Morgunblaðið - 04.04.1991, Side 25

Morgunblaðið - 04.04.1991, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991 25 Tirana: Albanir flykkjast að gríska sendiráðinu Tirana. Reuter. UM 5.000 Aibanir, sem vilja komast úr landi eftir sigur kommúnista í þingkosningunum á sunnudag, söfnuðust saman við gríska sendiráðið í Tirana í gær til að sækja um vegabréfsáritun. Nikolaos Kanellos, ráðunautur í sendiráðinu, sagði að umsóknum um áritanir hefði fjölgað gífurlega eftir að ljóst varð að kommúnistar höfðu unnið sigur í fyrstu fjölflokkakosn- ingunum í Albaníu eftir hartnær hálfrar aldar alræði kommúnista. „Þetta er hræðilegt - á tveimur dög- um hafa okkur borist 4-5.000 um- sóknir um vegabréfsáritanir. Fyrir kosningarnar voru þær um 600 á dag,“ sagði hann. Lögreglumenn og hermenn, vopn- aðir rifflum, fylgdust grannt með innganginum að sendiráðinu og vís- uðu frá fólki sem þeir töldu vanta tilskilin gögn til að sækja um áritan- ir. Hermenn meinuðu fjölda fólks að koma að sendiráðinu og margir klifr- uðu upp á hús og bifreiðar til að geta fylgst með því sem fram fór í sendiráðinu. „Mér finnst miklir erfiðleikar steðja að Albönum og ég verð að komast í burtu,“ sagði 32 ára gömul kona á meðal umsækjendanna. Hún sagðist ætla að bíða með þriggja ára Nýjar EB-tillögxir í flutningabíladeilu Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Samgönguráðherrar Evrópubandalagsins (EB) samþykktu á fundi fyr- ir páska að leggja áherslu á leiðir til að draga úr mengun frá flutn- ingabílum í yfirstandandi samningum við stjórnvöld í Sviss og Austur- ríki um umferð í gegnum löndin. Karel Van Miert, sem fer með sam- göngumál innan framkvæmdastjórnar EB, hefur lagt til að í samning- unum verði miðað við heildarmengun af völdum flutningabílanna og samið um árlega minnkun hennar. Þetta gerði EB kleift að halda fjölda ferða í gegnum löndin óbreyttum og skapaði jafnvel möguleika á að auka umferðina samfara minnkandi mengun af útblæstri bílanna. Reuter Albanir halda á vegabréfum sínum fyrir framan gríska sendiráðið í Tirana í gær er um 5.000 manns vegabr éfsáritanir. barni sínu eftir áritun þótt það tæki mánuð. Sendiráðið hefur fengið 30.000 umsóknir undanfarnar þijár vikur en getur aðeins veitt um 700 áritan- ir á dag. Kanellos sagði að sendiráð- ið myndi halda áfram að veita áritan- ir, sem' gilda í mánuð, í von um að koma þannig í veg fyrir að Albanir flykktust yfir landamærin til Grikk- lands án heimildar. Um 8.000 Alban- komu þar saman til að sækja um ir flúðu til landsins í janúar. Leiðtogar Lýðræðisflokksins, stærsta stjómarandstöðuflokks Al- baníu, hvöttu til eins dags allsheijar- verkfalls í dag til að mótmæla að- gerðum lögreglunnar gegn mótmæ- lendum í bænum Shkoder í norður- hluta landsins. Þrír menn biðu þá bana í átökum við lögregluna, þar á meðal einn helsti leiðtogi Lýðræðis- flokksins í bænum. ■ ROERMOND - Hollenskur dómstóll dæmdi á þriðjudag írann Gerard Harte í átján ára fangelsi fyrir að hafa skotið tvo ástralska ferðamenn til bana í borginni Roemond í maf í fyrra. Voru Astr- alarnir skotnir af hryðjuverka- mönnum írska lýðveldishersins sem töldu þá vera breska her- menn þar sem bifreið þeirra var með bresk skráningarnúmer. Þrír írar til viðbótar voru sýknaðir af kæru um að hafa átt aðild að morðunum en þeir eru enn í haldi. Er búist við að þeir verði framseld- ir til Þýskalands þar sem þeir eiga yfir höfði sér ákæru vegna hryðju- verka á vegum írska lýðveldishers- ins. ■ RÓM - Talið er að Bettino Craxi, leiðtoga Sósíalistaflokksins, verði fyrst falið að reyna að mynda nýja ríkisstjórn á Italíu. Giulio Andreotti, forsætisráðherra Italíu, sagði af sér í síðustu viku. Hafði ríkisstjórn hans, sú 49. frá stríðs- lokum, verið við völd í tuttugu mánuði. Meðalævi ríkisstjórna It- alíu eftir stríð hefur hins vegar verið ellefu mánuðir. Júgóslavía: Herinn eykur enn við- búnað sinn í Króatíu Austurríkismenn hafa tekið vel í þessar hugmyndir en þeir hafa lagt áherslu á að endanlega verði ekki gengið frá samningum um umferð flutningabíla fyrr en í aðildarviðræð- um Austurríkis við EB. Bandalagið hefur hins vegar lagt áherslu á að ganga verði frá samkomulagi við Sviss og Austurríki áður en lokið verði samningum við Fríverslun- arbandalag Evrópu (EFTA) um hið ■ JERÚSALEM - Fjöldi sov- éskra innflytjenda af gyðingaætt- um til ísraels jókst verulega í mars- mánuði. Fluttust 14.609 sovéskir gyðingar til ísrael í mars sem er mesti ijöldi til þessa á árinu á einum mánuði. Höfðu margir gyðingar fre- stað för sinni til ísraels vegna Pers- aflóastríðsins. Alls fluttust 200.000 manns til ísraels á síðasta ári en ísraelsk yfírvöld gera ráð fyrir að alls muni um milljón sové- skra gyðinga flytjast til landsins fram til ársins 1993. Ef þær áætlan- ir standast á íbúafjöldi ísrael eftir að aukast um fimmtung. ■ LOS ANGELES - Tom Brad- ley, borgarstjóri Los Angeles, hefur skipað nefnd til að fara ofan í saum- ana á starfsemi lögreglu borgar- innar. Sagði hann á blaðamanna-' fundi að nauðsynlegt væri að endur- vekja traust íbúa á lögreglu Los Angeles. Skipun nefndarinnar hefur að fyrirmynd fræga nefnd sem kannaði ofbeldi lögreglunnar í New York fyrir tuttugu árum. Lögregla Los Angeles hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarið í kjölfar þess að fjórir lögreglumenn hafa verið kærðir fyrir að hafa misþyrmt ung- um blökkumanni hrottalega eftir að þeir höfðu stöðvað hann fyrir of hraðan akstur. Festi almennur borg- ari atburðinn á myndband sem sýnt hefur verið í bandarískum sjón- varpsstöðvum. Þá hefur Bradley farið fram á það við Daryl Gates, lögreglustjóra borgarinnar, að hann segi af sér en Gates hefur lýst því yfir að hann muni ekki verða við þeirri beiðni. ■ BONN - Mikill meirihluti íbúa austurhluta Þýskalands telur Helm- ut Kohl kanslara ekki hafa staðið við toforð sitt um að endurreisa efnahagslíf þess hluta landsins sem áður var Austur-Þýskaland. í skoð- anakönnun, sem gerð var af dag- blaðinu Bild voru 87% Austur-Þjóð- veija þeirrar skoðunar að kanslarinn hefði ekki staðið við kosningaloforð sín. ‘«"v svokallaða Evrópska efnahagssvæði (EES). Umboð framkvæmdastjórnar EB til að semja við Sviss og Austur- riki rennur út í júní í sumar. Á fundinum ákváðu ráðherrarnir að ganga frá samningum um sam- ræmt evrópskt ökuskírteini í vor en núgildandi samningar gera ráð fyrir að fólk sem flytur lögheimili á milli ríkja skili inn ökuskírteini sínu og fái í staðinn ökuskírteini útgefið í því landi sem lögheimili er tekið upp í. Þetta gildir um alla Evrópubúa nema íslendinga sem verða, taki þeir upp lögheimili í einhveiju öðru Evrópulandi, að taka ökupróf til að fá ökuskírteini eða teljast ella ólög- legir undir stýri. Framkvæmdastjórn EB kynnti einnig fyrir ráðherrunum drög að samningi við Noreg og Svíþjóð vegna flugmála. Samningurinn gerir ráð fyrir að Svíar og Norðmenn verði á allan hátt undir sömu regl.ur og skil- mála seldir og aðildarþjóðir EB sem m.a. gæfi framkvæmdastjórn EB íhlutunarrétt í sænsk og norsk flug- mál. Samningurinn byggist á sam- eiginlegum hagsmunum Norð- manna, Svía og Dana vegna eignar- aðildar að SAS-flugfélaginu. Belgrad. Reuter. SLOBODAN Milosevic, forseti Serbíu, og Franjo Tudjman, for- seti Króatíu, komu saman í gær í fyrsta sinn frá því mannskæðir bardagar brutust út milli Serba og króatískra lögreglumanna í Króatíu. Ekki var talið að fundur þeirra yrði til að draga úr spenn- unni í landinu og afstýra yfirvof- andi borgarastyrjöld. Fregnir hermdu að júgóslavneski herinn hefði sent skriðdreka og her- menn til þeirra svæða í Króatíu þar sem Serbar hafa gripið til vopna. Embættismenn í Belgrad voru fremur svartsýnir á að fundur Milo- sevics og Tudjmans yrði til þess að lausn fyndist á deilu Serba og Kró- ata. „Það er auðvitað rétt að reyna en við gerum okkur engar gyllivon- ir um að verulegur árangur náist,“ sagði talsmaður forseta Króatíu, Mario Nobilo. „Það er allt upp í loft sem stendur," bætti hann við. Á fundinum voru einnig forsetar hinna lýðveldanna fjögurra, auk Ante Markovics, forsætisráðherra Júgóslavíu, og Veljko Kadijevics, varnarmálaráðherra landsins. Útvarpið í Zagreb skýrði frá því að fjöldi bryndreka og tvær lestir með 80 skriðdreka og 240 hermenn hefðu komið til borgarinnar Osijek í Króatíu í gær. Ljósmyndari frétta- stofu Reuters sagði að herinn hefði sent liðsauka og vopn, meðal ann- ars hreyfanlegar loftvarnabyssur, til Plitvice í Króatíu, þar sem til skotbardaga kom milli vopnaðra hópa Serba og króatískra lögreglu- manna um páskahelgina. Hersveitir voru að sögn sendar til lýðveldisins til að stilla til friðar. Króatar for- dæmdu íhlutun hersins og sökuðu stjórnvöld í Serbíu um að hafa stað- ið fyrir óeirðum á svæðum serbn- eska minnihlutans í Króatíu. MEÐ HYBREX FÆRÐU GOTT SÍMKE OG ÞJÓNUSTU SEM HÆGT ER AÐ TREYSTA. HYBREX AX er eitt fullkomnasta tölvustýrða sím- kerfið á markaðnum I dag. Auðvelt er að koma því fyrir og það er einfalt í notkun. HYBREX er mjög sveigjanlegt i stærðum. DÆMI: (ÁX 8)1- 4bæjarlínur-Alltað8símtæki (AX32) 1 -32 bæjariínur-Allt að 192 símtæki Möguleikarnir eru otæmandi. HELSTU KOSTIR HYBREX • Islenskur texti á skjám tæ. janna. •Beint innval. •Hægt er aö fá útprentaða mjög nákvæma sundurliðun þ.e. tími, lengd, hver og hvert var hringt osfr. •Sjálfvirk símsvörun. •Hægt er að láta kerfið eða tæki hringja á fyrirfram- ákveðnum tlma. •Hjálparsími ef skiptiborðið annar ekki álagstimum. •Sjálfvirk endurhringing innanhúss sem bfður þar til númer losnar. •Mjög auðvelt er að nota Hybrex fyrir simafundi. •Hægt er að tengja T elefaxtæki við Hybrex án þess að það skerði kerfið. •Hægt er að loka fyrir hringingar I tæki ef menn vilja frið. •Innbyggt kallkerfi er f Hybrex. Heimilistæki hf S5 Tæknideild, SætúniSSÍMI 691500 WKKtk í StVK/týyuM, •Langlínulæsing á hverjum og einum sima. OKKAR STOLT ERU ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR Borgarieikhúsið Morgunblaðið, augl. Gatnamálastjóri Samband Islenskra Reykjavíkur sveltarfélaga Gúmmívinnustofan Securitas Islenska óperan Sjóvá-Almennar Landsbréf hL ofl. ofl. oft. s9mh 'dr/c/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.