Morgunblaðið - 04.04.1991, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991
KORFUKNATTLEIKUR / BANDARIKIN
Háskólakeppnin:
Duke meistarí
mjög óvænt
ÚRSLITAKEPPIMI háskólaliða lauk um síðustu helgi með sigri
Duke háskóla. Að venju var mikið um óvænt úrslit í keppninni,
en þó var sigur Duke í undanúrslitunum gegn Las Vegas óvænt-
ust þeirra allra.
ÆT
Iundanúrslitum sigraði Kansas
lið North Carolina óvænt 79:73
og sem fyrr segir sigraði Duke lið
Las Vegas 79:77 í æsispennandi
leik. Þau úrslit voru
Gunnar mjög óvænt því lið
Valgeirsson Las Vegas var talið
skrifar nær öruggt um sig-
ur í keppninni að
hálfu nær allra „sérfræðinga.“
Úrslitaleikur Duke gegn Kansas
var einnig spennandi, en Duke hafði
samt forystu allan leikinn og sigr-
aði 72:65. Þessi sigur var einkar
kærkominn þjálfara Duke, Mike
Krzyzewski, sem hefur komið liði
sínu í fjögurra liða úrslit í fjögur
af síðustu fimm árum án þess að
hreppa þennan eftirsótta titil. Þau
lið sem hafa slegið Duke út á þess-
um tíma hafa í öll skipti hreppt titil-
inn. Krzyzewski sagði ekki skipta
máli hvað hefði gerst áður, taplið
hans ættu einnig hluta af þessum
sigri.
NBA-deildin
Liðin í NBA-deildinni eiga nú
eftir 10-13 leiki fyrir úrslitakeppn-
ina. Hörð keppni er um efstu sæti
í vestur- og austurdeild, en nokkuð
öruggt er hvaða 16 lið komast í
úrslitakeppnina. Úr austurdeild
koma lið Chicago, Boston, Detroit,
Milwaukee, Philadelphia, Atlanta,
Indiana og New York sem hefur
tapað 8 leikjum færra en lið Was-
hington. Úr vesturdeildinni koma
lið Portland, L.A. Lakers, San An-
tonio, Phoenix, Utah, Houston,
Golden State, og Seattle sem hefur
tapað sjö leikjum færra en L.A.
Clippers.
Tveir stórleikir voru um páska-
helgina í deildinni. Boston sigraði
Chicago á páskadag 135:132 í
tvíframlengdum leik í Boston Gard-
en. Að loknum venjulegum leiktíma
var staðan 110:110 og eftir fyrri
framlengingu var enn jafnt,
118:118. Það var síðan Larry Bird
sem skoraði körfu, auk vítaskots,
þegar 15 sekúndur voru tii leiksloka
sem tryggði heimaliðinu sigurinn.
Bird var stigahæstur Boston með
34 stig, en Michael Jordan skoraði
37 stig fyrir gestina.
í The Forum í Los Angeles átt-
ust við tvö efstu liðin í vesturdeild,
L.A. Lakers og Portland, á föstu-
daginn langa. Það voru gestirnir frá
Portland sem höfðu betur í viður-
eigninni, 109:105, í framlengdum
leik. Heimaliðið náði 21 stigs for-
ystu í byijun seinni hálfleiks, en
Portland skoraði 28 af næstu 34
stigum og knúði síðan fram sigur
í framlengingunni. Terry Porter
skoraði 26 stig fyrir Portland og
það sama gerði James Worthy fyrir
Lakers.
SKYLMINGAR
IMickolay Mateev ásamt nokkrum félögum í Skylmingafélagi Reykjavíkur.
Búlgarskur þjálf-
ari til Reykjavíkur
„ÞAÐ er hvalreki á fjörur okkar
að fá Nickolay Mateev hingað,'
sagði Erla Árnadóttir, formað-
ur Skylmingafélags Reykjavík-
ur, sem hefur fengið hingað til
lands skylmingakappann
Mateevfrá Búlgaríu. Hann er
atvinnumaður í íþróttinni, en
kemur hingað fyrst og fremst
sem þjálfari og mun sjá um
þjálfun á öllum stigum.
Mateev er þegar byqaður að
þjálfa skylmingamenn hjá
Skylmingafélagi Reykjavíkur.
„Hann verður hér í Ijórar vikur til
að byija með og mun þá eingöngu
sjá um þjálfun þeirra sem eru lengra
kornnir," sagði Erla. Mateev, sem
hefur þrisvar tekið þátt í heims-
meistarakeppninni, tekur þátt í HM
í Búdapest í Ungveijalandi í júní,
en eftir það kemur hann aftur hing-
að til lands.
„Við erum að sækja um árs dval-
arleyfi fyrir hann hér á landi. Þegar
hann kemur aftur mun hann hefja
þjálfun hjá okkur á fullum krafti.
Meteev mun þá þjálfa byijendur
jafnt sem lengra komna,“ sagði
Erla.
Meteev, sem er 31 ára og lærður
verkfræðingur, hefur æft skylming-
ar frá því hann var tíu ára.
G-LISTINN MEÐ FUND íKÓPA VOGI íKVÖLD:
LÍFSKJARAJÖFNU
FUNDURINN VERÐUR HALDINN í FÉLAGSHEIMILI KÓPAVOGS FIMMTUDAGINN 4. APRIL KL 20.30.
HELSTU VERKEFNI:
• Tekjujöfnun í gegnum skattkerfið með há-
tekjuskatti á laun yfir 500-600 þúsund á
mánuði hjá hjónum.
• Hækkun skattleysismarka til að tryggja betur
hag hinna lægst launuðu.
• Húsnæðisbætur fyrir leigjendur. Stórauknar
byggingar félagslegra íbúða.
• Skattlagning fjármagnstekna.
• Stytting vinnutíma - án tekjuskerðingar.
FRUMMÆLENDUR:
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra
Sigríður Jóhannesdóttir kennari í Keflavík
Valþór Hlöðversson bæjarráðsmaður í Kópavogi
^ ~ r
Ólafur Ragnar Grímsson
Sigríður Jóhannesdóttir
Valþór Hlöðversson
FLOKKUR SEM GETUR - FOLK SEM ÞORIR!
L
nHBOBB