Morgunblaðið - 30.12.1990, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990
B 25
VOGIIM
23. september - 22. október
Það hefur löngum verið sagt um vogina að hún sé nokkuð reikul í
rásinni, lengi að taka ákvarðanir og eigi erfítt með að vera sjálfri sér
næg og vandi ekki alltaf val vina sinna eins og skyldi. Sumt af þessu
er vissulega rétt en vogin réttlætir til dæmis það hve sein hún er til
að ákveða þannig að það sýni að hún vilji grandskoða hvert mál og
rasa ekki um ráð fram og það má til sanns vegar færa.
Vogin er gefin fyrir allt sem er fallegt og þar með talið er oft hún
sjálf. Hún hefur áhuga á öllu sem snertir listir og býr yfír hæfileikum
sjálf í því efni sem hún er ekki viss um hvort séu nógu miklir til að
duga henni til þess sem hún heldur að hún vilji - kannski. Voginni er
brýn nauðsyn að styrkja sína sjálfsvitund og gera sér grein fyrir mörg-
um og litríkum hæfíleikum sínum.
Ef vogin hefur verið að bræða með sér að hana langi til að breyta
einhvetju [ lífí sínu eða jafnvel söðla alveg yfir er árið 1991 kjörið til
að drífa f því. Vogin fær stuðning frá þeim sem skipta hana mestu
máli. Þær vogir sem eru á leið hvort sem er í námi eða starfi og eru
dúsar við það ættu að halda sínu striki og láta ekki á sig fá þó stund-
um blási á móti. Þ'etta fer ailt vel að lokum.
Einhver misskilningur sem hefur verið á milli vogarinnar og nákom-
ins ættingja og mætt þessa vinalegu sál leysist þegar á líður árið svo
framarlega sem vogin hefur ekki klippt á sambandið. Vogin er opin
fyrir nýjungum og tekst að gera alvöru úr hugmyndum sem hún hef-
ur lengi verið að gæla við.
í ástalífinu virðist meira fjör en oft endranær. Vogin er rómantísk
og hefur mikla þörf fyrir hlýju og dómgreindin hefur stundum ekki
verið upp á það allra besta. Það rætist úr því á nýju ári og til sam-
banda og kynna er stofnað sem gætu orðið varanleg.
Vogin sækist ekki eftir áhrifum og völdum í sjálfu sér en það þýðir
ekki að hún eigi ekki sinn metnað, á nýju ári munu óvæntir atburðir
gerast sem setja vogina í brennidepil einkum ef hún er í stjómmálum.
Ekki er vikið að neinum tíma ársins sem er hagstæðari eða óhagstæð-
ari fyrir vogina nema ef vera skyldi júlímánuðúr. Þá er voginni ráðlagt
að hafa svona nokkuð hægt um sig og bíða átekta. Skarpur skilning-
ur vogarinnar bregst henni ekki þá og sýnir að þrátt fyrir sveiflur og
stundum fum og fát getur vogin verið áræðin og klár í kollinum og
það sem mest er um vert þekkir sinn vitjunartíma. Talan níu kemur
fyrir í stjörnukorti vogar árið út.
STEINGEITIN
22. desember - 29. janúar
Lánið leikur við steingeitina. Sagt er að flest það sem hún fæst við
á nýju ári muni heppnast svona líka prýðilega en bent á í sömu andrá
að þama sé steingeitin að ná árangri sem hún hefur unnið að mjög
markvisst og lagt á sig mikið erfíði til að svo verði. Því steingetin veit
það betur en margir aðrir að það er ekkert sem fæst fyrirhafnarlaust
og steingeitin er bæði ósérhlífin og metnaðargjörn og vill standa sig
helst best í öllu.
Þrátt fyrir að steingeitin hafí næmt og ókyrrt taugakerfí er hún
einnig gædd seiglu og hefur mikið úthald. Hún kemst að raun um það
á nýja árinu að þeir atburðir sem verða eru ekki tilviljanir en þeir eru
stórskemmtilegir og eftirsóknarverðir. Steingeitin færist við það öll í
aukana og lætur að sér kveða, ekki síst steingeitur sem eru áberandi
í menningarlífi eða í pólitísku starfí. Fyrir þær verður árið gjöfult.
Samt gæti verið að steingeitin verði að leggja nokkuð hart að sér
að innbyrða allt það sem þetta hefur í för með sér. Það gæti komið
niður á fjölskyldulífinu og það vill steingeitin slst svo að hún leggur
sig fram um að sporna gegn því sem gæti veikt fjölskylduböndin. En
stundum verður ekki bæði sleppt og haldið.
Þó það sem hér hefur verið sagt eigi aðallega við ytra hringinn en
ekki innri raunveruleikaheim steingeitar hefur allt sínar hæðir og lægð-
ir. Seinni partinn í maí koma upp einhver vandamál í sambandi við
heilsufarið en gefið er til kynna 1 kortinu að steingeitin muni yfirvinna
veikindin.
Allt árið hvílir nokkuð þungt á steingeitinni að það er hún sem
verður að taka ákvarðanirnar og kveða upp úr með ýmislegt sem hún
vildi gjaman vera laus við. Hún skýtur sér ekki undan þessu en allt
tekur sinn toll og þrátt fyrir fimi steingeitar í klifrinu verður hún búin
að fá sig fullsadda í árslok. Það er að segja bara um tíma.
Rómantíkin hefur oft verið litríkari. Svo virðist sem steingeitin verði
að ýta henni að nokkru til hliðar í bili.
SPORÐDREKINN
23. október - 21. nóvember
Sporðdrekinn veit að hann getur allt sem hann viil. Hann er eitt
kröftugasta og jafnframt dularfyllsta merki stjörnuhringsins og fáir
vinna stærri sigra en hann. Engir bíða heldur stærri ósigra þegar
þannig skipast veður.
Besti tími sporðdreka á liðnu ári var fyrri hluti ársins og iokin. Um
miðbikið var þetta dálítið losaralegt. Nú er að hefjast handa, fylgja
eftir því sem vannst á árinu í öllum skilningi.
Sporðdrekinn er samt ekki alveg sáttur við stöðu sína þó flestir
væru það í hans sporum. Óþol hans er fullmikið, hann mætti hægja
ferðina aðeins. Margþætta reynslu skyldi nýta í stað þess að skilja
hana eftir á hlaupunum.
í febrúar fínnst sporðdrekanum að farg sem hefur legið á honum sé
að léttast. Hann getur heill hellt sér út í það sem hann vill takast á
við, hvort sem það eru störf sem krefjast líkamlegrar áreynslu eða
andleg störf. Honum fylgir heppni í því sem hann tekur sér fyrir hendur
á árinu og því afslappaðri sem honum er því betur gengur.
Orðstír sporðdrekans er allur á réttri leið, þeim eru götumar greið-
ar svo fremi þeir nemi stöku sinnum staðar og horfíst í augu við sjálfa
sig. Þeir ættu að skilja að fortíðinni verður ekki breytt og það á ekki
að eyðileggja núið með því að hafa áhyggjur af framtíðinni.
Þó sporðdrekinn fáist við margt með góðum árangri mætti ráð-
leggja honum á nýju ári að forðast að dreifa kröftum sínum jafnmikið
og hann hefur gert. Hann ætti sömuleiðis að gefa gaum að ýmsu
smálegu sem virðist ekki mikilsvert en hann getur af sinni alkunnu
skarpskyggni komið auga á nýja möguleika.
Einhvers konar stríð í tilfinningalífi margra sporðdreka hefur leitt
af sér umrót og breytingar. Þar gildir að sýna hreinskilni og koma
fram af heiðarleika. Sporðdrekinn er oft sakaður um að vera grimmur
og kaldur og fæstir þola bit hans. Samt má hafa sporðdreka góða
með því að treysta þeim fyrir viðfangsefnum sem væri á fárra færi
að ráða við, sýna þeim hóflega þolinmæði og dást að þeim með ákveð-
inni kaldhæðni. Það fer vel í þennan sérstæða einstakling.
Það verður sem sagt engin kyrrstaða á árinu hjá sporðdrekanum,
hvort sem er f eiginlegum eða óeiginlegum skilningi. En sporðdrekinn
verður að vera sjálfs síns herra í því sem öðru og hugmyndaauðgin
og sköpunargáfan ráða ríkjum. Sveigjanleikinn er sem fyrr í lægri
kantinum.
Smávandamál í sambandi við heilsufar koma upp í mars og apríl.
Fyrri helmingur júlímánaðar er óljós í kortinu en lagst er gegn ferða-
lögum. Talan einn birtist víða.
VATNSBERINN
20. janúar - 19. febrúar
Það er meiri kyrrð í kringum vatnsberann á næsta ári en hefur verið
á því sem er að ljúka. Stöðugleiki og festa sem hentar mörgum vatns-
berum vel einkum febrúarfólki og hefur svona allt að því fengið nóg
af sviptingum upp á siðkastið þó margt hafí verið lærdómsríkt og
vatnsberinn komi margefldur að styrk út úr því öllu.
Þetta nær einnig til einkalifsins og vegna þess að vatnsberinn hefur
á tilfinningunni að hann ráði við flest sem að höndum ber eftir síðasta
árið getur hann líka leyft sér að njóta nýrra þátta sem hafa setið á
hakanum. Sumum vatnsberum hættir til að vera með annan fótinn og
hálfan hugann við framtíðina; nú væri ráð að huga að augnablikinu.
Ef vatnsberi lætur eftir sér að taka á móti áhrifum og straumum sem
bjóðast á árinu verður þetta algert metár hvað varðar innri ánægju
og ytri árangur, svo sem í starfi helst í hendur við hið fyrrnefnda.
Vatnsberinn hefur staðið á tímamótum sem gera að verkum að
hann skilur það sem liðið er og litur á það öðrum augum en fyrr.
Hann skilur að hann hefur fengið að njóta ýmislegs sem fáum er gefið
og að það má einnig græða á því að leita í sjóð minninga og reynslu
ekki síður en fjármuna enda er ekki peningafíkn i eðli sannra vatnsbera.
Sambönd vatnsbera styrkjast og til nýrra mætti stofna, stundum
gæti það orðið til hinnar mestu gleði; gallinn er bara hvað vatnsberinn
er vandfysinn á þá sem gera miklar tilfínningalegar kröfur. Vatnsber-
inn ætti sem sagt að fara varlega í að stofna til ástasambanda á
fyrstu mánuðum ársins en hins vegar er trúlegt að seinni hluti þess
sé langtum hagstæðari í þeim 'efnum. Einkum virðist tíminn frá því í
október og til jóla heppilegur.
Þar sem mörgum vatnsberum hefur vegnað vel í starfi á árinu geta
þær vænst þess að hafa af þvi ávinning og fjárhagurinn batnar hjá
ýmsum og óvæntur vinningur kemur í góðar þarfír. Það er ekki minnst
á neinar sérstakar lukkutölur enda er vatnsberanum það meira í sjálfs-
vald sett en ýmsum öðrum að búa til eigin lukkudaga. Alls konar áhrif
og umsvif sem vatnsberar hafa á umhverfi sitt örva hann og kitla
hann og hann skyldi láta öfund eða afbrýðissemi vegna velgengni sem
vind um eyru þjóta.
Krafturinn er fyrir hendi allt árið og það er í mörgum vatnsberum
sköpunarþörf samfara praktísku innsæi sem skyldi nýtt út í æsar.
BOGMAÐURINN
22. nóvember - 21. desember
Tvennt kemur afar skýrt fram í stjörnukorti ársins fyrir bogmenn:
peningar og völd eða einhvers konar áhrif. En þetta flýtur að sönnu
ekki fyrirhafnarlaust upp í hendurnar á bogmanni, hann verður að
hafa fyrir því og sýna mikinn sjálfsaga svo að ekki fari allt úr böndun-
um. Lögð er áhersla á að bogmaður temji sér nýjar aðferðir eða fínni
nýjar leiðir en ef svo lánlega tekst til virðist flest ganga honum í haginn.
Bogmaðurinn er alltaf sagður ferðaglaður, opinn, ör, skrafhreyfinn
og oft yfírborðskenndur. Hið síðasta á sérstaklega við um nóvemberbog-
menn og þá sem eru fæddir fyrstu vikuna í desember. Aðrir bogmenn
hafa oft mjög djúpan skilning og næma skynjun og forðast að hleypa
fólki og hugmyndum jafn greiðlega að sér og þeir sem eru í fyrstu
tveimur vikum merkisins.
En allir bogmenn eru gæddir ljúfmennsku og þeir eru hjálpfúsir
og vilja hvers manns vanda leysa. Að visu eftir sínu eigin höfði og
því getur greiðasemin stundum birst sem afskiptasemi.
Á nýja árinu fer bogmaðurinn létt með að sameina ánægju og starf
og ferðalög eru áberandi sem veita bogmanninum hina sýn og fersk
viðhorf. Þó svo að menn boði breytingar á ýmsum sviðum f grennd
við bogmanninn vill hann ekki breyta til þess eins, hann vill skilja til-
ganginn með þeim og síðan er hann fús að aðlaga sig því nýja. Raunar
er aðlögunarhæfni bogmanns með betra móti á árinu og aflar bog-
manni virðingar víðar-en hann bjóst við.
Bogmenn eru margir leitandi og stundum fínnst þeim að enginn
hafí fundið stórasannleik nema þeir. Það kann að vera eitthvað til í
þessu en þeir ættu samt að sýna varfærni í yfirlýsingum, ella kemur
þetta allt út sem yfirlæti.
Hjá þeim bogmönnum sem hafa gert breytingar á heimilishögum
hefur verið nokkuð ókyrrt en það fer að jafna sig. Ný kynni takast
og ekki að vita nema þau geti leitt til sambúðar eða altjent góðrar
vináttu.
Miðbik ársins besti og skemmtilegasti tími ársins. Bogmaðurinn
hefur ekki undan að framkvæma það sem hann hefur lengi ætlað sér
og það virðist allt leika í höndum hans. Það eru náin tengsl milli þess
og samskipta við manneskju sem stendur bogmanni mjg nærri og mun
hvetja hana til dáða.
Bogmaðurinn getur því hlakkað tii árs sem verður hressandi og
fullt af góðum og uppbyggilegum atvikum. Talan fímm skyldi höfð í
huga.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Fiskar eru sagðir bliðlyndir og viðkvæmir og ekki nógu harðir af
sér þegar á móti blæs. Þetta er ofsagt því margt fólk í fiskamerkinu
eru hugdjarfír og hressir einstaklingar en þeir hika ekki við að sýna
tilfinningar sinar ef þeim býður svo við að horfa og fínnst það langt
frá að vera veikleikamerki. Þeir eru margir ábyrgir og standa vel fyr-
ir sínu.
Fiskarnir lenda í einhverjum kröggum síðla janúar og um miðjan
júní en annars sigla þeir sléttan sjó hvað varðar samskipti við annað
fólk. í starfínu verður þeim vel ágengt og ná þar áþreifanlegum ár-
angri. Þeir láta eftir sér að beita nýstárlegum aðferðum en þeir reka sig
á óheilindi og baktjaldamakk. Þessir viðkvæmu fiskar eiga erfítt með
að sætta sig við slíkt og vilja ætla flestum það besta.
Vináttan er fiski mikilvægust á nýja árinu en samt mega fiskarnir
ekki gleyma ættingjum og öðrum nákomnum; þeir þurfa að sinna sínu
eins og þeim er vel ljóst. Aihafnasemi fiska er með mesta móti og
hann virðist vera í ljómandi góðu formi. Samt eru einhveijir óleystir
hnútar og þá er um að gera að beita lagni og ráðast til atlögu í stað
þess að synda í burtu eins og fískum þykir stundum freistandi. Eins
og gerist jafnan innan allra stjörnumerkja en ekki síst í þeim tvískiptu
er togstreita ráðandi í fískum þegar þeir þurfa að takast á við sum
viðfangsefni sín. Þeir viljaminni láta þá reka á reiðanum jafnvel þó
þeir séu allir af vilja gerðir.
Sumir fiskar hafa breytt um lífshætti og tekið upp nýtt og hollara
líferni en þeir vita að þeir mega samt sem áður gæta sín því freisting-
ar eru sem fyrr á hverju strái.
Það lítur út fyrir að apríl verði góður tími fyrir fískana og lukkan
er með þeim - að undanskildum áðurnefndum smákröggum í júní- fram
á haustið. Eitthvað kjarkleysi grípur þá fiska og þeim vex allt í augum
og fínnst meira af þeim krafíst en þeir eim tilbúnir að gefa. Þetta mál
verða fiskar að leysa einir og'sjálfír en fólk i hrútsmerki gæti reynst
hjálplegt svo fremi fiskarnir átti sig á hvert þeir eiga að snúa sér.
Fiskunum verður það hvatning á árinu að finna að þeir geta haft
áhrif og þau til góðs. Sjálfsímynd fiska er einatt nokkuð óburðug.
Þeir reyna að bæta sér hana upp með hrokafullri framkomu en það
klæðir þá ekki og fólk kímir að þeim fyrir vikið eða hættir að taka
þá hátíðlega. Nýja árið ber í sér margt það sem getur orðið til að
styrkja trú þeirra á sjálfa sig og eftir öllum sólarmerkjum að dæma
verður þetta um margt þvf hið besta fískaár f langan tíma.