Morgunblaðið - 04.04.1991, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.04.1991, Qupperneq 2
2 MOKGlífJBLÁÐlÖ FIMMTt’DAGUR 4. ÁPRÍL Í99I Líkleg færsla þingsæta: Ætti ekki að koma á óvart - segir Ólafur G. Einarsson, þing- maður Reykja- neskjördæmis EINS og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær bendir flest til þess að tilflutningur kjósenda leiði til þess að eitt þingsæti færist frá Norðurlandskjör- dæmi eystra til Reykjaneskjör- dæmis við alþingiskosningarn- ar 1995. Ólafur G. Einarsson, þingmaður Sjáifstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi, segir að þetta eigi ekki að koma neinum á óvart þar sem það hafi verið sett í kosningalög að þingsæti gætu færst á milli á þennan hátt ef verulegur tilflutningur kjósenda ætti sér stað milli kjördæma. „Ég er ekki að segja að mér þyki það endilega vera sjálfsagt mál að Norðurlandskjördæmi eystra missi mann frekar en eitt- hvert annað kjördæmi, en miðað við þá þróun sem hefur átt sér stað að fjölgunin hefur orðið mest í Reykjaneskjördæmi, þá leiðir það af sjálfu sér að breytingin verður á þennan veg. Ég er ekki með þessu að blanda mér neitt í það hvort atkvæðavægið milli Norður- landskjördæmis eystra og hinna landsbyggðarkjördæmanna sé eðli- legt eftir svona tilfærslu. Það er spurning sem þarf að athuga bet- ur,“ sagði Ólafur. I frétt Morgunblaðsins í gær var haft eftir Halldóri Blöndal, þing- manni Sjálfstæðisflokksins í Norð- uriandskjördæmi eystrá, að hann teldi það vera sanngirnismál að öll þingsæti í kjördæminu yrðu föst, og sér þætti eðlilegt að „fiakkar- inn“ yrði festur þar til að koma í veg fyrir tilfærslu frá kjördæminu. Ólafur G. Einarsson sagði að hann hefði í sjálfu sér ekkert við það að athuga að festa „flakkar- ann“, þar sem hann teldi það ekki endilega rétta lausn að vera með eitt þingsæti á flandri á þennan hátt. „Það má alveg eins festa það, en hvort það á að festast í Norðurlandi eystra ætla ég í sjálfu sér ekki að dæma um,“ sagði hann. Vorverkin hafin Morgunblaðið/Ámi Sæberg Tími sumarhjólbarða rennur senn upp, en eftir 15. apríl er óheimilt að aka á negldum hjólbörðum. Sumir bfleigendur hafa vaðið fyrir neðan sig og láta setja sumarhjólbarðana undir þessa dagana, áður en mesta örtröðin hefst, enda götur auðar í -höfuðborginni. Myndin var tekin á Hjólbarðaverkstæði Siguijóns í Hátúni í gær þar sem starfsmenn voru farnir að sinna vorverkunum. Bréf fjármálaráðherra til Læknafélags Reykjavíkur: Tillaga ráðherra að Kjara- dómur ákveði kjör lækna Nefnd geri tillögur um að leggja nidur verktakakerfið ÓLAFUR Ragnar Grímsson, fjárniálaráðherra, sendi Læknafélagi Reykjavíkur tvö tilboð í gær, þar sem lagt er til að skipuð verði við- ræðunefnd til að gera tillögur um að leggja niður verktakakerfi sér- fræðinga í læknastétt eða aðskilja þá starfsemi algerlega frá almennri læknaþjónustu sem veitt er á sjúkrahúsum. Þá er óskað eftir svari frá læknum við þeirri tillögu að kjör lækna verði framvegis ákveðin af Kjaradómi. þessar tillögur, muni hann flytja þessar tillögur í ríkisstjóminni, jafn- vel þegar í næstu viku. „Ef læknafé- lögin fallast á að lögð sé niður sú skipan að læknar sæki sér bætt kjör með aðgerðum sem ávallt hljóta að bítna á sjúklingum, og í stað þess fari ákvarðanir um kjör lækna alfar- ið í Kjaradóm, er ég reiðubúinn að leggja til við ríkisstjómina að frum- varp þess efnis verði flutt á sumar- þingi svo að þegar næst kemur að ákvörðunum um kjör lækna, þá verði þær teknar af hinum hlutlausa Kjaradómi," segir fjármálaráðherra í tilboði sínu til Læknafélagsins. - Fjármálaráðherra sagði á frétta- mannafundi í gær, að í svari forsætisráðherra til forystumanna læknafélaganna, vegna deilu fjár- málaráðherra og Læknafélags Reykjavíkur, kæmi fram stuðningur við þá skoðun hans, að aðskilja eigi verktakastarfsemina frá læknaþjón- ustu sjúkrahúsanna og einnig við þá hugmynd að setja kjör lækna undir Kjaradóm. Ólafur sagði að ef læknar væru reiðubúnir að ræða um efnisatriði deilunnar væri hann tilbúinn að leggja fram frumvarp um að setja kjör lækna undir Kjaradóm. í tillögu ráðherra er lagt til að nefndin skili áliti sínu fyrir lok ágúst- mánaðar svo hægt verði að taka til- lit til tiilagna hennar við gerð fjár- laga fyrir næsta ár. Fjármálaráðherra gat þess að for- ystumenn Prestafélags íslands hefðu sett fram þá ósk fyrr á þessu ári, að hann beitti sér fyrir því að kjör þeirra yrðu ákveðin af Kjaradómi og í framhaldi af því hafi Alþingi sam- þykkt frumvarp þess efnis fyrir lok þingsins. Taldi hann eðlilegt að kjör Iækna yrðu ákveðin á sama hátt og með svipuðum rökum og þar með væri komið í veg fyrir að deilur af því tagi sem risið hafa að undan- förnu myndu gera það á ný. Sagði ráðherra að ef Læknafélag- ið lýsti sig reiðubúið að fallast á Formaður Læknafélags Reykjavíkur: Tilraun ráðherra til að halda sig í sviðsljósinu „AÐ MÍNU mati er þetta tilraun fjármálaráðherra til að halda sig í sviðsljósinu fyrir kosningar og nota lækna til þess,“ segir Högni Óskarsson, formaður Læknafé- lags Reykjavíkur, um erindi fjár- málaráðherra til lækna í gær. „Ráðherra fer enn framhjá kjarna deilunnar, sem snýst um þær sið- lausu ásakanir sem hann hefur neitað að draga til baka. Við höf- um lýst því yfir að við höfum ekk- ert við hann að tala fyrr en hann hefur dregið þær til baka,“ segir Högni. Framkvæmdir við Blönduósshöfn boðnar ót í sumar: Framlag samkvæmt lánsfjár- lögum sextán mílljónir króna TÆKNILEGUM undirbúningi fyrir gerð brimvarnargarðs á Blönduósi er að mestu lokið hjá Vita- og hafnamálaskrifstofunni og verður verkið tilbúið til útboðs á næstu vikum, að sögn Her- manns Guðjónssonar vita- og hafnamálastjóra. Áætlaður kostnaður við verkið er 175 milljónir króna og hafa verið veittar til þess 16 milljónir samkvæmt lánsfjárlögum, en að sögn Hermanns er ein hugmynd um fjármögnun sú, að verktaki útvegi lán. 100 milljóna króna framlagi, sem heimild var veitt til á lánsfjár- lögum í þinglok, og skyldi renna til hafnarframkvæmda vegna loðnubrests eða erfíðs atvinnu- ástands, var skipt á hafnimar á þriðjudag, að sögn Hermanns. „Eftir því sem ég best veit er ætl- unin að Blönduós fái 16 milljónir af þeirri tölu, þannig að heimilað verði að bjóða verkið út í sumar og framkvæmdir heíjist í haust,“ sagði hann í samtali við Morgun- blaðið í gær. Búist er við að tvö til þijú ár taki að ljúka verkinu og er hug- myndin sú að fjármagna fram- kvæmdimar með láni sem yrði endurgreitt á sex árum. „Þing- menn kjördæmisins hafa lýst því yfír að þeir samþykki að þetta verði framkvæmt og muni beita sér fyrir fjárveitingum á næstu árum, þannig að þetta verði endur- greitt af hafnargerðarfé sem kæmi í kjördæmið á næstu sex árum eða svo,“ sagði Hermann. Hann var spurður hvernig ætti að tryggja fjármagn til fram- kvæmdanna til viðbótar við þær 16 milljónir sem ríkið leggur til samkvæmt lánsfjárlögum. Hann sagði að ein hugmynd heimamanna þar um hafí verið að óska eftir því að verktakinn fjármagnaði þær, að hann útvegaði lán og fengi það greitt á þessum sex árum sem rætt hefur verið að dreifa fjár- mögnuninni á. Blönduósshöfn var á hafnaáætl- un en ekki stóð til að byija fram- kvæmdir fyrr en 1993. Áætlað er að hafnargerðin í heild kosti um 175 milljónir króna. Ríkissjóður á að greiða 75% kostn- aðarins, eða liðlega 131 milljón, og er rætt um að sá hluti dreiflst á sex ár. Áætlanir Vita- og hafnamála- skrifstofunnar miðast við að fram- kvæmdir hefjist í haust, eftir að vinnu við Blönduvirkjun er lokið. Útboðið hefur ekki verið tímasett, en Hermann sagði að hugmyndin væri sú að það verði í júni, þannig að hægt væri að ná samningum um verkið síðla sumars. „Bréfið sýnir vanþekkingu ráð- herra á innviðum heilbrigðiskerfísins. Hann staðhæfír að kerfíð sé of dýrt en viðsemjendur okkar, Trygginga- stofnun ríkisins og heilbrigðisráðu- neytið, vita að samningar við lækna eru mjög hagkvæmir fyrir ríkissjóð. Þar er gert ráð fyrir mörgum læknis- verkum á tiltölulega lágu verði og eru taxtarnir töiuvert lægri en hjá kollegum okkar í Danmörku og Sví- þjóð,“ sagði Högni. „Reynsla Svía af því að flytja læknisverk inn á spítalana sýndi að biðlistar þar hrönnuðust upp og kerf- ið varð þyngra í vöfum. Nú eru Svíar að færa þessa þjónustu aftur út af spítölunum," sagði hann. Högni sagði að sér fyndist eðlilegt að erindi ráðherra um að færa laun lækna undir Kjaradom yrði -tekið fyrir á næsta stjórnarfundi Læknafé- lags Reykjavíkur 15. apríl. „Það er athyglisvert á hvern hátt Ólafur Ragnar gerir óbeinar árásir á heiibrigðisráðuneytið með ummæl- um sínum um að leggja beri niður þá samninga sem ráðuneytið hefur staðið að við sérfræðinga. Ef á að taka upp viðræður um sérfræðistörf lækna á stofum er eðlilegt að þau tilmæli komi frá heilbrigðisráðuneyt- inu,“ sagði Högni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.