Morgunblaðið - 04.04.1991, Page 1

Morgunblaðið - 04.04.1991, Page 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 75. tbl. 79. árg. FIMMTUDAGUR 4. APRIL 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovétríkin: Gorbatsjov semur við námamenn um tvöföldun launa Moskvu. Reuter. SOVÉSK stjórnvöld og náma- menn, sem verið hafa í verkfalli undanfarnar vikur, hafa náð samkomulagi sem felur í sér Graham Greene látinn Vevey. Reuter. BRESKI rithöfundurinn Gra- ham Gceene lést í gær á sjúkrahúsi í bænum Vevey í Sviss 86 ára að aldri. Að sögn dóttur hans var hann í lækn- ismeðferð vegna blóðsjúk- dóms. Greene var af mörgum talinn einn merkasti rithöfundur samtímans og var einn fárra sem hlaut mikið lof gagnrýnenda og náði jafn- framt vin- sældum meðal almennra les- enda. Verk hans voru þýdd á 27 tungumál, bækur hans seldust í yfir 20 milljónum eintaka. Greene hlaut fyrst frægð fyrir skáldsögu sína „Mátturinn og dýrðin“ (The Power and the Glory) sem út kom árið 1940. Greene eyddi síðustu árum ævi sinnar í franska bænum Antibes við Miðjarðarhafið. Graham Greene tvöföldun á launum þeirra á eins árs tímabili að sögn óháðu sov- ésku fréttastofunnar Interfax. Fréttastofan sagði að ekki væri minnst á pólitískar kröfur námamannanna í samkomulag- inu en ein þeirra er afsögn Mík- haíls Gorbatsjovs, Sovétforseta. Míkhaíl Gorbatsjov og fulltrúar námamanna áttu með sér fund í Moskvu í gær en Gorbatsjov hefur fram að þessu neitað að eiga við- ræður við þá. Talsmaður verkfalls- nefndar námamanna staðfesti í gær að samkomulag hefði náðst við stjórnvöld en vildi ekki tjá sig nánar um innihald þess. Um þrjú hundruð þúsund námamenn eru nú í verkfalli í Sovétríkjunum. Sovésk stjórnvöld lækkuðu í gær það gengi rúblunnar sem erlendir ferðamenn notast við er þeir selja gjaldeyri niður í fimmtung þess sem það var og er það nú sambæri- legt við gengi rúblunnar á svörtum markaði. Reuter Tóku sendiráð íraks í Brussel Tólf Kúrdar réðust inn í íraska sendiráðið í Brussel í gær og höfðu það á valdi sínu í fimm stundir áður en þeir gáfu sig fram við lögreglu. Á myndinni sjást tveir Kúrdanna fleygja málverki af Saddam Hussein Irakforseta út úr sendiráðinu eftir að hafa teiknað á það hakakross nasista. Bandarí kj astj ór n: Kosningar í Albaníu vefengdar Washington. Reuter. BANDARÍSK stjórnvöld höfðu í gær uppi efasemdir um hversu heiðarlega hafi verið staðið að fyrstu frjálsu kosningunum sem haldnar voru í Albaníu í síðustu viku. Margaret Tutwiler, talsmaður ut- anríkisráðuneytisins, sagði frásagnir bandarískra eftirlitsmanna, sem fylgdust með kosningunum, benda til að kosningarnar hefðu á mörgum sviðum ekki uppfyllt að fullu þau skilyrði sem sett hefðu verið af RÓSE (Ráðstefnunni um samstarf og ör- yggi í Evrópu) varðandi fijálsar og heiðarlegar kosningar. Nefndi hún þessu til stuðnings fregnir af því að frambjóðendum og starfsfólki stjórnarandstöðuflokka hefði verið ógnað, jafnt í kosninga- baráttunni sem á kjördag og að stjórnarflokkarnir hefðu misnotað ríkisfjölmiðla. Loks spurði talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins að því hvers vegna stjórnvöld hefðu beðið í tvo daga með að tilkynna úrslitin og af hveiju heildarúrslit hefðu ekki verið birt. íraski herinn nær síðasta vígi Kúrda á sitt vald: Flóttamannahjálp SÞ segir hættu vera á þjóðarmorði Nikosía, Washirigton, París, Kaupmannahöfn, Ankara, Brussel. Reuter. TVÆR TIL ÞRJAR milljónir Kúrda eru nú á flótta undan ír- aska stjórnarhernum og hafa hundruð þúsunda flúið í átt að tyrknesku eða írönsku landa- mærunum. Tyrkir neita hins veg- ar að hleypa flóttamönnunum inn í landið. Skýrði fréttaritari breska útvarpsins, BBC, sem var samferða flýjandi Kúrdum, frá því að tyrkneskir hermenn hefðu hleypt skotum að fólkinu til að fæla það burt frá landamærun- um. Fjölmargir flóttamenn hafa Öryggisráðið samþykkir vopnahlésskilmála: A Irakar skuldbundnir til að tortíma gereyðingarvopnum Sameinuðu þjóðunum. Reuter. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær skilmála fyrir varanlegu vopnahléi við Iraka. Tillagan að vopnahlésskilmálum var borin upp af Bandaríkjamönnum og greiddu öll ríki öryggisráðsins henni atkvæði sitt nema Kúba, sem greiddi atkvæði gegn, og Jemen og Ekvador sem sátu hjá. þykkti gera m.a. ráð fyrir að írakar eyðileggi undir alþjóðlegu eftirliti gereyðingarvopn sín þ.e. Scud-eld- flaugar, efnavopn, sýklavopn og birgðir af geislavirkum efnum sem hægt væri að nota við framleiðslu kjarnorkuvopna. Þegar fyrrnefnd- um vopnum hefur verið tortímt fá írakat' aðgang að mörkuðum fyrir olíu sína og aðrar vörur sem og eignum sínum erlendis. Þeit' verða þó að láta hluta af framtíðartekjum Samþykkt öryggisráðsins er 3.900 orð að lengd og þat' með sú lengsta sem nokkurn tímann hefur verið samþykkt. Kallaði Júlí Vor- ontsov, sendiherra Sovétríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, hana „móður allra samþykkta“ og vísaði þar með hæðnisiega til þess er Saddam Hussein, íraksforseti, nefndi Persaflóastríðið „móður allra styijalda“. Skilmálar þeir sem ráðið sam- sínum af olíusölu renna í sjóð sem standa á undir stríðsskaðabótum. Einnig eru landamæri íraks og Kúveits frá 1963 tryggð. Ef írakar fallast á vopnahlésskil- mála öryggisráðsins að öllu leyti geta friðargæslusveitir frá Samein- uðu þjóðunum gætt svæðisins milli Iraks og Kúveits og brottflutningur herliðs bandamanna frá suðurhluta íraks hafist. Öryggisráðið mun nú ræða bar- áttu uppreisnarmanna Kúrda og shíta gegn stjórn Saddams Huss- eins, að beiðni Frakka og Tyrkja, sem krefjast þess að ráðið grípi til aðgerða í þeim efnum. frosið í hel eða soltið til bana er þeir reyndu að komast yfir snæviþakin fjöll Norður-íraks. Uppreisnarmenn viðurkenndu í gær að þeir hefðu tapað síðasta vígi sínu í liendur íraska stjórn- arhersins en sögðust enn veita mótstöðu í fjöllum og einstaka þorpum. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna telur hættu á þjóðarmorði á Kúrdum í norðurhluta Iraks yfir- vofandi. Sadako Ogata, yfirmaður Flóttamannahjálparinnar, segist hafa farið þess á leit við tyrknesku ríkisstjórnina að hún leyfi flótta- mönnum að að leita skjóls, að minnsta kosti tímabundið, í Tyrk- landi. Talsmaður tyrkneska utanríkis- ráðuneytisins sagði í gær að Tyrkir væru í þann mund að fara að grípa til aðgerða til að gera Kúrdum erfið- ar fyrir að flýja yfir landamærin í stórum hópum. Utanríkisráðherra Tyrklands segir íraka beita stór- skotaliði gegn flóttamönnum við landamærin og hafi sprengjukúlur lent mörgum kílómetrum innan við tyrknesku landamærin. Iranska fréttastofan IRNA sagði hundruð þúsunda Kúrda vera á leið að landamærum íraks og írans í gegnum freðin fjallaskörð í 85 kíló- metra langri bílalest. Þá væru margir fótgangandi. Útvarpið í Teheran sagði sjúkrahús í grennd við landamæri íraks og írans liafa tekið við 7.000 særðum eða veikum íröskum flóttamönnum á undan- förnum tveimur dögum. Francois Mitterrand, Frakk- landsforseti, hvatti Sameinuðu þjóðirnar til þess í gær að viðhalda viðskiptabanni gagnvart írak þar til Irakar létu af ofsóknum sínum á hendur Kúrdum og að þær yrðu fordæmdár af öryggisráðinu. Ef það yrði ekki gert myndi það draga úr pólitískum og siðferðilegum áhrifum Sameinuðu þjóðanna. Bernard Kouchner, mannréttinda- málaráðherra í frönsku ríkisstjórn- inni, heldur til Tyrklands í dag til að meta hversu mikið þarf af hjálp- arsendingum til handa íröskum flóttamönnum. Kouchner hyggst einnig halda til írans. Ríkisstjórnir ríkja Evrópubanda- lagsins (EB) fordæmdu í gær of- beldisaðgerðir íraksstjórnar gagn- vart Kúrdum. George Bush, Banda- ríkjaforseti, sagði í gær að ekki kæmi til greina að Bandaríkjaher gripi inn í innanlandsátök í írak. Hann sagðist hafa vaxajidi áhyggj- ur af grimmdarverkum íraka gagn- vart uppreisnarmönnum og væri hann reiðubúinn að skoða samskipt- in við Irak í nýju ljósi steypti herinn Saddam Hussein, íraksforseta, af stóli. Sjá nánar frétt á bls. 24

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.