Morgunblaðið - 04.04.1991, Page 31

Morgunblaðið - 04.04.1991, Page 31
MORGÚNBLÁÐIÐ 'FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991 Reykhólasveit: Lá við stórslysi í Gilsfirði Rnirl/tinlncirnil Bíllinn sem lcilti útaf i Giisfirði. Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson OLAFUR Erlingsson, Reykhólum, var að hreina snjó af veginum í Gilsfirði fyrir nokkru þegar tönn- in á vörubíl hans rakst í þiðan veginn og slitnaði af. Bíllinn fór yfir tönnina, út af veginum og fór niður háan vegkant, niður í dý og stöðvaðist þar. Ef billinn hefði lent öðruhvoru megin við dýið hefði vart þurft að 'spyija að leiks- lokum. Brekkan sem bíllinn fór út af er brött og þar fyrir neðan hamrar. Bílstjóri slapp furðulítið meiddur en bíllinn er mjög mikið skemmdur. Samkvæmt upplýsingum frá Guð- mundi Hjartarsyni verkstjóra, Reyk- hólum, mun orsök slyssins hafa ver- ið sú að undir snjónum var vegur þíður og þá er hætt við að tönnin á bílnum rekist ofan í veginn og skemmdir verði á vinnutækjum. Guðmundur sagði að tveir aðrir bílar Vegagerðarinnar á Vestfjörðum hefðu skemmst sama dag. Þeir bílar voru frá Þingeyri og ísafirði. Þeir voru að hreinsa snjó. Bílarnir sem eru notaðir við hreinsun vega, aka hratt, sennilega með 50 til 60 km hraða og ef tönn- in rekst í verður óhjákvæmilega skaði. Hins vegar er afar lítil hætta að nota þessa bíla með tönn framan á sér á malbikuðum vegum og þegar vegir eru frosnir undir snjónum. - Sveinn Borgarfj örður: Skallagrímur sigraði í spurningakeppni UMSB Kleppjárnsreykjum. UNGMENNASAMBAND Borgar- fjarðar var stofnað 1912. Ung- mennafélögin hafa frá stofnun verið útvörður um allskonar skemmtanir og menningarsam- komur og svo er enn. Nú í vetur stóð Ungmennasam- band Borgarfjarðar fyrir spurninga- keppni milli ungmennafélaganna innan UMSB. í síðustu lotunni sem fram fór í Logalandi voru fjögur lið eftir og fyrst kepptu Ungmennafé- lagið íslendingur og Ungmennafé- lagið Brúin og fóru leikar 8-6. í síðari lotu kepptu Ungmennafé- lagið Skallagrímur og Ungmennafé- lagið Dagrenning. Leikar fóru 13-11. Ingimundur Ingimundarson stjórnaði spurningakeppninni af mik- illi röggsemi og í hléi spilaði Bjarni Valtýr Guðjónsson undir hjá Þorkatli Guðbrandssyni sem söng nokkrar gamanvísur. Hófst nú úrslitalotan og kepptu íslendingur og Skalla- grimur og lokatölur urðu að lið Skal- lagríms sigraði 12-9. Lið Skallagríms skipuðu Guðjón Ingvi Stefánsson, Jón Bjömsson og Gísli Ólafsson. - Bernhard »« ) ---- Getspakir fá ferða- verðlaun NÝTT íslenskt sönglag verður frumflutt á öllum útvarpsrásum landsins í dag, þann 4.4., klukkan 4.44. Lagið er liður í ferðaget- raun. í fréttatilkynningu segir, að hlust- endur geti spreytt sig á því næstu daga að giska á hverjir séu höfund- ar lagsins, sem er flutt af Berglindi Björk Jónasdóttur. Þeir sem geta rétt fá að launum ferð fyrir tvo til Akureyrar, ásamt gistingu á hóteli þar og boðsmiða á leiksýningu, auk fleira. Úr fréttatilkynningu. Gunnarssalur: Sýning Hjördísar og Þórdísar framlengd SAMSÝNING Hjördísar Bergsdóttur og Þórdísar Ámadóttur á málverkum í Gunnarssal, Þernunesi 4, Arnarnesi, hefur verið framlengd um einn dag. Sýningin var opnuð á pálmasunnudag, og verður hún opin laugardaginn 6. apríl frá kl. 14-18. Gunnarssalur var opnaður í júní Sýning þeirra Hjördísar og Þórdís- á síðasta ári í minningu Gunnars ar er þriðja sýningin í salnum, og Sigurðssonar, sem rak Listvinasal- jafnframt fyrsta samsýningin. Að- inn við Freyjugötu til margra ára. gangur að sýningunni er ókeypis. 31 Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Athygli vakin á sýningu hestamanna Stórsýning sunnlenskra hestamanna hefst í Reiðhöllinni S Víðidal á föstudag og lýkur á sunnudagskvöld. Á sýningunni verður margt atriða, til dæmis sýning gæðinga og kynbótahrossa, nautareið, hund- urinn Santos sýnir listir sínar undir stjórn Unn Krogen og Halli og Laddi skemmta. í gær vöktu sunnlensku hestamennirnir athygli borgarbúa á væntanlegri sýningu með því að fara niður Laugaveginn á hestvagni. Með í för var Þórhallur Sigurðsson, Laddi, í gervi Magn- úsar bónda. Pétur Bjarnason Iijá ístess. Pétur Bjarnason hjá Saga Film. MYNDABRENGL Þau mistök urðu í blaðinu í gær að mynd af Pétri Bjarnasyni framkvæmda- stjóra Saga Film birtist með grein eftir Pétur Bjamason markaðsstjóra hjá Istess hf. á Akureyri. Blaðið biður þá nafna velvirðingar á þessum mistökum. FRYSTIKISTUR SPADUIVERÐIÐ SPÁDU í VERÐIÐ SPÁDU í VERDID Öll verð miðast við staðgreiðsluverð 152 lítra kr. 31.950,- 191 lítra kr. 34.990,- 230 lítra kr. 38.730,- 295 lítra kr. 41.195,- 342 lítra kr. 43.360,- HEIMILISKAUP HF • HEIMILISTÆKJADEILD FÁLKANS • SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670. # Innrabyrði úr hömruðu áli # Lok með ljósi, læsingu, jafn- vægisgormum og plastklætt # Djúpfrystihólf # Viðvörunarljós # Kælistilling # Körfur # Botninn er auðvitað frysti- flötur ásamt veggjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.