Morgunblaðið - 30.12.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.12.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐJiÐ SUJVNUDAGUR 30, DJSSJiMBJiR: Dalvíkurkirkja: Nýtt pípuorgel vígt við hátíðarmessu Dalvík. NÝTT og veglegt pípuorgel var vígt við hátíðarmessu í Dalvíkur- kirkju fyrir skömmu. Að messu lokinni gafst kirkjugestum kostur á að skoða safnaðarheimili sem nú er í byggingu og þiggja veiting- ar þar. Söfnun fyrir nýju pípuorgeli í Dalvíkurkirkju hefur staðið í nokkur ár. Velunnarar kirkjunnar hafa lagt fram rúmlega helming andvirðis org- elsins sem kostar um 9 milljónir króna og er hið vandaðasta í alla staði. . Það var danska orgelsmiðjan P. Bruhn & San Orgelbyggeri sem smíðaði þennan kostagrip og eru í honum 844 pípur. Nótnaborðið er úr fílabeini og hver hlutur orgelsins er handsmíðaður og sérhannaður fyrir þetta orgel. Til að fjármagna það sem eftir á að greiða í orgelinu hefur sóknar- nefnd ákveðið að hrinda af stað söfn- unarátaki þar sem einstaklingum og fyrirtækjum er gefinn kostur á að gefa pípur í orgelið. Pípurnar eru verðlagðar eftir stærð í fjóra verð- flokka og verða gefendum afhent sérstök gjafabréf. Gjafabók með nöfnum allra gefanda fyrr og síðar verður síðan geymd við orgelið. í hátíðarmessunni predikaði sr. Kristján Valur Ingólfsson, sóknar- prestur á Grenjaðarstað, og þjónaði fyrir altari ásamt þeim sr. Jóni Helga Þórarinssyni, og sr. Svavari Alfreð Jónssyni í Ólafsfirði. Þá söng kirkju- kór Dalvíkur undir stjórn Hlínar Torfadóttur organista óg Bjöm Morgunblaðið/Hannes Hið nýja pípuorgel Dalvíkur- kirlyu. Steinar Sólbergsson flutti hluta úr Litlu orgelmessunni eftir Haydn. Margrét Bóasdóttir söng einsöng og undirleik önnuðust Magna Guð- mundsdóttir og Anna Podhajska á fiðlu, Örnólfur Kristjánsson á selló og Jón Rafnsson á kontrabassa. Án efa á tilkoma orgelsins eftir að auka fjölbreytni í tónlistarflutn- ingi á Dalvík og almenn ánægja er ríkjandi með það að nú er kirkjukór- inn niðri í kirkjunni en ekki upp á svölunum. Þegar hið fokhelda safn- aðarheimili verður fullbúið aukast möguleikar til árangursríks safnað- arstarfs sem gerir kirkjunni kleift að standast samkeppni nútímans um athygli fólks. Hannes Baraadeild FSA hefur feugið mikinn stuðning BARNADEILD FSA hefur fengið mikinn stuðning á árinu sem nú er að líða og margir hafa látið fé eða gjafir af hendi rakna. í tilkynningu frá forráðamönnum deildarinnar kemur fram að Kven- félagið Hlíf hafi af fádæma dugn- aði styrkt deildina með tækjakaup- um á síðustu árum og Minninga- sjóður félagins sem varð 30 ára á árinu gaf gjafir á leikstofu deildar- innar. Pedro-myndir færðu deildinni peningagjöf fyrir jólin og í sumar skipulagði Antoni Mellado hjól- reiðadag og gaf ágóðann til deildar- innar. Þá hafa fjölmörg börn haldið hlutaveltur á árinu og gefið ágóða þeirra til leikfangakaupa. „Öllum þessum aðilum svo og öllum velunnurum, börnum og for- eldrum, sem dvalið hafa á deildinni og sent gjafir og hlýjar kveðjur færir starfsfólk deildarinnar sínar bestur þakkir og óskar þeim Guðs blessunar á komandi ári,“ segir í tilkynningunni. N°7PURECARE • mmsiR •ANDUTSVm VILTU LÆRA AÐ SNYRTA ÞIG? Snyrtivörur frá BOOTS * mmm GUL LÍ\A = Mjöq þurr húð BLEIK LÍNA = Normal/burr húð BLÁ LÍNA = Blönduö húð GRÆKLÍNA = Feit húð MCST SELDU SWRTWÖfftÆ EN61AHDS! 1. Ofnæmisprófaðar 2. 100% ilmefnalausar 3. Lanolin friar 4. Húðfræðilega rannsakaðar Með lægstu ofnæmistíðnina! MORGUNN: Hreinsið og styrkið í einu með andlitsvatni er þið berið í bómull og strjúkið yfir húð. Nærið síðan með dagnær- ingu. KVÖLD: Hreinsið með hreinsimjólk/kremi til að fjarlægja make-up og önnur óhreinindi. Berið á húð og fjarlægið með þurrku. Styrkið með-andlitsvatni. Nærið með augnkremi; berið létt í kring- um augu. Nætutkrem nuddist vel inn í húð. SÉRSTÖK HREINSUN: Andlitsmaski notist einu sinni til tvisvar í viku. Djúphreinsar upp öll óhreinindi, stíflur, fíla- pensla. Setjið á húð, á eftir hreinsi (ekki í kringum augu). Bíðið í 15 mín. Hreinsið af með volgu vatni í bómull. NÆTUROLIAN er fyrir mjög þurra búð og þurrku- bletti. Plant extract endumýjar húð og húðfrumur. Bisabolol mýk- ir, kælir og róar húð. Notið 2-3 dropa í senn. AUGNKREMIÐ notist daga og nætur. Létt og fínt krem, sem gefur sýnilegan árangur á viðkvæma vefi augans. Fyrirbyggjandi vegna hrukkumyndunar. E VÍTAMÍN KREMIÐ er bæði dag- og næturkrem í einu, ætlað þurri húð. Inniheldur E vítamín og náttúrulegar ol- íur. Mýkir og nærir húð. Gefur varanlegan árangur. TRANSLUCENT COMPLEXION BASE Grunnur undir farða en eitt og sér gefur það húðinni fyllingu og matt útlit. Felur fínar línur og misfellur í húðinni um leið og farð- inn helst mikið betur á. MAKE UP Berið á positive action krem, nærið síðan með dagnæringu. Klapp- ið létt örþunnu lagi af translucent base kremi á húðina. Það felur fínar línur og hrukkur um leið og það lætur make up haldast betur. Felum húðlýti, grænt krem felur æðarslit og rauða bletti. Cover stifti á bólur og bauga. Make. Litað dagkrem eða froðumake. Pure care make up fyrir ofnæm- ishúð. Borið yfir andlit og niður á háls með svampi eða fingurgömum. Púðrað yfir til að matta og festa með lausu, glæru (trcl) ilmefna- lausu púðri. Augnskuggar eru þrír í pakkningu. Hægt er að nota hvern sér eða fleiri til skygginga. Blýantar veljast í stíl við augnskugga. Óhætt er að nota No7 blýanta á áugnhvarma (ilmefnalausir og mildir). Maskarar eru í þremur gerðum og eru þeir allir tárheldir. Superlash: Þykkir augnhár. Pure care: Fyrir viðkvæm augu/linsur. Waterproof: Vatnsheldur. Kinnarlitir eru einnig tilvaldir til að skyggja með. Breitt nef: Berið á hliðar nefs. Hátt enni: Berið á við ennisrót. Undirhaka: Berið á undirhöku. Breitt andlit: A hliðar andlits. Kinnalitur frískar, dregur inn og dekkir. Berið því á eftir andlitsfalli en aldrei nær nefi en miðja auga sýnir; dreifið út að eyrum. Mótið varir með blýanti í stíl við varalit. Þunnar varir, ljósari litir og ef til vill aðeins út fyrir varir. Eldri dömur sleppa blýanti og nota ljósari varalit. Eurocard korthafar athugið! Frá og mcð 1. janúar 1991 HytjasL allar tryggingar korlhafa Furocard Lil Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Öll tjón korthafa sem vcrða cftir jiann tíma skulu vinsamlegast tilkynnt til Tryggingamiðstöðvarinnar. Tryggingaskilmálarverða sendir til korthafa í janúar, en jjar til liggja |)cir frammi í afgreiðslu Eurocard. Auk |)ess veitir Tryggingamiðstöðin hf. fúslega allar nánari upplýsingar. TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF AÐALSTRÆTI 6 101 REYKJAVlK SlMI 91-26466 E KREDITKORT HF. Ármúla 28,108 Reykjavik, sími 685499

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.