Morgunblaðið - 04.04.1991, Qupperneq 51
KORFUKNATTLEIKUR
R 4. APR'ÍL'l9!9Í
1. deiíd kvenna:
Haukar
erumed
pálmann
í höndunum
HAUKAR standa nú með pál-
mann í höndunum í 1. deild
kvenna eftir sigur ÍR á ÍS í
gærkvöldi. Haukar eiga eftir
lokaleik sinn, gegn ÍBK og geta
tryggt sér íslandsmeistaratitil-
inn með sigri.
Sigrún Hauksdóttir var hetja ÍR
á lokamínútunni, hún nýtti
bæði vítaskot sín og kom ÍR yfir
59:58. Stúdínur fengu upplagt
tækifæri nokkrum
Frosti sekúndum fyrir
Eiðsson leikslok en heppnin
skrifar var þe;m ekki hlið-
holl og ÍR hrósaði
sigri.
bað var greinilegt að ÍR-stúlk-
urnar ætluðu ekki að láta söguna
endurtaka sig frá bikarúrslitaleikn-
um sem ÍS vann með einu stigi.
ÍR-stúlkurnar börðust vel þrátt fyr-
ir að þær hefðu ekki að miklu að
keppa og fimm mínútum fyrir leiks-
lok höfðu þær náð sjö stiga for-
ystu, 55:48. Þá fékk Linda Stefáns-
dóttir besti ieikmaður ÍR sína
fimmtu villu og ÍS sneri leiknum
sér í hag. Stúdínur skoruðu fimm
stig á hálfri mínútu og náðu síðan
forystunni 57:58 en Sigrún átti
lokaorðið eins og áður sagði.
Erfidir mótherjar
Hvað segir þú! Þetta eru ekki
góðar fréttir," sagði Gunnar
Jóhannsson, formaður borðtennis-
sambands Islands, þegar Morgun-
blaðið tilkynnti honum hvaða þjóðir
léku í sama riðli og íslendingar í
HM-keppninni, sem fer fram í Chiba
í Japan.
ísland leikur í H-riðli ásamt Dan-
mörku, Pakistan, Skotlandi,
Egyptalandi og Kúbu. „Þetta eru
allt ei-fíðir mótherjar. Ég veit ekki
um styrk Kúbumanna þar sem þeir
taka þátt í heimsmeistarakeppninni
í fyrsta skipti;“ sagði Gunnar, sem
vonast til að Island, sem var raðað
niður í næst veikasta styrkleika-
flokk, keppi við átta aðrar þjóðir
um 48.-56. sæti, en 73 þjóðir taka
þátt í HM.
Úrvalsdeild:
Höfumséð
það svartara
- segirJón Kr. Gísla-
son, þjálfari ÍBK
Keflvíkingar taka á móti
Njarðvíkingum í kvöld í öðrum
leik liðanna í úrslitum í úrvalsdeild-
inni. Njarðvíkingar sigruðu í fyrsta
leiknum, 96:59 en Jón Kr. Gíslason,
þjálfari ÍBK, segir að enn sé von
fyrir Keflvíkinga: „Ég veit að þetta
verður ofboðslega erfitt en við höf-
um séð það svartara. Við erum
bara búnir að tapa einum leik og
ég hef trú á að við getum rifíð
okkur upp eins og við gerðum á
móti KR,“ sagði Jón.
„Fyrsti leikurinn var hræðilegur
og við erum ákveðnir í að leggja
allt í leikinn. Það væri fáránlegt
að gefast upp núna og ég held að
það hvarfli ekki að neinurn," sagði
Jón.
Morgur»blaðið/Árni Sæberg
María Leifsdóttir ÍR og Vigdís Þórisdóttir ÍS eigast við í ieik liðanna í
gærkvöldi.
ÍR-ÍS 59:58
íþróttahús Seljaskólans, 1. deild kvenna
í körfuknattleik, 3. apríl 1J991.
Gangur leiksins: 16:12, 22:25, 29:27,
37:31. 55:48, 59:58.
Stig 1R: Linda Stefánsdóttir 18, Hrönn
Harðardóttir 12, Sigrún Hauksdóttir 8,
Vala Úlfljótsdóttir 6, Hildigunnur Hilm-
arsdóttir 5, María Leifsdóttir 4, Fríða
Torfadóttir 4, María Leifsdóttir 4.
Stig ÍS: Hafdís Helgadóttir 19, Vigdís
Þórisdóttir 14, Vanda Sigurgeirsdóttir
11, Kristín Sigurðardóttir 6, Díanna
Gunnardóttir 4, Kolbrún Leifsdóttir 4.
Dómarar: Jón Otti ólafsson og Einar
Einarsson. Áhorfendur: Aðgangur
ókeypis.
SKIÐALANDSMOTISLANDS A ISAFIRÐI
Kristinn sigurstranglegur í alpagreinum
KEPPNI á Skíðamóti íslands
hefst á Seljalandsdal við ísa-
fjörð í dag. Mótið var sett í
Isafjarðarkapellu ígærkvöldi.
Alls eru 75 keppendur sem
taka þátt í mótinu f rá fimm
héruðum. Nægur snjór og gott
skíðafæri er á Seljalandsdal
þar sem keppnin ferfram bæði
í göngu og alpagreinum. Fyrir-
hugað var að keppa í stökki og
norrænni tvíkeppni, en frá því
var horfið eins og fram kom í
blaðinu í gær.
Keppnin á Skíðamóti íslands
hefst kl. 10 í dag og verður
þá keppt í stórsvigi karla og kvenna.
Keppni í göngu karla og pilta 17-19
ára hefst kl. 11.
ValurB. Ekki verður keppt í
Jónatansson göngu kvenna þar
skrifarfrá gem aðeins einn
Isafiroi , ,. , ,»
keppandi var skráð-
ur til leiks. Á morgun, föstudag,
verður keppt í svigi karla og kvénna
og boðgöngu karla. Á laugardag
er samhliðasvig karla og kvenna á
dagskrá. Mótinu lýkur á sunnudag
með keppni í 30 km göngu karla
og 15 km göngu pilta 17-19 ára.
Að sögn Björns Helgasonar,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa ísa-
fjarðar, sem jafnframt er formaður
landsmótsnefndar,_ hófst undirbún-
ingur Skíðamóts íslands í janúar,
en þá var kosin landsmótsnefnd.
„Það hefur mikið starf verið unnið
enda leggjum við mikla áherslu á
að mótið fari vel fram. Alls verða
um fimmtíu starfsmenn sem koma
til með að vinna við mótið. Þar sem
mótið fer fram að mestu á virkum
dögum verða starfsmenn að sýna
mikla fórnfýsi með því að taka sér
frí frá vinnu á fimmtudag og föstu-
dag til að vinna í sjálfboðavinnu á
Dalnum og þykir það ekki tiltöku-
mál,“ sagði Björn.
Flestir keppendur koma frá
Reykjavík, eða 22 talsins, 20 þátt-
takendur eru skráðir frá Akureyri,
13 frá Ólafsfirði, 6 frá Dalvík og
14 frá Isafirði. 38 keppendur eru í
alpagreinum karla, 21 í alpagrein-
um kvenna og 16 í göngu.
Augun beinast aö Kristni
Ólafsfirðingurinn Kristinn
Bjömsson, sem hefur stundað nám
í skíðamenntaskóla í Geilo í Noregi
í vétur, verður að teljast sigur-
stranglegur í alpagreinum karla.
Hann hefur staðið sig vel á mótum
í Noregi og því fróðlegt að fylgjast
með honum á móti hér heima. Strax
eftir Landsmót fer hann til Noregs
þar sem hann tekur þátt í heims-
meistaramóti unglinga og verður
þar eini íslenski keppandinn.
í kvennaflokki er reiknað með
að slagurinn standi milli Ástu Hall-
dórsdóttur, Isafirði, og Akureyrar-
stúlknanna Maríu Magnúsdóttur og
Guðrúnar H. Kristjánsdóttur, en
Guðrún hefur ekki mikið verið með
í vetur vegna náms.
Daníel í sviðsljósinu
í göngukeppninni verður fróðleg-
ast að fylgjast með hinum unga og
efnilega Daníel Jakobssyni frá
ísafirði, sem hefur verið í skíða-
menntaskóla í Svíþjóð í vetur. Dan-
íel hefur staðið sig vel ytra og var
m.a. fyrsti íslenski íþróttamaðurinn
til að hijóta fjögurra ára styrk frá
Ólympíusamhjálpinni.
Skíðaaðstaðan á Seljalandsdal er
orðin ein sú besta á landinu. Fjórar
lýftur eru á svæðinu og tveir snjó-
troðarar sem sjá um að skíðafærið
sé alltaf upp á það allra besta bæði
fyrir skíðagöngu og alpagreinar.
ísfirðingum er það mikið kappsmál
að Skíðamót íslands takist vel, enda
er skammt stórra högga á milli hjá
þeim í mótahaldi því í næstu viku
sjá þeir um alþjóðlegt svigmót.
Þá er bara að vona að veðurguð-
irnir verði keppendum og mótshöld-
urum hliðhollir keppnisdagana, en
gott veður er forsenda þess að
mótið heppnist vel.
ÚRSUT
Knattspyrna
EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA
3. riðill:
Limassol, Kýpur.
Kýpur—Ungvetjaland.......0:2
— Jozsef Szalma 15., Jozsef Kiprich 40.
Fj. ieikja U T Mörk Stig
UNGVERJAL. 4 2 2 0 7: 3 6
ÍTALIA 3 1 2 0 5: 1 4
SOVÉTR. 2 1 1 0 2: 0 3
NOREGUR 3 1 1 1 3: 2 3
KÝPUR 4 0 0 4 2: 13 0
2. riðUl:
Neuchatel, Sviss.
.0:0
Fj. leikja u T Mörk Stig
SKOTLAND 4 2 2 0 6: 4 6
SVISS 4 2 1 1 7: 2 5
RÚMENlA 6 2 1 2 10: 6 5
BÚLGARÍA 4 1 2 1 5: 4 4
SÁN MARÍNÓ 3 0 0 3 1: 13 0
ENGLAND
.5:0
Kevin Campbell 37. og 84., Paul Davis
55., Alan Smith 59. og 61.
Staða efstu liða:
Arsenal 31 20 10 1 58:13 68
Liverpool 31 19 6 6 60:29 63
Ciyst. Palace...32 17 7 8 43:38 58
Leeds 30 15 7 8 48:31 52
FRAKKLAND
1. deild:
Lille —Monaco.....................1:3
Montpellier — Niort...............0:1
Paris StGermain — Bourges....:....1:0
Cannes —Valenciennes..............3:0
Dijon —Marseille..................0:3
Beauvais —Brest...................0:3
Tours —Toulouse...................1:0
ÍTALÍA
Undanúrslit bikarkeppninnar, síðari leikur:
Sampdoria—Napólí..................2:0
Vialli 26., Invernizzi 87. (Samdoria sigraði
samanlagt, 2:1.)
SKOTLAND
Undanúrslit bikarkeppninnar:
Motherwell—Celtic.................0:0
Liðin mætast að nýju 9. apríl og sigurvegar-
inn leikur við Dundee United eða St Jo-
hnstone.
Blak
1. deild karla:
Þróttur R.-ÍS.....................3-1
Körfuknattleikur
Staðan í 1. deild kvenna:
Fj. leikja u T Stig Stig
fs 15 11 4 812: 669 22
HAUKAR 14 11 3 781: 583 22
iBK 14 10 4 963: 635 20
IR 14 8 6 730: 699 16
KR . 13 2 11 563: 695 4
GRINDAVIK 14 O 14 437: 005 0
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmótið:
Vertíðin
byrjar
KNATTSPYRNUVERTÍÐIN
hefst í kvöld. Þá leika Víkingur
og Leiknir í Reykjavíkurmótinu,
sem ferfram á gervígrasvellin-
um í Laugardal. Leikið er í
tveimur riðlum, en mótinu lýkur
með úrslitaleik þriðjudaginn
14. maí. Sú nýbreytni verður
viðhöfð að leikir á virkum dög-
um hefjast klukkan 20 en ekki
20.30 eins og verið hefur, en
viðureignir um helgar byrja
klukkan 17.
Reykjavíkurmeistarar KR,
Víkingur, Þróttur, Ármann og
Leiknir eru í A-riðli, en Fram, Val-
ur, Fylkir og ÍR í B-riðli. Efsta liðið
í A-riðli mætir liðinu, sem hafnar
í öðru sæti í B-riðli, í undanúrslit-
um, en efsta lið B-riðils og lið núm-
er tvö í A-riðli leika hinn undanúr-
slitaleikinn. Sigurvegararnir leika
síðan til úrslita.
Leikur Víkings og Leiknis hefst
klukkan 20 í kvöld, en næstu ieikir
verða um helgina..KR og Ármann
mætast klukkan 17 á laugardag og
ÍR og Fram á sama tíma á sunnu-
dag.
BORÐTENNIS / HM
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Arsenal eykur
viðforskotið
ARSEN AL gefur hvergi eftir í
baráttunni um enska meistara-
titilinn í knattspyrnu. Liðið fékk
Aston Villa í heimsókn í gær-
kvöldi, vann 5:0 og er með
fimm stiga forystu á Liverpool,
en bæði eiga sjö leiki eftir.
iðherjinn ungi, Kevin Camp-
bell, gaf tóninn skömmu fyr-
ir hlé og eftirleikurinn var auðveld-
ur í seinni hálfleik. Paul Davis sýndi
snilldartakta á 55. mínútu og bætti
öðru marki við og tvö mörk frá
Alan Smith á næstu sex mínútum
fylgdu í kjölfarið. Nigei Spink,
markvörður Villa, lenti í samstuði
við Gampbell eftir 77 mínútur og
var borínn af velli en David Platt
fór í markið. Hann náði ekki að
halda hreinu — Campbell átti
síðasta orðið sex mínútum fyrir
leikslok.
Staða Arsenal er óneitanlega góð
og annar meistaratitillinn á þremur
árum er í augsýn. Liverpool, sem á
titil að veija, tapaði síðustu tveimur
leikjum og virðist vera að missa af
lestinni, en liðin eiga eftirtalda leiki
eftir — í réttri röð:
■ARSENAL: Sheffield Utd. (Ú), Sout-
hampton (Ú), Man. City (H), QPR (H),
Sunderi. (U), Man. Utd. (H), Coventiy (H).
■ LIVERPOOL: Coventry (H), Leeds (Ú),
Norwich (H), Crystal Palace (H), Chelsea
(Ú), Nott. Forest (Ú). Tottenham (H).
IÞROTTIR / ALÞINGI
Nýtt frumvarp um afreksmannasjóð:
Spor í rétta átt
- segir Ingi Björn, sem hefurtvisvar lagt
fram frumvarp á Alþingi um eflingu sjóðsins
Eg hef náð ákveðnum áfanga
með þessu,“ sagði Ingi Björn
Albertsson, alþingismaður og
þjálfari Valsliðsins í knattspyrnu,
en menntamálaráðlierra hefur
skipað hann, Reyni Karlsson,
íþróttafulltrúa ríksins; og Svein
Björnsson, forseta Iþróttasam-
bands íslands, í nefnd sem á að
undirbúa leggja fram tillögur fyr-
ir næsta þing að nýju frumvarpi
um afreksmannasjóð í íþróttum.
Ingi Björn hefur undanfarin ár
baríst fyrir því að ríkið legði meira
fjármagn í afreksmannasjóð, en
sjóðurinn hefur ekki haft yfir að
ráða miklu fjármagni fram til
þessa. Ingi Björn hefur undanfar-
in tvö ár lagt fram frumvarp um
eflingu afreksmannasjóðs, en
frumvörpin hafa ekki náð fram
að ganga. „Það er spor í rétta átt
að nú sé búið að skipa nefnd til
að undirbúa nýtt frumvarp," sagði
Ingi Bjöm.