Morgunblaðið - 04.04.1991, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 04.04.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991 19 Hlutverk háskóla eftir Sveinbjörn Björnsson Alþjóðleg viðmiðun Háskóli íslands hefur verið og mun verða ein mikilvægasta for- send^ sjálfstæðrar þjóðmenningar á íslandi og jafnframt höfuðfor- senda þátttöku okkar í alþjóða- menningu og samvinnu við erlendar þjóðir. I starfi sínu hlýtur Háskólinn að taka mið af öðrum háskólum. Þar má vitna í stefnuskrá evrópskra háskóla frá Bologna, 1988, sem segir m.a.: „Háskóli er sjálfstæð stofnun sem skapar, prófar og met- ur þekkingu og endurnærir menn- ingu með rannsóknum og kennslu. Til að koma umheimi sínum að þessu gagni verða rannsóknir og kennsla að vera óháð skoðunum og siðferði yfirvalda stjórnmála og Ijármála. Kennsla og rannsóknir verða að fara saman í háskóla. Að öðrum kosti fylgir kennslan ekki brejdtum þörfum samfélagsins og framþróun þekkingar í vísindum. Frelsi til rannsókna og þjálfunar er undirstaða háskólastarfs. Stjórn- völd og háskólar verða að tiyggja, eftir því sem í þeirra valdi stendur, að þessi meginregla sé virt. Háskól- inn varðveitir húmaniskar hefðir. Hann leitar stöðugt að algildri .þekkingu. Til að ná markmiðum í starfi sínu leitar hann út yfir landa- mekri ríkja og stjórnmála og heldur fram þörf þess að ólíkir menningar- heimar þekkist og hafi áhrif hver á annan.“ Kjarninn í þessu máli er okkur alls ekki framandi. Hann er í megin- atriðum hinn sanþ og í setningar- ræðu Björns M. Ólsen,_ rektors á stofnunarhátíð Háskóla Islands 17. júní 1911. Menningarhlutverk Háskólans Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hefur alla tíð farið fram blómlegt rann- sóknastarf innan Háskólans. Samt berst okkur stærstur hluti nýrrar þekkingar að utan. Aður þurftum við að sækja okkur þekkingu til annarra landa. Með nýrri miðlunar- tækni og nánari samskiptum þjóða flæðir alls kyns fróðleikur yfir okk- ur, en ekki er þar allt gull sem gló- ir. Hlutverk Háskólans er að meta og túlka þessa þekkingu, miðla henni til íslensks þjóðlífs og gera hana að hluta íslenskrar þjóðmenn- ingar. Það gerist með eigin rann- sóknum og kennslu, og einnig með fjölbreytilegri endurmenntun og miðlun þekkingai' til almennings. Þekkingin verður ekki hluti ís- lenskrar þjóðmenningar nema hún sé orðuð á íslenskri tungu. Háskól- inn hlýtur því að gegna forustu um varðveislu íslenskrar tungu og ný- sköpun hennar með íðorðum og öðrum nýyrðum. Margir óttast að fámennar þjóðir sem nú sogast inn í alþjóðahringiðu muni glata tungu- máli sínu og séreinkennum þjóð- menningar. Við þessar aðstæður gerir einangrun illt verra. Eina færa leiðin til varnar er að leggja ■ SAMEIGINLEGUR framboðs- listi Þjóðarflokks og Flokks mannsins til Alþingiskosninga í Vestfjarðakjördæmi 20. apríl 1991 hefur nú verið ákveðinn. Efstu sæti skipa: 1. Ingibjörg G. Guðmunds- dóttir, þjóðfélagsfræðingur, 2. Heiðar Guðbrandsson, matsveinn, 3. Hrefna Rut Baldursdóttir, verkakona, 4. Jóhannes Gíslason, bóndi, 5. Halldóra Játvarðsdóttir, bóndi. IZutcuzcv Heílsuvörur nútímafólks meiri rækt við þjóðleg fræði og stöð- uga endurnýjun íslenskrar þjóð- menningar með grisjun og aðlögun alþjóðlegrar þekkingar. Tengsl við atvinnulíf og þjóðlíf Undanfarin ár hefur umræða um Háskólann lagt áherslu á beint hag- nýtt gildi þekkingar og rannsóknir sem tengjast atvinnulífi. Þessi um- ræða var þörf og hún endurspe- glaði grósku í yngri deildum Há- skólans sem með rannsóknum sín- um og kennslu höfða til atvinnu- vega. Hins vegar má segja að eldri deildirnar hafi að vissu leyti fallið í skuggann af þessari þróun. Nú er tímabært að hlutverk Háskólans í menningarlífi og öllu andlegu lífi „Nú er tímabært að hlut- verk Háskólans í menn- ingarlífi og öllu andlegu lífi sé viðurkennt um- fram það sem gert hefur verið. Þessa gætir nú þegar í þjóðmálaum- ræðu, en þar mætti rödd Háskólans heyrast oftar og með meiri þunga.“ sé viðurkennt umfram það sem gert hefur verið. Þessa gætir nú þegar í þjóðmálaumræðu, en þar mætti rödd Háskólans heyrast oftar Sveinbörn Björnsson og með meiri þunga. Almennt séð gerir Háskólinn at- vinnuífi og þjóðlífi mest gagn með því að íjölga nemendum í fram- haldsnámi og láta þá glíma við ís- lensk rannsóknarverkefni. Rann- sóknarnám hefur fram til þessa að mestu farið fram erlendis. Háskól- inn og íslenskt þjóðlíf hafa því far- ið á mis við þau frjóu samskipti kennara og rannsóknarnema sem eru burðarás í rannsóknum flestra háskóla. Enda þótt flestir muni eft- ir sem áður sækja þjálfun sína til rannsóknarstarfa til annarra landa, ætti það að vera okkur keppikefli að slíkt nám megi einnig stunda hér, í samvinnu við erlenda skóla. Á völdum sviðum gæti þetta nám •orðið með slíkri reisn að það dragi erlenda stúdenta hingað til náms. Höfundur er prófessor við Háskóla íslands. Dovið Oddsson q Akranesi Davíð Oddsson, formaður Sjólfstæðisflokksins, efnir til almenns stjórnmðlafundar á Akranesi föstudaginn 5. apríl n.k. Fundurinn verður í Bíóhöllinni og hefst kl. 20:30. Auk Davíðs flytja Sturla Böðvarsson og Elínbjörg Magnúsdóttir stutt ávörp. Fundarstjóri verður Guðjón Guðmundsson. Allir velkomnir. Sturla Guðjón Æi FRELSI OG MANNÚÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.