Morgunblaðið - 30.12.1990, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 30.12.1990, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990 B 15 Haukur Ingólfsson Líney Sigurðardóttir þess að til átaka komi. Deilan er mikil prófraun á samstöðu ríkja í Sameinuðu þjóðunum. Þá verður manni minnisstæð sameining þýsku ríkjanna og um leið undirritún friðar- samninga milli ríkja eftir seinni heimsstyijöldiiia. Að lokum vill undirritaður nota tækifærið og óska Grindvíkingum sem og öðrum lesendum Morgun- blaðsins gleðilegra jóla og friðar á nýju ári um leið og hann þakkar þeim sem lögðu honum lið á liðnu ári. STURLA PÁLL STURLUSON, SUÐUREYRI: Kvótakerfið útrýmingar- stefna gagn- vart lands- byggðinni Af erlendum vettvangi er innrás íraka í Kúvæt manni efst í huga enda eru mjög alvarlegir hlutir þar að gerast sem áhrif geta haft á alla heimsbyggðina í kom- andi framtíð. Þá hefur verið at- hyglisvert að fylgjast með gangi mála í austantjaldslöndunuin og þeirri miklu spennu sem þar nú ríkir undir niðri. Innan skeijagarðsins eru margar minningar frá ’90 og ekki allar jafn góðar. Sú markvissa útrýming- arstefna sem ráðuneyti sjávarút- vegs hefur markað gagnvart lands- byggðinni og þó sérstakleg Vest- firðingum með tilhögun kvótakerf- isins er sú minning sem svörtust er í huganum nú um áramót. Þá svíða mann minningar undan því skilningsleysi sem stjórnvöld hafa sýnt lífbrú þeirri sem flugfé- lagið Ernir hf. á ísafirði hefur byggt upp á Vestfjörðum til sérfræðinga og sjúkrahúsa í Reykjavík. Sólar- geislinn í ár er hins vegar sú ákvörð- un samgönguráðherra að gera hug- myndir um jarðgöng á Vestfjörðum að veruleika. Úr heimabyggð er harðstjórn vetrar konungs fyrri hluta árs með tilheyrandi fannfergi eitt af því sem enn situr í huga manns, einnig sú Frímann Ólafsson. Kári Jónsson harka og mannvonska sem spratt upp á yfirborðið í kringum sveitar- stjórnarkosningarnar í sumar, þótt flestir séu nú búnir að jarða í sér púkann. Sumarið bætti hins vegar alveg upp harðan vetur og var al- veg einstaklega gott og sólríkt. Þá leitar oft á hugann sú staðreynd að við Súgfirðingar þurftum að horfa á eftir nokkrum kjarnafjöl- skyldum úr byggðarlaginu í at- vinnuleysinu í sumar en sem betur fer hefur þeirri þróun verið snúið við. Hér er aðeins brotabrot af minningum ársins 1990 en látum gott heita að sinni með nýárskveðj- um til allra landsmanna. HALLGRÍMUR MAGNÚSSON, GRUNDARFIRÐI: Fijósemi í héraðinu HVAÐ var helst í fréttum á árinu sem er að líða? Þetta er nokkuð erfið spurning og reyndar ekki hægt að svara henni fyrr en búið er að svara annarri spurningu, nefnilega spurningunni: Hvað er frétt? Um þá spurningu mætti hins vegar skrifa þykkar og lærðar bækur. Fréttir verða oft þeim mun merkilegri sem þær snerta mann sjálfan meira á einhvern hátt. Persaflóadeilan snertir okkur epn ekki mikið. Hún leiðir þó óneitan- lega hugann að ógnun kjarnorku- vopnanna, og einnig þurfum við að borga fleiri krónur, þegar við kaup- um bensín á bílinn og það á dögum þjóðarsáttarinnar margfrægu. Sú sátt er ein af stórfréttum þessa lands og snertir flesta Islendinga talsvert mikið og hefur orðið tilefni til mismunandi skemmtilegra um- ræðna í fjölmiðlum nú um langa hríð. Á landsbyggðinni hefur umtal um skipulag fiskikvóta flokkast undir stórfréttir, enda snerta þær fréttir flesta, sem þar búa. Við sem kjósum að njóta hversdags þeirrar náttúrufegurðar og kyrrðar sem • sveitir landsins veita, hugsum áhyggjufull um það hvernig óheppi- legt kvótakerfi gæti smátt og smátt neytt okkur til að segja skilið við þessi gæði í skiptum fyrir skarkaia og mengun stórborgarinnar. Af fréttum úr byggðarlaginu finnst mér það stórfrétt þegar sjó- manni er bjargað úr lífsháska hér úti á firði eins og gerðist í vonsku- veðri á sumardaginn fyrsta síðast- liðinn. Þessi frétt snertir okkur í Grundarfirði mikið, en fáa aðra. Sama má segja um frjósemi héraðs- ins. Hér fæddust 25 börn á árinu, þar af einir tvíburar og nú fyrir skömmu þríburar. Þeim atburði var reyndar sjónvarpað og strákarnir þrír dregnir úr móðurkviði fyrir augum alþjóðar. Að lokum er mér hugleikin ein frétt sem fyrir mig var stórfrétt, þótt hún snerti fáa aðra, en það var þegar ég var beðinn um að gerast fréttaritari Morgunblaðsins á miðju þessu ári. Þetta var mér sérlega ánægjuleg frétt. Nýr heim- ur opnaðist. Smám saman fór ég að sjá umhverfi mitt í nýju ljósi, og við hvern atburð sem gerist núorðið velti ég fyrir mér spurning- unni: „Er þetta frétt?“ LÍNEY SIGURÐAR- DÓTTIR, ÞÓRS- HÖFN: Gott atvinnu- ástand o g ágætt mannlíf ENN eru að koma áramót og allt- af er eitthvað, sem ekki hefur komist í verk, þrátt fyrir góð áform. Líða árin alltaf svona hratt? * Ymislegt hefur gerst á þessu líðandi ári, bæði heima fyrir og erlendis. Miklar viðsjár eru í heim- inum og eru ógnvekjandi þær hörm- ungar, sem dynja yfir marghijáða íbúa fyrir botni Persaflóa. Ekki er enn séð fyrir, hver endirinn verður á þeirri deilu, en komi til stríðs, mun það hafa ófyrirsjáanlegar afleiðing- ar. Því er það ósk mín, og sjálfsagt allrar heimsbyggðir, að friðsamleg lausn fínnist á Persaflóadeilunni. í Austur-Evrópuríkjunum hafa merkir atburðir gerst. Það er fall kommúnismans sem hrynur án blóðs- úthellinga, nema helst í Rúmeníu. Þama hrynur heil þjóðfélagskenning í mola og segja má, að öll ríkin, sem fylgt hafa þessari stefnu, séu gjald- þrota. Þar með er viðurkennt, að kommúnisminn er úrelt stefna, sem ekki lifði nema u.þ.b. 70 ár. Í samskiptum okkar íslendinga við útlönd ber hæst viðræður EFTA og EB. Við erum lítil þjóð á eyju úti í hafi og er alltaf spurning, hvort og hvernig okkur tekst að vemda okkar sérstæðu menningu, þegar allt stefnir í samruna. Hins vegar hefur reynslan sýnt, að svona stefnur og bandalög era langt í frá eilífar eða langlífav. Á innlendum vettvangi er þjóðar- sáttin margrædda að mínu mati það merkilegasta, sem er að gerast á þessu ári. Það er óneitanlega sér- stakt, að atvinnurekendur og verka- lýðsfélög skuli taka saman höndum á móti ríkisstjórninni til þess að spoma við verðbólgunni. Umræður um skattahækkanir og samanburður á skattabyrði hér og í öðram löndum fínnst mér fráleitt dæmi og á almenningur ekki að hlusta á slíkan talnaleik. Með minni yfirbyggingu í þjóðfé- laginu, hvort sem er í ráðuneytum eða annarstaðar, á að vera hægt að ná saman sparnaði og forða þannig launþegum frá síaukinni byrði. Hér í minni heimabyggð hefur sitt- hvað gerst, sumt farið miður og ann- að betur. Er slíkt alltaf matsatriði hvers og eins. Þó held ég að öryggis- leysi í læknismálum og heilbrigðis- þjónustu hafi haft áhrif á fólkið hér og óánægja mikil með það ástand. Nær þrotlaus vinna þeirra heima- manna, sem hafa með læknamálin að gera, hefur þó borið þann árang- ur, að Akureyrarlæknar þjóna hér til skiptis núna. Léleg læknisþjónusta getur leitt til flótta úr byggðarlaginu og er slík þjónusta því ein af undir- stöðum búsetu hér. Almennt má segja, að atvinnu- ástand hafi verið gott héma á árinu og ágætt mannlíf. Vissulega er margt sem lífgar upp á mannlífið og í ár er fólksfjölgun, en undanfarin ár hefur fækkað, eða talan staðið í stað. Það er vel, ef augu landsmanna eru að opnast fyrir því, að töluverðir kostir fylgja því, að búa í litlu þorpi úti á landi. Staðreynd er, að hér er miklu minni streita og hraði heldur en t.d. í Reykjavík. Öryggi og fijáls- ræði barna er hér miklu meira, eink- um í umferðinni. Þetta allt vegur býsna þungt að mínu áliti. KÁRIJÓNSSON, LAUGARVATNI: Snarræði drengja kom í veg fyrir stór- bruna Mér er helst minnisstætt frá liðnu ári mikil snjóalög á norðan- verðum Vesttjörðum og langvar- andi ófærð. Á Núpi gerðust að- drættir stöðugt erfiðari og langtímum voru snjóbíll og vél- sleðar helstu samgöngutæki á landi. Verður ekki annað en dáðst að starfsmönnum Vega- gerðarinnar sem alltaf fundu aftur löngu horfna vegi hvort sem var á láglendi eða í brött- ustu skriðum, án allra kennileita að því er virðist. Umskipti urðu mikil á persónu- högum þegar undirritaður fluttist suður að Laugarvatni eftir þriggja ára skólastjórn að Núpi. Við starfi tók Sigurður Blöndal áður kennari í Breiðholtsskóla. Ánægjulegt var að sjá þegar hafist var handa við að steypa brú á Lambadalsodda og gerð vegfylling- ar yfir Dýrafjörðinn. Þar er um ótrúlega mikilvæga samgöngubót að ræða. Ég vil þakka Vestfirðingum öll- um, einkum Dýrfirðingum, góða samvist og samvinnu á árinu sem er að líða. Ánægjulegasta fréttin sem und- irritaður flutti landsmönnum var án efa þegar tveir 12 ára piltar komu með snarræði sínu og dugn- aði í veg fyrir stórbruna í blokkar- íbúð á Selfossi í sumar. Sást þar best hve fræðsla og þjálfun í með- ferð slökkvitækja getur verið af- drifarík, jafnvel þegar börn eiga í hlut. Þar sem ég hef verið nokkuð viðriðinn fijálsíþróttimar á Suður- landi á árinu get ég ekki annað en minnst glæsilegs sigurs HSK í 1. deild FRÍ. Sama lið vann einnig stærsta sigur sem unnist hefur í fijálsíþróttakeppni á Landsmótum UMFI frá upphafi. Af innlendum vettvangi öðrum finnst mér athyglisvert hver afdrif bráðabirgðalaga ríkisstjómarinnar á eigin samninga við BHMR á Al- þingi hafa orðið og hvernig þjóðar- sáttin er notuð í því máli. Laugarvatn er mér hins vegar mál framtíðarinnar. Þar er ýmislegt á döfinni, vonandi staðnurti, menntafólki og íþróttum þjóðarinn- ar til heilla. Gleðilegt nýtt ár. GUNNAR EIRÍKUR HAUKSSON, ÞINGEYRI: Ekið yfir Dýrafjörð næsta sumar Þ AÐ er erfitt að gera upp á milli atburða og raða þeim niður eftir því hversu markverðir þeir eru. A Aerlendum vettvangi var margt markvert að gerast. Þó finnst mér áframhaldandi þróun Austur- Evrópuþjóða til lýðræðisáttar það sem einna hæst ber, ásamt innrás íraka inn í Kúvæt og þeim eftir- mála sem fylgdi. Ástandið í ísrae er þannig að mér finnst þjóðir heimsins ekki geta lokað augunum lengur. Samskiptin við Arabaríkin verða að taka til gagngerrar endur- skoðunar. Af málum hér innanlands ber hæst umræðuna um samstarf Evr- ópuþjóða og hver hlutur íslands eigi að vera í því samstarfi. Þjóðar- sáttin, svo kallaða, hefur líka sett sinn svip á umræðuna hér innan- lands, og þar á ég helst við þá uppákomu er ríkisstjórnin braut gerða samninga við BHMR. Stöð- ugleiki í efnahagslífinu setur já- kvæðan svip á þetta ár, en spurning er þó hversu varanlegur hann verð- ur. Og ef yið færum okkur vestur á firði, nánar tiltekið til Dýrafjarðar, þá er mér minnisstætt, hversu gott veðrið var hér í sumar (munur held- ur en rigningin fyrir sunnan), eftir erfiðan vetur. íþróttafélagið Höfr- ungur hélt velheppnaða og minnis- stæða afmælishátíð helgina 16.-17. júní og er ekki laust við að Þingeyr- ingar séu stoltir af. Þá kom góða veðrið sér vel. Byijað var að brúa Dýrafjörð og sjáum við fram á að við getum ekið yfir hana næsta sumar. Yerður það til mikilla bóta næsta vetur. Haustið hefur verið milt og gott hér við Dýrafjörð, sem og fyrri part vetrar. Á Þingeyri njótum við góðs af því að hér er tijágróður mikill. Þannig löðum við fleiri en einn „þröst“, því fuglalíf í görðum hefur verið fjölbreytt eins og svo oft áður. Silkitoppur og gráþrestir hafa verið hér í reynitijánum eftir að skógarþrestimir héldu á brott frá okkur í haust. PÉTUR ÍSLEIFSSON, VOPNAFIRÐI: Íþróttalífið með líflegasta móti ÞEGAR þetta er ritað (22. desemb- er) er það veðrið sem fyrst kemur upp í hugann, en það hefur verið mjög gott til landsins í haust, allt að 17 gráðu hiti um miðjan desem- ber, snjólaust með öllu og vegir eins og að sumarlagi í allar áttir. Annars er veður ævinlega með því besta sem gerist á landinu á Vop- nafirði eins og allir eiga að vita. Atvinnulíf hefur verið nokkuð gott í ár. Fjögur fyrirtæki hafa verið stofnuð upp úr öðrum og hefur rekstur þeirra gengið vel. Fisk- vinnsla hefur verið með lélegra móti í ár, lítið um yfirvinnu og nokkrir dagar fallið út vegna hráefnisleysis. „Kvótinn“ er alltaf að minnka og veldur það þeim sem byggja alla sína afkomu á því sem sjórinn gefur nokkrum áhyggjum. Hvort minnk- andi vinnu er að þakka eða breyttum tíðaranda þá hefur fæðingum barna fjölgað í ár og er það vel. Efnahagsumhverfið hefur verið með besta móti á árinu, verðbólgu hefur verið haldið niðri og skulum við vona að svo verði áfram. Ekki má gleyma að minnast á íþróttalífið á árinu, en það var með allra líflegasta móti. Heimsmeistara- mót í handknattleik var haldið í Tékkóslóvakíu og að vanda voru gerðar miklar kröfur til landans að höggva mann og annan og vinna gull og ékkert annað en gull en eins og oft áður þá gekk það ekki eftir, enda við ramman reip að draga. Okkar menn gerðu eins vel og þeir gátu og eiga þeir heiður skilið fyrir allt sem þeir hafa lagt á sig fyrir land og þjóð. Því miður er landinn oft og tíðum kröfuharður og ósann- gjarn þegar ekki gengur allt upp. íslensk knattspyrnulið náðu góð- um árangri í Evrópukeppninni en árangur Fram var þó sínu bestur. Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem haldið var á Ítalíu í sumar var hápunkturinn í íþróttalífinu í ár.' Af erlendum vettvangi er það innr- ás íraka í Kúvæt og ástandið við Persaflóa, ólga í austantjaldslöndum, afsögn Margrétar Thatcher og margt fteira mætti telja. Að endingu vil ég nota tækifærið og senda öllum landsmönnum nær og fjær bestu nýárskveðjur héðan frá Vopnafirði..

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.