Morgunblaðið - 04.04.1991, Page 47

Morgunblaðið - 04.04.1991, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍI. 1991 47 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS tíUíteuuÆAJU ^E^AINl^URENI Bæta þarf aðstöðu krabbameinssjúklinga Til Velvakanda. Á næstunni er ráðgert að heíja sérstakt átak gegn krabbameini þar sem gert er ráð fyrir sérstökum aðgerðum tii að bæta aðbúnað að- standenda sjúklinga og auðvelda þeim að takast á við þá erfiðleika sem þeir standa frammi fyrir þegar þeir vegalausir þurfa að verða sér úti um húsnæði í höfuðborginni. Framtakið er lofsvert svo langt sem það nær. Ævinlega skulu þó þarfir sjúklinganna sjálfra sitja í fyrirrúmi og á meðan svo er ekki er aðstandendunum vorkunnarlaust að búa um sinn við sitt hlutskipti. Eitt brýnasta verkefnið sem fyrir liggur er að bæta aðstöðu sjúkling- anna sjálfra á þeim stofnunum sem þeir eru lagðir inn á, Allt fjármagn sem stendur til að safna saman og öll sú orka sem stendur til að leysa úr læðingi til aðstoðar við aðstand- endur er skrípaleikur einn þegar höfð er í huga hin hraksmánarlega aðstaða sjúklinganna sjálfra á þeim stofnunum sem eiga að heita til þess útbúnar að veita viðhlítandi aðbúnað sem oft er jafnframt sá síðasti sem sjúklingurinn fær. Landspítalinn, nánar tiltekið deild 13, krabbameinsdeild, er sú deild sem ljölmargir gista en í fæstum tilfellum lengi. Urbóta er þar þörf og víðar. þig ætla nú að nefna þau atriði sem nærtækust eru: 1. Þær sjúkrastofur er vita í átt að k-álmu eru allar þannig að ekk- ert opnanlegt fag fyrirfinnst. Öll sú hlið er snýr að þessari álmu er með öðrum orðum gluggalaus. Hér er um að ræða öryggisatriði ef til þess kæmi að geislavirk efni bærust út í andrúmsloftið frá k-álmu. Til að gera sjúklingum veruna sem þægi- legasta hefur verið komið fyrir vift- um sem eiga að sinna eðlilegri loft- ræstingu á þessum sjúkrastofum. Þetta kerfi er hins vegar þannig að það kæmi jafnvel alheilbrigðum manni í gröfina á innan við þremur vikum. Ég skora á alla er að þessum málum vinna að sjá til þess að þess- um sjúkrastofum verði lokað þegar í stað. Ég legg til að aðstandendur krabbameinssjúklinga setji tíma- mörk fyrir yfirstjóm Landspítalans til að framkvæma fyrmefnda að- gerð, að öðrum kosti grípi þeir til sinna ráða til þess að ósvinna þessi verði stöðvuð. 2. I auglýsingu frá Krabbameins- félagi Islands eru konur hvattar til að koma inn til skoðunar og segir þar að margir treysti á þær og þær varaðar við að bregðast sínum nán- ustu. Allt er það góðra gjalda vert og ekki að efa frómheitin sem að baki liggja. En hafið þið konur góð- ar gætt að því að ef til vill er það sú stofnun er síst skyldi sem bregst ykkur. í auglýsingu þessari er gefið eindregið til kynna að skoðun þessi sé svo markviss og örugg áð hún sé hafin yfir efa. Staðreyndin er allt önnur. Að vísu er vitað að þessar skuggamyndatökur skila árangri, en oft er það svo að þær hleypa fram hjá sér illkynja vefjum sem jafnvel hafa verið að þróast í 5-10 ár. Ágæti þeirra má því ráða af þeirri stað- reynd. Hér eru það sem oft áður peningarnir sem ráða hvaða aðferð er valin við krabbameinsleit en ekki skynsemin. Einhver áreiðanlegustu tæki sem nú er völ á eru sónar og hið nákvæma tæki sem Landspítal- inn einn hefur yfir að ráða í þessu skyni. Það ber að umbylta núverandi kerfi og taka þessa tækni hvarvetna inn í heilbrigðiskerfið til heilla fyrir landslýð allan þannig að við getum horft til ársins 2000 og sagt með réttu, að eitthvað hafi verið gert og eitthvað áunnist í stað þess sem nú er að um „framfarir“ flestar á sviði krabbameinslækninga má lesa af bókum um og fyrir 1960. Guðni Björgólfsson, Húsi Krabbameinsfélagsins i Skógarhlíð. SNYRTIVÖRUKYNNINGAR ★ Clara, Austurstræti 3, FIMMTUDAGINN 4. APRÍL KL. 12.00-18.00. ★ Clara, Laugavegi 15, FÖSTUDAGINN 5. APRÍL KL. 12.00-18.00. ★ Clara, Kringlunni 8—12, LAUGARDAGINN 6. APRÍL KL. 11.00-16.00. Hann er týndur. Gestur var með svarta ól og gyllta tunnu, en eig- andi hans telur allt eins líklegt að hann sé búinn að nudda búnað- inn af sér. Tapað gullarmband Gullarmband tapaðist laugardag- inn 23. mars annað hvort nærri Skipasundi 75 eða Barónsstíg 78. Finnandi hafi samband við Ingu í síma 83099. Fundarlaunum hei- tið. Orkin góð Anna Halldórsdóttir hafði sam- band og sagði: Ég var á ferð ný- lega með hópi fólks á Hótel Örk í Hveragerði. Það er víst oftar sem neikvætt heyrist frekar en já- kvætt og vil ég breyta þessu og fá að þakka kærlega fyrir mig og mína. í einu orði sagt var að- búnaðurinn og aðstaðan frábær á hótelinu og þjónustan góð og maturinn meiri háttar. Þetta kom mér á óvart því ég vissi ekki hveiju ég átti von á. Mér datt bara ekki til hugar að til væri hótel á landinu sem sinnti sínu hlutverki með jafn miklum sóma og Hótel Örk gerir. Hafið bestu þakkir fyrir ánægjulega daga og frábæra þjónustu. Ég kem örugg- lega aftur. A „I góðsemi vegur þar hver annan“ Örlagastundin upp er runnin - oddvita flokksins Davíð vó, en varaformanninn endurunninn umhverfísvænan úr skápnum dró. Menn risu á fætur með reisn í sinni en reiðir í bland, sem líka er von, því stórmennið reyndist með styttra minni en Steingrímur okkar Hermannsson. Þó prettaður úti Pálmi dúsi, prúður hann minnist þess um sinn að nefna ei snöru i hengds manns húsi af hlífðarsemi við formanninn. Bjarni Helgason Þessir hrinfídu ... Kisa týnd Alsvartur fress, eins og hálfs árs sást síðast heima við að Melgerði 31 í Reykjavík á þriðjudaginn fyr- ir rúmri viku. Hann er bæði eyrna- merktur og ber ól. Hann heitir Fúsi. Hafi einhver rekist á Fúsa þá er heimasími hans 32506. Rangt númer í Velvakanda á fimmtudaginn var klausa um ungan Högna sem hafði farið villur vega. Síminn sem upp var gefinn var rangur og hefur valdið ónæði hjá alls óhlut- aðeigandi aðila. Rétt númer er 73461. Gestur á vergangi Gestur, 7 mánaða högni, svartur á lit en hvítur undir og með svart- an hökutopp ákvað að skoða heim- inn ögn nánar á dögunum. Hann á heima á Grettisgötu 18 og síminn hjá honum er 17823. Ergó:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.