Morgunblaðið - 04.04.1991, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUK 4. APRÍL 1991
11
Orð til ungs listamanns
________Myndlist_______________
Bragi Ásgeirsson
Ég þakka tilskrif þitt, er birtist
í blaðinu fimintudaginn 28. mars,
og var athugasemd vegna greinar
minnar um listamannalaun. Grein
þín birtist nokkuð seint, vegna þess
að annað tveggja mun einhveijum
hafa fundist hún á mörkum eða hún
hafi hreinlega týnst eða gleymst,
sem er hendanlegt atvik á dagblaði.
Skoðun mín er hins vegar sú, að
það sé sjálfsögð háttvísi að taka
slík skrif til athugunar og svo er
einnig, að ég tel mig eiga að geta
réttlætt skrif mín og skoðanir.
Vil ég strax taka til óspilltra
málanna og svara skrifinu lið fyrir
lið.
— Það tel ég alrangt, að ég flokki
listspírur í mismunandi þroskastig
eftir aldri og jafnvel hreinlega villi
um fyrir lesendum.
Sannleikurinn er sá, að ég hef
allan minn starfsferil sem listrýnir
forðast að draga fólk í dilka í skrif-
um mínum og reynt að koma þeirri
skoðun minni fram, að ekki sé
hægt að flokka listsköpun eftir lí-
faldri. Og það kemur í sjálfu sér
slíkri aldursgreiningu aldeilis ekki
hið minnsta við, að okkur, er skrif-
um um myndlist hérlendis, hiýs oft
hugur yfir upplýsingafátæktinni á
VITASTÍG 13
26020-26065
Einarsnes. 3ja herb. íb. 53
fm. Verð 3,5 millj.
Kóngsbakki. 3ja herb. íb.
72 fm. Suðursvalir. Verð 5,6 millj.
Hrísmóar. 3ja herb. falleg
íb. 81 fm. Þvottaherb. í íb. Falleg-
ar innréttingar.
Kambasel. 3ja herb. íb. 83
fm. Fallegt parket, sér inngang-
ur, sér garður.
sýningum hinna svokölluðu ungu
nýskapenda, sem ættu einmitt að
geta skilgreint gerðir sínar, þar sem
það hefur þegar verið gert á marga
mismunan'di vegu erlendis, það
sem okkur gengur einfaldlega til
er að stuðla að því, að listsýningar
verði skilvirkari og aðgengilegri
fyrir gesti og gangandi, en á því
er mikill misbrestur.
Þá er það mikill misskilningur,
að nýsköpun einangrist við ungt
fólk, því að hún er einmitt nær allt-
af afleiðing langs þroskaferils, sem
blómstrar kannski ekki fyrr en við-
komandi er kominn á gamals aldur
og er listasagan hér órækasta sönn-
unin.
Ég hafna því algjörlega, að ný-
sköpun sé eitthvað skólaferli og
miðstýrt hópefli, eða „samvirk
framníng þjóðreisnar", og vísa til
þess, að slíkur hugsunarháttur er
einmitt hámark þess, sem í áranna
rás hefur verið kennt við „akadem-
isma“.
Hvað þekkingu mína á fræðunum
áhrærir, hef ég aflað mér hennar
með lestri bóka og listtímarita,
skoðun safna og sýninga um ára-
tuga skeið, svo og á sjálfum mann-
lífsvettvanginum, en hef ekki lokið
neinni takmarkaðri og staðlaðri
skylduþekkingu á þeim efnum úr
skóla, sem of margir láta sér nægja
nú til dags og ganga svo blindir í
gegnum lífið, hvort heldur þeir telja
sig feta hefðbundnar leiðir eða séu
að dýrka hinar svonefndu nýlistir.
Þá eru nýlistir ekki neitt áþreif-
anlegt og skjalfest hugtak heldur
fersk og hugmyndarík átök ein-
staklingsins við fyrirbæri samtíðar
sinnar.
Þegar ég í grein minni fór út í
samanburðarfræði, var það í einu
og öllu til að auka áhersluþunga
orða minna og leitast við að opna
augu manna fyrir meintan fáránleik
í umræddu lagafrumvarpi um lista-
mannalaun. Annað gekk mér ekki
til, og hér var ég ekki að beina
spjótum mínum í aðrar áttir, þó svo
að t.d. námslán í núverandi formi
sé mjög umdeilanlegt fyrirbæri í
þjóðfélaginu, sem allir verða varir
við sem á annað borð lesa dagblöð
og enn frekar í almennum umræð-
um.
Viðbrögð hjá hinum unga list-
nema sýna einmitt hve viðkvæmt
mál þetta er, því að hann umturn-
ast, er komið er að því atriði, og
meginkjarni greinar hans fer í útúr-
snúninga og vaðal um þau flóknu
mál, sem alls ekki voru til umræðu
í grein minni.
Það skal upplýst, að heimildir
mínar um fjölda námslánaþega í
listgreinum ytra hef ég frá góð-
kunningja sonar míns, sem á sínum
tíma gekk sömu námsbraut og höf-
undur umrædds pistils, Guðmundur
Rúnar Lúðvígsson, þ.e. ijöltækni-
deild (áður nýlistadeild). Hann tók
sér það fyrir hendur fyrir fáum
árum að rannsaka hve margir list-
nemar nytu námslána ytra, og eru
þá allar listgreinar meðtaldar, og
mun hafa komist upp töluna 742
eða 747. Niðurstaðan þótti með
ólíkindum og þykir mér það ennþá,
en nefndi samt töluna.
Talan hefur hvorki verið staðfest
né borin til baka, en er ég átti er-
indi í menntamálaráðuneytið á dög-
unum og talaði við einn af yfir-
mönnum MHÍ á þeim bæ, spurði
ég hann m.a. hvort þetta gæti virki-
lega verið rétt tala. Hann vissi það
nú ekki, en nefndi hins vegar fárán-
lega háa tölu námslánaþega í öðru
fagi og glotti við.
Hér er því engin Gróa á Leiti á
ferð né tilbúnar tölur frá minni
hendi, þótt þær kunni að vera rang-
ar, sem ég vona af heilum hug, því
talan er ekki einasta fáránleg held-
ur einnig óheilbrigð. Ber einfaldlega
vott um misnotkun.
Þá er það sára einfalt mál að
meta hæfileika listnema í ljósi
metnaðar, ósérhlífni og námsárang-
urs og þar með verðleika þeirra til
opinbers stuðnings.
— Hvernig skilgreina eigi þá
gjörð, þegar menn fá styrki í ýms-
um formum og undir ýmsum nöfn-
um er auðvitað álitamál. Fáir
mundu t.d. hafna neinni tegund
hinni svonefndu „víkjandi lána“ úr
bönkum landsins eða ríkissjóði, sem
sumar stéttir virðast fá, né heldur
svonefndum „námslánum“, sem
menn þurfa ekki að endurgreiða
nema sem nemur 80% hið mesta,
auk þess sem ríkið tekur að sér að
borga vexti að einhveiju eða öllu
leyti. Slíkt telst naumast lán í landi,
þar sem venjulegt fólk, sem borgað
hefur í lífeyrissjóði um áratuga
skeið, verður að sætta sig við lána-
Bragi Ásgeirsson
kjör, sem helst má nefna eignaupp-
töku.
Það er ekki langt síðan hin svo-
nefndu námslán töldust hreinlega
gjöf, þar sem þau urðu að engu í
verðbólgunni. í austantjaldslöndun-
um var og er ekki verið að skafa
neitt af hlutunum og fyrirbærið ein-
faldlega sett undir hugtakið laun.
Okkur hættir í sívaxandi mæli
hér á skerinu að setja allt mögulegt
í slíkar umbúðir, að enginn skilur
neitt í neinu, en hver skyldi nú vera
skýringin á mikilli ásókn fólks á
öllum aldri í hin svonefndu „náms-
lán“?
Þetta er allt eldfimt mál og
huggst ég ekki hætta mér út á
vettvanginn, en ég greip einfald-
lega, eins og fyrr segir, til þessarar
samanburðarfræði til áherslu en
ekki gagnrýni á lánakerfið í sjálfu
sér.
Með sanni er það býsna undar-
legt atriði úr leikhúsi fáránleikans,
ef þjóðfélag, sem hefur efni á að
styrkja nær 750 listspírur á öllum
aldri til listnáms á erlendri grund,
hefur ekki efni á að veita nokkrum
tugum gróinna listamanna á heima-
slóðum fullan starfsfrið í nokkur
ár, svo að þeir geti reynt að koma
undir sig fótunum. Slíkt er ótvírætt
þjóðhagslegt atriði, og hér höfum
við lengi verið mjög aftarlega í
hópi menningarþjóða og er þá vægt
til orða tekið.
Þá er það í sjálfu sér mjög eðli-
legt að ræða í sömu andrá um
„starfslaun" og „námslán", því að
í báðum tilvikum er verið að leitast
við að aðstoða viðkomandi við að
fóta sig á vettvangi þjóðfélagsins.
Ég set gæsalappir fyrir bæði heitin,
því að stöðluð og skattskyld starfs-
laun, í því formi, sem þau eru veitt,
koma að takmörkuðu gagni, en það
er vettvangur annarrar umræðu.
Hvað hugsanlegt vantraust á list-
nám snertir, þar sem ég væri tekinn
til áþyrgðar sem einn af kennurum
MHÍ og að auki með .lengstan
starfsferil, þá ætti Guðmundur
Rúnar að vita, að ég hef lengi deilt
á stefnu ráðamanna skólans og þá
ekki einungis núverandi. Er það
gert í ljósi reynslu minnar af evr-
ópskum listaháskólum, sem ég hef
numið við eða heimsótt. Tel ég mig
hafa skrifað fleiri gi-einar um þessi
mál en nokkur annar íslendingur
og fer ekki í launkofa með skoðan-
ir mínar. Hef ég orðið að gjalda
þess sem og fleiri, þó að ætla megi
að fyrsta boðorðið i listaskóla séu
opnar og skeleggar umræður um
stefnumörkin.
Mér er ekki kunnugt um, að ég
fari nokkurs staðar með villandi
mál í grein minni, enda með öllu
óþarfi, og hvað tilvísunina í aldur
Rafaels og van Goghs snertir, sem
báðir létust 37 ára, þá var það einn-
ig gert til áherslu orða minna,
vegna þess að gera átti heiðurslaun
listamanna að nokkurs konar elli-
launum. Fallið var einmitt frá því
sérstaka ákvæði í lögunum, að
menn yrðu að vera orðnir 65 ára
til að hljóta þau, eftir að grein mín
birtist, en skal látið ósagt hvort það
hafi verið vegna áhrifa frá henni.
Þá skal að lokum tekið fram, að
trúlega þekki ég mun betur til
æviferils þessara miklu listamanna
en ungar listspírur úr MHÍ, og vil
fullyrða og leggja ríka áherslu á
það atriði, að listamenn sanna
ágæti sitt í lifanda lífi. Hins vegar
er ekki víst, að samtíð þeirra sé
með á nótunum né t.d. listsögu-
fræðingar og markaðsöfl tímanna,
sem var einmitt raunin með van
Gogh. Ýmsum félögum hans og
samtíðarmönnum var þó Ijós snilld-
in í verkum hans, en þeir höfðu nóg
með sjálfa sig.
Tel ég mig nú hafa svarað öllum
útúrsnúningum og dylgjum Guð-
mundar Rúnars Lúðvígssonar og
legg frá mér stílvopnið.
Jöklasel. 2ja herb. íb. 65 fm á 1. hæð. Fallegt parket. Góð áhv. lán.
Flúðasel. 4ra herb. 95 fm auk bílskýlis. Góð lán áhv.
Háaleitisbraut. 4ra herb. íb. 105 fm á 3. hæð. Nýl. gler. Fallegt útsýni.
Asparfell. 4ra herb. ib. 108 fm m/góðu húsnæðisláni ca 4,3 millj. Suðursv. Laus.
Rauðalækur. Falleg 6 herb. íb. 132 fm. Suðursv. Fallegt útsýni. Góð sameign.
Melabraut. Efri sérhæð, 104 fm, m. 2x38 fm bílskúr. Suð- ursv. Frábært útsýni.
Hjarðarhagi. Neðri sér- hæð 135 fm að stærð auk-27 fm bllsk. Stórar stofur. Suðursv.
Engjasel. Raðhús 207 fm auk 30 fm bílskýlis. Makask. mögul. á 4ra herb. íb. í sama hverfi.
Grenilundur — Gbæ.
Einbhús á einni hæð 177 fm.
Fráb. útsýni. Fallegt parket.
Strýtusel. Glæsil. einbh.
319 fm m/bílsk. Fallegt útsýni.
Makask. mögul. á minni eign.
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fasteignasali, hs. 77410.
Svavar Jónsson hs. 657596.
PHILIPS
„Topp-græjur'
Philips AS 9500 Hi-Fi hljómtækjasamstæðan er með
fjarstýringu og hágæða geislaspilara. Hún er nýkomin
frá hönnunardeildinni með nýtt útlit (Slim-Line).
Philips er brautryðjandinn
í gerð geislaspilara
- þú gengur að gæðunum vísum.
PLÖTUSPILARINN:
Hálfsjálfvirkur, tveggja hraða 45 og 33 snúninga
ÚTVARPSTÆKIÐ:
Stafrænt með 20 stöðva minni. Á FM og miðbylgj u.
Sjálfvirkur leitari og fínstilling.
MAGNARINN:
2x40 músík Wött. 5 banda tónjafnari (Equalizer).
Mótordrifinn styrkstillir. Tenging fyrir heymartól.
Inntak fyrir sjónvarp.
TVÖFALDA SNÆLDUTÆKIÐ:
Hámarks hljómgæöi. Sjálfvirk stöðvun við enda á
snældu. Tvöfaldur upptökuhraði. Pása. Sjálfvirk
upptökustilling.
Spilar fram og aftur (Autoreverse).
GEISLASPILARINN:
20 laga minni. Fullkominn lagaleitari. Stafrænn
skjár. Hægt er að láta sama lagið eða lögin hljóma
endalaust. Tekur báðar stærðir diska.
HÁTALARARNIR:
Priggja-átta lokaðir hátalarar af geriðnni Philips
LSB 500.
FJARSTÝRINGIN:
Rúsínan í pylsuendanum er fjarstýringin sem gerir
þér kleift að stjóma öllum aðgerðum úr sæti þínu.
Þú getur treyst Philips
Heimilistæki hf
SÆTUNI8 SÍMI69 1515 ■ KRINGLUNNI SÍMI69 15 20
(/có e/vuMSWÁgjatéegi/i L samungunc