Morgunblaðið - 04.04.1991, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 04.04.1991, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Hrúturinn fær gott ráð hjá vini sínum, en óvæntur at- burður kann að valda honum vonbrigðum í starfi. Honum er ráðlegast að skoða allar ,tiliögur grandgæfilega. Naut (20. apríl - 20. maí) Það verður einhver ruglingur í lífi nautsins í dag. Því finnst sem einhver sem það treysti á hafi brugðist. Það verður að breyta áætlunum sínum umtalsvert. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 5» Tvíburinn ætti að gæta þess vandlega að láta ekki misnota sig undir yfirskini vináttu. Þetta er heppilegur dagur fyr- ir hann til að leita ráða. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Krabbinn er óviss um stöðu sína í ástarsambandi. Það koma ekki allir til dyranna eins ogþeireru klæddir. Hann ætti að láta heilbrigða skyn- semi fremur en óskhyggju ráða ferðinni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ljónið á erfitt með að einbeita Jt sér í dag og eitthvað verður þess valdandi að það neyðist tii að breyta tímaáætlun sinni. Meyja (23. ágúst - 22. september) á* Eitthvað allsendis óvænt ger- ist í félagslífinu hjá meyjunni núna. Hún ætti ekki að taka fjárhagslega áhættu, heldur vera með báða fæturna á jörð- inni. V°g (23. sept. - 22. október) Óvæntir atburðir gerast í dag innan Qölskyldu eða á heimili vogarinnar. Dómgreind henn- . ar er í sljóasta lagi. Sþoródreki (23. okt. -21. nóvember) Sporðdrekinn á von á fréttum bréfleiðis eða símleiðis í dag. Það er ekki heppilegt fyrir hann að byija á nýju verkefni núna. Bogmaóur (22. nóv. — 21. desember) Óvænt þróun á sér stað í fjár- málum bogmannsins í dag. Hann ætti að vera á varð- bergi gagnvart viðskiptatil- boðum sem ekkert stendur á bak við. Steingeit (22. des. - 19. janúar) & Steingeitin er í uppreisnar- gjömu skapi í dag, vill vera fijáls og áháð og er ófús að sinna hversdagsstörfum. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Annaðhvort sér vatnsberinn hlutina ekki í sínu rétta Ijósi núna eða honum berast rang- ar upplýsingar. . Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Fiskurinn eignast nýja vini núna eða hittir einhveija manneskju sem hann hefur ekki séð langalengi. Hann ætti ekki að láta hafa sig að ginningarfífli. Stjörnuspána á aó lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staóreynda. GRETTIR TOMMI OG JENNI LJOSKA þo HEFU/e S/e,e/F/tÞ AL\/£<b F/e'ABÆ/er T/l BOD, PHENGU/e /n/NN!Sn/lLP' S*LO ! é<oSAGE>/ Þé/d~\. ADþAPUeHI B/AISFIS ) v'/eo/TJ 9, / FERDINAND SMAFOLK BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Almennt er ekki skynsamlegt að fara í slemmu þar sem ÁD vantar í tromplitinn. En þegar vitað er af 10-11 trompspilum á milli handanna breytist viðhorf- ið, enda töluverðar líkur á há- spili stöku fyrir framan KG. Þannig hugsuðu margir kepp- endur á Islandsmótinu þegar þeir ákváðu að keyra í 6 lauf með spil norðurs eftir grandopn- un félaga: Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♦ Á6 y D9 ♦ D ♦ KG987642 Austur ♦ K1085 ¥K4 ♦ 1087654 ♦ D ♦ DG92 ♦ Á73 ♦ ÁKG9 ♦ 103 Siemman var sögð á fjórum borðum af átta, en vannst aðeins á einu. Á hinum borðunum fjór- um reyndu menn 3 grönd, sem fóru 1-3 niður. í leik VÍB og Púlsins opnaði Púlsarinn Valur Sigurðsson á grandi og Guð- mundur Sveinsson yfirfærði í lauf með 2 spöðum. Valur neit- aði hákarli í litnum með 3 lauf- um (annars segir hann 2 grönd), en Guðmundur hélt sínu striki, spurði um ása og fór í slemmu. Karl Sigurhjartarson spilaði út hjartagosa, drottning, kóngur og ás. Valur varð nú að afgreiða taparana í hálituriUm strax og spilaði því þrisvar tígli. En vest- ur gat trompað tígulgosann og þvingað Val til að svína spaða síðar í spilinu. Einn niður. Á hinu borðinu varð Þorlákur Jónsson sagnhafi í sama samn- ingi í norður. Hann fékk út tígul, sem hann drap á ás og spilaði strax lauftíu. Júlíus Siguijóns- son í vestur var eldsnöggur að láta lítið lauf, en Þorlákur fékk hugljómun og stakk upp kóng, 16 IMPa sveifla. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á stórmótinu í Linares á Spáni um daginn kom þessi staða upp í næstsíðustu umferð í viðureign þeirra Mikhail Gurevich (2.650), sem nú teflir fyrir Belgíu, og Anatoly Karpov (2.725), fyrrum heimsmeistara, sem hafði svart og átti leik. Eftir afar illa teflda skák þar sem Karpov stóð framan af betur, átti hann nú í vök að veijast í endatafli, með peði minna, gegn tveimur samstæðum frípeðum andstæðingsins. En Karpov tryggði sér jafnteflið með laglegum leik: vitaskuld ekki vegna 46. - Hal mát og 46. Hbl - Re3 er í góðu lagi á svart, svo hvítur verður að drepa riddarann) 46. Bxg4 - Hal+, 47. Kh2 - c2 og samið var um jafntefli, því hvítur verður að láta hrókinn fyrir svarta frípeð- ið og þá er komin upp dauð jafn- teflisstaða. Loftið var lævi blandið í þess- ari skák, því fyrr á mótinu hafði Karpov látið hafa eftir sér að Gurevich hefði tapað viljandi fyrir Kasparov heimsmeistara. Hvorug- ur þessara ágætu skákmanna virðist þrífast vel á illdeilum, a.m.k. virtust þeir báðir tefla þessa skák illa. Vestur ♦ 743 ♦ G108652 ♦ 32 ♦ Á5 Suður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.