurinn 10 borgarfulltrúa. Sá sem skipaði 10. sætið hefur ekki áður setið í borgar- stjórn. Nafn þess fulltrúa er: a) Ólafur Þ. Stephensen. b) Sveinn Andri Sveinsson. c) Páll Gíslason. d) Guðrún Zoega. 14 að vakti athygli í borgarstjórn- arkosningunum að þekktri persónu úr sjónvarpinu voru greidd 20 atkvæði. Þessi persóna er: a) Eiríkur Fjalar. b) Ómar Ragnarsson. c) Ragnar Reykás. d) Sigrún Stefánsdóttir. 15 Miklar breytingar voru gerðar á skipulagi Sambands íslenskra samvinnufélaga á árinu. Þessari breytingar fólust í að: a) Forstjórum var fjölgað um þrjá. b) Deildarstjórum var fækkað um tíu. c) Helstu deildum var breytt í hlutafélög. d) Kaupfélögunum var breytt í hlutafélög.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.