Morgunblaðið - 14.04.1991, Blaðsíða 1
Soldáninn
stendur
sterkari
2 eítir
I0I6WM0B
SUNNUDAGUR
SUNNUDAGUR
14. APRÍL 1991
■ Halidór Jónsson sjðpðstur á Bíidudal
liefur siglt á trillu með póst ug
vörur um Arnartjörð í 18 ár ug er
sá eirfl öér á landi sem pannig
ferðast um með pðst sinn.
BLAÐ
eftir Róbert Schmidt
Það er laugardagsmorgunn
í febrúar, sól og heiðskírt.
Klukkan er að ganga ellefu
og fáir á ferli, aðeins einn
hundur sem ráfar uin
skammt frá félagsheimilinu.
Ætlunin er að fara í póstferð
með Halldóri Jónssyni, eða
Halldóri á Hóli, eins og hann
er gjarnan kallaður. Halldór
mun vera eini sjópósturinn
hér á landi, en hann hefur
siglt með póst og daglegar
nauðsynjavörur til bænda og
búaliðs í Arnarfirði í 18 ár
samfleytt, og er enn að þó
hann sé orðinn sjötugur að
aldri. Eftir fáeinar mínútur
kemur bíll og stöðvast við
smábátabryggjuna. Hann er
mættur á slaginu hálf eins
og um var talað daginn áð-
ur. Eg hjálpa honum með
póstinn og innkaupapokana
niður í bát og skömmu síðar
er haldið af stað út Arnar-
fjörðinn. Æðarfuglinn hefur
sig á loft með hröðum
vængjaslætti í allar áttir
þegar Hrafn BA ristir öld-
urnar á leið inn að Langa-
nesi.
að er hálfgerður ævintýrablær yfir þessu.
Ég horfi á kauptúnið, Bíldudal í fjarska,
þar sem það stendur undir hrikalegú fjalli.
Bárurnar endurkasta sólargeislunum í allar
áttir. Nóg er af svartfuglinum, lundar og
langvíur sjást í dreifðum hópum. Halldór
er inni í stýrishúsi og þar rúmast aðeins
einn maður. í stýrishúsinu er allt í röð og
reglu. Lítill ílangur spegill er fastur á milli tveggja
glugga, þokulúður er skorðaður niður með mjólkur-
fernu og neftóbaksdós er við kompásinn. Halldór snýt-
ir sér oft á leiðinni og sparar vasaklútinn og notar þess
í stað klósettpappír, sem síðan fer út fyrir borðstokk-
inn í metratali rétt fyrir ofan mig þar sem ég sit aftast
í bátnum á oiíubrúsa. Hann lítur við til að athuga
hvort allt sé í lagi hjá mér. Frammí iúkar er svo póst-
urinn og allir innkaupapokarnir, 11 talsins. Á dekkinu
er lítil eins manns skekta, sem erjæst með keðju og
lás, því púkarnir höfðu eitt sinn stolið skektunni.
Hrafn BA
. Halldór keypti Hrafn BA árið 1974 frá Súganda-
firði af Snorra Sturlusyni, sem er núverandi sveit-
arstjóri á Suðureyri. Þá hét báturinn Bergleifur, en
Halldór gaf honum nafnið_ Hrafn eftir Hrafni Svein-
bjarnarsyni á Hrafnseyri. í Sturlungu segir að Hrafn
Sveinbjarnarson hafi haldið úti ferju yfir fjörðinn seint
á 12. öld, og því vildi Ilalldór nefna bátinn eftir hon-
um. Hrafn er mældur 2,044 tonn, en var borðhækkað-
ur þegar hann var keyptur til Súgandafjarðar á sínum
tíma, þannig að hann er líklega um þijú tonn í dag.
Báturinn siglir áfram og aðeins fáeinar mínútur í
Langanesið. Halldór segir að Hrafn gangi sex og hálfa
mílu, og að hann sé góður sjóbátur.
Bóndií 30 ár
Halldór er fæddur á Litlueyri 13. september 1930.
Þegar hann var átta ára fluttist hann til Bíldudals og
vann verkamannavinnu sem unglingur. Rúmlega tví-
tugur hóf hann kúabúskap fram á Hóli, skammt frá
Bíldudal.
SJÁSÍÐU 12