Morgunblaðið - 04.04.1991, Síða 52
Kaffipokar
FIMMTUDAGUR 4. APRÍ1991
YERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Flugmannadeilan;
Samkomulag um
að fella málið nið-
ur í Félagsdómi
LOGMENN Vinnuveitendasambands íslands og Félags íslenskra
atvinnuflugmanna komust að samkomulagi í gær um að fella nið-
ur mál vinnuveitenda gegn FÍA með sátt í Félagsdómi í gær. Við-
ræður samninganefnda í kjaradeilunni hófust kl. 14 hjá ríkissátta-
semjara og stóðu fram á kvöld. Snúast þær ennþá eingöngu um
vinnutímatilhögun á grundvelli tillagna Flugleiða og er talið að
enn sé langt í að skrifað verði undir nýjan kjarasamning. Nýr
fundur hefur verið boðaður eftir hádegi í dag.
Hefur húsnæði ríkissáttasemj-
ara verið lokað fréttamönnum á
meðan viðræður standa yfir og
viðsemjendur veijast allra frétta
af gangi samningaviðræðnanna.
I þinghaldi Félagsdóms í gær
viðurkenndu flugmenn rétt VSI
og Flugleiða hf. til að ákveða skip-
an samninganefndar og hveijir
komi fram fyrir hennar hönd í við-
ræðum við FIA. Þá segir í sam-
komulaginu, að í ljósi þess að boð-
aðri vinnustöðvun var aflýst
tveimur dögum áður en hún skyldi
Svíar vilja
kaupa
sægráa
kálfa
FYRIRSPURN hefur borist
frá Svíþjóð um að fá keypta
liyrnda sægráa kálfa frá
íslandi. Að sögn Ólafs Dýr-
mundssonar, landbúnaðar-
ráðunautar, hafa ekki áður
verið fluttir út nautgripir
á fæti.
Ólafur sagði það staðreynd
að íslenskt búfé væri með
ákaflega Qölbreytilega liti,
fjölbreytilegri en gerðist ann-
ars staðar. „Við erum einskon-
ar genabanki í Iitum og reynd-
ar fleiri eiginleikum því við
höfum haft þessi einangruðu
kyn lengi. Þarna er greinilega
verið að slægjast eftir ákveðn-
um lit,“ sagði Ólafur. Hann
sagði að í flestum löndum
hefði verið unnið að því mörg
undanfarin ár að losna við
hornin af nautgripum, mönn-
um hafi þótt þægilegi'a að
umgangast 'kollótta nautgripi.
Nú eigi sú þróun sér stað að
menn kjósi fremur fjölbreytni
og kunni að meta sérstæða
eiginleika húsdýranna.
Litla stúlk-
*an er látin
LITLA stúlkan sem varð fyrir
bíl á Vesturlandsvégi við Klé-
bergsskóla á Kjalarnesi síðdegis
á þriðjudag lést af áverkum sín-
um á Borgarspítalanum í gær.
Hún var íjögurra ára gömul og
búsett á Kjalarnesi. Ekki er unnt
að greina frá nafni hennar að svo
stöddu.
koma til framkvæmda og þar sem
samningaviðræður hafi hafist með
eðlilegum hætti hafi orðið að sam-
komulagi að ljúka málinu með
sátt og beri hvor aðili sinn kostnað
af málinu.
Minni haf-
ís en í
meðalári
I VETUR hefur verið minni haf-
ís en í meðal ári hér við land,
að sögn Þórs Jakobssonar veður-
fræðings. Farið var í iskönnunar-
flug í gær og reyndist ísinn þá
vera við miðlínu milli Islands og
Grænlands.
Þór sagði, að vegna hlýinda í
sjónum við landið í vetur og aust-
lægra átta hafi ísinn verið óvenju
langt undan landi. í ískönnunarflugi
Landhelgisgæslunnar sást, að sjór
var farinn að fijósa á stóru svæði
utan við 50 sjómílur norðvestur af
Straumnesi. Ekki er þó útiit fyrir
að ísinn nálgist land næstu daga,
þar sem veðurútlit er hagstætt en
spáð er norðaustan kalda er hrekja
mun ísinn frá landi.
Morgunblaðið/RAX
Ný álsteypuvél í álverinu
Ný steypuvél sem steypir álið í klumpa sem nefndir eru barrar hefur
verið tekin í notkun í álveri ÍSAL í Straumsvík. Áður var hluti fram-
leiðslunnar steyptur í álhleifa en barrarnir eru verðmætari og eykur
tilkoma nýju steypuvélarinnar framleiðsluverðmæti verksmiðjunnar og
hagkvæmni. Til að koma nýju vélinni, sem sést hér á myndinni, fyrir,
varð að stækka steypuskála ISAL um 1.800 fermetra. Kostnaður við
verkefnið er um 700 milljónir kr.
Skuldastaða Stöðvar 2;
Munaði
hundruð-
um millj-
óna króna
- segirJóhann
J. Olafsson
JÓHANN J. Ólafsson, stjórnar-
formaður í Fjölmiðlun sf., sem
keypti mestan hluta hlutafjár í
Islenska sjónvarpsfélaginu hf. af
Eignarhaldsfélagi Verslunar-
bankans, segir að skuldastaða
sjónvarpsfélagsins hafi verið
nokkur hundruð milljónum kr.
verri en gefið hafi verið upp
hjá lánasviði Verslunarbankans.
Lögmaður Fjölmiðlunar hefur far-
ið fram á að dómkvaddir verði mats-
menn til að meta hvort lánasvið
bankans hafi veitt réttar upplýsingar
þegar 250 milljóna kr. hlutafjárkaup
aðilanna voru gerð. Að sögn Jóhanns
gaf lánasvið Verslunarbankans upp
á sínum tíma að það vantaði 500
milljónir kr. til þess að láta íslenska
sjónvarpsfélagið standa á núlli, en í
ljós hefði komið að nokkur hundruð
milljónir kr. hefði vantað upp á.
Málið verður tekið fyrir í bæjarþingi
Reykjavíkur í dag.
Að sögn Einars Sveinssonar,
varaformanns stjórnar Eignarhalds-
félagsins, var málið rætt á stjórnar-
fundi félagsins í gær. „Við ræddum
þetta og fengum álit Iögmanns fé-
lagsins. Hann mun mæta hjá borgar-
fógeta í dag og gera grein fyrir sjón-
armiðum Eignarhaldsfélagsins,"
sagði Einar.
Allt stefnir í að kjósa verði milli
manna í nýja stjórn Eignarhaldsfé-
lags Verslunarbankans á aðalfundi
félagsins í dag. Ekki liggur fyrir
hvort Haraldur Haraldsson, formað-
ur fráfarandi stjórnar, hættir við að
gefa kosta á sér til endurkjörs.
Sjá nánar Viðskiptablað Bl.
Samkomulag í fiskverðsdeilunni í Eyjafirði í burðarliðnum:
ÚA býðst til að markaðs-
tengja 15% afla togaranna
Þetta er upphafið að endalokum verðlagsráðsverðsins,
segir varaformaður Sjómannafélags Eyjaíjarðar
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa lagði á fundi í gær fram tilboð til
sjómanna á ísfisktogurum félagsins sem felur í sér að verð 15% afl-
ans verði tengt markaðsverði hverju sinni, en fyrir 85% aflans býður
ÚA að greiða 58 krónur fyrir kílóið af þorski. Þetta verð muni gilda
frá deginum í dag, til 1. september næstkomandi. Einnig kemur fram
að nefnd sjómanna og forráðamanna ÚA niuni gera könnun á sem
flestum þáttum fiskverðsmála þannig að í ljós komi hver staða ÚA er
í þeim efnum. Bjartsýni var ríkjandi um að samkomulag næðist um
þessar tillögur.
„Það er stór áfangi að ná inark-
aðstengingunni inn, þetta er upp-
hafið að endalokum verðlagsráðs-
verðsins. Ég fagna því mjög að
við erum komnir inn á þessa
braut, við höfum lengi stefnt að
þessu,“ sagði Sveinn Kristinsson
varaformaður Sjómannafélags
Eyjafjarðar, en í gærkvöld fór
kjaranefnd sjómanna yfir tilboðið
og er reiknað með að í dag verði
ákveðin almennur fundur hjá félags-
mönnum þar. sem tilboðið verður
lagt fyrir.
■Gunnar Ragnars, framkvæmda-
stjóri ÚA, sagði eftir fundinn með
sjómönnum í gær að menn hefðu
reynt að koma málinu í þann farveg
sem báðir aðilar gætu sætt sig við.
Með tillöguni fyrirtækisins væri
reynt að höggva á hnútinn í fisk-
verðsdeilunni.
í tilboði ÚA felst að fyrir 85%
aflans greiði félagið 58 krónur fyrir
kílóið af þorski, 35 krónur fyrir kíló-
ið af ufsa, 37 krónur fyrir karfa 800
grömm og þar yfir og 25 krónur
fyrir minni karfa, þá greiði félagið
53 krónur fyrir kílóið af grálúðu og
75 krónur fyrir ýsu. Verð 15% afl-
ans verði tengt markaðsverði hverju
sinni og verður þá væntanlega haft
til hliðsjónar verð þriggja markaða,
á Suðurnesjum, í Hafnarfirði og á
Faxamarkaði, en Sveinn lagði á það
áherslu að einnig yrði tekið inn í
þetta dæmi verð á fiskmarkaðinum
á Dalvík.
Þetta tilboð gildir frá 4. apríl til
1. september og þá er einnig gert
ráð fyrir að sjómenn hjá ÚA og for-
ráðamenn fyrirtækisins geri könnun
á sem flestum þáttum fiskverðs-
mála, svo sem þróun á innlendum
og erlendum mörkuðum og því verði
sem í gildi er á ýmsum stöðum á
landinu með það fyrir augum að fá
fram skýrari mynd af stöðu ÚA í
þeim málum. Þessari könnun á að
vera lokið fyrir 1. júní næstkom-
andi. Þá væntir stjórn ÚA þess að
þeir sjómenn sem sagt hafa upp
störfum ráði sig til starfa hjá félag-
inu að nýju.
Áhöfnin á Björgvin, togara Út-
gerðarfélags Dalvíkinga, tók ekki
þátt í aðgerðum sjómanna. Sjómenn-
irnir á Björgúlfi, hinum togara fyrir-
tækisins, samþykktu í gærkvöldi til-
boð útgerðanna og heldur skipið til
veiða kl. 10 í dag.
Almennur fundur félagsmanna í
Sjómannafélagi Eyjafjarðar um mál-
ið verður ákveðinn í dag.
Sjá einnig fréttir á Ákureyrar-
síðu, bls. 30.