Morgunblaðið - 04.04.1991, Síða 42

Morgunblaðið - 04.04.1991, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991 fclk í fréttum H AFNARFJ ÖRÐUR: Franskir dagar í Fjörukránni Hard Rock ostborgari aó hætti hússins Velkomin á Hard Rock Cafe, sími 689888 SUÐUREYRI Pitsur og franskar í þorra- trogum unglinganna Súgfirskir krakkar á aldrinum 10-15 ára héldu sitt eigið þorrablót á Suðureyri föstudaginn 15. mars. Þar voru brúkaðar allar sömu venjur og á blótum fullorð- inna. Blótið hófst með borðhaldi þar sem matur var snæddur úr trogum að gömlum sið, hætt er þó að mörgum fomkappanum hafí þótt lítið til koma um innihald troganna þar sem sjá mátti í pitsur, fran- skar og annan nútímavarning. Að borðhaldi loknu upphófst klukkutíma leikdagskrá sem var leikstýrt af Guðnýju Erlu Guðna- dóttir, 15 ára. Góður rómur var gerður að sýningunni en til hennar var boðið öllum þeim sem ekki tóku þátt í blótinu. Að sýningunni lokinni var diskótek þar sem dans var stiginn fram eftir kvöldi. Til stóð að bjóða krökkum þátttöku frá nærliggjandi byggðarlögum en þar sem allar heiðar voru tepptar vegna snjóa varð ekkert úr því. Að sögn krakkanna eru þeir stað- ráðnir í því að gera þetta að árviss- um atburði. - Sturla Pálíí Björgunarhundar þjálfaðir Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Sólveig Smith, formaður björgunarhundasveilar Hjálparsveita skáta, ásamt nokkrum þátttakendum og hundinum Garpi við snjóbíl Hjálparveitar skáta á ísafirði. isaSorður! Björgunarhundasveit Hjálpar- sveitar skáta var með árlegar þjálfunar- og úttektaræfingar á Breiðdalsheiði dagana 15.-22. mars. Þetta er 9. árið sem sveitin heldur slíka samæfingu en þátttak- endur eru víða af landinu. 14 hund- ar voru í þjálfun, en í lok námskeiðs- ins eru þeir flokkaðir eftir hæfileik- um til leitar, og þeir sem ná ákveðn- um árangri eru teknir í sveitina sem útkallshundar til leitar að fólki. Sólveig Smith, formaður deildar- innar, var ánægð með árangurinn þegar fréttaritari hitti hana ásamt öðrum aðstandendum námskeiðsins í fannferginu á Breiðdalsheiði, en að hennar sögn er það 1-2 tíma vinna á dag alla daga ársins að halda hundi í þjálfun. Hún sagði að tegund skipti ekki máli og stað- reyndin væri að blendingar væru oft betri en hreinræktaðir hundar. Starfsævi leitarhunda er mjög stutt, og varla lengri en 4-5 ár. Vaxandi áhugi hefur verið hér vestra á að þjálfa hunda til leitar, en á námskeiðinu eru 5 hundar frá ísafírði og Bolungarvík. Kristján B. Guðmundsson á Isafirði sem á hund á námskeiðinu sagði að mikil framför hefði orðið hjá hundunum tísku generála á tímum Napoleons Bonaparte og tónlistarmennirnir ganga á milli borða og spila Undir himnum Parísarborgar. Veislan hefst á pönnuköku sem fyllt er rækjum og grænmeti og í kjölfarið fylgir gufusoðin smálúðu- rúlla fyllt með sveppum, blaðlauk og kræklingasósu. Með þessu er veitt Riesling Hugel hvítvín. Til að skola niður sjávarrétta- bragðinu er borið fram sítrónukrap með múskati. Loks er borin fram léttsteikt villi- gæsabringa með rifsbeijasósu. Veislunni lýkur með ávaxtasalati í ensku kremi. Öll herlegheitin kosta 2.700 kr. sem varla getur talist mikið fyrir fimmrétta máltíð og notalega stund í frönsku andrúmslofti. Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson Þessi myndarlegi hópur sá um skemmtidagskrá á þorrablóti súgfirskra krakka. Franskir dagar standa yfir á Fjörukránni í Hafnarfirði út marsmánuð. Boðið er upp á fimm- rétta matseðil samkvæmt franska eldhúsinu en yfirkokkur á Fjöruk- ránni er Ásbjörn Pálsson sem hefur sótt menntun sína og starfað í Frakklandi. Til að skapa franska stemningu hefur Jóhannes Viðar Bjarnason eigandi Fjörukráarinnar boðið til sín frönskum og íslenskum tónlistar- mönnum sem leika franska tónlist, eins og t.a.m. lög Edith Piaff. Tón- listarmennirnir eru Jón Moller píanó, Guðni Þ. Guðmundsson harmonikkuleikari, Martiel Nadeau flautuleikari, Hrönn Geirlaugsdóttir fíðluleikari og söngkonurnar Sól- veig Birgisdóttir og Jóhanna Linnet. íjónarnir eru klæddir samkvæmt og menn væntu þess að þarna feng- just nægjanlega góðir hundar til leitar, því þegar á slíkri hjálp þyrfti að halda væri veður vanalega þann- ig að ekki væri hægt að fá hjálp að fyrr en að löngum tíma liðnum, en tíminn er oft sá þáttur sem set- ur hundunum helstu mörkin. Auk Sólveigar voru Ásgeir Sverr- isson og Norðmaðurinn Teije Jo- hansen leiðbeinendur. - Úlfar. Morgunblaðið/Sverrír Starfsfólk og eigandi Fjörukráarinnar. F.v.: Brynja Þórhallsdóttir þjónn, Ásbjörn Pálsson yfirkokkur, Hrafn Pálsson þjónn, Jóhannes Viðar Bjarnason eigandi og Guðrún Hafliðadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.