Morgunblaðið - 04.04.1991, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 04.04.1991, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRIL 1991 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991 27 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst lngi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. ( lausasölu 100 kr. eintakið. Er baráttan við verðbólguna á undanhaldi? Eftir þá reynslu, sem við ís- lendingar höfum haft af hóf- legri verðbólgu á síðustu tveimur misserum er nánast óhugsandi, að nokkur vilji hverfa aftur til þeirra tíma, þegar verðbólgan nam á bilinu 40-130%. Samt sem áður eru bæði stjórnmálamenn og almenningur furðu kærulausir frammi fyrir þeim hættumerkjum, sem gera vart við sig hér og þar og gefa vísbendingu um, að við kunnum að vera á undanhaldi í baráttu við verðbólguna. Á skírdag skýrði Morgunblaðið frá því, að raunvextir væru að mjakast upp á við. Þrír aðilar beijast um fjármagnið, þ.e. ríkið, bankarnir og húsnæðislánakerfið. Barátta þessara þriggja aðila hef- ur leitt til þess á undanfömum vikum, að raunvextir á ýmiss kon- ar skuldbindingum eru að hækka. Talsmenn fjármálaráðuneytisins segja, að bankarnir séu að sprengja upp vextina vegna slæmrar lausafjárstöðu. Talsmenn bankanna segja, að ástæðan sé óseðjandi fjármagnsþörf ríkis- sjóðs. Niðurstaðan er hins vegar sú, að vextimir em á uppleið og margir telja, að raunvextir muni hakka eftir kosningar. Þeir, sem verða fyrir barðinu á því eru at- vinnufyrirtækin og ungt fólk og raunar eldra líka, sem stendur í húsbyggingum. Verðhækkanir skjóta upp koll- inum hér og þar án þess að valdi nokkra uppnámi. Greiðslukorta- fyrirtækin hafa hækkað þjónustu- gjöld sín verulega. Hvers vegna? Hefur verið látið á það reyna í rekstri þessara fyrirtækja, hvort hægt er að koma við hagræðingu og koma þannig í veg fyrir þessa hækkun? Eða veldur skortur á raunverulegri samkeppni milli fyr- irtækjanna, sem nú eru að mestu í eigu sömu aðila, því að þau telja sig geta hækkað þjónustugjöld? Neytendur eiga að vísu þann kost að hætta að nota greiðslukort. Plastpokar, sem neytendur eiga kost á að kaupa í verzlunum hafa hækkað veralega að sögn vegna hækkana á hráefni erlendis. Lækka þeir aftur, ef og þegar verðlækkun verður á hráefni er- lendis? Neytendur eiga að vísu þann kost að hætta að kaupa plastpoka og taka með sér eigin innkaupatöskur í verzlanir. Hér eru nefnd þrjú dæmi um hækkanir eða fyrirsjáanlegar hækkanir síðustu daga. í tveimur tilvikum vega þau útgjöld ekki þungt í heiidarkostnaði fjölskyldu en raunvaxtahækkun getur hins vegar skipt sköpum um afkomu þess hluta þjóðarinnar, sem er að eignast húsnæði. Og það má ekki gleymast í þessu sambandi, að nú er það ekki bara ungt fólk, sem er að byggja heldur eldra fólk líka, sem er að flytja í minna húsnæði en þarf oft að standa undir fjár- magnskostnaði í þeim skiptum. Sjómenn og útgerðarmenn deila hart um fiskverð. Útgerðarmenn segja, að þeir geti ekki hækkað fiskverð vegna þjóðarsáttar. Sjó- menn segja, að þetta deiluefni komi þjóðarsátt ekki við. Hvers vegna ná aðilar ekki samkomulagi um, að allur fiskur, sem landað er á íslandi verði seldur á mörkuð- um? Flugmenn og forráðamenn Flugleiða sitja á sanmingafund- um. Fróðlegt verður að sjá, hvort þeir samningar, sem þar verða gerðir verða innan ramma þjóðar- sáttar. Það era því miður alltof mörg dæmi þess, stór og smá, að verð- lag mjakist upp á við og launa- kostnaður fyrirtækja hækki án þess, að raunverulegar forsendur séu fyrir því. Stjórnmálamennirnir virðast gersamlega skeytingar- lausir um þjóðarhag í þessum efn- um, ef marka má þau hneykslan- legu vinnubrögð, sem viðhöfð voru á Alþingi síðustu dagana fyrir þinglok. Ríkissjóður er eins og botnlaus hít og nú rúmum tveimur vikum fyrir þingkosningar, hefur enginn stjórnmálaflokkanna, hvorki stjórnarflokkar né stjórnar- andstöðuflokkar, gert þjóðinni skilmerkilega grein fyrir því, hvernig þeir ætla að taka á þeim geigvænlega vanda.' Ef svo fer fram sem horfir fer verðbólgan vaxandi á ný þegar líður á árið. Til þess má hins veg- ar ekki koma. I kosningabarátt- unni verður að gera harða hríð að stjórnmálamönnum í öllum flokkum, að þeir geri þjóðinni grein fyrir því, hvernig þeir ætla að halda áfram þeirri baráttu gegn verðbólgunni, sem hófst með febrúarsamningunum á sl. ári. Að kosningum loknum verða ný ríkis- stjórn, verkalýðshreyfíng og vinnuveitendur að taka höndum saman um harkalegar aðgerðir til þess að kæfa í fæðingu þá þróun til aukinnar verðbólgu, sem aug- ljóslega er að hefjast. Fari verðbólgan vaxandi á ný, mun kjaraskerðingin aukast en ekki minnka. Fari verðbólgan vax- andi á ný verður þetta þjóðfélag einfaldlega óþolandi fyrir fólk að búa í. I kosningabaráttunni nú verða stjórnmálamennirnir að heyra rödd fólksins í landinu, sem krefst þess, að verðbólgunni verði haldið í skefjum, sem krefst þess, að ríkisútgjöld verði ekki aukin heldur minnkuð, sem krefst þess, að lántökur ríkisins, bæði innan- lands og erlendis verði ekki aukn- ar heidur minnkaðar. í þessari kosningabaráttu eiga kjósendur að gera harðar kröfur á hendur stjórnmálamönnum um þessi efni. Tíðni kransæðastíflu fer lækkandi: Lækkun á dánartíðni er einkum hjá miðaldra fólki Áhættuþættirnir hafa færst í betra horf og árangri læknis- meðferðar einnig þakkað HÓPRANNSÓKN Hjartaverndar frá árinu 1968 hefur leitt í ljós að tíðni kransæðastíflu hjá körl- um og konum á Islandi hefur lækkað verulega á síðustu 10 árum og dánartíðni vegna krans- æðasjúkdóma hefur lækkað mark- tækt á sama tíma. Þetta er gagn- stætt við það sem hefur verið undanfarna áratugi að sögn Nik- ulásar Sigfússonar, yfirlæknis á Rannsóknarstöð Hjartaverndar og doktors í læknisfræði. Hann segir að helstu áhættuþættir hafi færst í betra horf og þess vegna hafi tíðni kransæðastíflu farið lækkandi. Þórður Harðarson, yfirlæknir á lyflækningadeild Landspítalans og prófessor við læknadeild Háskóla íslands, segir að hægt sé að skýra lækkandi dánartíðni kransæðasjúkdóms með tvennum hætti. Annað hvort með því að áhættuþættirnir séu á niðurleið eða að þetta sé aðallega vegpia bættrar læknismeðferðar. Hún bjargi hugsanlega um 60 mannslífum á ári, sem lætur nærri að sé sá fjöldi hjartasjúklinga, sem haldi lífi núna en hefði látist ef dánartíðnin hefði verið sú sama og fyrir 10 árum. Báðir þættirnir séu mikilvægir, en erfitt sé að segja til um hvor vegi þyngra. Nikulás Sigfússon Helstu áhættuþættir kransæða- sjúkdóms eru reykingar, blóðfita og blóðþrýstingur og sagði Nikulás að allir þessir þættir hefðu svipað vægi, en þeir hefðu lagast verulega hjá þjóðinni. Dregið hefði úr reykingum, blóðfita hefði lækkáð í öllum aldurs- hópum og blóðþrýstingur lækkað ört. Þetta væri sama þróun og í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum, en því væri öfugt farið í Austur-Evr- Þórður Harðarson ópu. Hann sagði að gera mætti ráð fyrir einhveijum biðtíma, jafnvel nokkrum áram, áður en bati í áhættuþáttum færi að segja til sín í lækkaðri dánartíðni. Það væri í sjálfu sér ekkert óeðlilegt því vitað væri að þetta væra sjúkdómar sem væra mörg ár og áratugi að þróast og ef bætt væri úr hugsanlegum orsökum tæki líka mörg ár að snúa þróuninni við. KHÍ vinni meira með öðrum menntastofnunum kennara - segir Þórir Ólafsson nýkjörinn rektor Kennaraháskóla íslands „ÉG MIJN ekki standa fyrir bylt- ingu hér innan húss heldur starfa í þeim anda sem ríkt hefur und- anfarin ár. Hér hefur verið unnið gott uppbyggingarstarf, til dæm- is með nýjum lögum um skólann, og því verður haldið áfram. Ef nefna ætti einhveijar áherslu- breytingar þá er helst að minn- ast á að ég tel æskilegt að skól- inn vinni meira með öðrum kenn- aramenntastofnunuin en gert hefur verið. Þar með tel ég Há- skóla íslands. Ég tel mikilvægt að samnýta krafta kennara og sérfræðinga á ýmsum sviðum og ég held að vilji sé fyrir auknu samstarfi hjá flestum stofnunum á þessu sviði,“ sagði Þórir Ólafs- son, prófessor og nýkjörinn rekt- or Kennaraháskóla Islands. Þórir var kjörinn rektor í kosningu sem fór fram samkvæmt nýjum lögum KHÍ, föstudaginn 15. mars. Rektor er kosinn til fjög- urra ára. Kjör rektors fór fram samkvæmt Icigurn um skólann frá árinu 1988. I lögunum er gert ráð fyrir að fram- boð séu ekki bundin við starfsmenn skólans heldur geti hver sem er sótt um stöðuna og meti dómnefnd umsækjendur sem ekki gegni próf- essorsstöðu. Fjórir sóttu um stöð- una og um þá var kosið í fyrri umferð kosninganna. Kjósa þurfti öðru sinni um tvo efstu menn í fyrri umferð og hlaut Þórir kosningu. í fyrri umferð kusu 90,3% starfs- manna og í seinni umferð 86% starfsmanna. 46% nemenda kusu í fyrri umferð og 50% í seinni umferð. Samkvæmt nýju lögunum á al- mennt kennaranám til B. Ed.-prófs við skólann að lengjast úr 90 eining- um í 120 einingar. Viðbótareining- Morgunblaðið/Sverrir Nýkjörinn rektor kynntur. F.v.: Kristín Indriðadóttir, yfirbókavörð- ur, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, aðstoðarrektor, Þórir Ólafsson, ný- kjörinn rektor, Hjalti Hugason, starfandi rektor, og Ólafur Jóhanns- son, endurmenntunarstjóri. arnar verða í valgrein (15 einingar) og almennum þætti (15 einingar) auk þess sem reiknað verður með lengra æfingatímabili kennaranema en lögð verður áhérsla á að kynna þeim skóla úti á landsbyggðinni. Unnið hefur verið að undirbúningi fyrir breytinguna í skólanum en ekki hefur verið tekin ákvörðun um tímasetningu lengingarinnar. End- anleg ákvörðun í þessu efni er í höndum menntamálaráðherra og mun hún liggja fyrir þegar formleg inntaka nýnema fyrir næsta skólaár hefst. Aðrar nýjungar eru einnig á döf- inni í skólanum og má í því sam- bandi sérstaklega nefna dreift og sveigjanlegt kennaranám fyrir nem- endur úti á landi. Einnig má minn- ast þess að gert er ráð fyrir sérstök- um rannsóknarsjóði í nýju lögunum en áður var fé til rannsókna tekið af rekstrarfé skólans. Kennarar við Kennaraháskólann hafa 40% rann- sóknaskyldu og 60% kennsluskyldu. I Kennaraháskólanum er stærsta sérfræðibókasafn á sviði uppeldis- og skólamála á landinu og hafa umsvif þess aukist töluvert á und- anförnum árum. Sífellt algengara er að aðilar utan skólans notfæri sér þjónustu safnsins. Útlánaaukn- ing milli skólaáranna 1988/89 og 1989/90 jókst um 28,8%. 671 var á kjörskrá í rektorskosn- ingunum. Þar af voru 72 starfs- menn og 599 nemendur. Viðráðanlegir áhættuþættir Nikulás sagði að engin trygging væri fyrir því að dæmið snerist ekki við aftur, en hjá þjóðum, þar sem þessi þróun hefði byijað fyrst eins og í Bandaríkjunum, hefði hún hald- ið áfram í a.m.k. 20 ár. Þetta væri væntanlega undir því komið hvernig við lifðum og hvernig okkur gengi að ráða við þessa áhættuþætti, sem væru reyndar allir viðráðanlegir ef vilji væri fyrir hendi. Uppörvandi breyting Hann sagði að það væri mjög uppörvandi að sjá þessa breytingu til batnaðar. Einnig væri eftirtekt- arvert í þessu sambandi að lækkun á dánartíðninni væri fyrst og fremst hjá miðaldra fólki, en ekki í elstu aldursflokkunum. Það væri út af fyrir sig gott, því það sem mönnum hefði fundist einna verst við þessa kransæðasjúkdóma væri að þeir hefðu verið að leggjast á fólk á besta aldri, milli 40 og 60 ára, en í þeim aldursflokkum gætti einmitt mestrar lækkunar. MONICA- skráningin, sem er fjöl- þjóðleg rannsókn á vegum Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, sem Rannsóknarstöð Hjartaverndar hef- ur annast á íslandi síðan 1981, held- ur væntanlega áfram um ófyrirsján- lega framtíð að sögn Nikulásar, því þetta væru mikilvægar upplýsingar til að fylgjast með þróuninni. Áður en skráningin kom til sögunnar hefði aðeins verið hægt að styðjast við dánartíðnina en hún segði ekki nógu mikið, því dánartíðnin gæti breyst af ýmsum orsökum eins og bættri meðferð án þess að sjúkdómurinn væri nokkuð að minnka. Þáttur læknismeðferðar Þórður sagði að venjulega væri einblínt á fyrrnefnda áhættuþætti þegar verið væri að velta fyrir sér lækkun á dánartíðni æðakölkunar og kransæðasjúkdóms. Því hefði hann reiknað út það sem sér þætti vera líklegur árangur læknismeð- ferðar þessi misserin og eins og hann hefði verið fyrir 10 árum síðan. Hann hefði stuðst við erlendar fyrir- myndir og tekið inn í myndina þætti eins og kransæðaaðgerðir, útvíkkan- ir á kransæðum, endurlífgun á hjartasjúklingum útan sjúkrahúsa, notkun vissra lyfja sem eru þekkt af því að lengja líf sjúklinga til dæm- is svokallaðra betablokkara, og svo bættan árangur í meðferð bráðrar kransæðastíflu. Hann sagði að kransæðaaðgerðir hefðu verið um það bil 50 á ári fyr- ir 10 árum, en á þessu ári verði þær yfir 200. Talið er að lifun hjá sjúkl- ingum, sem hafa kransæðasjúkdóma í öllum þremur aðalkransæðunum, sé um 2% meiri fyrstu árin eftir aðgerðina en ef þeir hefðu ekki geng- ist undir aðgerð samkvæmt tölum frá MONICA rannsókninni. 6% ávinningur er því eftir þijú ár, sem þýðir að með auknum kransæðaað- gerðum væri bjargað lífi níu sjúkl- inga, sem ekki hefði verið bjargað fyrir 10 árum. Kransæðaútvíkkanir voru ekki framkvæmdar fyrir áratug, en eru nú um 50 til 100 árlega. Þórður sagði að ekki væri vitað með vissu hver árangurinn væri, en áætlaði að útvíkkanir björguðu einu mannslífi á ári. Varðandi endurlífganir á hjarta- sjúklingum utan sjúkrahúsa þá eru til tvær rannsóknir að sögn Þórðar. Sú eldri sýndi að þremur sjúklingum var bjargað með þessurn hætti og útskrifuðust þá af sjúkrahúsi án heilaskemmda, en nú er fjöldinn yfir sex á ári, sem þýðir þrjú mannslíf til viðbótar. Um það bil 7.500 íslendingar taka svokallaða betablokkara að stað- aldri. Sumir taka þessi lyf vegna háþrýstings, aðrir vegna kransæða- sjúkdóms. Lífslíkur meðal þeirra sem taka betablokkara eftir kransæða- * stfflu batna að meðaltali um 1-2% á ári og sagðist Þórður gera ráð fyrir að um sjö íslendingar héldu lífi núna vegna þessarar meðferðar, en það hefðu þeir ekki gert fyrir 10 áram þegar notkun þessara lyija var ekki komin á þetta stig. Loks nefndi Þórður árangur af meðferð bráðrar kransæðastíflu. Dánartalan var um 43 % fyrir 10 árum, en er nú um 36 %, sem er ávinningur upp á 7%. Hann áætlaði að 40 mannslíf björguðust nú á ári með bættri meðferð kransæðastíflu, en óvissumörk væru víð. Um 60 mannslífum bjargað á ári? Þórður áréttaði að skýra mætti lækkandi dánartíðni kransæðasjúk- dóms með tvennum haétti. Annað hvort með því að áhættuþættirnir væru á niðurleið eða vegna bættrar læknismeðferðar, en um 60 manns- lífum væri hugsanlega bjargað á ári vegna læknismeðferðar. Það léti nærri að væri sá fjöldi hjartasjúkl- inga, sem héldi lífi núna en hefði látist ef dánartíðnin hefði verið sú sama og fyrir 10 árum. „Með þessu er ég ekki að segja að áhættuþættirnir séu lítilvægir, alls ekki, en það er erfitt' að segja hvort vegur meira. Eins hafa áhættuþættir eins og blóðfíta lækkað hratt á undanförnum áram og það getur verið að við séum ekki enn farin að njóta ávaxtanna af því til fulls.“ Golfvöllurinn í Hveragerði verður hinn glæsilegasti. Útivistarsvæði við Hveragerði: Golfvöllur í bígerð BÚIÐ er að teikna golfvöll fyrir Golfklúbb Hveragerðis sem fyrirhug- að er að byggja á næstu árum. Golfvöllurinn verður hluti af miklu útivistarsvæði sem Hvergerðingar hyggjast gera í nágrenni bæjarins. Samstaða um það sem mestu varðar Hannes Þorsteinsson teiknaði völl- inn fyrir þremur árum að beiðni Golfklúbbs Hveragerðis og er hann níu holur, par 35. Hann er ekki nema 2.560 metra langur en „bætir það upp með kröfu um nákvæmni í högg- um,“ eins og Hannes segir*í greinar- gerð með vellinum. Vellinum er ætl- að að rísa á jörðinni Gufudal fyrir ofan Hveragerði og verður trúlega einn fárra valla í heiminum með kraumandi hveri og íjúkandi heitar tjarnir. Þetta kemur fram í blaði sjálf- stæðismanna, Béess, í Hveragerði. Starfshópur menntamálaráðuneytisins: Stuðningur við íþrótta- menn endurskoðaður Menntamálaráðherra hefur skipað starfshóp til þess að semja drög að frumvarpi til laga um stuðning ríkisins við afreksmenn í íþróttum. Starfshópinn skipa: Reynir G. Karlsson íþróttafulltrúi ríkisins, Sveinn Björnsson forseti íþróttasam- bands íslands og Ingi Björn Alberts- son alþingismaður. Stefnt er að því að frumvarp um þetta efni verði lagt fyrir næsta þing, segir í fréttatilkynningu frá mennta- málaráðuneytinu. eftir Eyjólf Konráð Jónsson Alþingi samþykkti vorið 1988 þingsályktun frá Kjartani Jóhanns- syni, nú sendiherra, um kosningu níu þingmanna í nefnd „til þess að taka til sérstakrar athugunar þá þróun sem fyrir dyram stendur í Evrópu, einkanlega með tilliti til ákvörðunar Evrópubandalagsins um sameiginlegan innri markað". Nefndin hóf þegar störf. Hafa þau verið mikil og formlegir fundir með fjölda manna orðnir á annað hundr- að. Um gæði þeirra er ég ekki dóm- bærastur en leyfi mér þó að fullyrða að það hafi verið gott verk þegar nefndarmenn sameinuðust um skýrslu til Alþingis við þinglausnir í fyrravor, en þar er samstaða um nokkra þá þætti sem mikilvægastir eru. Heildarskýrslu gaf nefndin svo út skömmu fyrir jól og er í henni mikill fróðleikur á nær 300 blaðsíð- um. Varla geta menn með auðveld- ari hætti en lestri hennar öðlast þekkingu á málefninu. Bókin heitir „ísland og Evrópa". Hún fæst i bókabúðum. Hér er auðvitað enginn kostur á að rekja efni bókarinnar enda ekki tilgangur þessarar greinar heldur aðeins að geta um þrennt sem nefndarmenn Evrópustefnunefndar voru sammála um í skýrslu sinni til Alþingis. Verður nú birt úr skýrslunni: „1. Aðild að Evrópubandalaginu er ekki á dagskrá Enginn íslensku stjórnmálaflokk- anna hefur á stefnuskrá sinni aðild að Evrópubandalaginu. Sumir flokkanna orða það svo í stefnuyfir- lýsingum sínum og samþykktum að umsókn um aðild sé ekki á dag- skrá. Aðrir kveða svo að orði að aðild komi ekki til greina. Eyjólfur Konráð Jónsson 2. Tryggja þarf betri markaðskjör fyrir íslenskar afurðir Nefndin er sammála um að sem fyrst þurfti að ná hagstæðari við- skiptasamningum við EB en nú gilda. Evrópubandalagið boðar gagnkvæmni í viðskiptum og var það sjónarmið viðurkennt með bók- un 6 á sínum tíma. Þá felldu íslend- ingar niður tolla á meginhluta út- flutnings EB til íslands gegn því að við fengjum svo að segja toll- fijálsan innflutning til bandalagsins á aðalútflutningsvöru okkar, fiski og fiskafurðum. íslenskar fiskaf- urðir eru í þessu samhengi hliðstæð- ar iðnvarningi. I samningunum 1972 vaf sú gagnkvæmni viður- kennd sem við höfum síðar haldið okkur að og ætlumst til af Evrópu- bandalaginu. Það er því fullkomið réttlætismál að óska þess af EB að það virði gjörbreyttar aðstæður, sem sköpuðust við fjölgun banda- lag^ríkj^, þav sein þungbæiir tollar, „Þegar Evrópunefndin ákvað fyrir réttu ári að freista þess að ná sem víðtækustu samkomu- lagi allra stjórnmála- flokkanna var ljóst að verkið yrði erfitt. Svo reyndist líka og menn birtu sérálit sín og skýr- ingar. Mér var það gleði- efni, og ég held nefndar- mönnum öllum, að fullt samkomulag náðist um það sem mestu varðar í bráð og lengd. Sú stefna stendur.“ sem áður vora ekki fyrir hendi, leggjast nú á íslenskar afurðir. 3. Ekki aðgang að fiskimiðum * í stað aðgangs að markaði Allir íslensku stjórnmálaflokk- arnir hafa lýst því að ekki komi til greina að veita Evrópubandalags- ríkjum veiðiheimildir í fiskveiðilög- sögu Islendinga í skiptum fyrir toll- alækkanir. Um þetta er full sam- staða í nefndinni.“ Þegar Evrópunefndin ákvað fyrir réttu ári að freista þess að ná sem víðtækustu samkomulagi allra stjórnmálaflokkanna var ljóst að verkið yrði erfitt. Svo reyndist líka og menn birtu sérálit sín og skýring- ' ar. Mér var það gleðiefni, og ég held nefndarmönnum öllum, að fullt samkomulag náðist um það sem mestu varðar í bráð og lengd. Sú stefna stendur. Höfundur cr þingmaöur Sjilfstæðisflokksins og formaður Evrópustefnunefndar Alþingis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.