Morgunblaðið - 04.04.1991, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.04.1991, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991 Heillandi verkefni bíða í utanríkis- og varnar eftir Björn Bjarnason í sambandslagasáttmálanum frá 1918 um fullveldi íslands í kon- ungssambandi við Danmörku var ákvæði um „ævarandi" hlutleysi íslands. 23 árum síðar, um sumarið 1941, stigu íslendingar fyrsta form- lega skrefið frá hlutleysinu. Þá var herverndarsamningurinn gerður við Breta og Bandaríkjamenn. Hann leiddi til þess að bandarískt herlið tók að sér varnir landsins í stað breska hernámsliðsins, sem hingað kom í maí 1940. í ár er hálf öld liðin frá gerð herverndarsamnings- ins en Bandaríkjamenn hurfu héðan með síðustu hermennina úr stríðinu í apríl 1947. Þá dreymdi íslendinga enn að hlutleysi gæti dugað þeim sem vörn. í maí 1951 tók hins veg- ar varnarsamningur íslands og Bandaríkjanna gildi og er því 40 ára afmæli hans á næsta leiti. í dag, 4. apríl, eru hins vegar 42 ár frá því að ísland gerðist eitt af stofnríkjum Atlantshafsbandalags- ins (NATO), en með þátttöku í bandalaginu var endanlega horfið frá hlutleysisstefnunni. Fróðlegt er að hafa þessi ártöl í huga, þegar horft er til framtíðar. Þau ættu til dæmis að vera fram- sóknarmönnum áminning um, að yfíriýsingar þeirra þess efnis að Islendingar verði „ævarandi" eða til allrar eilífðar utan Evrópubanda- lagsins (EB) eru í sjálfu sér haidlitl- ar. Reynslan ætti að kenna okkur að raunsæ stefna Sjálfstæðisfiokks- ins er skynsamlegri en framsóknar- stefnan^ þar sem sjálfstæðismenn segja: „Islendingar eiga ekki fremur en aðrar Evrópuþjóðir að útiloka fyrirfram að til aðildar geti komið að Evrópubandalaginu." Ef við get- um ekki sætt okkur við niðurstöð- una í samningum um evrópskt efna- hagssvæði, verðum við að finna aðra leið til að laga okkur að sam- runaþróuninni í Evrópu. Tíminn sem ríki hafa tii stefnu er ekki ávallt langur. Hinar öriagaríku ákvarðan- ir um stofnaðild að Atlantshafs- bandalaginu voru teknar á um það bil þremur mánuðum á árinu 1949. Þróunin er svo ör í Evrópu, að það kann beinlínis að vera hættu- legt að þrengja eigið svigrúm með þeim hætti, sem framsóknarmenn hafa gert. Til marks um breytingar í álfunni má nefna, að hlutlaus ríki eins og Austurríki og Svíþjóð, sem talin voru útilokuð frá EB vegna hlutleysisstefnu sinnar, setja hana ekki lengur fyrir sig. Hefði nokkur maður trúað því fyrir fáeinum miss- erum? Eða svo minnst sé á enn dramatískari atburði í Evrópu: Hefði nokkur maður trúað því að sameining Þýskalands gæti gengið fyrir sig með þeim hætti sem gerð- ist? Hraðinn er ekki síður mikill nú en þegar lýðræðisríkin tóku hinar örlagaríku ákvarðanir I lok fimmta áratugarins og stofnuðu Atlants- hafsbandalagið til að hefta út- breiðslu kommúnismans í Evrópu. Kyrrstaða og afturför Stefna og störf ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar í ut- anríkis- og öryggismálum einkenn- ast af kyrrstöðu ef ekki beinlínis afturför. Ríkisstjórninni tókst ekki að halda þannig á varaflugvallar- málinu, að í þá framkvæmd var ráðist. Sérkennilegt er að sjá í blaðaaug- lýsingum Alþýðubandalagsins nú fyrir kosningarnar, að flokkurinn þakkar sér, að ljósleiðarar hafa verið lagðir um landið, en þeir stuðla að stórbættum fjarskiptum. Flokkurinn lætur þess hvergi getið, að framkvæmdir við ljósleiðarana hafa verið ljármagnaðar af NATO Björn Bjarnason „Vegna breytinganna sem hafa orðið í Evrópu og alþjóðamálum al- mennt verður ekki und- an því vikist fyrir okkur íslendinga eins og ná- grannaþjóðirnar að líta í eigin barm og huga að framtíðarhagsmun- um okkar í öryggismál- um og almennt í al- þj óðasamskiptum. “ vegna nýju ratsjárstöðvanna, sem Alþýðubandalagið var algjörlega andvígt. ííkisstjórninni hafa mistekist til- raunir sínar til að koma afvopnun á höfúnum á dagskrá CFE-viðræðn- anná um fækkun hefðbundins her- afla í Evrópu. Héldu ráðherrar þannig á málum á leiðtogafundi NATO í London í fyrra, að það spillti almennt fyrir málstað íslands á þeim vettvangi. Þá hafa áform ríkisstjórnarinnar um tillöguflutn- ing vegna kjarnorku á höfunum á vettvangi Alþjóðakjarnorkumála- stofnunarinnar og Sameinuðu þjóð- anna einnig runnið út í sandinn. • Brölt forsætisráðherra í kringum Yasser Arafat og öriög hugmynda hans um hlut íslands í friðargerð í Mið-Austurlöndum eru samfelld hrakfallasaga. Þörf fyrir framtíðarstefnu Vegna breytinganna sem hafa orðið í Evrópu og alþjóðamálum almennt verður ekki undan því vik- ist fyrir okkur íslendinga eins og nágrannaþjóðirnar að líta í eigin barm og huga að framtíðarhags- munum okkar í öryggismálum og almennt í alþjóðasamskiptum. Er þetta heillandi verkefni, þar sem kalt mat en ekki óskhyggja verður að ráða. Innan Atlantshafsbandalagsins er almenn samstaða um að sam- starf þjóðanna um varnarmál verði áfram þungamiðjan í öiyggisstefnu ríkjanna. Er mikils virði fyrir okkur íslendinga að þetta sjónarmið ráði ferðinni beggja vegna Atlantshafs, því að þar með yrði hagsmunum okkar best borgið. Við eigum að stuðla að því að NATO-samstarfið haldi áfram með hollustu við varn- arsamninginn. Atlantshafsbandalagið hefur ekki aðeins tryggt frið í okkar heimshluta. Samstarfið innan þess hefur einnig stuðlað að því að tök kommúnista í Evrópuríkjum eru Tónleikar Sinfóníuhliómsveitarinnar í gnlri áskriftarröð: Helga Þórarins- dóttir leikur einleik eftir Rafn Jónsson Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Islands í gulri tónleikaröð verða haldnir í Háskólabíói fímmtudaginn 4. apríl og hefjast kl. 20.00. Á efnis- skrá verða þijú verk: Róman Camiv- al forleikur og Harold á Ítalíu eftir Hector Berlioz og Sinfónía nr. 1 eft- ir Tsjajkovskíj. Eimeikari verður Helga Þórarins- dóttir, víóluleikari, og hljómsveitar- stjóri Ivan Fischer. Franska tónskáldið Hector Berlioz var læknissonur sem hlaut takmark- aða tónlistarmenntun í æsku, enda var honum ætlað að feta í fótspor föður síns og verða læknir. Til þess náms var hann sendur til Parísar, en jafnframt sótti hann tíma í tón- smíðum. Það varð úr, að hann hætti læknanáminu og sneri sér heill og óskiptur að tónsmíðum. Verk hans bera nokkurn keim af skorti á undir- stöðumenntun, sem verður þó til þess að hann er oft æði frumlegur. Jafnframt var hann snillingur í út- setningu hljómsveitarverka og kem- ur það vel fram í Harold á Ítalíu. Þetta er sinfónía með víólu eða lágf- iðlueinleik. Verkið skrifaði hann með ljóðabálk Byrons lávarðar, Childe Harold, í huga. Einnig var hann nýkominn frá Ítalíu og ekki ólíklegt að endurminningar hans þaðan end- urspeglist í verkinu. Harold á Ítalíu skrifaði hann fyrir Paganini. Þegar Paganini sá drögin að fýrsta kaflan- um þótti honum svo lítið til víólunn- ar í verkinu koma að hann neitaði að leika verkið. Síðar sagði hann þó, þegar hann heyrði verkið í heild, að það væri stórkostlegt. Tsjajkovskíj hóf einnig alvarlegt tónlistamám fremur seint. Hann nam fyrst lögfræði og vann í rúss- neska dómsmálaráðuneytinu uns hann varð 21 árs og um leið sjálfráð- ur. Þá fór hann í nýstofnaðan tónlist- arháskóla St. Pétursborgar og nam þar tónsmíðar undir handleiðslu Ni- oclais Rubinsteins. Árið 1864 skrif- aði hann sinfóníu nr. 1, áður en hann lauk námi. Þetta verk endur- speglar ekki persónulegan stíl Tsjaj- kovsksíjs, sém kom ekki fram fyrr en í sinfóníska ljóðinu Fatum sem hann skrifaði árið 1869. Helga Þórarinsdóttir leikur nú í fyrsta sinn einleik á áskriftartónleik- um Sinfóníuhljómsveitarinnar í verk- inu Harold á Ítalíu, en áður hefur hún leikið einleik á tónleikaferð og við útvarpsupptökur. Hún stunöaði nám í víóluleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og var Ingvar Jónasson kennari hennar. Að námi hér heima loknu fór hún utan til framhalds- náms, fyrst í Northern College of Music í Manchester á Englandi og síðar í einkatíma til Boston í Banda- ríkjunum. Árið 1980 var hún ráðin leiðandi maður í víóludeild Sinfóníu- hljómsveitar íslands og gegnir því starfi enn. Helga hefur haldið ein- leikstónleika og verið virkur þátttak- andi í flutningi kammertónlistar frá því hún flutti heim að námi loknu. Auk starfa sinna hjá Sinfóníuhljóm- sveitinni er Helga kennari við Tón- listarskólann í Reykjavík. Hún sagði í stuttu samtali að víólan væri að vinna á sem einleikshljóðfæri, því vitað væri um nokkur tónskáld, sem væru nú að skrifá einleiksverk fyrir þetta hljóðfæri. Ekki væri um mörg verk að ræða frá fyrri tímum fyrir lágfiðluna. Hljómsveitarstjóri verður Ung- veijinn Ivan Fischer. Hann er liðlega fertugur að aldri, en hefur afkastað miklu í tónlistarheiminum. Hann lærði sellóleik og tónsmíðar í Búda- pest og síðar hljómsveitarstjórn í Vínarborg og Salzburg. Hann vann Rupert Foundation-keppnina árið 1976 og opnaði það honum dyr í tónlistarheiminum. Hann stjórnaði m.a. Sinfóníuhljómsveit Lundúna á tónleikaferð árið 1980, þegar aðal- stjómandinn Cladio Abbado forfall- aðist. Hann hefur einnig starfað mikið með ópemm í Evrópu og Ameríku og var um árabil tónlistar- stjóri Operunnar í Kent. Hann er stofnandi Hátíðarhljómsveitarinnar í Búdapest, sem hefur haldið tónleika víða um Evrópu. Auk þess að stjórna hljómsveitum víða um heim hefur hann stjórnað þekktum hljómsveit- um við hljóðritanir. Eins og áður sagði verða tónleik- arnir á fimmtudag, 4. apríl, og hefj- Helga Þórarinsdóttir, víóluleik- ari. Ivan Fischer, hljómsveitarstjóri. ast kl. 20.00. Miðasala er á skrif- stofu Sinfóníuhljómsveitarinnar í Háskólabíói á skrifstofutíma og einnig við innganginn við upphaf tónleikanna. Höfundur er kynningarfulltrúi SinlónínhljórnsvriUirinnnr. orðin máttlaus. Sagan á eftir að leiða í ljós að markviss stefna band- alagsins í upphafi síðasta áratugar, þegar tekist var á um meðaldrægar kjarnorkueldflaugar í Evrópu, réð miklu um þáttaskilin innan Sovét- ríkjanna. Hefðu svonefndar friðar- hreyfingar á Vesturlöndum náð sínu fram á þessum árum byggjum við nú við sovéska einokun á meðal- drægum kjarnorkueldflaugum í Evrópu. Væri líklegt að Berlínarm- úrinn hefði hrunið við þær aðstæð- ur? Leiðtoga eins og Ronalds Reag- ans og Margaret Thatcher verður minnst sem virkra þátttakenda' í falli kommúnismans. Á næstu misserum þarf Alþingi að taka afstöðu til CFE-samkomu- lagsins um fækkun hefðbundinna vígtóla í Evrópu. Á að nota með- ferð þess máls til að ræða ítarlega um framtíðarstöðu íslands innan evrópsks öryggiskerfis. Við þurfum hiklaust að svara spurningum varð- andi þátttöku í Vestur-Evrópusam- bandinu, sem aðildarríki Evrópu- bandalagsins vilja efla sem hina evrópsku stoð innan NATO. Grunnurinn sem lagður var á fimmta áratugnum er enn besta undirstaðan undir stefnu íslands í öryggis- og varnarmálum. Hann hefur reynst mun haldbetri en yfir- lýsingin frá 1918 um ævarandi hlut- leysi. íslendingar verða að taka virkan þátt í mótun og framkvæmd öryggisstefnunnar. Við eigum að leysa bandaríska varnarliðið af hólmi, þar sem það samræmist markmiði varnarsamningsins um að tryggja öryggi landsins og haf- svæðanna umhverfis það. Við eig- um einnig að knýja á dyr Evrópu- þjóða og óska eftir nánara sam- starfi við þær um öryggismál. Vinstri stjórn getur ekki tekið á utanríkismálum í samræmi við kröf- ur líðandi stundar. Þess vegna er fyrsta og óhjákvæmilegt skref til endurnýjunar á stefnunni í utanrík- is- og öryggismálum að kjósa Sjálf- stæðisflokkinn í kosningum 20. april næstkomandi. Höfundur skipar þriðja sætið á frawboðslista Sjdlfstæðisflokksins í Reykjavik. Nefnd til að kanna nýt- ingn Bláa lónsins HEILBRIGÐIS- og trygg- ingamálaráðuneytið hefur skipað nefnd sem falið er það hlutverk að kanna fjöl- þætta nýtingu Bláa lónsins við Svartsengi í samræmi við ályktun Alþingis frá síð- asta vori. Verkefni nefndar- innar verður einkum fólgið í því að kanna nýtingu lóns- ins með tilliti til heilsufars og gera tillögur um með hvaða hætti hægt sé að nýta þá kosti lónsins til hagsbóta fyrir íslendinga sem útlend- inga. í nefndinni eiga sæti: Ingi- mar Sigurðsson, skrifstofu- stjóri, formaður, Níels Árni Lund, deildarstjóri, ritari, Jón Hjaltalín Ólafsson, yfirlæknir, tilnefndur af landlgekni, Jón Sveinsson, aðstoðarmaður for- sætisráðherra, tilnefndur af forsætisráðherra, Páll H. Guð- mundsson, formaður Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga, tilnefndur af . samtökunum, Bjarni Andrésson, forseti bæj- arstjómar Grindavíkur, til- nefndur af Sambandi sveit- arfélaga á Suðurnesjum, og Árni Þór Sigurðsson, deildar- stjóri, tilnefndur af samgöngu- ráðherra. Nefndinni er ætlað að skila tillögum fyrir nk. áramót.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.