Morgunblaðið - 30.12.1990, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990
B 7
INNLEND INNLEND NNLEND INNLEND INNLEND INNLEND INNLEND INNLEND INNLEND INNLEND
16
Lögreglan þurfti að hafa afskipti
af nýlistasýningunni „Fyrir
ofan garð og neðan“ og fjarlægja
af henni nakinri mann. Maðurinn
sem hér um ræðir var:
a) Listaverk.
b) Að villast úr búningsklefa
nærliggja sólbaðsstofu.
c) Að mótmæla því að fá ekki
að vera með á sýningunni.
d) Styttan Adonis tekin í mis-
gripum af lögreglu.
17
Lambatungutindur í Skyndidal í
Lóni komst óvænt í fréttirnar
í sumar því þar:
a) Fannst í fyrsta sinn olía á
íslandi.
b) Var ákveðið að taka upp
myndina „Hvíta víkinginn“.
c) Fundust mannvistarleifar
frá því fyrir landnám.
d) Fundust þriggja milljóna ára
leifar klaufdýrs.
35
Fiskmeti er misvinsælt meðal þjóðarinnar, en hvað er að gerast
á þessari mynd?
a) Verið er að ákveða matseðil fyrir eldri bekki grunnskóla
Reykjavíkur.
b) Verið að leita að ljótasta fiskinum.
c) Sýna nemendum úr Ölduselsskóla tindabikkju.
d) Kennsla í Náttúrufræði við Sjávarútvegsháskólann í
Tromsö.
18
istahátíð var haldin í sumar og
sóttu um 19.000 manns hin
ýmsu atriði á hátíðinni. Þekktur
sérsinna erlendur tónlistarmaður
vakti einna mesta athygli að þessu
sinni en hér var á ferðinni:
a) Tom Jones.
b) Eric Clapton.
c) Bob Dylan.
d) George Harrison.
19
andarískur fornleifafræðingur
átti í nokkrum útistöðum við
yfirvöld vegna athafna sinna hér á
landi. Var ástæðan sú, að hann: •
a) Var staðinn að því að reyna
að skipta silfri Egils fyrir dollara
í Landsbankanum.
b) Vildi fá að nota sprengiefni
til að auðvelda sér gröftinn.
c) Fékk ekki að grafa upp göm-
ul bein á Ströndum.
d) Þóttist geta sannað, að brun-
inn á Bergþórshvoli hefði verið
út frá rafmagni.
fengju fyrst fullar bætur fyrir
herleiðinguna.
b) Fyrirtæki, sem lifa á því að
geyma kjötið, hefðu umsvifalaust
orðið gjaldþrota.
c) Samkvæmt íslenskum lögum
er bannað að slátra fé með að-
ferðum múhameðstrúarmanna.
d) Óttast var, að útflutnings-
bæturnar settu þjóðina á haus-
inn.
23
f samningar takast um nýtt
álver verður það reist á Keilis
nesi og voru helstu rökin 'þau, að:
a) Annars væri hætta á miklum
fólksflótta úr Vogunum.
b) Umhverfissjónarmið. mæltu
með því.
c) Mjög stutt er fyrir starfs-
mennina í Bláa lónið.
d) Þannig væri strandstað
fyrsta islenska togarans mestur
sómi sýndur.
24
Islendingar settu að minnsta kosti
eitt Evrópumet á árinu. Metið
var sett í?
a) Kúluvarpi.
b) Vanskilum á rafmagnsreikn-
ingum.
c) Erlendri skuldasöfnun.
d) Málþófi á Alþingi.
25
jómaður við Eyjafjörð varð fyrir
óvenjulegri reynslu í í haust.
Hvað kom fyrir?
a) Hann fékk greitt fyrir afl-
ann.
b) Hann fékk Ieyfi til að selja
aflann í gám.
c) Hann var dreginn um fjörð-
inn af hrefnu.
d) Hann fékk tilkynningu um
aukinn kvóta.
26
ýsjálenzkir sérfræðingar komu
til landsins til að uppfræða
mörlandann. Hvað kenndu þeir okk-
ur?
a) Sauðfjárslátrun.
b) Að búa til nothæft kvóta-
kerfi.
c) Að rýja sauðfé.
d) Að svíkja undan skatti.
27
ovétmenn neituðu að kaupa héð-
an síld af síðustu vertíð. Hvers
vegna?
a) Vegna andstöðu við stefnu
okkar í utanríkismálum.
b) Vegna þess að við vildum
ekki kaupa af þeim olíu.
c) Þeir hafa svo oft tapað í
póker fyrir okkur.
d) Þeir geta ekki borgað fyrir
síldina.
28
*
Ovenjulegar fréttir bárust síðla
árs af umsvifum Suðurnesja
manna. Hver voru þau?
a) Þeir keyptu togara að norð-
b) Þeir keyptu Leifsstöð af
rikinu.
c) Þeir hafa ákveðið að hefja
froskaræktun og sölu froska-
lappa til Frakklands.
d) Þeim fjölgaði verulega á ár-
inu.
29
yggð var eftirlíking af heims-
frægu íslenzku húsi í Japan.
Hvaða hús var það.
a) Hús Bílaborgar áður
Mözdu-umboðsins.
b) Útsýnishúsið á Öskjuhlið.
c) Ráðhús Reykjavikurborgar.
d) Höfði.
30
erkamannafélagið ■ Dagsbrún
tók í haust allt fé sitt út úr
íslandsbanka. Hvers vegna?
a) Bankinn lækkaði vexti.
b) Bankinn hækkaði vexti.
c) Bankinn neitaði að breyta
vöxtum.
d) Bankastjórarnir vildu ekki
gefa Guðmundi J. í nefið.
31
rillukarlar urðu æfir í desem-
ber. Hvers vegna?
a) Þeir voru skikkaðir til veiða
yfir jólin.
b) Þeim voru bannaðar veiðar
með flottrolli.
c) Kvóti þeirra var skertur.
d) Sænskir kapítalistar hafa
keypt upp megnið af trillukvót-
anum.
32
kureyrin EA fiskaði fyrir um
670 milljónir króna á árinu.
Hvers konar veiðar stundar skipið?
a) Gullfiskaveiðar.
b) Botnfiskveiðar og frystingu
um borð.
c) Síldveiðar.
d) Gerir út á sjóðakerfið.
SVÖR Á BLS. 23B
20
Iágúst voru sett bráðabirgðalög,
sem mikill styr hefur staðið um
síðan. Var þar um að ræða:.
a) Lög um nýtt lágmarksverð á
atkvæðum þingmanna.
b) Lög um afnám kjarasamn-
ings Bandalags háskólamennt-
aðra ríkisstarfsmanna og ríkis-
ins.
c) Viðauki við lög um friðun
Alþingishússins, sem taka nú
einnig til fylgis flokkanna í
síðustu kosningum og núverandi
þingmanna.
d) Lög sem leyfa ráðherrum að
’ferðast á kostnað ríkisins með
allan ættgarðinn.
21
Morgunblaðið hóf að gefa út
nýtt sérblað í september og
kemur það jafnan út á miðvikudög-
um. Heitir það:
a) Úr fylgsnum fyrri alda.
b) Úr einu í annað.
c) Úr handraðanum.
d) Úr verinu.
22
Kanadískt fyrirtæki vildi kaupa
allt fáanlegt íslenskt kinda
kjöt og flytja til arabaríkja í
Norður-Afríku. Af því gat þó ekki
orðið og var ástæðan meöal annars
sú, að:
a) Afkomendur Tyrkja-Guddu.
hótuðu lögbanni nema þeir
36
TJTvert er tilefni þessarar myndar?
a) Verið er að kanna gróðurfar á Súlnabergi.
b) Verið er að setja upp hluta listaverks eftir Richard Serra í Viðey.
c) Landhelgisgæzlan er að æfa lágflug.
d) Leit af hamri Þórs, Mjölni.